Morgunblaðið - 27.11.1988, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ VEROLD/HLAÐVARPINN SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1988
il
7/
Blómasalur
eitthvað liúffenut við si
Þegar þú borðar af víkingaskipinu,
þá stjórnar ÞÚ þjónustuhraðanum.
Jólahlaðborðið samanstendur af eftirtöldum réttum:
Hreindýrapaté, graflambi, síldarsalati, kryddsíld eða
marineraðri síld, blönduðu sjávarréttapatéi, sjávar-
réttum í hlaupi eða súrsætum rækjum, marineruð-
um hörpudisk, ostafylltum silungsflökum, reyksoðn-
um laxi, gröfnum silungi, reyktum laxi, hrein-
dýrabuffi, heitu og köldu hangikjöti, jafningi og
hvítum kartöflum, heitu grænmeti, heitum sjávar-
rétt í hvítvínssósu, eplaköku, hrísgrjónabúðing,
laufabrauði, piparkökum, ostabakka, úrvali af með-
læti, brauði, smjöri, ostum, kexi, ávöxtum o.fl.,o.fl.
Og auk þess bjóðum við gómsæta grísasteik af
silfurvagni með rauðvínssósu alla daga.
Vandamálagluggar og
önnur viðfangsefni
HALLA Haraldsdóttir gler- og
myndlistakona í Keflavík hlaut
nýlega 100 þúsund króna verð-
laun í samkeppni um mynd-
skreytingu á sundmiðstöðina i
Keflavík sem nú er verið að reisa,
en alls sendu 6 listamenn inn til-
lögur að hugmyndum sínum.
Yerðlaunatillaga Höllu er mosa-
ikmynd sem sýnir mann á
sundi og er formið femingar. Mynd-
in verður 10 metrar á lengd og 2,50
metrar á hæð og sagði Halla að
hún hefði lagt áherslu á að myndin
sem kæmi til með að snúa að Holta-
skóla sýndi líf og gleði sundmanns-
ins.
Halla er borinn og barnfæddur
Siglfirðingur og þar rákust eigend-
ur eins af þekktustu gler- og listiðn-
aðarverkstæðis í Vestur-Þýska-
landi, Oidtmann bræðumir á verk
eftir hana þegar þeir vom þar á
ferð árið 1975. Myndin, sem þeir
bræður hrifust svo af, er steinmynd
3x2 metrar og prýðir Sjúkrahús
og heilsugæslustöð Siglufjarðar.
Þeir vom ekki í vafa um hæfileika
Höllu og óskuðu eftir að sjá fleiri
af verkum hennar og buðu henni
síðan að koma til Þýskalands. Hún
þáði ekki boð þeirra bræðra, en
þeir gáfust ekki upp og héldu uppi
sambandi við Höllu. Það var svo
árið 1979 að Halla ákvað að fara
til Þýskalands og þá urðu þáttaskil
í lífi hennar.
„Fyrstu ferðir mínar á verkstæði
þeirra Oidtmann bræðra vora til
náms og síðan hef ég haft umsjón
og eftirlit með þeim verkum sem
þar em unnin eftir mig. Þessi list-
grein á sér langa hefð og verk-
stæði Oidtmann bræðranna hefur
verið í ættinni í marga ættliði. Síðar
átti ég eftir að uppgötva að allir
af fremstu glerlistamönnum í
Þýskalandi em komnir af besta
aldri, ég hef kynnst mörgum þeirra
og mér finnst eins og ég sé hálf-
gert unglamb í þeirra hópi. Þeir
eiga það allir sameiginlegt að fara
ekki út í þessa listgrein fyrr en á
efri árum.“
Halla sagðist ekki mála eða vinna
myndir sínar eftir fyrirmyndum.
„Eg vinn verk mín eftir því hvernig
þau koma fram í huga mér. í gler-
listinni vinn ég mikið að gerð
glugga og stundum fæ ég aðeins
nokkur orð sem mér er ætlað að
vinna eftir. Einnig er talsvert um
að fólk biðji mig að skreyta svokall-
aða „vandamálaglugga“,“ sagði
Halla.
Halla Haraldsdóttir er nú þegar
orðin þekkt fyrir list sína í Þýska-
landi og um þessar mundir vinnur
hún að tillögum um gluggaskreyt-
ingar í kirkju í Bonn og verk eftir
hana má finna í nokkram kirkjum
á íslandi. Um daginn var Halla með
sýningu í Reykjavík þar sem hún
sýndi 30 verk í Gallerí list og seld-
ust öll verkin upp og þar af 23 á
fyrstu klukkutímanum.
