Morgunblaðið - 27.11.1988, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ DAGBOK SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1988
In \ /"'l er sunnudagur 27. nóvember. Fyrsti
-LJx'IlVJÍ sunnudagur í jólaföstu. 332. dagur árs-
ins 1988. Árdegisflóð í Reykjavík kl. 8.33 og síðdegisflóð
kl. 21.01. Sólarupprás í Rvík kl. 10.34 og sólarlag kl. 15.56.
Myrkur kl. 17.03. Sólin er í hádegisstað_ kl. 13.15 og tunglið
er í suðri kl. 4.28. (Almanak Háskóla íslands.)
Drottinn er nálægur þeim er hafá sundurmarið hjarta,
þeim er hafa sundurkraminn anda hjálpar hann (Sálm.
34, 19).
I>ETTA GERÐIST
ERLENDIS:
1703: Lundúna-fárviðrið
mikla, sem varð 8.000 manns
að bana.
1792: Jakobínar hrifsa
völdin af Gorondínum í
Frakklandi og þá innlimuðu
Frakkar Savoy og Nissa.
1815: Rússakeisari, Alex-
ander fyrsti, gefur út pólska
stjómarskrá.
1879: Franska þingið flutti
frá Versölum til Parísar.
1905: Noregur verður sjálf-
staett konungsríki.
1912: Spánvetjar stofna
vemdarríki í Marokkó.
1919: Undirritun Neuilly-
sáttmálans og Búlgarar láta
land af hendi við Grikki og
Júgóslava.
1926: Tirana-friður ítala og
Albana.
1940: Þjóðvetjar innlima
Lothringen.
1942: Stórum hluta franska
flotans sökkt í hafnarborg-
inni Toulon.
1950: Herlið SÞ hörfar í
Kóreu.
1962: Bretar samþykkja
vopnasendingar til Indlands
vegna árásar Kínvetja.
1967: De Gaulle hinn
franski kemur í veg fyrir
aðild Breta að EBE.
1955: Þennan dag lést leik-
skáldið Eugene O. Neill.
HÉRLENDIS:
1846: Reglugerðin um
stjóm Reykjavíkur.
1858: Póstskipið Sölöven
fórst með allri áhöfn og far-
þegum við Malarrif.
1955: Lög um nýbygging-
arráð samþykkt.
1956: Vilhjálmur Einarsson
fær silfurverðlaun á
Ólympíuleikunum í Mel-
boume.
1972: Viðræður við Breta í
landhelgisdeilunni.
1978: Forseti efri deildar
Alþingis, Bragi Sigutjóns-
son, segir af sér.
1896: Þennan dag lést
Grímur Thomsen. Þennan
dag árið 1880 fæddist Frið-
rik Bjamason tónskáld.
Þennan dag árið 1975 fór
fram útför Gunnars Gunn-
arssonar skálds.
ÁRNAÐ HEILLA
Q A ára afinæli. í dag,
OV/ sunnudag 27. nóvem-
ber, er áttræð Ingileif Þ.
Steinsdóttir, Hvassaleiti 25,
hér í bænum. Hún ætlar að
taka á móti gestum á heimili
sínu í dag, afmælisdaginn,
eftir kl. 15.
Q/\ ára afmæli. í dag, 27.
Oi/ nóvember, er áttræður
Pétur G. Jónasson,
Drápuhlíð 23, hér í
Reykjavík. Hann var starfs-
maður Landhelgisgæslunnar
í 46 ár. Eiginkona hans,
Halldóra Guðmundsdóttir,
lést á síðastl. ári.
LÁRÉTT: 1 útfall, 5 koft, LÓÐRÉTT: 2 hátíð, 3
8 leðurreimina, 9 æki, 11 blóm, 4 almennur siður, 5
gubbaðir, 14 vond, 15 röltið, kefli, 6 fótaskemmd, 7
16 holdfúa, 17 skyldmennis, þreyta, 9 stríðsmenn, 10
19 rengir, 21 beitu, 22 skeyt- mjög slæmt, 12 piltar, 13
ingarleysi, 25 hef ánægju af, rimlagrindina, 18 hrun, 20
26 huldumann, 27 sefa. skrúfa, 21 bardagi, 23 leyf-
- ist, 24, reið.
LAUSN SIÐUSTU KROSSGATU:
LÁRÉTT: 1 sálga, 5 sunna, 8 æftng, 9 raust, 11 aggan,
14 aur, 15 fálan, 16 akrar, 17 son, 19 agns, 21 átta, 22
nærðist, 25 iði, 26 áar, 27 aki.
LOÐRETT: 1 ála, 3 gæs, 4 aftans, 5 snaran, 6 ugg, 7
nóa, 9 rofnaði, 10 ullinni, 12 görótta, 13 norpaði, 18 orða,
20 sæ, 21 ás, 23 rá, 24 ir.
P7 p* ára afmæli. Á morg-
I ÍJ un, mánudaginn 28.
þ.m., er Friðrik Á. Jóhanns-
son frá Auðkúlu í Arnar-
firði, Lækjargötu 6 hér í
bænum, fyrrum starfsmaður
Áburðarverksm. ríkisins, 75
ára. Kona hans, Sólveig Þor-
gilsdóttir frá Innri-Borg í
Fróðárhreppi, er látin fyrir
nokkrum árum. Nk. laugar-
dag, 3. desember, ætlar hann
að taka á móti gestum á heim-
ili sonar síns á Brekkutanga
31 í Mosfellsbæ eftir kl. 18.
AA ára afinæli. í dag, 27.
