Morgunblaðið - 24.12.1988, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 24.12.1988, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 1988 23 ekki virða samningana í einu og öllu. I Framkvæmdanefndinni eru 17 fulltrúar sem eru tilnefndir af aðild- arríkjunum til 4 ára í senn. Bret- land, Frakkland, Ítalía, Spánn og V-Þýskaland hafa 2 fulltrúa hvert, en önnur hafa 1 fulltrúa. Nefndar- mennimir starfa í nefndinni í eigin nafni og eiga að hafa hagsmuni EB að leiðarljósi en ekki gæta hags- muna þess ríkis er tilnefnir þá. Nefndin er ábyrg gagnvart Evrópu- þinginu en þingið getur sett nefnd- ina af. Hver nefndarmanna fer með ákveðinn málaflokk og má þar nefna; samskipti við ríki utan EB; málefni innri markaðarins; sam- keppni; landbúnað; flutninga; vísindi, rannsóknar og þróunar- starfsemi o.fl. Nefndin tekur ákvarðanir með einföldum meiri- hluta atkvæða. Ráðherraráðið (The Council of Ministers) er sú stofnun sem tekur endanlegar ákvarðanir og mótar pólitíska stefnu bandalagsins. Það setur lög og reglur á grundvelli til- lagna Framkvæmdanefndarinnar. I ráðinu eiga sæti einn ráðherra frá hverju aðildarríki. Ekki er um fasta fulltrúa að ræða heldur fer það eft- ir málefnum hvaða ráðherrar sækja fundi hverju sinni. Ákvarðanir eru ýmist teknar samhljóða, með einföldum eða auknum meirihluta, eftir því hvaða málefni eru til umíjöllunar. Bret- land, Frakkland, Ítalía og V-Þýska- land hafa 10 atkvæði hvert, Spánn 8, Belgía, Grikkland, Holland og Portúgal 5 atkv. hvert, Danmörk og írland 3 atkv. hvort og loks Lúxemborg 2 atkvæði eða samtals 76 atkvæði. Stundum þarf auk til- tekins atkvæðaíjölda vissan fjölda ríkja til þess að tilskilin meirihluti sé fenginn. Tvisvar á ári eru haldnir fundir þar sem forsætisráðherrar allra aðildarríkjanna koma saman til þess að ræða almenna stefnumótun bandalagsins. Hvert ríki fer með formennsku í ráðinu 6 mánuði í senn. Spánveijar tóku nú um áramótin við for- mennsku af Grikkjum. Ráðherraráðinu til ráðgjafar er nefnd, COREPER, sem í eiga sæti fastafulltrúar aðildarríkjanna hjá EB. COREPER gegnir lykilhlut- verki í samskiptum milli ríkisstjórna aðildarríkjanna og Framkvæmda- nefndarinnar. Þá sér COREPER um að skipuleggja og undirbúa fundi Ráðherraráðsins. Evrópuþingið (The European Parliament) er fyrst og fremst umsagnaraðili og hefur ekkert sjálf- stætt löggjafarvald. Þingið fékk nokkuð aukin áhrif þegar Einingar- lögin tóku gildi. Þingið verður að fá til umsagnar allar tillögur Fram- kvæmdanefndarinnar áður en Ráð- herraráðið tekur ákvörðun um mál- ið. Samþykki þingsins þarf fýrir Qárlög bandalagsins og þingið fylg- ist með að þeim sé fylgt. Segja má að mestu völd þingsins felist í því að það getur með 2h atkvæða sam- þykkt vantraust á Framkvæmda- nefndina og þar með sett hana af. Af þessum sökum verður Fram- kvæmdanefndin að taka tillit til skoðana þingsins. Þingmenn eru 518 og eru kosnir beint til þingsins í heimalandi sínu til 5 ára í senn. Næst verður kosið til Evrópuþingsins í júní 1989. Evrópudómstóllinn (The European Court of Justice) er sú stofnun sem er