Morgunblaðið - 08.01.1989, Page 6
6 FRETTIR/INNLEIMT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1989
Hæglátur og
traustur Skagamaður
Halldór V. Sigurðsson ríkisendurskoðandi
HALLDÓR V. Sigurðsson
ríkisendurskoðandi átti að
baki áratuga langan farsælan
feril sem opinber embættis-
maður þegar breytingar voru
gerðar á lögum um stofnun
þá sem hann stýrir, um áramót
1987. Fram að þvi höfðu störf
ríkisendurskoðunar Iítið verið
til umQöllunar opinberlega og
Halldórs V. Sigurðssonar er
ekki getið í fárra ára gömlu
riti um íslenska samtíð-
armenn. En I kjölfar laga-
breytinganna, sem höfðu i för
með sér að stofnunin heyrir
nú beint undir Aiþingi og ger-
ir, auk reikningslegs eftirlits,
e&iislegar athugasemdir við
ráðstöfún opinbers Qár, hefúr
sviðsljósið mjög beinst að
Ríkisendurskoðun. Fárra
stofnana og embættismanna
er nú oftar getið í Qölmiðlum
en Rikisendurskoðunar og
Halldórs V. Sigurðssonar.
Halldór er afskaplega yfírveg-
aður maður, traustur og ró-
legur. Eftir áratuga löng kynni
þekki ég hann að góðu einu, sagði
Bergur Tómasson, framkvæmda-
stjóri endurskoðunarsviðs
Reykjavíkurborgar, sem þekkt
hefur Halldór um nær fjörutíu
ára skeið. Kynni þeirra hófust
þegar Halldór hóf -nám í endur-
skoðun hjá Bimi Steffensen og
Ara Ó. Thorlacius. Bergur kvaðst
telja víst að það væri alls ekki
að frumkvæði Halldórs hve mikið
væri nú um störf stofnunarinnar
fjallað á opinberum vettvangi.
„Ég held að honum falli það ekki
sérlega vel,“ sagði Bergur að-
spurður um hvemig hann héldi
að Halldóri félli það að sviðsljós
íjölmiðla beindist í síauknum
mæli að störfum hans. Bergur
sagði engan vafa vera á því að
breytingunni á starfssviði Ríkis-
endurskoðunar hefði fylgt aukið
starfsálag fyrir Halldór.
Halldór V. Sigurðsson hefur
um áratuga skeið spilað brids
ásamt fjórum kollegum sínum
einu sinni í viku. Auk Bergs Tóm-
assonar em í þeim hópi Kolbeinn
Jóhannsson, Tomas Þorvaldsson
og Sigurður Stefánsson. Bergur
Svipmynd
ejtir Pétur Gunnarsson
sagði að haldnar hefðu verið
skrár um hvert einasta spilakvöld
og í desember hefði hópurinn
komið saman i 800. skipti.
Sveinn Arason skrifstofustjóri
Ríkisendurskoðunar hefur unnið
með Halldóri V. Sigurðssyni frá
1972. Eins og aðrir sem rætt var
við segir hann að í umgengni sé
Halldór afskaplega þægilegur
maður, sem vilji fremur telja
menn á sitt band með fortölum
og rökræðum en með valdboði í
krafti embættisins. Þó sé hann
fastur fyrir þegar á þurfí að
halda. Sem stjómandi sýni hann
deildarstjórum sínum og öðmm
samstarfsmönnum mikið traust
en láti þó engar athugasemdir
frá stofnuninni fara í nafni sínu
án þess að lesa þær yfír og full-
vissa sjálfan sig um réttmæti
þeirra.
Nafn: Halldór V. Sig-
urðsson.
F.dagur og -ár: 13. júlí
1924.
Akumesingur.
Starf: Ríkisendurskoð-
andi.
Menntun: Löggiltur
endurskoðandi 1954.
Fyrri störf: Endurskoð-
andi á endurskoðunar-
stofu Bjöms Steff-
ensens og Ara Thorlac-
ius, rekstur eigin end-
urskoðunarskrifstofu.
Leikmaður í fyrsta gull-
aldarliði íþróttabanda-
lags Akraness. Knatt-
spymudómari um skeið.
Formaður Norræna
endurskoðunarsam-
bandsins, stjómarseta í
Félagi löggiltra endur-
skoðenda.
Heimilishagir: Kvænt-
ur; á þrjá syni og tvær
dætur, öll uppkomin.
Halldór er Akumesingur og
var faðir hans, Sigurður Símon-
arson, kunnur maður á sinni tíð.
