Morgunblaðið - 24.12.1988, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 1988
41
Nú erég klæddurog kominn á rokk
og ról /Sverrir Stormsker:
Barnaplata
fyrir fullorðna
m marn. flB
SIÐ AN
Sverrir Stormsker er skemmti-
legur flippari, sem erfitt er að
taka alvarlega og þess vegna
kemst hann upp með ýmislegt,
sem öðrum myndi ekki líðast. Nú
hefur hann gefið út barnaplötu,
sem hann sjálfur kallar svo, og
Góðir Íslendingar/Valgeir Guðjónsson:
Stuðmannaþelið
þokar fyrir nýjum tón
Þeir sem búast við að finna Stuðmanninn Valgeir Guðjónsson á nýj-
ustu plötu hans, „Góðir íslendingar", verða líklega fyrir einhverjum
vonbrigðum. Að vísu hefur söngrödd Valgeirs ekkert breyst, en yfir-
bragðið á þessari plötu hans er annað en venjulega, - eins og honum
sé meira niðri fyrir og þess vegna virkar platan kannski þyngri en
búast mátti við, ef tekið er mið af fyrri afrekum Valgeirs á tónlistar-
sviðinu. Enginn má þó skilja þessi orð svo, að Valgeiri sé farið að
förlast, þvf sú er alls ekki raunin. Hann er hér aðeins að sýna á sér
nýjar hliðar og hefur þar farið skynsamlega að ráði sínu að mínum
dómi.
I gegnum árin hefur Valgeir oft
glatt geð guma með tónlist sinni
og þægilegu viðmóti. Gildir þar
einu hvort hann hefur verið einn á
ferð eða með Stuðmönnum. Þegar
menn verða hluti af svo geysivin-
sælu fyrirbrigði sem Stuðmenn
eru, er sú hætta ávallt fyrir hendi
að ákveðin ímynd festist við þá
og hvað Valgeir snertir er það
ímynd hins léttlynda rythmagítar-
leikara Lars Himmelbjerg. Fyndnir
og skemmtilegir textar hans á
öðrum vettvangi svo og hnyttin
tilsvör við ýmis tækifæri hafa einn-
ig styrkt þessa ímynd. Ég setti því
Góða íslendinga á fóninn með því
hugarfari að nú kæmi einn
skammturinn enn af léttleika Val-
geirs. Þess vegna var það sem
mór, brá svolítið, og varð jafnvel
fúll eftir fyrstu hlustun. Mér fannst
þá flest lögin leiðinleg nema „Ekkl
segja góða nótt" og blúslagið
„Frændi".
Menn verða hins vegar að gera
sér grein fyrir því að Valgeir er
fyrst og fremst tónlistarmaður, en
ekki spaugari og því er út í hött
að vera sífellt að gera þá kröfu til
hans að vera fyndinn og skemmti-
legur. Það er eðlilegt að hann vilji
á þessari fyrstu eiginlegu sóló-
plötu sinni sýna á sér fleiri hliðar
og það hefur honum tekist. Enda
er það svo að platan vinnur á við
hverja hlustun og til viðbótar þeim
tveimur lögum, sem mér fannst
góð í fyrstu umferð, má nú bæta
við lögunum: Kramið hjarta, Eins
og er, Eitt af þessum andlitum og
Hvað get óg gert?, í hóp hinna
betri sem Valgeir hefur sent frá
sér. Önnur lög á plötunni eru lak-
ari, en kannski þurfa þau bara líka
að venjast.
Hljóðfæraleikur á þessari plötu
er með því betra sem heyrst hefur
fyrir þessi jól og hið sama er að
segja um hljómgæði plötunnar.
Útsetningar eru blessunarlega
lausar við alla yfirhlaðningu, og eru
yfirleitt nettar og smekklegar. Auk
höfundar, sem leikur á gítar og
hljómborð eru skrifaðir fyrir hljóð-
færaleiknum þeir Ásgeir Óskars-
son á trommur, slagverk og hljóm-
borð og Björgvin Gíslason á gítar
og hljómborð. Auk þeirra koma
lítillega við sögu Mike Sheppard á
fender-jassbassa, Kristinn Sva-
varsson á saxófóna og Ómar
Ragnarsson blístrar í laginu „Ekki
segja góða nótt".
Hvað hljóðfæraleikinn varðar
finnst mér áberandi hvað Ásgeir
nýtur sín vel, enda samleikur
tromma og bassa með miklum
ágætum, ekki síst í þeim lögum
þar sem Ásgeir sjálfur hefur forrit-
að bassaleikinn. Björgvin Gíslason
er með mildari tón í gítar sínum
en oftast áður og sýnir enn og
aftur hvílíkur afburðagítarleikari
hann er. Um þátt höfundar sjálfs
í hljóðfæraleiknum er erfiðara um
að dæma, enda er verkaskipting á
plötunni ekki skilgreind nánar á
plötuumslagi og er það svolítill
galli, a.m.k. fyrir þá sem hafa gam-
an af aö pæla í framlagi hvers og
eins. Þó má ganga út frá því sem
vísu, að Björgvin eigi alla gítarsóló-
þætti plötunnar og þar bregst
hann ekki frekar en fyrri daginn.
