Morgunblaðið - 27.11.1988, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1988
29
Jónína Salvör
Helgadóttir
Hún amma þín er dáin!
Þessi orð hvíslaði pabbi í eyrun
mín að kveldi fimmtánda þessa
mánaðar. Það var sárt að missa
ömmu Jónu en hún var vel að
hvíldinni komin.
Amma fæddist 1894 að Kvíavöll-
um, Miðnesi, var hún því orðin 94
ára og á sinni löngu ævi mundi hún
tímana tvenna. Ég var svo lánsöm
að öll mín bernskuár var ég mikið
á heimili hennar og hef því margs
að minnast.
Man ég vel eftir gamla húsinu
við Háaleitisveg, sem var mjög fal-
legt og reisulegt hús í þá daga. Þá
var ég ekki há í loftinu þegar við
fórum út á morgnana í hænsnahú-
sið og brutum okkur leið framhjá
stríðsvillta hananum til að ná í egg-
in. Þá var sko gaman. Amma var
falleg kona og virðuleg. Árið 1964
flutti amma í Skaftahlíðina og
þangað lá oft leiðin. Alltaf var
amma heima og hafði tíma fyrir
alla. Efst í huga mér er sú mikla
trú á himnaföðumum sem ein-
kenndi líf hennar allt til enda. Og
því til staðfestingar voru hennar
skriflegu þakkargjörðir fyrir hvem
dag. Ammá kunni svo margt. Hún
kunni kynstrin öll af ljóðum, sögum
og bænum.
Ég minnist þess þegar við sátum
á stóra gamla rúminu og hún söng
og kenndi mér bænimar, það var
svo yndislegt. Ég veit að hún þráði
að komast heim til Jesú og ég veit
að hann hefur tekið vel á móti
henni. Með þessum fáu línum kveð
ég elsku ömmu, með þeim versum
sem hún fyrst kenndi mér og ég
hef síðar kennt dóttur minni. Ég
þakka þau forréttindi að hafa um-
gengist hana öll þessi ár.
Leiddu mína litlú hendi
ljúfi Jesú þér ég sendi
bæn frá mínu bijósti sjáðu
blíði Jesú að mér gáðu.
Hafðu gát á hjarta mínu.
Hald mér fast á spori þínu
að ég fari aldrei frá þér
alltaf Jesú vertu hjá mér.
Hildur Salvör Backman
Nk. mánudag verður jarðsett hér
í Reylq'avík amma mín, Jónína Sal-
vör Helgadóttir, en hún andaðist í
hárri elli þ. 15. nóv. sl. Dauðinn
skilur alltaf eftir sig ófyllt skarð og
í þessu tilviki er það mér óvenju
stórt því að amma mín var mér frá
unga aldri bæði sem faðir og móð-
ir. Hún kom inn í líf mitt þegar ég
var aðeins 2 ára gömul, þegar hún
tók mig inn á heimili sitt, sem var
stórt fyrir.
Ég aétla ekki að rekja ævi þessar-
ar stórbrotnu konu sem fór í gegn-
um lífið með einstakri reisn og lét
enga erfiðleika buga sig. Tilgangur
þessara fátæklegu orða er fyrst og
fremst að þakka henni umönnun
og samfylgd á lífsleiðinni. Við átt-
um margar samverustundir í gleði
og sorg — og í hinum daglega
hversdagsleika, og fyrir þær vil ég
allar þakka nú þegar komið er að
leiðarlokum.
Æskuheimili mitt var við Háa-
leitisveg, ekki langt frá því sem nú
stendur Austurver. Þar var þá
dreifð byggð með grónum túnum
og til búdrýginda stunduðu amma
og „afi“ búskap, en að öðru leyti
stundaði maður hennar, Emst
Backman, verkamannavinnu í
Reykjavík. Barnahópurinn var stór,
en fjölskyldan samhent og endur-
minningar mínar frá þessu heimili
eru einstaklega góðar.
Amma mín var trúuð kona,
kenndi mér snemma bænir og sagði
mér frá Jesú Kristi með sínum sér-
staka frásagnarstíl og fyrir unga
telpu vora þessi rólegu og yndislegu
kvöld með henni ómetanleg.
Ég vil ljúka þessum kveðjuorðum
með þeirri bæn sem hún kenndi
mér fyrst og ég veit að mun fylgja
henni þangað sem hún nú er komin:
Hafðu guð í huga og minni
hafðu guð fyrir augum þér.
Hugsaðu um guð í hveiju sinni
heyrir pð og til þín sér.
Sonja Backman
Bryndís Þórarins-
dóttir - Kveðjuorð
Fædd 10. desember 1899
Dáin 11. nóvember 1988
Það er erfitt að trúa því að amma,
Bryndís Þórarinsdóttir, sé farin frá
okkur og að við getum ekki lengur
heimsótt hana á Melhagann. Við
voram alltaf stolt af því að eiga
langömmu. Það era ekki allir sem
verða þeirrar gæfu aðnjótandi að
hafa langömmu sína svona l.engi
hjá sér og kynnast henni jafnvel
og við.
Við hefðum farið mikils á mis
ef við hefðum misst af því. Amma
var alltaf hress og hafði alltaf tíma
fyrir okkur. Við eigum margar góð-
ar minningar um hana sem munu
ylja okkur um ókomna framtíð. Við
gleymum aldrei ömmu, hennar er
sárt saknað.
Barnabarnabörnin
Blómastofa
Friöfinm
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið ölikvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skteytingar við öil tiíefni.
Gjafavörur.
Erfidrykkjur I hlýju
og vinalegu
umhverfi.
Salir fyrir 20-250 manna hópa í
Ve'itingahöllin Húsi Verslunarinnar
S: 685018-33272.'*“"'
3
Metsölublað á hverjum degi! f
•.........J
Amsterdam
tra 29.12.-2.1. 4 nætur
Gist á Hótel Marriott
fimmstjörnu de luxe
Verð m/flugi-gist. + morgunv. 23.271;: pr.ITL.
í tveggja manna herb.
Gala-kvöld
3.156r pr.m.
Hamborg
frá 29. 12.-2.1. 4 nætur
Gist á
Hótel Marriott
FERDASKRIFSTOFA HALLVEIGARSTlG 1 SlMAR 28388 28580
Verð m/flugi-gist. + morgunv. 26.479r pr.m.
Gaia-kvöid 6.716,- pr.m.
Örfá sæti iaus, hafið samband við
skrifstofuna eða næsta umboðsmann.