Morgunblaðið - 08.01.1989, Blaðsíða 40
GÆÐANNA VEGNA!
MORGUNBLAÐIÐ, AÐALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK
TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, PÓSTHÓLF 1565 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR.
Dansinn
hækkar
um 20%
DANSSKÓLARNIR fengu ný-
lega heimild hjá Verðlagsstofiiun
til að hækka skólagjöldin um
20%.
Dansskólamir hækka þjónustu
sína yfírleitt einu sinni á ári. Þegar
skólamir hófust í haust óskuðu for-
ráðamenn þeirra eftir hækkun en
vegna algerrar verðstöðvunar sem
gilti í september var hækkun ekki
heimiluð. Guðmundur Sigurðsson
viðskiptafræðingur Verðlagsstofn-
*»nar segir að í þeirri verðstöðvun
sem nú gilti væru heimilaðar hækk-
anir sem kæmu til einu sinni á ári
og tekið mið af verðlagsþróun.
Dansskólamir hefðu ekki hækkað
skólagjöldin í heilt ár og því hefði
þessi hækkun verið heimiluð. Hann
sagði að einstaka þjónustufyrirtæki
önnur, sem væru í svipaðri aðstöðu,
hefðu einnig fengið heimild til
hækkunar.
Bensínverð-
ið óbreytt
um sinn
NÝTT verð á bensíni verður
ekki tekin upp strax þrátt
fyrir gengisfellingu isiensku
krónunnar.
Gengisfellingin raskaði for-
sendum verðlagningarinnar um
áramótin en samkvæmt upplýs-
ingum Guðmundar Sigurðsson-
ar hjá Verðlagsstofnun veitir
staða innkaupajöfnunarreikn-
ings svigrúm til að fresta end-
urskoðun bensínverðsins.
Óli Þ. fjórði
ráðherra
krata?
ÓLA Þ. Guðbjartssyni, þing-
manni Borgaraflokks i Suður-
landskjördæmi, hefur verið boð-
ið 1. sæti á lista Alþýðuflokks
þar í næstu þingkosningum,
gangi hann í flokkinn. Hann mun
líklega þekkjast þetta boð, sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins.
Framsóknarmenn munu ekki
sáttir við að gengið sé til samninga
við Borgaraflokkinn undir þessum
formerkjum. Þá liggur það svo gott
sem fyrir að Borgaraflokkurinn
gengur ekki óskiptur til samstarfs
við ríkisstjómina. Ingi Bjöm Al-
bertsson lætur að því Iiggja í sam-
tali við Morgunblaðið í dag, að hann
muni ekki styðja slíkt samstarf.
Þannig kann að vera að hann,
ásamt föður sínum, Albert Guð-
mundssyni, og að öllum líkindum
einnig Hreggviði Jónssyni, muni
segja skilið við Borgaraflokkinn
innan tíðar, takist samkomulag á
milli stjómar og annarra Borgara-
flokksmanna.
Sjá Stjórnmáladagbók, bls. 6
og viðtal við Inga Björn Al-
bertsson, bls. 16-17.
Morgunblaðið/Sverrir
Viðgerð á rafinagnslínunni hófst í gærmorgim. Á myndinni sést
er komið var með nýjan staur á þann stað er línan var í sundur.
Á innfelldu myndinni sést línuendinn.
Aburðarverksmiðjan rafinagnslaus:
Talið að rafinagnslínan
hafi verið skotin í sundur
17 megavött með 35.000 volta spennu eru flutt um línuna
Áburðarverksmiðjan í Gufunesi stöðvaðist um kl. 2.30 aðfara-
nótt laugardagsins er rafinagnið fór af henni. Talið er að raf-
magnslínan til verksmiðjunnar hafi verið skotin í sundur. Rann-
sóknarlögreglan vinnur nú að rannsókn málsins en fúndist hafa
7 riffilskothylki á þeim stað sem rafinagnslínan er í sundur.
Um er að ræða línuna frá
spennistöðinni við Korpu.
Um þessa línu er flutt 17 mega-
vatta orka með 35.000 volta
spennu. Talið er að skotið hafi
verið á einangrara sem línan
hangir í á staur sem er í um 800
metra fjarlægð frá verksmiðj-
unni. Er línan fór brann staurinn.
Hákon Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Áburðarverksmiðj-
unnar, segir að í um 15 metra
fjarlægð frá staumum sem brann
sé vegaslóði og að á þessum slóða
hafi skothylkin sjö fundist þannig
að ekki sé hægt útiloka að um
skemmdarverk hafi verið að
ræða.
„Við verðum fyrir töluverðu
framleiðslutjóni af völdum raf-
magnsleysisins, en ekki er hægt
að segja til um nákvæmlega
hversu mikið það tjón verður fyrr
en vitað er hversu lengi fram-
leiðslan mun liggja niðri,“ segir
Hákon Björnsson.
