Morgunblaðið - 05.02.1989, Page 7
-MORGUNBLAÐIÐ SUNNUÐAGUR 5. FEBRÚAR 1989
7
Reuter
Jóhann og Karpov í þungnm þönkum yfír skákinni í gœr.
Skákeinvígið í Seattle
Jóhann sýndi sitt rétta andlit
Seattle, Waahingfton. Frá Valgerði P. Hafstað, fréttaritara Morgiinblaðsins
HVORKI umferðarhnútar né skákflækjur komu Jóhanni Hjartarsyni
úr jafnvægi í Qórðu skák einvígisins, sem tefld var í Seattle á föstu-
dag. Umferðarþungi olli því að hvorki Karpov né Jóhann komu
stundvíslega á mótstað: Karpov kom 7 mínútum of seint, Jóhann 21
minútu of seint.
Karpov beið um hríð en lék sinn
fyrsta leik kl. 17.15 að staðartíma.
Þegar Jóhann gekk í salinn lét hann
engan bilbug á sér finna. Hann
svaraði sókn Karpovs af öryggi, og
eftir fjögurra klukkustunda átök
og 39 leiki sömdu stórmeistaramir
um jafntefli.
Sérfræðingar höfðu snemma
spáð jafntefli í skákinni. Þeim þótti
Jóhann nú loks sýna sitt rétta and-
lit og leika betur en nokkru sinni
fyrr í einvíginu. „Karpov virðist
ekki ætla að beijast til sigurs,"
sögðu þeir, „hann tekur aldrei nein-
ar áhættur."
í blaðamannaherberginu veltu
menn því fyrir Sér hvers vegna
konur virðist hafa mun minni áhuga
á skák en karlar. Þráinn Guð-
mundsson, formaður Skáksam-
bands íslands, taldi konur ekki vera
eins herskáar og -karla, og ekki
hafa þá árásarhvöt sem skákin
krefðist.
Sovéski stórmeistarinn Eduard
Gufeld sagði ástæðuna fyrir áhuga-
leysi kvenna þá að konur hefðu
ekki stundað skákfþróttina eins
lerigi og karlar, og auk þess væri
taflmennskan líkamlega mjög erfið,
því skákimar væru langar. „En
þetta er að breytast," bætti hann
við, „áhugi kvenna er stórum að
aukast."
Þegar rætt var um það hvers
vegna vinsældir skákíþróttarinnar
væm mun minni í Bandaríkjunum
en á íslandi og í Sovétríkjunum,
vom íslendingamir á einu máli um
ástæðuna. íslensku stórmeistaram-
ir sögðu taflmennskuna vera allt
of langdregna og hæga íþrótt til
að geta fallið að bandarískri menn-
ingu þar sem hraðinn er ávallt í
fyrirrúmi.
Harald Óskarsson, byggingar-
verkfræðingur, sem mætt hefur á
hveija skák einvígisins, var sam-
mála þessu, og kvaðst hafa orðið
var við að hraðskák væri mun vin-
sælli meðal Bandaríkjamanna.
Hann benti einnig á að Bandaríkja-
menn væm aldir upp í því að verða
bestir á öllum sviðum, og vegna
þess hve Sovétmenn væm sterkir í
skáklistinni hefðu Bandaríkjamenn
ekki áhuga á að etja kappi við of-
jarl sinn.
Eduard Gufeld 'hafði aðrar skýr-
ingar á takteinum: hann sagði skák-
íþróttina eiga miklu fylgi að fagna
í Bandaríkjunum, en vegna þess að
ekki væri litið upp til þeirra, sem
sýndu skákinni áhuga, væri þátt-
dataka í skákmótum lítil.
í áhorfendahópi vom fímm ungir
skákmenn frá New York borg, sem
komnir vom til Seattle til að tefla
við sóvéska jafnaldra sína. Þeir
sögðu að þeim hefði verið kennt að
tefla í gagnfræðaskóla til þess að
velgengni þeirra í náminu myndi
aukast.
„Skákin eykur víðsýnina," sögðu
þeir. „Á taflborðinu læmm við að
glíma við vandamál og að æsa okk-
ur ekki upp þótt illa gangi. Þetta
kennir okkur að fást við vandamál
hins daglega lífs.“
Um 200 manns fylgdust með fim-
legri taflmennsku Jóhanns í §órðu
skákinni. Á sunnudag vænta menn
þess að hann verði í árásarhug, en
þá mun hann hafa hvítt.
Jóhann réttír úr kútnum
Skák
Vasser Seirawan
Jóhann hefur það erfiða verkefni
að vinna upp forskot eins sterkasta
skákmanns allra tíma 2V2—V2.
