Morgunblaðið - 05.02.1989, Qupperneq 6
6 FRETTIR/ENNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. FEBRÖÁR4Í989
ANNA SOFFÍA
HAUKSDÓTTIR.
Fd. ogár: 7. júní 1958.
Starf: Prófessor í raf-
magnsverkfræði við Há-
skóla íslands.
Menntun: Stúdentspróf
frá JdH 1977, BSc.-próf
í rafmagnsverkfræði frá
HÍ, MSc.-próf frá Ohio
State University.
Fyrri störf: Aðstoðar-
kennsla við rafmagns-
verkfræðideild Ohio
State University 1981-
1986, fyrirlestrar á fagr-
áðstefnum rafmagns- og
rafmagnsverkfræðinga í
Bandaríkjunum, greina-
skrif í erlend fagtímarit
o.fl.
Heimilishagir: Gift
Þorgeiri Óskarssyni
sjúkraþjálfara.
nemandi og mjög áhugasöm," seg-
ir Sæmundur Óskarsson, prófessor
í rafmagnsverkfræði. „Hún stendur
sig ekki síður sem kennari við deild-
ina.“ Annar fyrrum kennari hennar
segir að hún sé „einstök stúlka,
bæði vel gefin og falleg".
Á menntaskólaárunum söng
Anna í Hamrahlíðarkómum. „Hún
hefur þessa sjaldgæfu hæfileika að
vera bæði greind og skemmtileg,"
segir gamall kórfélagi. „Hún var
mikil námsmanneskja og hélt sig
vel að náminu, en tók sér þó tíma
í félagslíf, til dæmis í kórstarfið.
Hún er ein af þessum persónum
sem maður virðir ákaflega mikið
fyrir að vera alþýðlegur ogjákvæð-
ur persónuleiki, um leið og menn
vita að hún er mjög skörp. Sá
árangur sem hún hefur náð í námi
sínu og störfum er líka einstakur.
Það em svona konur, sem em
sterkustu málsvarar jafnréttis. Þær
sýna hæfileika sína í verki, án þess
„Svona konur eru sterk-
ustu málsvarar jafiiréttis4 ‘
Dr. Anna Soffia Hauksdóttir, próf-
essor í raftnagnsverkfræði
DR. ANNA Soffia Hauksdóttir var sett prófessor í
rafinagnsverkfræði síðastliðið sumar. Hún mun vera fyrsta konan,
sem ráðin er f prófessorsstöðu f verkfræðideild, auk þess sem hún er
f hópi yngstu prófessora, aðeins þrítug að aldri. Það er samdóma
álit allra, sem tíl dr. Önnu þekkja, að það hafi enga ^jafiiréttiskvóta"
þurft til þess að hún hreppti prófessorsstöðuna. Konan sé einstaklega
vel að henni komin.
Dr. Anna er Reykvíkingur, dótt-
ir hjónanna Hauks Pálmason-
ar, aðstoðarrafmagnsstjóra, og
Aðalheiðar Jóhannesdóttur, full-
trúa. Faðir hennar er einnig raf-
magnsverkfræðingur, en hann seg-
ist ekki telja að dóttir hans hafi
valið sér þetta ævistarf vegna
áhrifa frá sér eða sérstakri ást á
rafmagni. Reyndar hafi hún fyrst
ætlað í matvælaverkfræði, en raf-
magnsverkfræðin hafi loks orðið
ofan á. „Ég held að henni hafi
kannski þótt þetta fýsilegt vegna
þess hvað hún hefur mikinn áhuga
á stærðfræði," segir Haukur. Þess
má geta að sama árið og dr. Anna
útskrifaðist úr menntaskóla hlaut
hún viðurkenningu íslenzka stærð-
fræðifélagsins.
Námsferill dr. Önnu er allur með
ágætum. Hún hlaut Fulbright-
styrk til náms í
Bandaríkjunum
eftir að hún lauk
prófi í grein sinni
við háskólann hér
heima. í Ohio-ríki
lauk hún MSc.-
gráðu með sjálfvirk stafræn stýri-
kerfi sem aðalfag.
Á meðan hún var í námi ytra
hlaut dr. Anna fjölda styrkja og
viðurkenninga, til dæmis Ful-
bright-styrk, viðurkenningu stofn-
unar rafmagns- og rafeindaverk-
fræðinga, Amelia Earhart-styrk,
vísindastyrk NATO og styrk frá
Amerísk-norræna félaginu, sem
kenndur er við Thor Thors.
