Morgunblaðið - 08.01.1989, Side 38
38 C
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1989
-4
ÆSKUMYNDIN...
ER AF HRAFNIGUNNLAUGSSYNIKVIKMYNDARGERÐARMANNI
ÚR MYNDASAFNINU
ÓLAFUR K. MAGNÚSSON
Forsætis-
ráðhemi
dansar polka
Afhverju eru
hildimar
ekki étnar
einsogallt
annað hér?
Hrafn Gunnlaugsson þykir
ákveðinn og fylginn sér. Var
hann nokkuð feiminn í
bemsku?
Hrafn Gunnlaugsson er flórum
árum yngri en lýðveldið, fæddur á
þjóðhátíðardaginn 17. júní árið
1948. Hann er elsti sonur dr. Gunn-
laugs Þórðarsonar hæstarréttarlög-
manns og Herdísar Þorvaldsdóttur
leikkonu. Yngri systkin Hrafn eru:
Þorvaldur, fæddur 1950, Snædís
sem er fædd 1952 og að endingu
Tinna Þórdís sem er í þennan heim
borin 18, júní 1954. Ekki skeikaði
nema hálftíma á því að hún deildi
‘ afmælisdeginum með Hrafni og lýð-
veldinu. Heimild er til fyrir því að
Hrafn hafi þóst svikinn um afmælis-
gjöfina.
Heimildir geta ekki um annað
en að Hráfn hafi alist upp í for-
eldrahúsum fram til sex ár aldurs.
Þá „flaug hrafninn" úr hreiðrinu
til sumardvalar í Skáleyjum í
Breiðafirði. Tildrögin voru að vetur-
inn 1953-54 réðst á heimili Hrafns,
Guðlaug Guðmundsdóttir, dóttir
hjónanna Guðmundar Guðmunds-
sonar bónda í Norðurbæ í Skáleyj-
um og Júlíönu Sveinsdóttur. Herdís
móður Hrafns var starfandi leikari
og ekki kona einsömul því hún gekk
með Tinnu sem í dag er alþekktur
leikari. Að öllum líkindum mun
Gunnlaugur hafa álitið þörf til þess
að Herdísi væri ekki ofgert með
bamastússi. Sumarið 1954 varð það
að ráði að þeir bræðumir Hrafn og
Þorvaldur fóm með bamfóstm sinni
vestur í Skáleyjar á Breiðafirði. Þar
dvaldi Hrafn á sumrin fram til tólf
ára aldurs. Veran og lífshættir á
Breiðafirði hafa verið Hrafni síðan
hugstæðir og hefur hann stundum
minnst fagurlega á reynslu sína
þar, t.d. af veiðiskap, sér í lagi af
selveiðum.
Tvíbýlt var í Skáleyjum, Norður-
bær og Sólheimar, mikið var af
unglingum og bömum á báðum
heimilum. Börnin í Skáleyjum sner-
ust í kringum fullorðanna að störf-
um. Hrafn fylgdist töluvert með
Kristrúnu Guðmundsdóttur sem þá
var unglingur. Hún sagði Hrafn
hafa verið mjög eðlilegan krakka,
dálítið ákveðinn, samt mjög viðráð-
anlegan.
Guðlaug Guðmundsdóttir segir
Hrafn hafa verið kátan, íjörugan
og uppátektasaman, „en dálítið
stríðinn. Alltaf líf og íjör í kringum
hann. — Að vísu stundum óþarflega
mikið.“ Eysteinn Gíslason frá Sól-
heimum man eftir þeim bræðmm
tvö fyrstu sumrin sem þeir dvöldust
í Skáleyjum. Aðspurður sagði hann
Hrafn síður en svo hafa verið feim-
inn, þvert á móti verið verið skýr
og kotroskinn í tali. Ófeiminn að
spyrja og vildi vita hlutina.
Kristrú” Guðmundsdóttir stað-
festi þessar upplýsingar „Hrafn
feiminn? Nei, það var hann sko ald-
eiis ekki, hann var óskaplega spur-
ull og þurftrallt að vita.“ En Hrafn
v.'i' dálítið sérstakur og hann var
borgarbam. „Honum fannst mata-
ræðið öðmvísi sem von var. Við
borðuðum það sem til féll, sel og
fugla. Einu sinni var ég að vitja
um kind sem var að bera og tók
kauða með mér. Þar vom fleiri kind-
ur bomar og lausar við hildimar.
Hrafn stoppaði við eina hildina og
sagði svo: „Heyrðu Kristrún, hvem-
ig er það, af hveiju em hildirnar
ekki étnar eins og allt annað hér?““
Þessar myndir úr
myndasafhi Olafs K.