Spumingin er, hvort hann eigi að
reyna að vinna í dag eða bfða þang-
að til hann fær hvítu mennina.
Hvítt: Anatoly Karpov
Svart: Jóhann Hjartarson
Móttekið drottningarbragð
I. Rf3 RfB 2. c4 e6 3. Rc3 d5 4.
d4 dxc4!?
Óvænt ákvörðun. Jóhann teflir
venjulega slavneska vöm eða hefð-
bundið drottningarbragð. Móttekið
drottningarbragð er ekki í vopna-
búri Jóhanns. Slæmar minningar
frá annarri skákinni. Tekst þetta
hættuspil?
5. e3 -
Hvössustu afbrigðin koma upp
eftir 5. e4 Bb4 6. Bg5 b5 7. e5.
5. — a6 6. a4 c5 7. Bxc4 Rc6 8.
0-0 Be7 9. dxc5?! —
Einkennileg ákvörðun hjá
Karpov. í honum togast á löngunin
til að gera jafrítefli og tefla til vinn-
ings og ljúka með því einvíginu, og
hann tekur fyrri kostinn. Vandinn
er sá, að leikurinn a2-a4 hæfír ekki
þeirri stöðu, sem upp kemur. Besta
leiðin er 9. De2! cxd4 10. Hdl e5!
II. exd4 exd4 12. Rxd4 Rxd4 13.
De5 með hnífjafnri stöðu.
9. - Dxdl 10. Hxdl Bxc5 11.
Bd2 -
Biskupinn er hálfklaufalegur hér.
Ég hefði fremur kosið 11. b3 til
að koma drottningarbiskupnum á
skálínuna al-h8. Svartur gæti þá
náð biskupaparinu af hvíti með 11.
— Ra5 12. Rd2 Rxc4 13. Rxc4, en
staðan, sem þá kæmi upp, yrði
honum til lítillar ánægju. Ef til vill
væri 11. — b6 besti kosturinn.
Hvítur hefði fremur kosið að hafa
peð á a2, því á a4 stendur það
augljóslega illa.
11. - b6! 12. Hacl Bþ7 13. Ra2! -
Loksins. Karpov er að átta sig á
hættunni. Hann er að lenda í erf-
iðri stöðu og reynir þyí að ná undir-
tökunum á drottningararmi með
b2-b4.
13. - 0-0 14. Bel -
Furðulegt. Hvítur hefur sagt „a“
og þvf hefði mátt búast við, að
hann segði „b“ og léki hinum eðli-
lega 14. b4. Eftir hinn óvirka leik
í skákinni nær svartur undirtökun-
um.
14. - a5! 15. Rc3 -
Nú er ljóst, að svartur hefur náð
lítið eitt betra tafli.
15. - Hfd8 16. Kfl Kf8 17. Bb5
Hxdl 18. Hxdl Ke7 19. h3 h6 20.
Rd2 -
Karpov nær engu spili fyrir menn
sína. Hann ákveður að flytja riddar-,
ann yfír á drottningarvæng til að
sækia að peðinu á b6.
20. - Hd8 21. Hcl Rb4!
Jóhann teflir mjög vel! Hann
opnar biskupnum á b7 leið og hótar
að leggja undir sig d3-reitinn.
22. Rb3 Bd6 23. Rd4 Hc8 24.
Rce2 -
Erfið ákvörðun, sem gefur Jó-
hanni tækifæri til að slíta í sundur
Staðan er nú 3-1 Karpov í vil.
Hann þarf einungis eitt jafntefli til
viðbótar til að sigra í einvíginu.
Jóhann er með bakið upp að veggn-
um. Þessi skák eykur sjálfstraust
Jóhanns, því hann yfírspilaði
Karpov í einfaldri stöðu, en það er
merkur áfangi fyrir .skálcmann!
peðakeðju hvíts.
24. - Hxcl 25. Rxcl Rfd5 26.
Bc4 Be5!
Hvítur verður að gæta að sér til
að halda jafnvæginu.
27. Rlb3 Rc6 28. Bd2 -
Sættir sig við stakt peð. Verra
hefði verið 28. Bxd5 Rxd4 29. exd4
Bxd5 30. dxeö Bxb3 31. Bc3 Kd7!
í því tilviki hefði Jóhann haft peð
yfir í endatafli með mislitum bisk-
upum. Væri sú staða unnin? Ég
efast um það, en Karpov langar
ekki til að komast að þvf!
28. - Rxd4 29. Rxd4 Bxd4?!
Þetta leiðir ekki til neins. 29. —
Kd6 ásamt Kc5 hefði haldið meiri
spennu í stöðunni. í því tilviki hefði
svartur getað þrengt meira að hvíti.