Viðgerð við línuna hófst strax
í gærmorgun og átti Hákon von
á að henni myndi ljúka laugar-
dagsnóttina eða á sunnudags-
morgun.
Sundhöllin
og Laug-
ardalslaug
þarftiast
mikilla
endurbóta
VERULEGAR endurbætur þarf
að gera á Sundhöllinni og sund-
lauginni í Laugardal samkvæmt
úttekt er byggingadeild borgar-
verkfræðings og Iþrótta- og tóm-
stundaráð hafa látið framkvæma.
Einhveijar viðgerðir þarf einnig
að framkvæma á Vesturbæjar-
lauginni, Laugardalshöllinni og
Laugardalsvelli. Málið er enn á
frumstigi en talið er að kostnað-
urinn við þessar viðgerðir geti
numið um 200 m.kr.
Guðmundur Pálmi Kristinsson,
yfirmaður byggingadeildar,
sagði að safnast hefði saman margra
ára viðhald á þessum mannvirkjum,
þau væru sum einfaldlega komin á
tíma. Niðurstöður úttektarinnar og
tillögur byggingadeildar hefðu nú
verið kynntar forstöðumönnum við-
komandi stofnana og ráðum borgar-
innar og væru til umræðu í spamað-
amefnd borgarinnar. Taldi hann
ekki miklar líkur á að hafist yrði
handa við viðgerðir á þessu ári.
Brýnustu málin væru Sundhöllin
og sundlaugin í Laugardal. í Sund-
höllinni þyrfti m.a. að gera við eða
skipta um flísar og glugga. Þakið
væri farið að leka og trévirki ofan
á steyptri plötu væri orðið fúið. Þá
væri einangrunin ónýt.
I Laugardalslauginni væri það
sjálf laugin og lagnimar sem þyrfti
að endurnýja og þyrfti því að loka
lauginni í einhvem tíma. Hefði m.a.
komið upp sú hugmynd að skipta
lauginni í tvennt og hafa grunnu
laugina opna ásamt heitu pottunum
og vatnsrennibraut meðan djúpa
laugin er tekin í gegn, en hún væri
í verstu ásigkomulagi. Enn er þó
alls óráðið hvernig staðið verði að
þessu.
í Laugardalshöll þarf að huga að
rafmagnsmálum og einhvetjar end-
urbætur þarf einnig að gera á Laug-
ardalsvelli og Vesturbæjarlauginni.
Sorp flokkað ínnanhúss
Stórir skálar reistir í Hádegismóum
BYLTING er fyrirhuguð í meðferð sorps á höfúðborgar-
svæðinu í samvinnu 8 sveitarfélaga sem taka við 67% af
sorpi landsmanna. En þar kemur meira sorp frá hverjum
íbúa að meðaltali á ári en vitað er um í nokkru öðru landi,
eða 900 kg á mann. Verður öllu sorpi ekið í tvo skála, 2.000
fermetra skála fyrir iðnaðarsorp og 1.000 fermetra skála
fyrir húsasorp, þar sem tekið verður úr sorpinu það sem
nýta má og endurvinna og öll varhugaverð efiii Qarlægð,
en afgangurinn pressaður í vírbundna bagga til flutnings
á urðunarstað.
Sótt hafði verið um lóð undir
skálana miðsvæðis í Fífu-
hvammslandi í Kópavogi, en því
var nýlega hafnað. Reykjavíkur-
borg nefur því úthlutað landi
undir flokkunarstöðina í Hádeg-
ismóum sunnan við Golfvöllinn í
Grafarholti, þ.e. milli hans og
Rauðavatns. Hefur verið sótt um
staðsetningarleyfi fyrir húsin til
Hollustuvemdar. Þar með er haf-
ist handa um framkvæmdir og
breytt vinnubrögð, sem taka eiga
við eftir að Gufuneshaugamir
verða lagðir niður á árinu 1990.
Ekki hefur enn verið fenginn
urðunarstaður fyrir baggana.
Miklar rannsóknir hafa farið
fram á heppilegasta urðunarstað
og stór svæði útilokuð vegna
vatnsvemdar, grunnvatns, lekra
hrauna, nálægðar við byggð og
matvælaframleiðslu o.fl. Fýsileg-
ustu urðunarstaðimir reynast
vera frá Köldukvísl að Tíðaskarði
vegna þétts undirlags, nálægðar
við sjó, minnstrar umhverfis-
röskunar og nægs þekjuefnis.
Sveitarstjóm Kjalameshrepp
hefur alfarið hafnað því að nokk-
urt sorp komi þar í hrepp til urð-
unar. Hafa menn augastað á 1-2
öðmm stöðum, en málið er óleyst
og Gufuneshaugarnir að verða
fullnýttir.
Sjá nánar grein og myndir
á bls. 22-24 í blaðinu.