Morgunblaðið - 05.02.1989, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 05.02.1989, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. FEBRÚAR 1989 17 held að veröld bamanna okkar verði svo gjörólík þeirri sem við lifum í núna að við getum ekki ímyndað okkur það. Það virðast allir gera ráð fyrir því að tækniþróunin hafí stöðvast, við komumst ekki lengra, en ég held að það sé reginmisskiln- ingur. Þegar afi minn og amma fæddust var ekki búið að fínna upp flugvélina. Þegar þau dóu hafði fyrsti maðurinn gengið á tunglinu. Þessi þróun er svo ör að við getum varla fylgst með henni og ég held að það sé vamarviðbragð að ímynda sér að hún geti ekki gengið öllu lengra. Það vekur líka áhuga minn hvemig tæknin og vélamar sem hún skapar neyða okkur sífellt til að meta upp á nýtt hvað séu mann- legir eiginleikar, hvað geri manninn sérstakan. Skáktölvur em athyglis- verðar í þessu sambandi vegna þess að hingað til hefur verið litið á skák sem nokkurs konar listgrein og nú er komin fram vél sem er færari í listinni en margar manneskjur. Þegar ég var að vinna að Henee skrifaði ég grein um tölvuskák og fór þá meðal annars á heimsmeist- aramót í tölvuskák í Þýskalandi. Þar hitti ég marga sem vora sann- færðir um að ekki liði á löngu þar til tölvur gætu farið að semja tón- verk, sem ekkert stæðu að baki þeim tónverkum sem menn semja. Þetta varð til þess að ég sem Iista- maður fór að velta því fyrir mér hvernig tæknin getur breytt því áliti sem við höfum á sjálfum okk- ur, hugmyndum um stöðu okkar og tilgang í lífínu. Eitt af því sem við höfum hingað til álitið að gerði manninn fullkomnari en aðrar dýra- tegundir er hæfileikinn til að skapa listaverk. Og ef einhverjar vélar fara nú að standa okkur á sporði í því neyðumst við til að endurskoða afstöðu okkar til listarinnar og okk- ar sjálfra. Það er fullkomlega eðli- legt að fólk óttist þessa þróun." Þetta era sannlega lítið uppörv- andi vangaveltur og til að skipta um umræðuefni spyr ég Brad hvað upphaflega hafi vakið áhuga hans á Islandi. „Ég hafði séð myndir héðan og þær vöktu áhuga minn. Þetta lands- lag, þessi auðn er svo ólíkt öllu sem ég hafði þekkt, minnti mig á mynd- ir frá tunglinu. Ég hef alltaf verið hrifínn af stöðum sem era öðravísi, öfgakenndum stöðum. Birtan hér á sumrin minnir á aðra heima, eitt- hvað hreint og heilagt. Ég var í sumar er leið í Mexíkó og það má segja að það sé á hinum enda öfga- skalans miðað við Island. Fram- skógur mannlífs og lita, heitt loft- slag og ólgandi tilfínningar. Hvort ég hafí reynt að læra íslensku? Já, ég tók einn kúrs í fomíslensku í haust, eftir að ákveðið var að við kæmum hingað. Því miður var ég svo önnum kafínn við annað að árangur af náminu var harla lítill. Þó las ég nokkra kafla úr fomsög- unum og sýndist þær mjög spenn- andi viðfangsefni." Yngri dóttir þeirra Brads og Mary Jo, Hilary, sem er aðeins átta mánaða, er nú vöknuð og krefst athygli föður síns. „Þekkirðu nokkra góða stúiku sem hefði áhuga á að passa bam á morgn- ana?“ spyr Brad. Því miður þekki ég enga slíka og sé á öllu að við- talinu er Iokið. Pakka saman blöð- um og skriffæram og þakka fyrir mig, um leið og ég óska fjölskyld- unni ánægjulegrar dvalar á íslandi. Þetta veður er alveg hræðilegt - segir Mary Jo Salter, sem hlaut Lamont-verðlaunin 1988fyrirbestu aðra Ijóðabók höfundar Ljóðabókin Unfínished Painting eftir Mary Jo Salter, eiginkonu Brads Leithauser, hlaut Lamont-verðlaunin sem besta önnur Ijódabók höíundar 1988. Bókin kemur þó ekki út fyrr en í mars 1989 og ég spurði Mary Jo hvemig þessi verðlaun væra veitt. Jr að er ameríska ljóðskálda- akademían sem veitir verðlaunin og útgefendur senda handrit ljóðabóka sem þeir hafa ákveðið að gefa út til akademíunnar, og verðlaunin era veitt áður en bókin er gefín út. Þegar bókin síðan kemur út er hún rækilega merkt sem Lamont-verðlaunabókin til þess að auka söluna. „ Fyrsta ljóðabókin mín hét Henry Purcell in Japan og ég skrifaði hana að mestu leyti með- an við bjuggum í Japan. Auk þess er ég búin að skila inn handriti að barnabók, The Moon Comes Home, sem kemur út í haust.