Halldór lék með fyrsta gullaldar-
liði Akumesinga í knattspymu í
nokkur ár eftir 1946. „Það sést
af skjölum félagsins að Halldór
hefur verið mjög áberandi hér á
þeim tíma sem knattspymudeild-
in var að hefja starfsemi,“ sagði
Jón Gunnlaugsson. „Eftir að
hann fluttist héðan var hann
einnig í fjölda ára mikilvægur
tengiliður í sambandi við heim-
sóknir erlendra liða og fleira við-
vik fyrir félagið. Og hann fylgist
enn vel með starfínu hér úr
§arska,“ sagði Jón. „Strákamir
sem spila í liðinu í dag þekkja
hann kannski ekki en fyrir nokkr-
um árum, um það leyti sem ég
lék með meistaraflokki, þekíctu
allir leikmenn Halldór enda var
hann fastagestur á leikjum og
samfagnaði okkur oft í búnings-
klefum eftir leik," sagði Jón
Gunnlaugsson. „Öll mín kynni
af Halldóri eru á einn veg,“ sagði
Jón. „Hann er vel látinn hér á
Skaganum. Það einkennir mann-
inn að hann er dagfarsprúður og
hlýr og kemur til dyranna eins
og hann er klæddur," sagði Jón
Gunnlaugsson.
Síldarverksmiðjur ríkisins:
Ekki á margra færi
að kaupa eignirnar
- segir Þorsteinn Gíslason sljórnarmaður
„ÉG legg ekki mat á hvort rétt sé selja eignir Sfldarverksmiðja ríkisins
eða hvort það er yfirleitt hægt. Það verður að vera mál þeirra sem
ráða rikjum hvort þeir telji eignunum betur varið með því að skipta
fyrirtækinu en bendi á söguna sem sýnir að þetta fyrirkomulag hefúr
gefist vel,“ sagði Þorsteinn Gislason fiskimálastjóri og stjómarformaður
SR sl. 12 ár um hugmyndir um sölu Sfldarverksmiðjanna. Ný stjóm SR,
sem taka átti við um áramót, er ekki fúllskipuð og hefúr ekki skipt
með sér verkum.
Þorsteinn sagði að sú staðreynd
að Síldarverksmiðjumar hefðu
starfað lengi og komist af eigin
rammleik í gegnum alla erfíðleika
væri því að þakka að verksmiðjumar
væru dreifðar um landið og hver
hjálpaði annarri. Þegar vel gengi
væri fé ekki tekið úr rekstrinum,
heldur færi til uppbyggingar.
Síldarverksmiðjur ríkisins em
ríkisfyrirtæki með sjálfstæðan fjár-
hag. Það á m.a. loðnuverksmiðjur
og tilheyrandi fasteignir á Siglufírði,
Raufarhöfn, Seyðisfirði og Reyðar-
fírði, vélaverkstæði á Siglufírði,
beinamjölsverksmiðju á Skagaströnd
og skrifstofuhúsnæði í Reykjavík.
Samkvæmt upplýsingum Jóns
Reynis Magnússonar framkvæmda-
stjóra vom bókfærðar eignir SR 816
milljónir kr. samkvæmt milliuppgjöri
um mitt síðasta ár, skuldir 380 millj-
ónir og eigið fé því 436 milljónir kr.
Bmnabótamat eigna fyrirtækisins er
hátt í hálfan annan milljarð kr. Þor-
steinn Gíslason sagði að eignimar á
einstökum stöðum væm það miklar,
sérstaklega á Siglufírði, að það væri
ekki á margra færi að kaupa þær.
Spuming hvort ríkið
á nokkuð með að selja
- segir SveinnHjörturHjartarsonformað-
ur Samábyrgðar íslands á fískiskipum
„ÞESSI hugmynd vekur fyrst upp spurningar um hvort rfkið eigi nokk-
uð með að selja Samábyrgð Islands á fiskiskipum, sem er sjálfseignar-
stofiiun og hvorki á A né B hluta fjárlaga," sagði Sveinn Hjörtur Hjart-
arson stjórnarformaður Samábyrgðarinnar.
Sveinn Hjörtur sagði að Sam-
ábyrgðin þjónaði eingöngu út-
gerðarmönnum. Hún tryggði físki-
skip og áhafnir og endurtryggði fyr-
ir bátaábyrgðarfélög landsins. „Ut-
gerðarmenn hafa greitt Samábyrgð-
inni iðgjöld af tryggingum í 80 ár
til þess að mæta tjónum sem þeir
verða fyrir. Hafi orðið afgangur er
það varasjóður," sagði Sveinn.
Einnig hefur verið rætt um að
taka 250 milljónir kr. úr Aldurslaga-
sjóði til að leggja í nýjan úreldingar-
sjóð. Sveinn Hjörtur sagði að Aldurs-
lagasjóður væri deild í Samábyrgð-
inni og ekkert annað en trygginga-
sjóður sem menn greiddu í ákveðið
hlutfall af tekjum til þess að eiga
kost á bótum þegar þeir ákvæðu að
eyða skipum sínum eða þegar bráð-
afúi kæmi í tréskip. Ríkið ætti ekk-
ert í þessum sjóði og gæti alveg eins
tekið eignamámi lífeyrissjóði eða
sparisjóðsbækur.
