Morgunblaðið - 24.12.1988, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 24.12.1988, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 1988 V estur-Húnavatnssýsla: Féð sprautað eða baðað með eiturefiii Stað, Hrútafirði. BÆNDUR í vesturhluta Vestur-Húnavatnssýslu eru þessa dagana að baða fé sitt eða sprauta gegn kláða sem hefúr þó ekki orðið vart í áratugi. Þar sem undanþága hefúr ekki fengist verða bændur annað- hvort að baða fé sitt með hætturlegu eiturefni eða leggja í mikinn kostnað við að sprauta það. Að sögn Þórarins Þorvaldssonar, oddvita Staðarhrepps, var sótt um undanþágu frá þessum aðgerðum til stjórnvalda samkvæmt heimild í lög- um, en því synjað þótt nágranna- svæði fyrir vestan og austan hafi fengið undanþágu. Bændur verða því að baða með Gamatox baðlyfi sem er eiturefni og ætti alls ekki að nota nema brýna nauðsyn beri til. Land- vemd hefur til dæmis lagt til að lyf- ið verði bannað hérlendis. Annar kostur sem bændur hafa er að sprauta féð með lyfí sem Ivomec heitir, en það kostar með sprautun um 60 krónur á kind en 70 krónur ef dýralæknar sprauta því sjálfír. í því er einnig ormalyf að verðgildi 20 krónur, sem þýðir að óþarfa kostnaður á kind er 40 .krón- ur sem bændur og sveitarfélög verða að greiða. Hér í hólfí munu vera rúmlega 17.000 fjár svo að óþarfa kostnaður verður um 700.000 krón- ur. Líkt er ástatt víðar á landinu svo óþarfa kostnaður fyrir bændur skipt- ir milljónum. — M.G. Jólahald á Hornbjargsvita: Sleppum við búðaráp - segir Ólafiir Þ. Jónsson, vitavörður „ÆTLI við höldum ekki jól á svipaðan hátt og aðnr. Jólin ná hmgað alveg eins og armur ríkisstjórnarinnar og kirkjunnar,11 sagði Ólafúr Þ. Jónsson, vitavörður, þegar blaðamaður forvitnaðist um hvernig jól- in væru haldin á Hornbjargsvita. Ólafur dvelst í vitanum ásamt konu sinni og tveimur bömum, sex og átta ára. „Þetta er alveg eins og maður væri í höfuðborginni, nema maður þarf ekki að fara í búðir. Það kemur hér varðskip færandi hendi með þennan vaming sem til heyrir. Ég held að jólahald sé að mörgu leyti skemmtilegra hér en syðra, hér er fólk meira í þessu saman og er á heimilinu allan tímann." í Hombjargsvita er að sjálfsögðu jólatré og matur yfír hátíðamar er með hefðbundnu sniði; tjúpur, hangi- kjöt og hamborgarahryggur. Að- spurður sagði Ólafur að vitinn væri ekki sérstaklega skreyttur í tilefni jólanna, enda væri ekki heimilt að hafa á honum önnur ljós en þetta eina sem skiptir öllu máli. Engin fjöll skyggja á sól, sem sést nú í rúmar tvær stundir af Hombjargi. KAUPMÁTTUR GREIDDS TÍMAKAUPS MIÐAÐ VIÐ VÍSITÖLU FRAMFÆRSLUKOSTNAÐAR • IÍ5NAÐAS- VERKAMENN VERKAKONUR MENN Linda á heimaslóðum Ungfrú heimur, Linda Pétursdóttir, dvelur á heimili sínu á Vopnafirði um jólin. Segist hún ætla að taka það rólega og safna kröftum fyr- ir starfið framundan. