Morgunblaðið - 08.01.1989, Page 40
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1989
BAKÞANKAR
Hvað varð
um skóinn?
Þá eru jólin blessunarlega af-
staðin, og þessi gríðarlegi óró-
leiki sem farinn er að fylgja þeim
nú á tímum. Og allur misskilning-
urlnn sem orðinn er í sambandi við
hvað sé skemmti-
legt og nauðsyn-
legt svo jólahald
megi verða sem
mest og best.
Hér kemur litil
togstreitusaga úr
lifi þrævetra
drengs sem hóf að
eftir Sigríði klambra saman
Holldórsdóttur svokölluðum jól-
askó í leikskól-
anum, snemma í nóvember. Fyrsta
desember kom hann heim með skó-
inn og jafnframt fyrirmæli um að
skóinn ætti að setja út í glugga á
hverju kvöldi í tuttugu daga u.þ.b.
Allan þann dag var drengurinn þö-
gull, fölur og venju fremur lystarlít-
ill.
Skórinn stóð glampandi gylltur
og rauður í glugganum við rúmið
hans. Svo kom kvöld. Hann háttaði
sig þegjandi og hljóðalaust, breiddi
oná sig sængina sína og hvorki datt
af honum né draup. Eftir svona
Hálfrar klukkustundar legu kom
hann fram með skótúttuna milli
tveggja fingra og sagði við foreldra
sina: Þið megið eiga þennan skó!
Eins og við mátti búast brugðust
foreldrarnir hvumsa við og sögðu
hvort uppí annað: Almáttugur elsk-
an, viltu ekki sjálfur eiga fina, fína
skóinn sem þú bjóst aleinn til,
næstum því? Þú ert búinn að vera
svo ósku góður í dag að jólasveinn-
inn kemur alveg hvað úr hveiju og
setur i fina skóinn, pabbi er lika
hálfþreyttur eftir daginn og ætlar
snemma i háttinn.
Nei, þig megið eiga þennan skó.
Ég nenni ekkert að fá einhvern
karl inn til mín þegar ég er sofnað-
ur. En ykkur langar kannski í eitt-
hvað þegar þið vaknið á morgun.
ég skal setja hann útí glugga hjá
rúminu ykkar.
Svo setti hann þann rauða, loga-
gyllta í gluggann hjá foreldrum
sínum. Næsta morgun vöknuðu for-
eldrarnir og ætluðu nú að éta það
sem væri i skónum. En viti menn,
það var ekkert í glugganum. Ekki
skórinn. Ekkert. Tómur gluggi.
Skólaus. Þau hlupu inn til sonarins
og gáðu í gluggann. Heldur ekki
nokkur skapaður hlutur. í rúminu
undir glugganum lá sonur þeirra
þrævetur og horfði á þau. „Eruði að
gá að einhverju?" spurði hann. „Já,
við botnum ekkert i hvað hefur orð-
ið. af skónum, hann var ekki i
glugganum okkar þegar við vöknuð-
um.“ „Já, er skórinn týndur, ég
nenni heldur ekki að vera með
neina kalla í kringum húsið útaf
þessum skó. Ég held að skórinn sé
alveg týndur. Eg veit ekkert hvar
hann týndist.“
Allan desember leituðu foreldr-
arnir að skónum og spurðu dreng-
inn ísmeygilegra spurninga í þess-
um dúr: „Lilli minn, kannt þú alveg
sjálfur að opna öskutunnuna?“ Eða:
„Lilli minn, hvað er það flottasta
sem þú hefur búið til í leikskólan-
um, þú mátt alveg segja allt sem
þú vilt, alveg frá fyrsta klósettrúllu-
ornamentinu uppí eitthvað mjög
fallegt?"
En allt kemur fyrir ekki. Jóla-
skóhvarfið er enn hulin ráðgáta.
Núorðið segir drengurinn stundum
ef honum finnst foreldrarnir eitt-
hvað daprir eða þegjandalegir:
„Leiðinlegt hvaðjólaskórinn týndist
aiveg hérna heima hjá mér!“ Hann
veit að jólasveinahættan er liðln
hjá, svo hann þarf ekki að vera
hræddur við óþarfa átroðning að
næturlagi.
Hann er líka búinn að komast
að því að hann hefur nýtt og íljót-
virkt vald yfir foreldrunum ef skór
er nefndur á þvi heimili. Hvað for-
eldrana varðar eru nokkur atriðl
borðleggjandi í málinu: Var gottið
étið áður en skórinn hvarf? Eða
hvarf hann með gotti og öllu sam-
. an? Nú, hvernig þorði sá þrævetra
að læðast í myrkri nætur að fjar-
lægja skóinn úr glugga foreldranna
og eiga það á hættu að flana beint
í flasið á jólasveininum? Og það sem
foreldrunum finnst erfíðast að
kyngja, þvi þau eru eldra fólk og
bæði með gagnfræðapróf: Kom
kannski alvörujólasveinn og tók
skóinn með öllu gúmmilaðinu til
þess að hegna þeim fyrir frekju og
svo ekki sé mefra sagt, ótrúlega
græðgi?
Tork kerfið er ómissandi öllum sem bjóða aðeins
vandaða framleiðslu og góða þjónustu. Tork kerfið saman-
stendur af hylkjum og grindum ásamt einnota vörum til
notkunar hvar sem hreinlætis er þörf.
í nútíma framleiðslufyrirtækjum skiptir þrifnaður
miklu máli. Pá koma yfirburðir Tork best í ljós. Starfsfólk
þitt kann vel að meta hversu Tork kerfið er einstaklega
þægilegt í notkun. Sannir atvinnumenn biðja
um Tork vegna þess að Tork er hagkvæmara
og gæðin einstök.
mrnl
r
i
i
i
i
i
i
i
Nafn:
f yrirtaV'-
jieimiVisfan8; -
Starfsgrein: — ^__
s“:
nVinsamlc?;v
^r^aconf
1
I
I
1
I
I
1
i
_____I
Tork kerfíð. Fyrir þá sem vilja aðeins það besta. Mölnlycke
NGUM
• Þriggja vikna afgreiöslu-
frestur.
• Ókeypis hugmynda-
vinna.
• Ókeypis heimsendingar-
þjónusta.
ttmqar
2000
Siöumúli 32i Sfmi: 680624.
Eftir opnun.artfma 667556.
ELDHÚSINNRÉTTINGAR,
FATASKÁPAR OG BAÐ-
INN RÉTTINGAR, I hvltu,
hvltu og beyki, gráu,
gráu og hvltu, eik, beyki,
furu og aski.
Við erum við hliðina á Álnabæ i
Siðumúla.
Opið 9-19 alla daga.
Laugardaga 10-16.
Sunnudaga 10-16.
H JARTAS JUKLINGAR -
VIÐHALDSÞJÁLFUN
Nú býður Heilsugarðurinn viðhaldsþjálfun fyrir hjartasjúklinga
undir ábyrgri leiðsögn Heimis Bergssonar, íþróttafræðings.
o
A
HEILSUGARÐURINN
Garðatorgi, Garðabæ, sími 656970-71.
Júdófélag Reykjavíkur
Byrjendanámskeið hefjast þriðjudaginn 10.
jan. í nýjum æfingasal í sundlaugarbyggingu
í Laugardal. Kennari: Michal Vachun, lands-
liðsþjálfi.
Innritun á staðnum 10. jan. kl. 17.-19.
Upplýsingar í símum 39414 og 31976.
♦
Tork. Þegar hreinlæti
er nauðsyn.