Gamlir kennarar dr. Önnu hér
heima segja að hún hafi verið afar
samvizkusamur nemandi og lagt
sig alla fram. „Hún var afbragðs-
SVIPIVIYNP
eftir Ólaf Þ. Stephensen
að þurfa nokkra kvóta til að kom-
ast áfram.“
Er dr. Anna kom heim frá námi,
starfaði hún fyrst við kerfisfræði-
stofnun Háskólans. Hún sótti svo
um prófessorsstöðuna ásamt öðr-
um umsækjanda, hlaut meðmæli
dómnefndar og samþykki deildar-
fundar sem hæfari umsækjandinn.
í haust hefur hún svo hafið kennslu
á rafmagnsverkfræðiskor.
______________„Hún er mjög
góður kennari,
líklega með þeim
betri í deildinni,"
segir einn nem-
andi hennar.
„Hún er gífurlega
samvizkusöm, það stepdur allt eins
og stafur á bók sem hún á að gera
og allt er á réttum tíma. Hún er
auðvitað ung i þessari stöðu, en
það háir henni sannarlega ekki.
Hún er í ákaflega góðu jafnvægi."
Sami verkfræðineminn segir að
dr. Anna sé mjög drífandi, vilji
koma upp sem beztum tækjakosti
og bæta gæði menntunarinnar á
sínu sviði sem mest. Af þessum
orsökum meðal annars sé hún vin-
sæl af nemendum sínum. „Það
kann þó sumum að þykja hún
ströng," segir stúdeiítinn.
Iceland Seafood Ltd:
Salan jókst um
ll%ásíðastaári
HEILDARSALA Iceland Seafood Limited, dótturfyrirtækis Sam-
bandsins í Evrópu, jókst um 2.300 tonn á siðasta ári, sem er um 11%
aukning frá árinu 1987. Mest jókst salan í Frakklandi, 28%, enda
opnaði fyrirtækið skrifstofu í Bouiogne í haust sem leið. Verð á
ýmsum helztu fisktegundum dróst saman á árinu, og þvi jókst heild-
arverðmæti söiunnar ekki nema um 3%. Alls seldi fyrirtækið fiskaf-
urðir fyrir um 3.6 milljarða króna.
Miðað við aðstæður er þetta
þokkaleg niðurstaða," sagði
Sigurður Á. Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Iceland Seafood, í
samtali við Morgunblaðið. Hann
sagði að af fjórurn stórum fisksölu-
fyrirtækjum, sem íslendingar starf-
ræktu á erlendri grund, væri ISL
líklega það eina, sem rekið hefði
verið með hagnaði á síðasta ári.
„Við erum eina fyrirtækið, sem
ekki er með verksmiðju, og lendum
því síður í skakkaföllum til dæmis
af völdum verðfalls á birgðum,"
sagði Sigurður.
Sigurður sagði að velta fyrirtæk-
isins hefði aukizt á síðasta ári,
gagnstætt því sem væri hjá hinum
fyrirtækjunum. „Við höfum getað
einbeitt okkur að því að selja vör-
una að heiman og þurfum ekki að
láta vandamál verksmiðjurekstrar-
ins tefja okkur frá því,“ sagði hann.
„Ég held að miðað við Evrópumark-
að sé það rétt stefna að vera ekki
með verksmiðjurekstur."
Hvalamálið hefur haft áhrif á
söluna hjá ISL, ásamt „ormafárinu"
svokallaða, sem greip um sig í
Þýzkalandi fyrr á árinu. Að sögn
Sigurðar hélzt veltan á Þýzkalands-
markaðnum þó óbreytt, en magnið
sem seldist dróst saman. „Sumir
viðskiptavina okkar hafa sett okkur
stólinn fyrir dymar vegna hvala-
málsins, en fyrirstaðan hefur heldur
verið að linast upp á síðkastið.
Hvalamálið olli eingöngu sölutregðu
í Þýzkalandi; í Bretlandi og Frakk-
landi hafði það engin áhrif,“ sagði
Sigurður.