hvað mikilvægust og merkilegust. í dómnum sitja 13 dómarar og aðsetur hans er í Lúx- emborg. Það sem gerir Evrópudóm- stólinn einstæðan í sinni röð er að lögsaga hans tekur til allra aðild- arríkjanna að því er varðar úr- skurði og túlkanir á lögum og regl- um EB. Fyrir dómstólnum er hægt að reka mál gegn bandalaginu og stofnanir þess geta rekið mál gegn aðildarríkjunum. Aðild að málum fyrir dómstólnum geta' samkvæmt þessu átt stofnanir EB, ríki, fyrir- tæki og einstaklingar. Segja má að dómstóllinn vaki yfir að Framkvæmdanefndin, Ráð- herraráðið og aðildarríkin aðhafíst ekkert er brýtur í bága við „stjóm- arskrána", þ.e. Rómarsamninginn. Dómstóllinn hefur veigamiklu samræmingar hlutverki að gegna. Það felst í framansögðu en ekki síður því að æðsta dómstigi hvers aðildarríkis er skylt að skjóta til umsagnar Evrópudómstólsins öllum spumingum er varða lög og reglur EB í viðkomandi dómsmáli. Þetta verður til þess að trygging fæst fyrir þokkalegu samræmi milli landa á framkvæmd EB-réttarins. Dómar Evrópudómstólsins eru endanlegir og verður ekki áfrýjað. Niðurlag Vonandi hefur þessi stutta sam- antekt um EFTA og Evrópubanda- lagið orðið til þess að skýra örlítið fyrir einhverjum hvers kyns samtök þetta em eða a.m.k. vakið ein- hveija til umhugsunar. Það er aug- ljóst að þessi samtök em um flest gjörólík. Þar ber að sjálfsögðu hæst hið yfírþjóðlega vald sem EB er fengið og hin beinu réttaráhrif sem ákvarðanir EB hafa öfugt við EFTA. Evrópubandalagið og starfsemi þess ber æ oftar á góma hér á landi, sérstaklega vegna áætlana um einn sameiginlegan markað fyr- ir árslok 1992. Sumir em jafnvel komnir svo langt í umræðunni að þeir ræða um aðild eða ekki aðild Islendinga að EB. Dæmi em og um að félagasamtök séu tekin að senda frá sér ályktanir með 'feða á móti aðild. Ályktanir af þessu tagi em alls ekki tímabærar því mjög skoit- . ir á að almenn þekking okkar ís- lendinga á Evrópubandalaginu, starfsemi þess og markmiðum, sé nálægt því að vera fullnægjandi. Höfiindur er lögíræðingvr hjá Félagi ísl. iðnrekenda á sviðial- þjóðlegra viðskipta. HATIÐAKDAftANA Aðfangadagur Jóladagur 2. jóladagur Gamlársdagur Nýársdagur Alla aðra daga er opið eins og venjulega kl. 11—23.30 lokað lokað lokað lokað kl. 18-23.30 Þökkum viöskiptin á árim Hraóretta veitingastaður hjarta borgarimw o ahorra Tryggvagotu og Posthusstrætis Simi 16480 KJúköngMtaóurlnn SOUTHERN FREED CHICKEN Feróaskrifstofan scqa Vi^ landsmönnum öllum gledilegra |óla Viö veitum alhlióa feróaþjónustu hvar og hvert sem er. Viöskiptaferðir, einstaklingsferöir, vörusýningar, innanlandferðir, rútuferðir, hópferðir og leiguflug. Leitió ekld langt yfir skammt, þvi hjá okkur getur þú bókaó góóa feró. FERDASKRIFSTOFAN Sími 624040. Þetta eru þau lönd sem vió bjóóum feróir til árió 1989. Costa del Sol, Kýpur, Portúgal, Frakkland, Ítalía, Túnis, Marokkó, Þýskaland, Holland, Austurríki, Sviss, Bretland, Norðurlöndin, Bandaríkin, Thailand, Singapore, Indónesía, Hong Kong, Japan, Brasilía, Karabíska hafið og Kína. <»snottv

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.