Þegar á heildina er litið er þessi
plata vel heppnuð. Hún rífur Val-
geir að vissu marki frá Stuðmanna-
ímyndinni og þótt hún virki kannski
svolítið bragðdauf í fyrstu kemur
kryddið smátt og smátt í Ijós og
slíkar plötur verða oft eigulegri
gripir þegar til lengri tíma er litið.
Sveinn Guðjónsson.
kannski er þetta barnaplata þótt
mér sé ekki grunlaust um að fuli-
orðnir eig'i eftir að hafa miklu
meira gaman af henni en börnin.
Allavega skemmti ég mér ágæt-
lega við að hlusta á hana, en
varð hins vegar var við að sonur
minn sjö ára var ekki eins hrifinn.
Sverrir hefur fyrir löngu sannað
að hann er góður lagasmiður og
þessi plata breytir áreiðanlega
ekki þeirri ímynd hans, þótt hins
vegar megi segja að hann bæti
hér engu við sig frá fyrri afrekum
í tónsmíðum. Lögin eru flest létt
og grípandi eins og vera ber á
„barnaplötu". Textarnir eru hins
vegar í grófari kantinum, þrungnir
illkvittni og nöpru háði, en um leið
þrælskemmtilegir eins og Storm-
skersins var von og vísa. Ég er þó
ekki viss um að þeir séu allir við
hæfi barna enda hefur það sjálf-
sagt aldrei verið tilgangur höfund-
ar að höfða til blessaðra barnanna
á þessari plötu. Hins vegar gæti
margt fullorðið fólk haft gaman af
þessum textum, enda eru þeir
hnyttilega orðaðir og bera glöggt
vitni meðfæddum kvikindisskap
höfundar. f myndatextum á texta-
blaðinu og plötuumslagi getur
Stormsker heldur ekki stillt sig um
að skjóta svolítið á sjálfan sig og
aðstoðarmenn sína og er þetta
allt hin skemmtilegasta lesning
fyrir þá sem hafa gaman af mátu-
legum gálgahúmor.
Þótt hér hafi verið reynt að færa
rök fyrir því að „Nú er ég klæddur
og kominn á rokk og ról" sé fyrst
og fremst barnaplata fyrir full-
orðna er ekki loku fyrir það skotið
að einhver börn, einkum hin eldri,
kunni að hafa gaman af henni.
Rödd hinnar ungu söngkonu, Ra-
kel Axelsdóttur, og stúlknakór gefa
plötunni vissulega yfirbragð hinnar
hefðbundnu barnaplötu og svo er
þarna lagið Socrates, sem börn á
öllum aldri elska enn þann dag í
dag. Þar fyrir utan er platan merki-
leg heimild um ákveðinn áfanga á
ferli „Júróvisjonhetjunnar", eins og
Sverrir kallar sig sjálfur, og þvi
ómissandi í safn allra sannra aðdá-
enda hans.
Sveinn Guðjónsson.
ÞÚ NÆRÐ SETTU
MARKI í VERÐ-
BRÉFAVIÐSKIPTUM
HJÁ OKKUR.
■ Við veitum þér faglega og persónu-
lega ráðgjöf, hvort sem þú þarft að
ávaxta fé eða afla þess.
■ Viljir þú ávaxta fé bjóðum við þér
örugg verðtryggð skuldabréf með
góðum og öruggum raunvöxtum.
Lánstími skuldabréfanna getur verið
frá nokkrum mánuðum til nokkurra
ára. Við bjóðum þér einnig varðveislu
og innheimtu keyptra skuldabréfa án
endurgjalds.
■ Þurfir þú á fé að halda veitum við
þér góð ráð og aðstoð við öflun þess.
■ Þú getur verið viss um að ná settu
marki í verðbréíaviðskiptum hjá
okkur.
■ Vertu ávalit velkominn í afgreiðslu
okkar að Suðurlandsbraut 18.
_fíármáleruokkarfag!
©
UIRÐBRÉFflUIÐSKIPTI
SAMUINNUBANKANS
SUÐURLANDSBRAUT 18 • SÍMI 688568
EGGERT
feldsfari
Efstd Skdavörðustígrmm
vinatta husbónda
og hunds.
Saga um tryggð,
sem hvorki tími né rúm
'ðu að hefta.
Ií|.á £ r t (
—4--L—J -J-1 __I
Hnfaitdi mynd
sem Hercule Poirot.
Vefur leyndar-
dóma, blekkinga
og vélráða eins og
meistari spennu-
sagnanna