Magnússonar fúndust í
umslagi sem merkt var:
„Forsætisráðherra dansar
polka.“ Að sögn Ólafs hafa
þær ekki birst áður, en þær
voru teknar einhvem tíma á
ámnum 1947 til 1949 í
forsætisráðherratíð Stefáns
Jóhanns Stefánssonar. Þar
má sjá ráðherrann stíga
dans í veislu, sem Ólafúr
kvaðst ekki muna af hvaða
tilefni haldin var.
Stefán Jóhann varð formaður
Alþýðuflokksins árið 1938 og
var það í sextán ár. Hann varð
tvisvar ráðherra og í annað sinn
forsætisráðherra 1947 til 1949. í
bók Magnúsar Magnússonar, „Ráð-
herrar Islands 1904 til 1971“ segir
meðal annars um ráðherradóm
Stefáns Jóhanns með tilvísun í end-
urminningar hans: „Ekki er alveg
laust við að dálítillar sjálfsánægju
kenni, þegar hann minnist þessarar
ráðherrastöðu og víðar finnst fyrir
því, að honum þyki það góður
árangur af lífsstarfi að hafa hlotið
ráðherratign."
STARFIÐ
BJARKILAXDAL VERKSTJÓRIOGSPRENGINGAMAÐUR
Morgunblaðið/Bjami
Rjarki Laxdal verkstjóri og
sprengingamaður
Alltverðurað
vera pottþétt
Iljíirk Lnxrla) er verkstjóri hjá
Istak, hann sér einnig um spreng-
ingar hjá fyrirtækinu.
Góð sprenging er vandaverk.
Holur em boraðar í bergið fyrir
sprengihleðslur. Hve langt á að
vera milli þeirra og hve öflug hleðsla
í hverri holu? Rétt val á hvellhettum
skiptir líka máli, á allt að springa
í einu eða eiga einhveijar millisek-
úndur að líða á milli? Algengasta
sprengiefni var dínamítið góðkunna
en á síðari tímum er kjarnaáburður
frá Áburðarverksmiðjunni notaður
eftir að hann hefur fengið ákveðna
meðhöndlun.
„Það mikilvægasta er að ákveða
hve mikið sprengiefni er notað á
hvem rúmmetra. Of lítið, þá riðlast
klöppin til en þú nærð ekki neinu.
Ef of mikið sprengiefni er notað
verða afleiðingamar skelfilegar, allt
fer fjandans til eða í háloft, eftir
því hvemig á það er litið.
í flestum tilvikum em notaðar
yfirbreiðslur til að halda sprenging-
unni niðri, smásteinar geta flogið
ansi langt. Mín kjörorð em að taka
enga áhættu, allt verður að vera
pottþétt."
ÞETTA SÖGDU
ÞAU ÞÁ...
Kórsöngsgutl
Hið ólistfenga kórsöngsgutl,
sem nú tíðkast stundum,
má minnka og hverfa, af því að
það er hvorki þjóðlegt né getur
talist listrænt í alþjóðlegum
skilningi.
Það mun vera réttara að taka
það fram, að þessar skoðanir,
sem hér var lýst, em algerlega
ópersónulegar, algildar og að-
eins almenns eðlis.“
J6n Leifs tónskáld í Lögréttu 4. júlí
1928.
BÓKIN
ÁNÁTTBORÐINU
IManna
Þorláks-
dóttir
húsmóðir
Eg er að lesa ljóð. Aðeins eitt
blóm eftir Þuríði Guðmunds-
dóttir. Einnig hef ég verið að lesa
kvæðin eftir Jón Helgason.
Það er gott að grípa í ljóðabæk-
urnar þegar maður hefur lítinn
tíma.“
Kristín
Bragadóttir
bókasafns-
fræðingur
Bókin á náttborðinu. Hún heitir
Óbærílegur léttleiki tilverunnar
eftir Milan Kundera. Ég er að byija
lesturinn."
— Ertu búin að sjá myndina?
„Nei, ég hef ekki séð myndina."
PLATAN
Á FÓNINUM
Sverrir Páll
Erlendsson
íslensku-
kennari
Afóninum núna er plata með
bassaleikaranum John Patituc-
ci, sem er snillingur á það hljóð-
færi, og einnig hef ég verið að
hlusta á gítarleikarann A1 Di Meola
og á uppáhaldsplötuna mína, sem
er með Sting. Ég hlusta mikið á
jazz og oftast er einhver plata á
fóninum þegar gestir koma.
Svanhildur
Kaaber
kennari
Þú kemur vel að mér þar, ég
hef verið að hlusta á Fred
Akerström syngja Belman. Lífsglöð
tónlist.“
MYNDIN
I TÆKINU
Garðar
Siggeirs-
son
kaupmaður.
Horfði á ævintýramynd eftir Ste-
ven Spielberg með dóttir minni.
Hún hét „Batteries not included".
Þorsteinn I.
Sigfússon
eðlisfræðingur
Eg horfði á Space-Ball með
stráknum mínum. Og svo
horfði ég reyndar líka á vinnslu-
myndband sem við erum að vinna
að um Raunvísindadeild háskólans.