Morgunblaðið - 24.12.1988, Qupperneq 55
«er i
MORGUNBLAЌ)
íÞRórmt
»1 "osWSI oriíía. irr/tTOHOM
LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 1988
55
KNATTSPYRNA / ÞJALFUN
Ber saman þjálfun
þriggja 1. deildar-
liða í knattspymu
BJARNIS. Konráðsson útskrifast fljótlega sem íþróttakennari —
með knattspyrnu sem sérgrein — frá íþróttaháskólanum í Köln
í Vestur-Þýskalandi. Hann vinnur nú að lokaritgerð sinni, þar sem
hann ber saman æfingar þriggja íslenskra knattspyrnuliða á
undirbúnings- og keppnistímabilinu 1987. Bjarni, sem erfrá
Frostastöðum f Skagaf irði, lauk námi sínu í Köln, ef ritgerð þessi
er undanskilin, í fyrrahaust og kom til landsins í október það
ár. Þess má geta að hann þjálfaði lið Reynis frá Árskógsströnd í
3. deildinni sl. sumar.
Bjarnl Konráðsson vinnur nú að því hörðum höndum að leggja lokahönd
á ritgerð sína.
Bjami sagðist í samtali við
Morgvnblaðið ekki vita til þess
að slíkur samanburður á þjálfun
íslenskra liða hefði verið gerður
áður. Þau lið sem hér um ræðir eru
IA, Fram og KA. Þjálfarar liðanna
sumarið 1987, Guðjón Þórðarson,
Ásgeir Elíasson og Hörður Helga-
son, létu Bjama í té upplýsingar
um allar æfingar liðinna á ákveðn-
um tímabilum og vann hann úr
þeim upplýsingum. „Þama er ég
með lið sem ávallt hefur verið í
efri kanti deildarinnar, ÍA, Fram
sem topplið og KA sem kom upp
úr 2. deild haustið áður. Ég skrifa
stutt söguágrip, segi frá manna-
breytingum frá því árið áður, að-
stæðum til æfinga, hvort lið hafi
titil að verja og svo framvegis —
en aðalatriðið er síðan að ég ber
mjög nákvæmlega saman æfingar
liðanna," sagði Bjarni.
Á undirbúningstímanum bar
hann saman öll liðin í einn mánuð,
en síðan bar hann aftur saman
æfingamar hjá Fram og KA í einn
mánuð á sjálfu keppnistímabilinu.
Bjami ber saman heildartíma
æfinga á viku og öllu tímabilinu,
einnig æfingafjölda. Hann bar sam-
an upphitun; hve mikill tími fer í
hana að meðaltali — einnig innihald
upphitunaræfinganna; hvaða æf-
ingar þjálfaramir nota og svo fram-
vegis. Eins ber hann saman „aðal-
hlutann", hve stór hundraðshluti
æfingatímans fer í þann hluta, og
hvert innihaldið er — hvemig það
skiptist í æfingu leikskipulags
(taktík), tækni og þrek, og síðan í
hvað þessir hlutar skiptast, þar sem
hann skoðar innihald, tíma og frek-
ari stóptingu. Þannig mætti lengi
telja, en það ætti að vera óþarfi.
Bjami játaði því að þetta væri gífur-
leg vinna, mun meiri en hann hefði
órað fyrir og mikið nostur við að
koma þessu öllu heim og saman.
„Ég ræð síðan um þjálfunina út
frá þeim árangri sem liðin náðu.
Það er ljóst að þessi þrjú lið eiga
margt sameiginlegt hvað þjálfun
snertir, en býsna margt er líka ólíkt
hjá þeim,“ sagði Bjami.
En hvemig stóð á því að hann
valdi þetta efni til að skrifa ritgerð
sína um? „Knattspyrna er leikin á
mörgum stigum um allan heim og
alls staðar em menn að reyna að
vinna titla. Ég vildi komast að því
hvemig þjálfarar á íslandi reyna
að ná þessum markmiðum — án
þess þó að leggja mat á hvort þeir
séu að gera rétt eða rangt. Ég legg
alls engan dóm á það í ritgerðinni,
hún er algjörlega vísindaleg að því
leyti, aðeins samsafn upplýsinga en
enginn dómur um störf þjálfar-
anna.“
Geturðu notað þetta eitthvað í
framtíðinni — er þetta hagnýtt efni
sem þú ert með í höndunum?
„Já. Ég vonast til að fá einhvern
til að gefa þetta út þannig að menn
geti nýtt sér það sem þama kemur
fram. Þeir þrír þjálfarar sem ég
fékk upplýsingar hjá halda allir
nákvæma dagbók og tímaseðla yfir
það hvað þeir eru að gera, og þetta
gæti ef til vill orðið til þess að aðr-
ir, sem ekki gera það, taki upp
þessi vinnubrögð og skipuleggi
þannig starf sitt betur,“ sagði
Bjami S. Konráðsson.
ÍÞRÖmR
FOLK
■ FRIÐRIK PáU Ágústsson
vann gullverðlaun i kumite á
sterku móti í borginni BUnde í
Vestur-Þýskalandi fyrir skömmu.
Friðrik keppt með þýsku liði sem
er frá Lemgo.
I UNGU drengimir úr Aftur-
eldingu, sem settu drengjamet í
4x100 m fjórundi, syntu á 4:47.87
mín., en ekki á 1:47.87 mín. eins
og sagt var frá í gær. Gamla metið
var 4:55.60 mín. ,
■ JOHN Brophy, sem þjálfað
hefur kanadíska ísknattleiksiiðið
Toronto Maple Leaf, hefur verið
rekinn frá félaginu eftir slakt gengi
liðsins. George Armstrong tók við
liðinu, en hann hefur verií lengi í
stjóm félagsins.
