Morgunblaðið - 08.01.1989, Qupperneq 14
14
MÓKÖUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8i
JANÚAR 1989
YASSIR ARAFAT LEIÐTOGI PLO
Hryðjnverka-
maóur eóa
frióardúfa?
ÁRIÐ 1964 handtók sýrlenska herlögreglan lítt þekktan
Palestínumann í Damaskus, að nafni Yassir Arafat.
Honum var varpað í fangelsi ásamt tveimur öðrum félög-
um sínum, ásakaður um að hafa æst til óeirða. Ýmsir
urðu til að biðja Arafat griða og aðrir settu fram hótan-
ir um hefhdaraðgerðir. Arafat slapp við að lenda í gálg-
anum og fór í felur. Utan raða Palestínumanna var
hann lítið þekktur á þessum árum, en upp úr þessu fer
hann að láta að sér kveða. Allar götur síðan hefúr ver-
ið kalt á milli hans og stjórnenda í Sýrlandi, en fyrst
og fremst ræður þó að persónuleg andúð er milli Ara-
fats og Assads forseta Sýrlands.
Ferill Yassirs Arafats er um
flest hinn sérstæðasti. Á
fyrstu árum Frelsissam-
taka Palestínu var hann
einn hataðasti hryðjuverkamaður
heims og skipulagði eða lagði að
minnsta kosti blessun sína yfír hin
ferlegustu hryðjuverk. Hann hefur
alla tíð þurft að keppa við ýmsa sem
sóttust eftir völdum innan samtak-
anna og hefur ekki fallið forysta
Arafats.
Nú nær því
tuttugu og fímm
árum eftir að
heimurinn fór að
hafa spurnir af
þessum lág-
vaxna, heldur
óásjálega manni
sem alltaf virð-
ist órakaður og
heldur ræksnislegur, er hann virtur
og elskaður af þorra Palestínu-
manna. Hann heftir smám saman
aflað sér virðingar á aiþjóðavett-
vangi og nú síðast hafa augu heims-
ins beinst að honum er PLO féllst á
að viðurkenna tilverurétt Ísraelsríkis
og hafnaði hryðjuverkum. Þessu
hefði verið tæpt að trúa fyrir nokkr-
um árum, en þó skyldu menn gera
sér grein fyrir að hugarfarsbreyting
Arafats hefur ekki gerst í einni svip-
an, hann hefur verið að færast á
þessa línu mörg undanfarin ár. Hann
segir að það verði að endurmeta allt;
heimsmyndin hafí breyst og menn
megi ekki stirðna og staðna í mein-
lokum. Því stendur Arafat nú með
pálmann í höndunum og hann má
una vel við, líka með það í huga að
hvað eftir annað hefur forystu hans
verið ógnað innan PLO og setið hef-
ur verið um iíf hans nánast dag og
nótt árum saman.
Hvarvetna er nú hlustað á hann,
vestrænir leiðtogar og vinir ísraels
ræða við hann sem jafningja. ísrael-
ar standa höllum fæti er þeir þver-
neita nú að ræða við PLO, eftir að
hafa margsinnis lýst yfir að þeir
myndu samstundissetjast niður með
fulltrúum PLO til viðræðna ef þeir
afneituðu hryðjuverkum og viður-
kenndu ísrael. Þeir hafa gersamlega
gengið á bak orða sinna, en andstað-
an við stefnu stjórnvalda er vaxandi
í ísrael og ákvörðun Bandaríkja-
manna að tala við PLO mun efa-
laust hafa einhver áhrif, þótt það
taki ugglaust sinn tíma að sætta
Israela við þá tilhugsun að ræða við
Arafat.
Eins og áður segir er samband
stirt milli Arafats og Sýrlandsstjóm-
ar. Arafat hefur sagt að hann eigi
engan harðsvíraðri andstæðing en
sýrlensku stjómina. Hann segir að
Assad reyni sem oftast að koma
sögusögnum um hryðjuverk PLO af
stað. Sýrlendingar séu í rauninni
langtum grimmari en Israelar. „Ef
ég finnst myrtur eru meiri líkur en
ekki til að sýrlenska stjórnin hafí
látið fyrirkoma mér,“ segir hann.
Arafat er mönnum ráðgáta. Þessi
harðsoðni hiyðjuverkamaður er orð-
inn að friðardúfu og boðbera sátta
og samlyndis. Og hann hefur fengið
Palestínumenn, eða meirihluta
þeirra til að fylgja sér. Hann hefur
margsinnis orðið fyrir auðmýkingu
og verið hrakinn á brott úr ýmsum
arabalöndum, en hann hefur jafnan
risið upp og
komið aftur eins
og sigurvegari.
