Morgunblaðið - 08.01.1989, Page 30
30 C
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1989
I
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og iangafi,
MAGNÚS ÓLAFSSON
fyrrv. leigubifreiðastjóri,
Stórholti 36,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju þriðjudaginn 10. janúar kl.
13.30.
Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hans, er
bent á Hjartavernd.
Guðrún Sveinsdóttlr,
Ingibjörg Magnúsdóttir, Gunnar Ólafsson,
Steinar Magnússon, Margrét Aðalsteinsdóttir,
Ólafur Magnússon, Hulda Aðalsteinsdóttir,
Þröstur Magnússon, Ingibjörg Sveinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum inniiega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
móður minnar, tengdamóður, systur, ömmu og langömmu,
SIGRÍÐAR HELGADÓTTUR,
Bjarnabœ,
Suðurgötu 38, Hafnarflrði.
Sórstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunarfólki St. Jósefs-
spítala, Hafnarfiröi.
Eiríkur Ólafsson, Hafdfs Jóhannesdóttir,
Bjarni Helgason, Margrét Helgadóttir,
Helgi Helgason,
barnabörn og barnabarnabarn.
Jóhanna Gísla-
dóttir - minning
Á morgun mánudaginn 9. janúar
fer fram útfor mágkonu minnar
Jóhönnu Gísladóttur. Hún lést á
heimili sínu, Efstasundi 64 hér í
bæ, að morgni 30. desember sl.
Jóhanna var fædd á ísafírði 1.
apríl 1917. Hún var dóttir hjónanna
Marín Rannveigar Níelsdóttur
(1894—1951) ættaðri úr Bolung-
arvík og Gísla Bjamasonar (1876—
1954) frá Ármúla við ísafjarðar-
djúp.
Jóhanna var elst bama Maríu
Rannveigar og Gísla. Systkini henn-
ar vom Jósefína Oddný f. 4.12
1918, d. 5.10 1062, eiginkona Þor-
steins heitins Jósepssonar blaða-
manns og rithöfundar, og Bjami f.
3.8 1923, d. 4.6. 1981, kvæntur
undirritaðri.
Jóhanna var um það bil 10 ára
þgar fjölskyldan flutti suður til
Reykjavíkur og þar var heimili
hennar æ síðan.
Á unglingsárum sínum settist
hún í Gagnfræðaskóla Reykjavíkur.
Þrátt fyrir góðar námsgáfur varð
hún að hverfa frá námi, en það var
t
Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir, fósturfaðir, tengdafaðir
°g afi, GUÐMUNDUR KARL SVEINSSON,
írabakka 10,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánudaginn 9. janúar kl.
15.00.
Fyrir hönd annarra vandamanna, ólöf Ragnarsdóttlr,
Margrét G. Björnsson.
imiwnoinmimiiiiinniwwiiiiii ...........
m
einmitt hlutskipti margra á kreppu-
ámnum. Eftir það stundaði hún
ýmis störf og var um skeið við af-
greiðslu hjá G. Ólafsson & Sandholt.
Jóhanna var ung þegar hún
kynntist eiginmanni sínum, gjörvu-
legum fullhuga og ferðagarpi, Karli
Péturssyni rafvirkja. Þau Karl og
Jóhanna gengu í hjónaband 1940
og bjuggu fyrstu hjúskaparár sín á
Stýrimannastíg 10. Ungu hjónin
áttu margt sameiginlegt, vom bæði
gestrisin og hlý heim að sækja auk
þess vom þau gædd einstakri
kímnigáfu og margt eitt kvöldið var
setið í litlu stofunni á loftinu á Stýri-
mannastíg og hlustaði á húsbónd-
ann segja skemmtilegar sögur á
þann hátt sem honum einum var
lagið.
Jóhanna og Karl vom sérlega
atorkusöm og dugleg og ekki leið
á löngu þar til þau höfðu byggt sér
eigið hús í Efstasundi 64, þar sem
heimili þeirra hefur staðið síðan
1945.
Þeim hjónum varð fjögurra bama
auðið, þau em: María Elsa f. 1940,
búsett / Luxemborg, gift Lucien
Husmann, þau eiga 2 börn. Hrafn-
hildur f. 1942 búsett í Hafnarfirði,
gift Friðjóni Pálssyni, þau eiga 2
börn. Lilja f. 1947 búsett í Hafnar-
firði, gift Sigurði Erni Guðmunds-
syni, þau eiga 1 son. Yngstur er
Karl Jóhann f. 1956 búsettur í
Reykjavík, kvæntur Gíslínu Sigur-
jónsdóttur, þau eiga 2 syni.
Öll em systkinin dugnaðarfólk
og hafa þau fengið í vöggugjöf
kosti foreldranna í ríkum mæli. Það
var til fyrirmyndar hve fjöskyldan
böm og tengdaböm skiptu með sér
verkum til þess að uppfylla þá ósk
Jóhönnu að mega dvelja heima þar
til yfír lyki.
Jóhanna var hafin yfir alla smá-
munasemi og dægurþras. Hún tal-
aði aldrei illa um náungann. Á hinn
bóginn var hún laus við allt skjall
og skrúðmælgi. Hún var vel verki
farin, allt lék henni í hendi, hann-
yrðir jafnt og blóma- og tijárækt.
Hún hafði mikið yndi af söng og
tónlist og hafði sjálf fallega söng-
rödd. Hún lagði gjörva hönd á
margt en miklaðist þó aldrei af
verkum sínum. Mér verður hún þó
ávallt minnisstæðust fyrir þá velvild
og hlýju sem hún veitti mér og sem
mun ylja mér til æviloka.
Þegar ég lít til baka, hverf á vit
minninganna, blandast söknuður
minn ótal atvikum smáum og stór-
um. Mörg eru þau tengd spaugi og
skopi, því eins og fyrr segir var
Hanna gædd góðu skopskyni og var
hún glögg-á það spaugilega í fari
sjálfrar sín ekki síður en annarra.
Hanna var jafnan dul um eigin
hag, aldrei heyrði ég hana æðrast
þótt móti blési. í seinni tíð duldist
engum að hún gekk ekki heil til
skógar, en slík var háttvísi hennar
að hún íþyngdi ekki öðrum með
eigin raunum.
Ekki er ýkjalangt síðan Hanna
hætti störfum í þvottahúsi Klúbbs-
ins. Þar hafði hún unnið um árabil,
undi þar vel hag sínum og varð
henni þar vel til vina.
Góðvild Hör.nu og fórnarlund
ásamt næmum skilningi hennar á
mannlegum vandamálum höfðu í
för með sér að margir leituðu til
hennar og mörgum veitti hún lið-
sinni og- hluttekningu af sinni al-
kunnu hógværð.
Nú að leiðarlokum kveð ég hug-
ljúfa vinu mína og mágkonu með
söknuði og þakklæti fyrir samfylgd-
ina.
Blessuð sé hún um alla eilífð.
Ég sendi Karli, börnunum ogflöl-
skyldum þeirra samúðarkveðjur.
Guðný Gestsdóttir