Morgunblaðið - 05.01.1989, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1989
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Árið framundan hjá
Tvíbura
í dag ætla ég að fjalla um
árið framundan hjá Tvíbura
(21. maí-20. júnQ. Hér er ekki
um atburðaspá að ræða held-
ur er verið að huga að þeirri
náttúrulegu orku sem verður
sterkust á árinu. Fólk í merk-
inu hefur síðan ftjálsan vilja
til að bregðast við eftir eigin
geðþótta. Einungis er flallað
um afstöður á Sólina, eða það
sem varðar grunneðli og
lífsorku.
Árþenslu
Það sem strax vekur athygli
er að Júpíter fer i gegnum
Tvíburamerkið á árinu, eða
næsta vor og sumar. Það
táknar að lykilorð fyrir árið
er þensla og jafnframt þörf
fyrir útvíkkun, aukið svigrúm,
hreyfanleika og ferðalög sem
víkka sjóndeildarhringinn.
FerÖalög
Það hvemig þessi þensluorku
birtist í lífi hvers og eins fer
að sjálfsögðu eftir fyrri að-
stæðum. Yfirleitt er orku
Júpíters lýst sem hagstæðri
og þægilegri en slíkt er ekki
algilt. Sem dæmi má nefna
að hún getur haft óþægileg
áhrif á mann sem er staddur
í miðju verkefni sem krefst
einbeitingar eða er á annan
hátt bundinn vegna vinnu eða
skylduverka. Hann þráir frelsi
og vill út í heiminn en kemst
ekki. Þegar slíkt gerist getur
eirðarleysi orðið ráðandi. Það
má því segja að til að koma
í veg fyrir innri óróa er æski-
legt að Tvíburar víkki sjón-
aeildarhring sinn á einhvem
hátt á næstunni, ferðist og
búi við fijálsræði í daglegu
lífi.
Uppgjör við þenslu
Undirritaður hefur rekið sig á
eitt í sambandi við framvind-
ur. Ef viðkomandi Tvíburi
hefur sterkan Júpíter fyrir í
korti sínu og er meira eða
minna í stöðugri þenslu verð-
ur það spuming hversu mikið
hann geti þanið út í viðbót
þegar Júpíter myndar af-
stöðu. í slíkum tilvikum má
segja að framvinda Júpíters
tákni tímabil þar sem tekist
er á við þenslu og þá jafnvel
með þeim afleiðingum að hún
”minnkar eða færist yfir á önn-
ur svið en áður. Viðkomandi
fer að hugsa um þensluáráttu
sína, hún verður á dagskrá
og hann fær nýja sjón á þenn-
an þátt í eigin persónuleika.
Að lokum má geta þess að
Júpíter á Sól fylgir gjaman
aukin bjartsýni og sjálfs-
traust. Eyjólfiir ætti því að
hressast á komandi ári og
taka að hugsa hærra og af
meiri bjartsýni en áður.
ISOgráður
Aðrar plánetur hafa einnig
sitt að segja þó engin þeirra
sé í hefðbundinni afstöðu.
Satúmus, Úranus, Neptúnus
og Plútó mynda allar 150
gráðu afstöðu á Sól Tvíburans
frá Sporðdreka og Steingeit.
Ég hef haft tilhneigingu til
að horfa framhjá þessari af-
stöðu undanfarið, en atburðir
síðustu mánaða í eigin lífi og
þeirra sem ég hef rætt við
um þessa afstöðu bendir til
þess að hún sé mikilvæg á
sinn hátt.
Aðsjá . . .
„Að sjá er annað en að fá“
er setning sem kemur upp í
huga minn þegar 150 gráðu
aístaðan er annars vegar.
Þetta táknar að margvísleg
áhrif koma inn í líf Tvíburans
sem vekja til umhugsunar, án
þess að allt of margt gerist.