“ — Hvemig stóð á því að þið fluttuð til Japan? „Brad var að ljúka lögfræði- námi við Harvard þegar honum bauðst vinna við rannsóknarverk- efni við japanskan háskóla. Upp- haflega ætluðum við aðeins að vera þar í eitt ár, en okkur líkaði dvölin það vel að ég sagði upp starfí mínu sem ritstjóri bók- menntaefnis hjá Atlantic Monthly og fór að kenna ensku í Japan. Ég var í enskunámi bæði við Harvard- og Camebridge-háskóla og það var einmitt í Harvard sem við Brad kynntumst." — Maðurinn þinn sagði mér að þú hefðir skrifað grein um Hall- dór Laxness fyrir Atlantic Mont- hly ... „Já, þegar við bjuggum í Róm skrifaði ég grein um Laxness, sem er kannski ein ástæða þess að við eram hér nú. Ég hafði samband við Laxness og sagði honum að ég væri að skrifa grein um hann og langaði til að fá að spjalla við hann. Hann bauð rhér þá að koma með alla fjölskylduna og búa í íbúð sinni í Reykjavík, sem ég og gerði. Við voram í íbúðinni í þijár vikur og bæði Laxness og kona hans reyndust okkur frábærlega vel. Kynntu okkur meðal annars fyrir nokkram íslenskum rithöf- undum sem við höldum enn sam- bandi við. Því miður birtist grein- in aldrei, en Brad fjallaði töluvert um Laxness í grein sinni um ís- land.“ — Þið komuð til landsins nú í byijun janúar, hvemig hefur veð- urfarið lagst í ykkur? „Þetta veður er alveg hræði- legt. Ég var alls ekki undir þetta búin. Við höfum einu sinni áður verið hér að vetrarlagi, í febrúar, og þá var veðrið alveg yndislegt, milt og bjart. Eldri dóttir okkar, Emily, sem er fímm ára, neitar að fara út úr húsi nema í bíl, hún er svo hrædd við vindinn. Kunn- ingjar okkar segja reyndar að þetta veður hafí komið með okkur og við verðum bara að vona að veðurguðirnir fari fljótlega að sætta sig við vera okkar hér.“ Vatnsdælur í miklu úrvali. Verð frá kr. 1.280,- GSvarahlutir Hamarshöfði 1, S. 36510-83744. Kúplingarsett ímiklu úrvali Pósfsendum samdægurs. Verð frá kr. 5.400,- GSvarahlutir Hamarshofóa 1-110 Raykjavih - S«nar 36510 og 83744 ILEAM COTRUMS Í Í8LEIMSKU ÓPERDMHl Hin heimsþekkta sópransöngkona lleana Cotrubas heldur tónleika í íslensku óperunni laugardaginn 11. febrúar kl. 15.00. Á efnisskránni verða Ijóðasöngvar eftir G. Enesco, G. Fauré, F. Liszt og H. Wolf. Meðleikari á píanó er Raymond Jansen. Forsala aðgöngumiða verður í íslensku óperunni kl. 15-19 alla daga. Afsláttur af miðaverði er veittur styrktarfélögum sem kaupa miða í forsölu. Styrktarfélag Islensku óperunnar. OSKUDAGUR - SOLUBORN Eins og áður stendur Reykjavíkurdeild RKÍ fyrir merkjasölu á öskudag. Börn á aldrinum 9-12 ára fá merki afhent hjá eftirtöldum félagsmiðstöðvum þriðjudaginn 7. febrúar kl. 14-16. Frostaskjóli,......................Frostaskjóli 2. Fellahelli............................Norðurfelli. Bústöðum...........................Bústaðavegi. Þróttheimum,........................... Holtavegi. Árseli,.................................Rofabæ. Tónabæ..............................Skaftahlíð 24. Þriðjudag og miðvikudag frá kl. 9-17 verða merki afgreidd hjá: Reykjavíkurdeild RKÍ, Öldugötu 4, og Rauða kross íslands, Rauðarárstíg 18. Móttaka merkja og peninga verður á sömu stöðum fimmtudaginn 9. febrúar kl. 14-16. ! Reykjavíkurdeild RKÍ FYRIR VÖRUGJALDSHÆKKUN INNRETTINGAR GÆÐAVARA A GÖÐU VERÐI Komdu og skoðaðu úrvalið og fáðu nánari upplýsingar. V örugjaldshækkunin er að skella á. Nú er rétti tíminn til að festa kaup á baðinnréttingu,eld- húsinnréttingu eða fataskápum. V erðið hjá okkur hefur ekki hækkað síðan í júní 1988 — það eitt tryggir þér hagstætt verð. Hjá okkur í IB-búðinni fara verð og gæði svo sannarlega saman. ittiliiiliillilliiiiiiilllUliiliilliiilíHHiilliíiiitilliiiiiilMiiliiittititiisiimtii

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.