Morgunblaðið - 24.12.1988, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGÁRDAGUR 24. DESEMBER 1988
listina. Leonardo teiknaði meðal
annars stnðsvélar, fallbyssur og
skotvopn sem eru svipuð þeim sem
eru notuð í dag. Samtímis lagði
hann stund á verkfræðilegar rann-
sóknir og almenna vélfræði. Hann
teiknaði meðal annars brýr, spuna-
vélar, sirkla, gíra og einnig farar-
tæki, sem líkist nútíma reiðhjóli.
Andlitsmyndir
I fyrstu Mílanódvöl sinni, sem
er talið vera fyrsta og þýðingar-
mesta tímabil fyrir frægð hans á
Ítalíu og erlendis, málaði hann mik-
ið af andlitsmyndum. A þeim tíma
hafði Leonardo ekki ennþá fullmót-
að stíl sinn, en þrátt fyrir að hann
hafi ekki merkt sér þær, leikur
ekki vafi á að þær eru eftir hann.
Lombardíski og flórenski stíllinn
voru ólíkir. Flórenski stíllinn var
eldri og frægari og þar af leiðandi
hefðbundnari, en sá lombardíski var
raunverulegur, skýr og fylgdi
tískunni í hárgreiðslu og öllum
smáatriðum. Andlitsmyndirnar í
lombardíska stílnum hafa það sam-
eiginlega einkenni að bakgrunnur-
inn er dökkur og stellingamar sér-
stakar. Listfræðingar telja þessi
málverk vera eftir Leonardo vegna
þess að hann lætur bakgrunninn
falla í skuggann og einungis hálfur
líkaminn sést. Ekki hefur tekist að
nafngreina þá einstaklinga, sem
málverkin eru af, þrátt fyrir ítarlega
ieit listfræðinga í skjölum í sam-
bandi við starf Leonardos. Það er
talið vera öruggt að þessar andlits-
myndir hafi verið málaðar að beiðni
hertogans af Sforza og þá í um-
hverfí hans, því í málverkum þess-
um kemur fram tignarleg fram-
koma og sjálfstraust hjá fyrirsæt-
unni.
SKIPSTJÓRA- OG STÝRIMANNAFÉLAGIÐ ALDAN
[vs
fc i
STÝRIMANNAFÉLAG ÍSLANDS
SKIPSTJÓRAFÉLAG ÍSLANDS
SMRISJÓÐUR VÉLSTJÓRA
Sjómannafélag
Reykjavíkur
Félag íslenskra loftskeytgmanna
Vélstjórafélag Islands
Leonardo da Vinci
eftir Bergljótu
Leifsdóttur
Leonardo da Vinci.er einn af
frægustu listamönnum sem tengj-
ast Flórens. Hann fæddist 15. apríl
1452 í Vinci-þorpinu í Toscana og
er þaðan komið eftimafn hans (da
þýðir frá). Hann var óskilgetinn og
ólst upp hjá föðurfjölskyldunni.
Árið 1468 flytur fjölskyldan til Flór-
ens. Sökum bráðþroska Leonardos
á listasviðinu ákvað faðir hans að
koma honum í iæri hjá flölhæfasta
og eftirsóttasta kennaranum í Fiór-
ens á þeim tíma: myndhöggvaran-
um, gullsmiðnum og listmálaranum
Andrea Verrocchio.
Árið 1482 heldur Leonardo til
Mílanó á fund hertogans af Mílanó,
Lodovico Sforza. Á meðan hann
dvaldi í Mílanó málaði hann meðal
annars „Vergine delle Rocce“
(María mey klettanna) í tveim út-
gáfum, sem em í París og London.