Það er forvitni-
legt að velta fyr-
ir sér þessum
manni.
Arafat segist
sjálfur vera
fæddur í Jerú-
salem 1929.
Væntanlega er fæðingarárið rétt en
ekki ber öllum saman um fæðingar-
staðinn, sumir segja Gaza, aðrir
Kaíró. Hvað sem því líður hefur
hann sterk tilfínningaleg tengsl við
Jerúsalem og svo er um Palestínu-
menn almennt og þarf borgin ekki
að vera fæðingarstaður þeirra til að
þeir beri til hennar svipaðan hug og
gyðingar eða kristnir menn. Arafat
mun hafa vaxið úr grasi í Gaza.
Hann varð ungur að árum forystu-
maður skæruliðahreyfíngar ungliða
í Gaza, fyrst gegn yfírráðum Breta
og síðan gyðinga. Hann tók þátt í
stríðinu eftir stofnun Ísraelsríkis
1948. Síðar hélt hann til Kaíró og
iauk háskólaprófí í verkfræði. Hann
hafði þá komist í kynni við aðra
herskáa Palestínumenn sem höfðu
einsett sér að vinna að þvi að Pal-
estínumenn eignuðust land sitt á ný,
hvað sem það kostaði. Meðal þeirra
voru Abu Yiad, Abu Jihad, sem ísra-
elar myrtu í Túnisborg í fyrra, Abu
Nidal, sem síðar klauf sig út úr sam-
starfí við Arafat, Habash, sem um
langa hríð var andstæðingur hans
eftir að Arafat tók að hneigjast til
hófsamari stefnu, en Habash hefur
nú gengið til liðs við hann á ný.
Arafat hefur aldrei kvænst og verið
flesta sína daga á faraldsfæti. Hann
segist eiga heima alls staðar og
hvergi. Þangað til hann komist heim.
Um hríð var útbreidd saga um Iúxus
og óhófslíf hans. Hvort sem það er
rétt eða ekki hefur hann altjent tek-
ið upp aðra háttu-og býr oft í flótta-
mannabúðum í arabalöndum, þegar
hann er á ferðum sínum. Sums stað-
ar hafa þjóðhöfðingjar lagt honum
til hús, þar á meðal í Bagdad sem
nú er aðaldvalarstaður hans, og í
Sana’a í Norður-Jemen og líkast til
í Túnis.
Margir telja að upphaf uppreisn-
arinnar á Vesturbakkanum og í
Gaza megi beinlínis rekja til þess
er leiðtogar Arababandalagsins
hundsuðu Arafat og Palestínumálið
gersamlega á fundi í Amman í Jórd-
IVMNNSIVIYND
eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur
Teikning Pétur Halldórsson
Ordsins maður og gefur
skrúðugar yfirlýsingar-
og trúir þeim sennilega
fats verði að veruleika og honum
gefist kostur á að koma aftur til
sinnar langþráðu Jerúsalem.
Það er mikill misskilningur sem
andstæðingar Arafats halda fram
að PLO sé undir stjóm marxista eða
Moskvukommúnista ellegar þar ráði
ferð ofstækisfullir áhangendur Isl-
am. í æðstu stjórn PLO eru margir
kristnir, en sjálfur er Arafat múham-
eðstrúarmaður, hann iðkar trú sína
en þykir ekki öfgamaður í þeim efn-
um.
Þótt síðustu mánuði hafi þróunin
orðið sú að ýmsir klofningshópar
hafí runnið aftur inn í PLO og undir-
gengist að lúta stjórn Arafats, er
fjarri því að allir séu sáttir við stefnu
hans. Hann nýtur ekki eindregins
stuðnings. En margir eru loks reiðu-
búnir að viðurkenna að enginn ann-
ar sé nægilega sterkur til að halda
PLO saman. Málflutningur hans
hefur aflað honum trausts, menn
geta ekki með nokkurri sanngirni,
hvað þá viti, dregið í efa vilja hans
til að leita lausnar nú. í flóttamanna-
búðum í arabalöndum og á Vestur-
bakkanum þar sem aðþrengdir heim-
ilislausir landar hans hafast við og
búa við bág kjör líta þeir á myndina
af honum og segja: Hann er sá eini
sem hefur sýnt það í verki að hann
vill hjálpa okkur. Hann er hugsjóna-
maður og ekki eiginhagsmunasegg-
ur eins og ýmsir sem hærri tala.
Við svíkjum ekki mann sem hefur
með athöfnum sínum í tuttugu og
fimm ár sýnt að hann lætur ekki
bugast. Hann hefur fylgt takti
tímans, horfst í augu við þróun og
veruleika, en ekki dagað uppi í
kreddum og ofstæki eins og sumir
forystumenn í arabalöndum og Isra-
el.