B PÓLSKA knattspymusam-
bandið hefur sett Andrzej Rudy,
sem hefur veirð einn besti knatt-
spymumaður Pólveija, í 5 ára
keppnisbann fyrir að flýja, land.
Rudy, sem er 23 ára, hefur ekki
snúið heim til Póllands frá því að
pólska landsliðið lék gegn úrvalsliði
ítölsku 1. deildarinna í Mílanó í
nóvember. Rudy lék með Katowice
og var seldur þangað frá Wroclavt
í ágúst fyrir 110 þúsund dollara,
sem er hæsta upphæð sem greidd
hefur verið fyrir leikmann innan
félaga í Póllandi. Ef Rudy hyggst
leika með liði utan Póllands í
framtíðinni er líklegt að hann fái
ekki að spila fyrr en eftir eitt ár
frá undirskrift.
TENNIS
Jakob Hlasek:
„Bflslysið
breytti mér“
- segir Jakob Hlasek hefurtekið ótrú-
legum framförum eftir bOslys
SVISSNESKI tennisleikarinn
Jakob Hlasek var 23. besti
tennisleikari heims í janúar í
fyrra þegar hann sofnaði und-
ir stýri á leiö í æfingabúðir
hjá þjálfaranum Georges
Denieau í Nimes í Frakklandi.
Hann keyrði á fullri ferð á
vöruflutningabfl en slapp með
brot á hægri handlegg. Hann
gerir sér grein fyrir að slysið
hefði getað farið miklu verr
og telur að sér hafi verið veitt
nýtt líf sem hann er þakklátur
fyrir. „Bflslysið breytti mór,“
segir Hlasek. Hann var úr leik
í fjóra mánuði. Síðan hann
losnaði úr gifsi hefur hann
sigrað hvern leikinn á fætur
öðrum og er nú 8. besti tenn-
iskappi heims.
Hann komst í úrslitakeppni á
tennismótum í Gstaad, Basel
og Brussel í haust, sigraði Grand
Prix-mót í London og Jóhannesar-
borg og hafði unn-
ið Ivan Lendl, Tim
Mayotte og André
Agassi á Masters-
mótinu í New York
í byijun þessa mánaðar þegar
Þjóðveijinn Boris Becker stöðvaði
hann — Svisslendingum til sárrar
gremju.
Hlasek tekur velgengninni með
ró og ætlar sér hærra á tennislist-
anum. Hann hefur verið að klifra
upp hann síðan 1982. Hann var
þá 18 ára og 227. besti tennisleik-
ari heims. 1983 komst hann í
179. sæti, 1984 í 88., 1985 í 33.,
1986 í 32. og 1987 í 23. sæti.
Sigramir á Masters-mótinu
komu dálitið á óvart. Agassi, ungi
bandariski tennisleikarinn sem er
þriðji besti í heimi, vissi til dæmis
ekkert um Hlasek og hélt að hann
væri Frakki eftir leik þeirra í New
Anna
Bjamadóttir
skrifarfrá
Sviss
York. Þekktir þjálfarar og um-
boðsmenn segja að Hlasek hafi
farið fram en þakka auknu sjálfs-
öryggi fyrst og fremst fyrir vel-
gengnina að undanfömu. Lendl
vann Hlasek á opna bandariska
meistaramótinu í september og
sagði eftir Masters-mótið að hon-
um hefði ekki farið fram síðan
þá. Hlasek segist ekki hafa trúað
að hann gæti unnið Lendl á opna
bandaríska mótinu. „En það
gegndi öðru máli í þetta sinn.
Lendl var besti tennisleikari heims
í september en er nú í öðru sæti
á eftir Mats Wilander. Það er
auðveldara að trúa á sigur gegn
hinum næst besta en hinum
besta,“ sagði Hlasek.
Foreldrar Hlaseks fluttust til
Sviss frá Tékkóslóvakíu haustið
1968. Snáðinn var þá fjögurra ára
og nefndur Jakub. Hann fékk
fljótt áhuga á fótbolta og íshokkí.
Vinir hans hvöttu hann ákaft og
kölluðu hann Kúba. Gælunafnið
hélst við hann þótt skímamafninu
væri breytt í Jakob. Faðir hans
er gamall íshokkílandsliðsmaður.
Hann skildi íþróttaáhuga sonar
síns og studdi við bakið á honum
þegar hann heillaðist af hæfni
Bjöms Borg. Hann fékk strax
fyrsta flokks tilsögn og hæfíleikar
hans lofuðu góðu. Faðirinn fékk
forstjóra Diners Club í Sviss til
að styrkja soninn til ferða á tenn-
ismót út um allan heim og for-
stjórinn útvegaði áreiðanlegan
umboðsmann. Hlasek helgaði sig
tennisíþróttinni og nú hefur komið
í ljós að það borgaði sig. Hann
vann sér inn 4,5 milljónir ísl. kr.
um eina helgi á Masters-mótinu
og er með um 67,5 milljónir í
árslaun í ár. Engin furða þótt
hann hafi flutt lögheimili sitt frá
Sviss til Monte Carlo í Mónakó.
Jakob Hlasok hefur staðið sig mjög vel eftir að hafa sloppið naumlega úr alvarlegu bflslysi.