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær heimsótti Linda fyrrver- andi vinnustað sinn, frystihúsið, skömmu eftir heimkomuna og auðvitað var ljósmyndari með í förinni. Á hinni myndinni er Linda á heimili sínu ásamt bróðursyni sínum Olgeiri Sigur- geirssyni, heimilistíkinni Doppu og afkvæmi hennar. Aðalstjórnarfundur Borgaraflokksins á miðvikudag: A ekki von á að skipað verði í varaformannsembættið 120 - 90 1980=100 - segir Júlíus Sólnes formaður flokksins JÚLÍUS Sólnes formaður Borgaraflokksins segir óvíst að skipað verði í embætti varaformanns flokksins á aðalstjórnarfúndi nk. mið- vikudag. Þá á að ganga formlega frá formannaskiptum í flokknum. Albert Guðmundsson lét af störf- um sem formaður Borgaraflokksins 20. desember sl. og tók Júlíus Sól- nes, sem áður var varaformaður, við formennskunni. Albert hafði áður gert um það tillögu á fundi þingflokks Borgaraflokksins að Ingi Bjöm Albertsson yrði varaformað- ur, en Guðmundur Ágústsson þing- maður mótmælti þeirri tillögu á þeim forsendum, að þá væri enginn stjómarmanna flokksins úr Reykjavík, og að samkvæmt lögum flokksins ætti að kjósa stjóm Línuntið sýmr þróim kaupmáttar greidds tímakaups þriggja starfe- stétta miðað við vísitölu framfærslukostnaðar. Vísitalan fyrir kaup- máttinn er sett á 100 fynr áríð 1980. Rómversku tölumar tákna ársQórðunga. Línurítið er frá Kjararannsóknanefnd. Kaupmáttur greidds tímakaups: Iðnaðarmenn hækkuðu mest allra launþega í góðærinu Afgreiðslukonur, verkakonur og verkamenn hækkuðu minnst Kaupmáttur greidds timakaups iðnaðarmanna hefúr hækkað veru- lega undanfarin tvö ár, samkvæmt niðurstöðum sem birtast í frétta- bréfi Kjararannsóknamefndar. Á þríðja ársfjórðungi 1986 var vísitala kaupmáttarins hjá iðnaðarmönnum 89,4, miðað við vísitölu 100 áríð 1980. Á Qórða ársQórðungi 1986 hafði vísitalan hækkað f 102,0 og hækkar allt árið 1987. Á fjórða ársQórðungi 1987 nær kaupmáttur greidds tfmakaups iðnaðarmanna hámarki, vfsitalan mælist 128,6, lækk- ar sfðan og er nú f 124,6. Á sama tfma hefúr vísitala greidds tíma- kaups verka- og afgreiðslukvenna hækkað úr 89,2 fyrir verkakonur í 103,8 stig, og úr 82,6 í 103,3 stig fyrir afgretðslukonur. Á fjórða ársfjórðungi 1986 og fyrsta ársfjórðungi 1987 fer að gæt- as góðæris, ef miðað er við vísitölu greidds tímakaups og það nær hám- arki í árslok 1987. Meðaltal greidds tímakaups hækkar um 32,4% frá þriðja ársQórðungi 1987 til sama tíma 1988. Á sama tímabili hækkaði framfærsluvísitalan um 28,3% og jókst kaupmáttur því um 3,2% að jafnaði hjá þeim hópum sem athug- unin nær til, en það er landverkafólk á samningssviði Alþýðusambands íslands. í fréttabréfínu er einnig sagt frá hækkun tímakaups og meðalvinnu- stundaflölda á viku. Vegið meðaltal meðaltímakaups hefur hækkað frá þriðja ársfjórðungi 1987 til þriðja ársflórðungs 1988 um 31,2%. Tíma- kaup skrifstofufólks hækkaði hlut- fallslega mest á þessum tíma, eða um 39,1% hjá körlum og um 40,2% hjá konum. Tímakaup verkakvenna hækkaði um 26,7% á þessum sama tíma, verkamanna um 29,1%, af- greiðslukvenna um 31,1%, iðnaðar- manna um 31,9% og afgreiðslukarla um32,7% Á þessum tíma minnkaði vinnutími á viku um tvær stundir að meðal- tali. Á þriðja ársfjórðungi 1987 var meðalfjöldi vinnustunda á viku 48, en er á þriðja ársfjórðungi í ár 46. Verkamenn vinna lengstan vinn- utíma á þriðja árstj'órðungi 