Morgunblaðið - 08.01.1989, Side 10
10
MÓRGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1989
FÆBIMG, DflUÐI OG ENDURFÆDING FRAMTÍÐARSPÁR - DÆMISA6A ÚR STJÓRNKERFINU
Steíngrímur Hermannsson, lorsætisráðherra hrindlr úr vir ööru sinni hví sem
hann nefnir framtíðarkönnun. Stört nefndarinnar hafa legið niðri í tæp tvö ár
en kostnaður mun hnminn uppí 15-20 milljánir.
eftir Agnesi Bragodóttur
VORIÐ1984 fékk þáverandi forsætisráðherra, Steingrímur Hermannsson,
allstóran hóp sérfræðinga hér á landi til þess að sameinast um fjölþætta
framtíðarspá, þar sem rýnt skyldi aldarQórðung fram í tímann, eða fram til
ársins 2010. Ohætt er að segja að starfið fór af stað með talsverðum gassa-
gangi og látum, og var á forsætisráðherra og fleirum að heyra að þeir gerðu
sér miklar vonir um að störf starfshópanna 16, samtals um 150 manna, yrðu
árangursrík. Kveikjan að þessu var sú að forsætisráðherra hafði heyrt ræðu
eins af ráðgjöfum Carters, frá forsetatíð hans, sem greindi frá því hvernig
Bandaríkjasljórn hafði staðið að framtíðarkönnun sinni. Farið hefur heldur
lítið fyrir störfiim nefiidarinnar undanfarin tvö ár, og má segja að hún sé
annað hvort í djúpum dásvefiii, eða að hún sé einfaldlega dáin drottni sínum.
Allt kostaði þetta að sjálfsögðu sitt og sér ekki fyrir endann á þeim útgjöldum
þar sem forsætisráðherra boðaði í áramótaávarpi sínu nú fyrir viku að nefiid-
in skyldi snarlega vakin af Þymirósarsvefiii sínum. Raunar vill hann ekkert
um það segja hvað endurvakningin kemur til með að kosta, né hvað störfin
hingað til hafi kostað — það segist hann ekki muna. Hallgrímur Snorrason,
hagstofustjóri, hefiir á hinn bóginn útvegað upplýsingar sem benda til þess
að kostnaður við þetta verkefhi hingað til, sem fallið hefúr á forsætisráðuneyt-
ið, sé um 12,5 milljónir á núvirði, en auk þess hafa ákveðnar stofhanir og
ráðuneyti greitt fyrir hluta af vinnunni, þannig að kostnaður við verkið hing-
að til gæti verið á bilinu 15 til 20 milljónir.
1984 var núverandi viðskiptaráðherra, Jón
Sigurðsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar.
Hann var skipaður formaður í framkvæmda-
nefnd framtíðarspárinnar. Skyldu fram-
tíðarsérfræðingamir kortleggja hvemig ís-
land yrði næstu 25 árin, eða allt fram til
ársins 2010. Kannað skyldi hvaða framtíð
biði þjóðarinnar, bæði hvað varðar hættur
er bæri að varast og möguleika sem nýttir
skyldu.
Með Jóni Sigurðssyni voru í framkvæmda-
nefndinni þau Hallgrímur Snorrason, sem
var ritari nefndarinnar (nú hagstofustjóri
og verðandi formaður nýju framkvæmda-
nefndarinnar), Guðrún Jónsdóttir, arkítekt,
Helga Jónsdóttir, aðstoðarmaður forsætis-
ráðherra, Vilhjálmur Lúðvíksson, forstjóri
Rannsóknarráðs ríkisins, Davíð Scheving
Thorsteinsson, iðnrekandi, Ingjaldur
Hannibalsson, forstjóri og Tryggvi Gíslason,
skólameistari á Akureyri.
Sumar nefndanna eða starfshópanna fun-
duðu mjög stíft og unnu mikið í sérverkefn-
um sínum. Aðrar nefndir hittust minna.
Upphaflega markmiðið var að gefa út í fimm
ritum skýrslur, ritgerðir og álit allra nefnda-
hópanna, en einungis tvær hafa litið dagsins
ljós: Gróandi þjóðlíf og Auðlindir um alda-
mót, ásamt viðauka. Hinar þijár bækumar,
sem enn eru ekki komnar út, eru Menning
og menntun á tækniöld, Framfaraöld, Lög-
gjöf og landshagir.
Langmestu fjármunirnir fóru í starf efna-
hagsnefndarinnar, sem gárungunum þykir
hálfskondið, þar sem Þjóðhagsstofnun reyn-
ist nógu örðugt að spá um afkomu þjóðarbús-
ins á einu ári. Það sé næsta vonlítið og hálft-
ilgangslaust að gera slíka efnahagsspá um
ísland til áratuga. Magnús Ólafsson, fýrrver-
andi ritstjóri NT, var ráðinn sem starfsmað-
ur nefndarinnar til eins árs 1985-86 og
skyldi verksvið hans vera það að annast
útgáfu á efni starfshópanna.
Hallgrímur Snorrason sagðist í samtali
við Morgunblaðið ekki hafa allar kostnaðar-
tölur fram til dagsins í dag, á reiðum hönd-
um, en innan tíðar myndu þær liggja fýrir.