30. exd4 Kd7 31. Ke2 Bc6 32.
Bb3 Re7!
Þótt riddarinn sé góður á d5, er
sá reitur leiðin inn í hvítu stöðuna.
Svartur verður að endurskipuleggja
lið sitt.
33. f3 Rf5?!
Ég hefði fremur kosið 33. —
Bd5, en með þeim leik hefði svartur
haldið örlítið betra tafli.
34. Bc3 g5 35. Bc2! Re5 36. Bd2 -
Hugmyndin er að fækka peðun-
um með b2-b4 eða h3-h4.
36. - Rd5
Svartur kemst ekkert áfram og
jafnteflið er skammt undan.
37. h4! ffi 38. g3 Re7 39. b4! Rf5
og jafiitefli var samið.
Dulbúin
bjóraug-
lýsing?
RANNSÓKNARDEILD lögregl-
unnar í Reykjavík hefiir haft til
athugunar hvort auglýsing sem
öl- og gosdrykkjaverksmiðjan
Sanitas hefiir birt nokkrum sinn-
um á baksfðu Morgunblaðsins
gæti varðað við lög um bann við
áfengisauglýsingum. Reynir
Björgvinsson, markaðsstjóri San-
itas, staðfesti í samtali við Morg-
unblaðið að hann hefði á föstu-
dag verið kallaður til skýrslu-
töku á lögreglustöðinni og spurð-
ur hvað verið væri að auglýsa.
Eg skýrði frá því að verið
f væri að vekja’ athygli á að
rrá og með 1. mars næstkomandi
tæki Sanitas við umboði fyrir vöru-
merkið Löwenbrau og að af 23 teg-
undum öls sem framleiddar væru
undir því vörumerki væru níu
óáfengar," sagði Reynir. Hann
kvaðst hafa skilið viðbrögð manna
á lögreglustöðinni við framburði
sínum þannig að ekki yrði hafst
frekar að í málinu.
Friðrik Gunnarsson aðstoðaiyfir-
lögregluþjónn sagði að mál þetta
hefði verið tekið til athugunar f
fram haldi af ábendingu sem komið
hefði verið til lögreglunnar. Hann
sagði að ekki hefði verið um form-
lega kæru að ræða. Friðrik sagði
að athugunin beindist að því hvort
einungis væri verið að auglýsa
áfengi, sem væri ólöglegt, eða hvort
aðrar og óáfengar vörur væru einn-
ig framleiddar undir þessu vöru-
merki. Hann sagði að frá og með
1. mars tækju gildi nýjar reglur sem
gerðu skylt að taka fram í auglýs-
ingum af þessu tagi að verið væri
að auglýsa einhvem þeirra óáfengu
drykkja sem væru framleiddir undir
viðkomandi merki.
Jón Oddsson:
Ljóst að far-
ið verðurí
mál við SÍS
EF ÞROTABÚ Kaupfélags Sval-
barðseyrar hafiiar endanlega að
standa að málshöfðun gegn Sam-
bandi fslenskra samvinnufélaga
mun Jón Oddsson, hæstaréttar-
lögmaður höfða mál á hendur
Sambandinu fyrir hönd skjól-
stæðings sins, Jóns Laxdals.
Þetta var bókað á skiptafundi
sem haldinn var í þrotabúi Kaup-
félagsins á fimmtudag.
*
Askiptafundinum felldu kröfu-
hafar tillögu Jóns Oddssonar
um að höfða mál á hendur Sam-
bandinu til að fá skorið úr um eign-
araðild Kaupfélagsins að Samband-
inu og fá meintar eignir þess dregn-
ar inn í skipti á þrotabúinu. Jón
Oddsson mótmælti atkvæðagreiðsl-
unni á þeim forsendum að Sam-
bandið og fyrirtæki tengd því — sem
eiga meirihluta af kröfunum í búið
— hefðu ekki atkvæðisrétt í málinu
þar sem þau væru aðilar að því.
Sýslumaður hefur tekið sér frest til
að úrskurða um þetta atriði.
Jón Oddsson sagðist vilja taka
það fram að hver sem úrskurður
sýslumanns yrði væri það ákveðið
að farið yrði í mál gegn Samband-
inu, hvort sem það yrði þrotabúið
sem slíkt sem stæði að því eða skjól-
stæðingur hans. Þrotabúið væri
hins vegar aðili málsins og féð
myndi renna þangað ef dómur félli
á þann veg. Jón sagði að Baldvin
Jónsson, hæstaréttarlögmaður og
fulltrúi Áburðarverksmiðjunnar,
hefði látið bóka að hann áskildi
Áburðarverksmiðjunni rétt til að
standa að málinu.