Heildareignir Samábyrgðar ís-
lands á fískiskipum voru 331,8 millj-
ón kr. samkvæmt efnahagsreikningi
í árslok 1987, skuldir 37,8 milljónir
og mismunur eigna og skulda því
294 milljónir kr. Þar af er trygginga-
sjóður 145 milljónir og áhættusjóður
6 milljónir kr.
Óli Þ. í Alþýðuflokkinn?
KRATAR á Suðurlandi munu nú þegar hafa boðið Óla Þ. Guð-
bjartssyni, þingmanni Borgarflokksins, 1. sæti á lista Alþýðuflokks-
ins í kjördæminu í næstu alþingiskosningum og er talið afar líklegt
að hann muni þekkjast boðið. Reyndar eru kratar í Vestmannaeyj-
um ekki jafii sannfærðir um ágæti hugmyndarinnar og aðrir sunn-
lenskir kratar, en slíkar efasemdir munu ekki skipta sköpum. Óli
myndi því sigla inn í ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar undir
merkjum Borgaraflokksins, náist samkomulag um stjórnarþátttöku
Borgaraflokks eða hluta hans, en þaðan út undir rauðri kratarós.
Óli Þ.
Guðbjartsson.
Ólafúr Ragnar
Grímsson.
Jón Baldvin
Hannibalsson
Ef þessi háttur verður hafður
á, hefur það í för með sér urg
og sarg í ýmsum herbúðum; til
dæmis er Framsókn síður en svo
sátt við það að verið sé að fá Borg-
araflokk, eða Borgaraflokksbrot til
stjómarsamstarfs, sem muni lykta
með því að fjórir kratar sitji í
stjóminni. Slíkt telja þeir ekki gott
veganesti fyrir sig, í næstu kosn-
ingabaráttu. Aðrir borgaraflokks-
menn eru einnig þeirrar skoðunar
að þessi tilhögun orki tvímælis, og
sé í rauninni ekkert annað en ítrek-
un á upphafinu að endalokum
Borgaraflokksins.
Þá hefur hjal um A-flokkasam-
mna og sameiginlegt fundaher-
ferðaráform þeima Jóns Baldvins
og Ólafs Ragnars og hversu mikil
alvara sé þar á bak við, vakið upp
pirring á mörgum stöðum. Fram-
sókn lítur á þetta sem einskonar
„lifrarbandalag" gegn sér og for-
maður Sjálfstæðisflokksins ritar í
Morgunblaðinu í gær grein undir
fyrirsögninni: „Sammni A-flokk-
anna kallar á borgaralegt sam-
starf". Auk þess em tilfínningar
þingmanna og annarra flokks-
manna Alþýðuflokks og Alþýðu-
bandalags afskaplega blendnar til
þessa gagnkvæma daðurs flokks-
formanna þeirra.
Það er hald margra á Alþingi
að Jón Sigurðsson, viðskiptaráð-
herra, sé mjög svo að treysta sinn
pólitíska sess þessa dagana. Er
talið að Jón og Ólafur Ragnar séu
höfuðpauramir á bak við það að
einungis 4% gengisfelling var
ákveðin nú í vikunni, og að þeir
telji sig þar með hafa einangrað
Steingrím Hermannsson með hug-
myndir um frekari gengisfellingu
þegar líða tekur á mánuðinn.
Reyndar er kurr í mörgum fram-
sóknarmanninum vegna þessa.
Jafnvel er talið að það sem hef-
ur gerst undanfama daga á bak
við tjöldin -varðandi leynimakk við
Óla Þ. geti dregið dilk á eftir sér.
Forsætisráðherra liggur greinilega
ekkert á, í ljósi þeirra upplýsinga
sem hann nú hefur, að fá Borgara-
flokkinn inn í stjómarsamstarfið,
því hann segist ætla að halda
fyrsta kynningarfundinn með full-
trúum stjómarinnar og Borgara-
flokks næstkomandi föstudag, eða
heilli viku eftir að hann sendi þing-
ið heim á nýjan leik, eftir einungis
þriggja daga starf.
Það er kannski eitthvað til í því
sem ónefndur maður sagði við mig
í vikunni: „Það þarf bara þrennt
til, til að stjórna þessu landi. í
fyrsta lagi, þá má alls ekki kjósa.
í öðru lagi, þá má þing ekki sitja
og í þriðja lagi verður að banna
alla kjarasamninga.“
hDACBÓKm
stiórnmAl
eftir Agnesi Bragadóttur