Morgunblaðið - 08.01.1989, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1989
- C 3
Jóhann Ingi Gunnarsson sálfræðingur:
Onæmísþjálíun
Slökun best
gegn fœlni
„Það er afar einstaklingsbundið
hvaða aðferð dugir til að draga
úr eða „lækna“ tannlækna-
hræðslu. Ein aðferð, sem byggist
á slökun, er ef til vill sú besta,“
segir Jóhann Ingi Gunnarsson
sálfræðingur.
Ef einstaklingur þjáist af fælni,
hvort sem það er tannlækna-
fælni, eða fælni við aðra hluti eða
aðstæður, er mikilvægt að athuga
sálfræðilega þætti í fari viðkomandi
áður en meðferð er valin," segir
Johann Ingi. „Meðal þess sem þarf
Jóhann ingi Gunnarsson sál-
fræðingur: „Mikilvægt að gefast
ekki upp þó ein aðferð hafi ekki
borið tilætlaðan árangur, heldur
þarf þá að reyna nýja leið.“
að athuga er eðli viðbragða hins
hrædda. Þá er mikilvægt að gefast
ekki upp þó ein aðferð hafi ekki
borið tilætlaðan árangur, heldur
þarf þá að reyna nýja leið.
Ein algengasta aðferðira til að
draga úr fælni byggist á slökun,
og er svokölluð ónæmisþjálfún.
Pólki er kennd einföld slökunar-
tækni, því til að ná góðum árangri
í sálfræðilegri meðferð er mikilvægt
að viðkomandi geti slakað vel á. í
meðferðinni sjálfri lærir hinn
hræddi stig af stigi að nálgast það
sem hann hræðist og ná tökum á
hræðslunni, í þessu tilfelli hræðslu
við tannlæknastofuna og aðstæður
þar.
Viðkomandi bytjar á að komast
í slökunarástand, þá ímyndar hann
sér að hann fari til tannlæknis.
Hann byijar t.d. á því að ímynda
sér:
Sjálfan sig taka ákvörðun um að
fara til tannlæknis.
Panta tíma hjá tannlækni.
Mæta á tannlæknastofuna.
Bíða á biðstofunni.
Setjast í tannlæknastólinn.
Að tannlæknirinn byiji að skoða
tennumar; og svo framvegis. Mikil-
vægast er að viðkomandi sé alltaf
í slökunarástandi þegar hann kallar
þessar myndir fram í huganum.
Viðkomandi fer síðan yfir allt
ferlið í huganum aftur, ímyndar sér
aftur að hann taki ákvörðun um
að fara til tannlæknis, hringi og
panti tíma o.s.frv. án þess að verða
hræddur eða spenntur. Þannig
getur maður undirbúið sig undir
raunveruleikann, en lykilatriði hér
er að menn læri að tengja ákveðið
viðbragð við áreiti sem áður olli
kvíða, í þessu tilfelli tilhugsuninni
um tannlækninn.
Önnur aðferð sem einnig’
byggist á slökun
Einnig eru til aðferðir sem eru í
eðli sínu svipaðar, en byggjast þó
á því að fólk nálgast í raun og
veru það sem veldur hræðslu (tann-
lækninn, tannlæknastofuna og að-
stæðumar þar.) Slökun blandast
einnig inn í þessa aðferð. Maður
nálgast „hinar hræðilegu aðstæður"
smám saman án þess að verða
felmtri sleginn. Það tryggir maður
til dæmis með slökunartækni. í
þessu tilfelli er einnig mikilvægt
að einstaklingurinn veiti sér ekki
þann munað að öðlast hugarró með
því að flýja aðstæðumar."
HVAÐ BORGAR HIÐ OPINBERA? I íki og sveitarfélög greiða fyrir þjónustu skólatannlækna og skipt- XVast greiðslumar til helminga. Kjósi fólk frekar að leita til ann- arra tannlækna er endurgreiðsla sem hér segir: 0 til 6 ára: 75% 6 til 16 ára: 100% af almennum viðgerðum. 6 til 16 ára: 50% af gullkrónum og tannréttingum. 16 til 17 ára: 50% af allri þjónustu. Ellilífeyrisþegum og öryrkjum: yfirleitt 50 til 75%, en þó eru dæmi þess að hjá þessum hópi sé tannlæknaþjónusta endur- greidd að fullu.
lu
SKYNDISALA
20% AFSLATTUR
af öllum vörum i 3 daga.
M.a*. frakkar ★ jakkar ★ buxur ★ úlpur
★ peysur ★ skyrtur ★ sloppar ★ teppi
★ mottur ★ töskur ★ grill ★ o.fl. ★ o.fl.
Notió tækifærió.
Aóeins 3 dagar.
Aðalstræti 2, Sími 11350
9 9
TRYGGT TOLVUNAM!
Tölvuskólar Stjórnunarfélags íslands og Gísla J. Johnsen sf. hafa
sameinað krafta sína. Námsgögnin verða enn betri en áður og reynd-
ir leiðbeinendur tryggja hagnýt og vönduð námskeið. Að baki standa
traustir aðilar, sem háfa mikla reynslu í atvinnulífinu og vita hverj-
ar þarfir atvinnuvega og einstaklinga í tölvumálum eru. Hver nem-
andi hefur tölvu út af fyrir sig.
NÁMSSERÁ í JANtJAR 1989
NÁMSKEIÐ KLST. TÍMI DAGS. KENNSLUSTAÐUR
TÖLVUÞJÁLFUN 60 08.30-12.30 23. JAN - 10. FEB. ÁNANAUST 15
TÖLVUGRUNNUR 40 19.30-22.30 16. JAN. - 17. FEB. ÁNANAUST 15
GRUNNNÁMSKEIÐ 8 13.00-17.00 16.-17. JAN. NÝBÝLAVEGUR 16
DOS STÝRIKERFI 1 12 13.00-17.00 18.-20. JAN. NÝBÝLAVEGUR 16
WORDPERFECT 16 08.30-12.30 16.-19. JAN. NÝBÝLAVEGUR 16
WORD 16 08.30-12.30 10.-13. JAN. NÝBÝLAVEGUR 16
MULTIPLAN 16 13.00-17.00 23.-26. JAN. NÝBÝLAVEGU R 16
EXCEL 16 13.00-17.00 10.-13. JAN. NÝBÝLA VEGU R 16
VENTURA 20 08.30-12.30 30. JAN. - 3. FEB. NÝBÝLAVEGUR 16
Upplýsingar og skráning í símum 621066,641222.
m
TÖLVUSKÓLI STJÓRNUNARFÉLAGS ÍSLANDS
TÖL VUSKÓLARA
TÖLVUSKÓLI GÍSLA J. JOHNSEN