Sigurður sagði að fyrirtækið
væri nýbyijað að selja verzlunar-
keéjum í Bretlandi físk í neytenda-
pakkningum, sem framleiddar væru
á íslandi. „Við vinnum þetta mál í
samvinnu við þróunarstöð sjávar-
afurðadeildar Sambandsins og ætl-
um að reyna að koma upp dálitlum
iðnaði í kring um neytendapakkn-
ingar,“ sagði Sigurður. Hann sagði
að þessa dagana væri verið að af-
greiða fyrstu vörumar af þessu tagi
til verzlunarkeðjunnar Marks &
Spencer. „Við erum mjög vongóðir
um að geta haldið áfram viðskiptum
bæði við Marks & Spencer og aðra.
Ég held að ein merkilegasta nýjung-
in í okkar starfsemi sé að reyna
að færa þennan iðnað heim til ís-
lands og fá hærra verð fyrir vöruna
hér.“
Sigurður sagðist loks vera von-
góður um söluna á þessu ári. í jan-
úar hefði sala ISL aukizt um 34%
miðað við ársbyijun 1988.
Sæi'ún farin
til Englands
VÉLBÁTURINN Særún frá Eyr-
arbakka, sem fékk á sig brotsjó
við Færeyjar á fimmtudag, hélt
áfram för sinni til Englands á
föstudag.
Að sögn Þórðar Þórðarsonar,
annars eiganda bátsins, var
það ofsagt í frétt Morgunblaðsins
í gær að skipið væri mikið skemmt.
Gluggi í brúnni hefði brotnað og
siglingatæki farið úr sambandi um
tíma.
Að sögn Þórðar höfðu skipveijar
á Særúnu ágæt siglingakort af
Færeyjum og sigldi báturinn fyrir
eigin vélarafli til lands eftir óhapp-
ið.
Gamla kirkjan í Grinda-
vík í nýiu hlutverki
Grindavfk
GAMLA kirkjan í Grindavík hefúr
fengið nýtt hlutverki. Um miðjan
janúar var byrjað að starfrækja
þar dagheimili.
Afundi bæjarstjómar sl. haust var
ákveðið að mæta vanda í dag-
vistarmálum I Grindvík með því að
starfrækja dagvist í gömlu kirkjunni
sem stendur við Kirkjubraut í
Grindavík. Kirkjan hefur staðið auð
í nokkum tíma. Eftir að hætt var
að nota hana undir guðsþjónustur
með tilkomu nýju kirkjunnar 1982
hefur JC-Grindavík fengið þar inni
með starfsemi sína. Efir að það félag
hætti starfsemi fyrir tæpum tveimur
áram hefur engin starfsemi átt sér
stað í kirkjunni.
Leitað var umsagnar sérfróðra
aðila um möguleika þess að starf-
rækja þama dagvistarheimili. Að
fengnum tillögum þar sem fram kom
að húsnæðið gæti með nokkram
breytingum gegnt hlutverki dagvist-
arheimilis var ákveðið að bjóða rekst-
urinn út. í útboðinu kom m.a. fram
að Grindavíkurbær útvegar húsnæði
ásamt útileiktækjum, hita og raf-
magni en rekstraraðili sér um dag-
legan rekstur, starfsfólk og ræst-
ingu.
Guðrún Agnes Einarsdóttir dag-
móðir var eini umsækjandinn og var
gengið til samninga við hana á
grandvelli tilboðs.
Fréttaritari fór í heimsókn og átti
viðtal við Guðrúnu. Að hennar sögn
hentar kirkjan vel undir þessa starf-
semi. Góður andi væri í kirkjunni og
breytingar vel heppnaðar. Gert er ráð
fyrir 15 heilsdagsplássum sem geta
nýst sem 30 hálfsdagspláss. Nú þeg-
ar era 16 böm í dagvist, þar af eitt
í heilsdagsvist. Auk Guðrúnar starfar
Morgunblaðið/Frímann ólafsson
Guðrún Einarsdóttir og Guðbjörg Ólafsdóttir í eldhúsi Kirkjukots.
þama ein dagmóðir en gert er ráð
fyrir þremur dagmæðrum með fullri
nýtingu. Guðrún sagði að ekki væri
búið að gefa heimilinu nafn en væri
kallað Kirkjukot manna í millum.
Gert er ráð fyrir að 6 mánaða til
3ja ára böm hafí forgang að heimil-
inu en að öðra leyti er það opið fyr-
ir böm á ölium aldri. Greitt er venju-
legt dagmæðragjald en Grindavíkur-
bær endurgreiðir hluta af gjaldi for-
eldra bama yngri en 6 ára.
FÓ
Gamla kirkjan i Grindavik.
Börnin una sér vel í gömlu kirkjunni.