Og kannski liggur skýringin þar.
aníu í nóvember 1987. Arafat krafð-
ist eindreginnar stuðningsyfirlýsing-
ar leiðtoganna við málstað Pal-
estínumanna, en þeir Iétu orð hans
sem vind um eyru þjóta. Þó svo að
fæstir láti sér detta í hug að stað-
hæfa að PLO hafi staðið að uppreisn-
inni er þó talið víst að svo mjög
hafí Palestínumönnum blöskrað
skeytingarleysi arabaleiðtoganna, að
það hafí hleypt óeirðunum af stað.
Þessi skýring er að mínum dómi
rökrétt. Árafat brá einnig við skjótt
og af sömu kænsku og hann hefur
margsinnis sýnt og von bráðar fylktu
Palestínumenn á Vesturbakkanum
sér einhuga um forystu samtakanna.
En hver er hann þá og hvemig
er hann og hvernig stendur á því
að hann vekur upp þessa heitu and-
úðartilfínningu annars vegar og ein-
læga virðingu og beinlínis hrifningu
hins vegar? Þessu er ekki auðsvarað
og í fljótu bragði minnist ég ekki
að hafa séð neina bitastæða skýr-
ingu á því.
Ein skýringin gæti verið sú inni-
lega sannfæring sem hann hefur á
því að það sé hann einn sem muni
geta leitt Palestínuþjóðina á ný til
öndvegis í landi sínu. í viðtali sem
ég átti við Arafat í Norður-Jemen
fyrir þremur árum, sagðist hann
vera maður sögunnar og hann berð-
ist fyrir flóknasta og helgasta mál-
stað í heimi. Svona yfirlýsing er
dæmigerð fyrir Arafat, hann er mik-
ill orðsins maður og hefur að hættt
Palestínumanna unun af tilfinninga-
þrungnum og dramatískum og
margræðum yfirlýsingum, sem
myndu hljóma eins og innantómt
skvaldur af ýmissa vörum, en verða
trúverðugar vegna þess hvemig
hann segir þær. Án hávaða og
handapats, en af einlægni sem er
erfítt að efast um.
Hann er ekki glæsimenni eins og
vikið var að. Nema síður sé. Hann
er við fyrstu sýn ótútlegur og óræsti-
legur. En hefur um sig óskýranlega
áru. Þegar við hittumst loksins eftir
að ég hafði beðið hans lengi, spurði
hann í þaula hvernig ég hefði vitað
að hann væri í landinu. Það hefði
ekki átt að fara hátt. Honum virtist
skemmt þegar ég sagðist hafa feng-
ið fregnir af því í gegnum leyniþjón-
ustu Israela. Þó var þetta í sjálfu
sér ógætileg fullyrðing. En hann tók
henni bara glaðlega. Fáir menn eru
í eins stöðugri Iífshættu og Arafat
og sæta öryggisgæslu í samræmi
við það, fáa menn er jafn erfitt að
hitta og Arafat og fáum er betur
ljóst en honum sjálfum, að það er
æðsta ósk bæði fjandmanna hans í
arabaheiminum, í ísrael og víðar að
koma honum fyrir kattarnef. Samt
sagðist hann ekki lifa í ótta. Horfði
á mig og sagði lágt:„ Allt er í hendi
guðs. Einnig það hvort ég Iifí.“
í þessu samtali fullyrti Árafat að
ísraelar vildu hvorki raunverulegan
frið né styijöld, þeir vildu viðhalda
status quo sem þá var. „Við höldum
baráttunni áfram og væntum lið-
veislu allra velþenkjandi manna
hvort sem eiga í hlut smáþjóðir eða
risaveldi. Ég bið menn enn og einu
sinni að kynna sér stöðu okkar og
málstað og gleyma ekki Palestínu,"
sagði hann og bætti við að vonandi
hittumst við síðar í Jerúsalem „og
þá skulum við halda veislu". Það er
frægt að gyðingar kvöddust á þenn-
an hátt þegar þeir höfðu ekki að-
gang að helgum stöðum í borginni.
Orðin voru tákn um að baráttunni
skyldi haidið áfram. Síðar skipuðust
mál svo að formaður PLO gerir þau
að sínum. Og kannski þessi orð Ara-
„Finnist ég myrtur er
eins líklegt Sýrlendingar
standi þar á bak við.“
Hataður og fyrirlitinn
framan af blóðugum
ferli, en hefur horfst i
augu við raunveruleika
og snúið við blaðinu.