1988, 49,1 stund á viku, næst koma iðnað- armenn með 47,5 og afgreiðslukarlar með 46,3 stundir á viku. Breytingar á kaupmætti heildar- launa eru mjög mismunandi eftir starfsstéttum á tímabilinu ffá þriðja ársfjórðungi 1987 til þriðja ársfjórð- ungs 1988. Kaupmáttur viku-/mán- aðartekna verkakvenna lækkar um 5,7%, verkamanna lækkar um 5,5%, iðnaðarmanna lækkar um 0,4%, af- greiðslukvenna lækkar um 0,3%. Hins vegar hækkar kaupmáttur tekna afgreiðslukarla um 1,0%, skrif- stofukarla um 3,2% og skrifstofu- kvenna um 3,3%. flokksins á landsfundi. Albert lýsti því þá yfír að hann myndi leggja þessa tillögu fram á næsta aðal- stjómarfundi flokksins, en nú er talið að ekki verði af því, og vara- formannsstaðan verði ómönnuð í bráð. Aðalstjóm Borgaraflokksins hef- ur verið kölluð saman miðvikudag- inn 28. desember til að ganga form- lega frá formannsskiptunum. Júlíus Sólnes sagði við Morgunblaðið að hann ætti ekki von á því að gengið verði frá skipun varaformanns við það tækifæri, og sagði hann menn vera sammála um að flýta sér ekki um of í því máli. Hann sagði að annar aðalstjómarfundur yrði í lok janúar. í aðalstjóm Borgaraflokksins sitja 15 manns. Það em formaður, varaformaður og ritari sem kosnir em landsfundi, eða þeir Albert Guðmundsson, Júlíus Sölnes og Ólafur Gránz. Þá em það formenn kjördæmasambandanna 8, sem em: Gunnar Elíasson Vesturlandi, Gunnar Sigurðsson Vestfjörðum, Sigurður Hansen Norðurlandi vestra, Valgerður Sveinsdóttir Norðurlandi eystra, Jóhanna Aðal- steinsdóttir Austurlandi, Skúli B. Ámason Suðurlandi, Halldór Páls- son Reykjanesi og Þórir Lámsson Reykjavík. Að lokum em fjórir full- trúar kosnir á landsfundi, þeir Hilm- ar Haraldsson, Kristján Ingvarsson, Hörður Helgason og Guttormur Einarsson. Varastjóm og þing- flokkur eiga einnig seturétt og til- lögurétt á aðalstjómarfundum en ekki atkvæðisrétt. Tekinn meðhass Tollgæslan og fikniefiua- lögreglan grípu mann á Keflavíkurflugvelli á fimmtudag, sem reyndi að smygla 100 grömmum af hassi inn í landið. Maðurinn var að koma frá Kaupmannahöfn og hafði has- sið innan klæða. Hann var tek- inn til yfírheyrslu og síðan sleppt. Þá handtók fíkniefnalögregl- an sex manns í fyrradag, sem samtals höfðu 50 grömm af hassi í fómm sínum. Snælda með leik Gunn- ars Guðmundssonar ÚT ER komin snælda með leik Gunnars Krístins Guðmundsson- ar á harmonikku og hljóðgervla. Þetta er önnur snældan sem Gunnar gefur út og hafa þær báðar hlotið heitið „Vinstrihandarspil". Gunnar hefur útsett öll lögin og annast sjálfur upptöku þeirra og hljóðblöndun. A „Vinstrihandarspil 11“ em eingöngu vinsæl erlend lög en á fyrri snældu Gunnars var fmmsamið efni. Gunnar varð fyrir því 10 ára að missa hægri hönd og sjón í slysi. Þrátt fyrir þessa fötlun hefur hann náð undraverðum árangri í hljóð- færaleik og meðferð flókinna upp- tökutækja. 1987 kom hann fram á tónleikum í Grieg-höllinni í Björgvin og vakti leikur hans undmn og aðdáun viðstaddra. Gunnar gefur snælduna út sjálfur og annast dreifingu hennar. (Fréttatilkynning)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.