Fró Birni
Blöndal í
KEFLAVÍK
Halla Haraldsdóttir gler- og mynd-
listakona á vinnustofu sinni í
Keflavík og heldur á strútsljöður
sem er algengt áhald meðal gler-
listamanna.
Stundum
hylla þeir
bögubósana
Brynhildur Lilja Bjarnadóttir,
ljósmóðir á Húsavík, hefiir gegnt
ljósmóðurstarfinu af mikilli far-
sæld í áratugi og er þekkt og
virt fyrir. En hún er einnig og
ekki síður þekkt af því að koma
Ijóðum og vísum í þennan heim,
úr eigin hugskoti og annarra.
Hún hefiir sent frá sér ljóðabók-
ina Hraungróður og til margra
ára hefiir hún haldið úti vísna-
þætti í Víkurblaðinu á Húsavík,
og ber þátturinn nafn hennar,
þ.e. Vísnaþáttur Brynhildar.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Barnahlaðborðið, þar sem börnin velja sér
að vild á sunnudögum:
Heitir kjúklingar, coctailpylsur, franskar, lambakjöt,
meiriháttar ís frá kokknum.
Öll börnin fá óvæntan glaðning frá starfsfólkinu.
Verð fyrir börn að 12 ára aldri kr. 500.-
Fríttfyriryngstu börnin.
Á kvöldin býður Blómasalurinn uppá fjölda sérstæðra
sérrétta sem allir sannir sælkerar ættu að bragða.
Borðapantanir í síma 2 23 22.
ViA hóteiið, sem er í
alfaraleið, er ávallt
fjöldi bílastæða.
P.S. Og auðvitað
kynnast útlendingar
ísienskum mat best
af Vlkingaskipinu.
Af bónleiðum í banka
Menn hafa misjaftia reynslu
af bankastjórum og hefur vafa-
laust verið þungt niðri fyrir þeg-
ar peningahirslunni var skellt í
lás þegar mikið var í húfi. En
þó bera flestir þá ólukku í hljóði.
En ekki allir.
Bankastjórinn í bænum Arnold
varð fyrir óvenjulegri
lífsreynslu á dögunum, eftir að
hann hafði neitað viðskiptavini
nokkrum um lán. Maðurinn hefndi
sín rækilega með því að gereyði-
Ieggja bankann.'
Vinnufélagar mannsins, sem er
tvítugur verkamaður í sandnámu
nálægt Nottingham, sögðu að hann
hefði orðið miður sín þegar hann
fékk ekki Iánið. Hann var þungt
hugsi ailt kvöldið, en í bítið næsta
morgun fór hann inn í sandnámuna
og keyrði þaðan í burtu í geysistór-
um kranabíl með risadekkjum.
Hann þaut í gegnum læst hlið nám-
unnar og keyrði beint inn í bæinn
Amold, nokkmm kílómetmm i
burtu og stefndi beint inn í bank-
ann. Þegar eyðileggingin var af-
staðin ætlaði hann að flýja staðinn
í tveggja hæða strætisvagni. En því
miður höfðu aðgerðir hans kveikt á
viðvömnarkerfinu í rústum bank-
ans, svo lögreglan handtók mann-
inn áður en strætisvagninn hafði
ekið í burtu.
Bankastjórinn, mr. Robert Griff-
iths, gerði engar athugasemdir við
þessa óvæntu árás. Hann lét ekki
hugfallast, heldur opnaði bankann
síðar um daginn þó að framhliðina
vantaði og þykkt lag af ryki lægi
yfir innréttingunni.
. Maðurinn var hinsvegar ákærður
fyrir að taka ökutæki án leyfis eig-
andans, og fyrir óleyfilega eyðilegg-
ingu.
Og það hlýtur að vera auðvelt
að halda úti vísnaþætti í Þin-
geyjarsýslu þar sem allir þykjast
vera hagyrðingar, eða hvað?
„Ja, við þykjumst vera það. En
það er reyndar ekki svo auðvelt og
þetta gengi ekki ef maður væri
ekki stöðugt á höttunum eftir
vísum, það kemur lítið af sjálfu
sér. Hinsvegar veit maður um fullt
af fólki sem yrkir vel en sendir
manni ekki vísur. Þetta hlýtur að
stafa af meðfæddri hógværð Þing-
eyinga, sem aldrei vilja vera að
trana sér fram,“ segir Brynhildur
og glottir.
Hún segist hafa átt von á því
að spumingaþættir Omars, þar sem
hagyrðingar léku stórt hlutverk,
yllu vakningu í vísnagerð, en það
hefði því miður ekki gerst. En er
ekki lítið um að yngra fólk yrki og
sendi henni vísur?