A ámnum 1495 til 1498 málaði
hann „Cenacolo" (Síðustu kvöld-
máltíðina) fyrir Santa Maria delle
Grazie-kirkjuna í Mflanó. Árið eftir
að hann lauk við verkið réðst Lúðvík
XII Frakklandskonungur inn í her-
togadæmið Mflanó. Leonardo hélt
þá til Mantova og Feneyja. Árið
1503 kemur hann til Flórens þar
sem honum var falið það verkefni
að mála ásamt Michelangelo sali í
Signoria-höllinni, sem í dag er köll-
uð Palazzo Vecchio (Gamla höllin),
þar sem borgarstjórinn hefur aðset-
ur. Frá júní 1506 til september
1507 dvaldist Leonardo í Mílanó,
þar sem árið 1512 tók við völdum
hinn nýi hertogi, Massimiliano
Sforza. Hinn 24. septenmber 1512
hélt hann til Rómar og lagði þar
stund á stærðfræði og vísindalegar
rannsóknir. í maí 1513 fór hann
til Frakklands í boði Franks I
Frakklandskonungs og dvaldi í
Amboise, þar sem hann lést 2. maí
1519.
Anatómían og vélfræðin
Anatómían og vélfræðin em
vísindagreinar, sem Leonardo da
Vinci lagði meðal annars stund á.
Hann taldi að hægt væri að rann-
saka heiminn og manninn á sama
hátt því þeir væm mjög nátengdir
og jafnvel myndaðir á sama hátt
og vitnaði hann þá í að heimurinn
samanstæði af jörð, vatni, lofti og
eldi. Landslagið tekur á sig sína
mynd eftir jarðskjálfta og jarð-
myndunarlög og hafði hann séð þau
nákvæmlega fyrir sér og notaði
útlit þeirra í málverkum sínum allt
frá upphafi listamannsferils síns,
og þannig hafði hann einnig séð
manninn innan frá og samræmdist
það ytra útliti, útlínum, tilfínning-
um, hreyfíngum og rannsakaði
hann þessi atriði gaumgæfilega
með það fyrir augum að sérgreina
innstu samsetningu mannsins, sem
ræður fyrir lífsorku hans.
Mikilvægustu atriðin { ana-
tómískum rannsóknum Leonardos
voru: Hvemig virka heymar- og
sjónskynfærin, hver em þau líffæri
sem gera okkur kleift að tala,
hvemig' er vöðvunum sem gera
okkur kleift að hreyfa okkur komið
fyrir? Anatómísku teikningamar
hans hafa sjálfstætt, listrænt gildi.
„Adorazione dei Magi“ (Aðdáun
vitringanna) og „Cenacolo"
(Síðasta kvöldmáltíðin) voru fyrst
teiknaðar á nöktum líkömum og
anatómían teiknuð nákvæmlega.
Fleiri listamenn tóku upp þessa
aðferð í málverkum sínum á 16.
öld, en það má ekki gleyma því að
það var Leonardo da Vinci sem inn-
leiddi hana.
Leonardo da Vinci gleymdi ekki
máltækinu „Enginn er fullkominn“,
því fegurð mannsins er ekki eilíf.
Það er líka til ellin með sínar hrukk-
Móna Lísa.
ur og lýti, og ekki eru allir fallegir
og vel vaxnir. Það var sagt að hann
hafí farið í fátækustu hverfin í
Mflanó til að teikna svipi þeirra sem
fátæktin hafði merkt óafmáanlega
í huga og líkama. Það má vera að
þessi „uppfylling" á neikvæðan hátt
á útlínum mannsins komi frá hug-
myndinni um tilvist hins illa og
góða í mannkyninu. Hér koma einn-
ig fram hinar heimspekilegu hugs-
anir sem Leonardo taldi vera hluta
af listinni og ættu þá jafnframt að
koma fram í listaverkinu.
Þegar hann hafði öðlast þekk-
ingu á líkamsstarfseminni og nátt-
úrunni, notaði hann hana við véla-
teikningar sem gætu hjálpað mann-
inum við að koma sér áfram í heim-
inum, í metnaði sínum og valda-
draumum. Á vinnustofu Verrocchio
hafði hann fengið innsýn í vélfræði-
Annunciazione (Boðun Maríu).
V^terkurog
k_/ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
s JltotgtinMgifeife
Jólatré
Sparisjóðurvélstjóra og sjómannafélögin í Reykjavík halda
jólatrésfagnað íÞórscafé, Brautarholti 20, miðvikudaginn
28. desember kl. 17-19.
Jólasveinar koma í Miðasala við innganginn.
heimsókn og margt
fleira verður til
skemmtunar.