övl nóvember, er sextugur
Stefán Hallgrímsson mál-
ari, Hábergi 10, Breiðholts-
hverfi. Hann og kona hans,
Edda Bjömsdóttir, ætla að
taka á móti gestum á heimili
sínu í dag, afmælisdaginn,
kl. 17-19.
FRÉTTIR
Jólafastan gengur í garð í
dag. Nafnið aðventa — jóla-
fasta — er dregið af latneska
orðinu adventus: þ.e. koma
Krists, og skírskotar til jól-
anna sem framundan eru,
segir í Stjömufræði/Rím-
fræði.
í dag- er stofndagur Ferðafé-
lags Islands. Það var stofnað
1927. Þetta ér líka stofnda-
gur Landssambands hjálpar-
sveita skáta, árið 1971.
Sérfræðingar. í tilk. í
Lögbirtingablaðinu frá heil-
brigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu segir að Stefáni
Yngvasyni lækni hafi verið
veitt starfsleyfi sem sérfræð-
ingur í orku- og endurhæfing-
arlækningum; Boga Ásgeirs-
syni iækni leyfi til að starfa
sem sérfræðingur í svæftnga-
læknisfræði og Baldvini
Jónssyni lækni sem sérfræð-
ingur í bamalækningum.
SKIPIN_______________
Reykjavíkurhöfn: í gær
kom Jökulfell að utan og
togarinn Viðey úr söluferð.
Þá kom færeyska flutninga-
skipið Star Finnlandia á veg-
um Nesskips. { dag, sunnu-
dag, er Valur væntanlegur
að utan. Hafði skipið viðkomu
á ströndinni á heimleiðinni.
MANNAMÓT
Raufarhafiiarfél. heldur
spilafund í dag, sunnudag, í
kjallara húss Sparisjóðs vél-
stjóra, Borgartúni 18, og
verður bytjað að spila kl. 14.
Fram-konur halda köku-
basar í dag, sunnudag, kl. 14
í Framheimilinu við Safamýri.
ITC-Irpa heldur fund í dag,
sunnudag, í Kristalsal Loft-
leiða-hótelsins. Er hann hald-
inn í tilefni af heimsókn vara/
forseta 5. svæðis Alþjóðasatr/-
taka ITC, Ednu M. Capman.
Hefst fundurinn kl. 14.
Málstofa í guðfræði. Nk.
þriðjudag, 29. nóv., verður
málstofa í guðfræði. Dr.
Gunnlaugur A. Jónsson flyt-
ur fyrirlestur sem hann nefn-
ir: Imago Dei — vandamálið
í Gamla testamentisfræðum
— um leyndar og ljósar for-
sendur í þeirri umræðu á
tímabilinu 1882 til 1982.
Málstofan er haldin í
Skólabæ,- Suðurgötu 26, og
hefst kl. 16.
MOLAR
EVRÓPUMENN lærðu hina ævafornu aðferð Kínveija
við ræktun silkiormsins um 351 f.Kr. og lærðu samtim-
is að spinna og vefá silki.
ARKÍMEDES frá Sýrakúsu, snjallasti stærð- og eðlis-
fræðingur fornaldarinnar, skrifaði á árunum 200—212
f.Kr. rit sín um stærðfræði og eðlisfræði (fljótandi hlut-
ir léttast og ryðja frá sér vatni, þungamiðju hluta og
vogarstangarafl).
GRÍSKI vísindámaðurinn Ktesíbios gerði 150 f.Kr.
merkilega vélfræðilega uppfinningu sem varð mikilvæg
við smíði vatnsklukkna. Hann notaði tannhjólið til að
stilla hraðann. Ennfremur fann hann upp þrýstidæluna
og slökkvidæluna.
BORGFIRÐINGAFÉLAGIÐ í Reykjavík verður með fé-
lagsvist i Sóknarsalnum, Skipholti 50, kl. 14 í dag, sunnu-
dag.
AÐVENTUKVÖLD er í Dómkirkju Krists Konungs,
Landakotskirkju, kl. 20.30 i kvöld.
ORÐABÓKIN
Að perdúka
við einhvern
Oft hljóma undarleg orð
í eyrum, þegar farið er um
lítt kunn héruð og rætt er
við fólkið, sem þar býr.
Þetta er svo sem ekki ný
sannindi, um það vitna fjöl-
mörg dæmi. ( Þorvaldur
Thoroddsen neyrði t.d.
mörg framandleg orð á
Suðausturlandi fyrir
hundrað árum, en sjálfur
var hann af Vesturlandi.
Eitt þeirra var sögnin að
perdúka = hafa mikið við
e-n. Samkv. heimildum í
Orðabók Háskólans (OH)
hefur þetta orð til skamms
tíma þekkzt um allt Suður-
og Austurland og svo eitt-
hvað um Þingeyjarsýslur
og Eyjafjörð, en þar mun
það sjaldgæft, ef ekki nú
með öllu óþekkt. Felst svip-
uð merking í þessu sagn-
orði og fyrir einni öld, þeg-
ar trúlega einhver hús-
freyjan á Austurlandi hefur
afsakað móttökurnar við
Þorvald Thoroddsen og fé-
laga hans. Fyrir aldarfjórð-
ungi skýrði Austfirðingur
þetta á þann veg, að við
væri átt að hafa meira við
í framreiðslu matar við e-n
en venjulegt væri og þá um
leið að breiða hreinan
hvítan dúk á borðið. Fólk
sagði Iíka pelldúka og
pardúka mun hafa þekkzt
í Borgarfirði vestra.
- JAJ