Hann sagði að kostnaður sem fallið hefði á
forsætisráðuneytið af verkinu væri um 7,5
milljónir króna á verðlagi hvers árs fýrir
sig, en að núvirði gæti það samsvarað um
12 milljónum króna. „Drýgstur hluti þessa
kostnaðar er launagreiðslur og sérfræði-
kostnaður. Mér sýnist sem það séu um rösk-
lega 5 milljónir sem samsvarar 8,5 milljónum
króna á núverandi verðlagi. Annar kostnað-
ur, sem á núvirði er um 3,5 milljónir króna,
skiptist niður á liði eins og tölvu-, ferða-,
fjölritunar-, prent-, og almennan skrifstofu-
kostnað," sagði Hallgrímur. Hallgrímur
sagði að fjárveitingar til verksins hefðu ver-
ið heldur lægri en þessu næmi, þannig að
einhver kostnaður hefði fallið á forsætisráðu-
neytið sem almennur kostnaður. „Að auki
hefur fallið nokkur kostnaður á önnur ráðu-
neyti og stofnanir, en enn sem komið er hef
ég hann ekki,“ sagði Hallgrímur.
Nú tæpum tveimur árum eftir að lífsmarks
verður síðast vart hjá nefndinni ákveður
Steingrímur Hermannsson, forsætisráð-
herra, að velqa nefndina til lífs á nýjan leik
og að verkefnum hennar verði lokið með
útgáfu þeirra verka sem ýmist hafa beðið
útgáfu, eða ekki hefur verið lokið við að
skrifa. Skiptar skoðanir eru um ágæti þess-
arar ákvörðunar, sem ákveðnir viðmælendur
mínir hafa nefnt mislukkað gæluverkefni
Framsóknar, en þeir sem tóku mikinn þátt
í undirbúningsvinnunni á sínum tíma virðast
flestir hverjir fagna því að verkinu skuli lok-
ið, þó fæstir telji að einhver „stóri sannleik-
ur“ muni koma fram í þeim skýrslum sem
ekki hafa enn séð dagsins ljós í bókarformi.
Hallgrímur Snorrason, sem nú tekur við
formennsku í framkvæmdanefndinni, segist
fagna því að forsætisráðherra hafi ákveðið
að þessu starfi verði lokið. „Það var feiknam-
ikið starf unnið í þessum nefndum og að
mörgu leyti tel ég að þama hafi verið mjög
vel að verki staðið og mjög gagnlegir hlutir
hafi skilað sér. Þeir hlutir hafa jafnvel kom-
ið að gagni, þó að í sumum tilvikum hafi
málið því miður fjarað út. Nú þarf að ljúka
þessu verki og færa til dagsins í dag þau
handrit sem eru til í dag, og búa þau undir
útgáfu,“ sagði Hallgrímur og kvaðst hann
telja að því verki mætti ljúka á þessu ári
fyrir ekki meira fé en tvær milljónir króna.
FJáRSKORTUR, FÖUS-
EKIi 06 TfMKSKORTUR
- „Höfum hagað okkur eins og algjör f ífl/‘ segir forsætisráðherra
JÓN Sigurðsson, viðskiptaráðherra segir það hafa vantað á sl.
ári að tekið væri á framtíðarkönnuninni og henni lokið. Ekki
hafi verið Qárveitingar fyrir hendi til þess að ljúka málinu, og
forsætisráðuneyti Þorsteins Pálssonar hafi ekki beðið um fiárveit-
ingu, til þess að verkefiiinu yrði lokið. „Það er greinilega fullur
vilji fyrir hendi af hálfú núverandi forsætisráðherra að þetta
mál nái fram að ganga,“ segir Jón og Steingrímur Hermannsson
tekur í sama streng og segist te(ja það afar þýðingarmikið fyrir
heildarsýn ráðamanna að þessari könnun verði lokið. „Tilgangur-
inn er sá með svona verkefni, að reyna að skyggnast inn í framt-
íðina, eins og verið er að gera út um allan heim. Svíar eru meira
að segja komnir með sérstaka stofiiun í þetta,“ segir Steingrímur
um tilgang svona verkefiiis.
Auðvitað er það ljóst, að það
að ég hverf frá þessu starfi,
vorið 1987 hefur ekki flýtt
lokum verksins. Vorið 1987
komu út tvær bækur og einn við-
auki af ráðgerðum fimm. Þær
standa fyrir sínu. Auk þess hefur
framgangur málsins tafist, vegna
þriggja vandamála sem algeng
eru, þegar menn vilja koma góð-
um hiutum fram, þ.e. fjárskorts,
fólkseklu og tímaskorts,“ sagði
Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra
í samtali við Morgunblaðið, um
ástæður þess að framtíðarkönn-
unin dagaði uppi í miðjum klíðum.
Steingrímur
Hermannsson
Jafnframt sagði Jón að það hefði
ekki bætt úr skák að fram-
kvæmdastjóri verksins, Magnús
Ólafsson, hefði farið frá verkinu,
áður en því var lokið.
Jón var spurður hvort eitthvað
væri hæft í því að hann hefði
markvisst látið þetta starf lognast
út af, vegna þess að hann liti á
þetta sem póiitískt gæluverkefni
Framsóknarflokksins: „Ég er nú
ekki eins hugfanginn af því að
Jón
Sigurðsson
það sé hægt að frelsa heiminn
með framtíðarspám, eins og sum-
ir kunna að vera, en ég neita því
alveg að nokkrar slíkar hvatir
hafi ráðið því að málið lenti í úti-
deyfð. Það var einfaldlega eins
og með konuna og brauðið góða
- hún lenti í öðru!“ sagði Jón
Jón sagði að nú stæðu voriir til
þess að úr þessu yrði bætt, og
líklega kæmi bókin Menning og
menntun á tækniöld út á næst-