Næsta ár verður því ár þenslu,
frelsis og aukins léttleika
jafnframt því sem margar
hugmyndir kvikna sem bíða
betra tíma. Tvíburinn losar
um böndin, sáir í jörðina og
bíður síns vitjunartíma.
il l ■ 'J ni
GRETTIR
BRENDA STARR
srueeflR se/n
MALDA AB FRAAInh LyE)-
—FUSE>IS/h/S ByGGIST A
//EFUDÐUYBL AD/HFUí- l trú aæ
6E7STÞA&Tj\ D'GA EKICIÆD
þ/NGMADUey SPyRTA, SP//J. -þE/p
LJOSKA
SMAFOLK
I TRIEP TO 6IVE TME REP
BARON A BIRTMPAV CAKE.AMP
ME 5M0T IT FULL OF M0LE5...
Ég reyndi að gefa Rauða
baróninum afmælistertu,
en hann skaut hana í
klessu . ..
JE RE6RETTE BEAUCOUP., g
P0N‘T BE 5AP; FLYIK6 ACE... |
YOU UUERE VERY BRAVE, ANP !
YOU MAPE MIM L00K F00LI5M..I
En leitt, vertu ekki dapur,
flugkappi ... þú varst mjög
djarfur og þú gerir hann
kjánalegan.
TOUT VA 0IEN! 50MEPAY
THEY WILL LAU6M ANP 5AY
|lME 5M0T POWN E16MTY PLANE5
ANP ONE BlRTMPAY CAKE.'"
Og hvað svo! Einhvern
tíma verður hlegið og sagt,
„Hann skaut niður 80 flug-
vélar og eina afmælis-
tertu!“
-k
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Suður verður sagnhafi í sex
hjörtum, án þess að andstæðing-
amir hafi skipt sér af sögnum.
Norður
♦ 843 •
*D3
♦ 109754
♦ K72
Vestur Austur
♦
♦
♦
♦ ♦
Suður
♦ ÁK6
♦ ÁKG1094
♦ -
♦ ÁD63
Útspil vesturs er tígulás.
Hvemig er best að spila?
Sagnhafi á 11 slagi og ekki
marga möguleika á þeim 12.
Helsta vonin er að laufið liggi
3—3, en fyrirframlíkur á því eru
ekki mjög miklar, eða tæplega
36%. En getur hann unnið spilið
í einhverri legu ef laufið er ekki
3-3?
Ein hugmynd er að taka einu
sinni tromp og spila svo laufinu
þrisvar. Ef sami andstæðingur
á tvö lauf og eitt hjarta má
trompa fjórða laufið í blindum.
Slík lega er heldur ólíkleg og
betri hugmynd er að fara strax
í laufíð, spila ás, kóng og síðan
litlu á drottninguna. Þá er verið
að hugsa um þessa legu:
Norður ♦ 843 ♦ D3
♦ 109754
♦ K72
Vestur Austur
♦ D95 ♦ G1072
♦ 752 II ♦ 86
♦ ÁK6 ♦ DG832
♦ G985 Suður ♦ ÁK6 ♦ 104
♦ AKG1094
♦ - ♦ ÁD63
Trompi austur, á sagnhafí enn
laufdrottninguna til góða. Hann
getur þá tekið einu sinni tromp,
fleygt spaða niður í laufdrottn-
inguna og stungið spaða. Og
trompi austur ekki, verður íjórða
laufíð stungið með drottningu
blinds.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
í deildakeppninni í vetur kom
þessi staða upp í skák þeirra
Þrastar Þórhallssonar, Taflfé-
lagi Reykjavíkur, suðaustur-
sveit, sem hafði hvítt og átti leik,
og Þorvaldar Logasonar, Tafl-
félagi Garðabæjar. Svartur hafði
haft góða stöðu fyrr í skákinni,
en þegar hér var komið sögu hafði
hann gert þau mistök að opna
línur á kóngsvæng, sem hvítur
gat hagnýtt fyrir hróka sína.
32. HxfB! (Mun betra en 32.
Hh2? - Bh3) 32. - HxfB 33.
Dg3 — Dh7 34. Dg5 (Hótanir
hvíts eru of margar, svartur verð-
ur að gefa drottninguna eða verða
mát) 34. - Hh6 35. Dd8+ og
svartur gafst upp.