Morgunblaðið - 05.02.1989, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. FEBRÚÁR1 Í989
23
Hús Brézhnev-tímans hrundu en Khrústsjov-húsin stóöu.
Líkkistur við aðalgötu
Spítak.
lega frá öllu sem fyrir augu bar,
rætt við fjölmarga sem komust lífs
af, almannavamakerfið var gagn-
rýnt harðlega sem og lélegar bygg-
ingar. Þá kvörtuðu blöðin og yfír
slakri stjóm á björgunarstarfinu.
Enn eitt atriði sýnir svo ekki verður
um villst, að nýir tímar hafa hafið
innreið sína í sovéskt samfélag og
hugsunarhátt stjómvalda. Sú
ákvörðun að taka við, já jafnvel
biðja um, aðstoð erlendis frá var
ekki einungis óvenjuleg, heldur
einnig rökrétt framhald af glas-
nost-stefnu Gorbatsjovs og viðleitni
hans til að bæta andrúmsloftið í
alþjóðlegum samskiptum, sem svo
skýrt kom fram í ræðu hans á alls-
heijarþingi Sameinuðu þjóðanna
aðeins nokkrum klukkustundum
eftir að ósköpin dundu yfir í Arm-
eníu.
Þegar Gorbatsjov var í Armeníu
lét hann hafa það eftir sér, að það
væri furðuleg tilviljun að hús sem
byggð vom á stjórnartíma
Khrústsjovs stæðu nokkuð
óskemmd, en hús byggð á tíma
stöðnunar (svo kalla stjórnvöld
stjórnarár Brézhnevs) hryndu eins
og spilaborg!! Það fór ekki framhjá
neinum að forsetinn var hér að
gefa í skkyn að byggingarsam-
þykktum hefði ekki verið fylgt til
hlítar, of mikill sandur væri í steyp-
unni miðað við sement — einnig' á
þessu sviði endurspeglaðist spilling
Brézhnev-áranna og hún varð
þannig tugþúsundum að fjörlesti.
Sú hugsun skýtur upp kollinum að
ef til vill sé allt efnahagskerfið, já
jafnvel allt þjóðfélagið, byggt á
sandi. Stjórnendur samfélagsins
sjálfír gefa meira að segja slíkum
vangaveltum byr undir báða vængi.
Að minnsta kosti hefur Gorbatsjov
gefið í skyn við nokkur tækifæri,
að blekkinguna um að sovéska sam-
félagið sé paradís hins vinnandi
manns verði að rífa upp með rótum.
Það verkefni sem Gorbatsjov og
félagar hans hafa tekið að sér er
ekki öfundsvert. Það er hins vegar
nauðsynlegtr en jafnframt ófram-
kvæmanlegt svo vitnað sé í pólska
sagnfræðinginn Adam Michnik.
Flestir geta tekið undir með Mic-
í einum rústunum í Spítak.
Jarðskjálftinn átti sér stað
um kl. 11.40 að staðartíma
(sjá klukkuna).
Yfirmaður ísraelsku hjálp-
arsveitarinnar umkringdur
blaðamönnum.
hnik um að perestrojkan sé nauð-
synleg. Og með Gorbatsjov um að
ekki verði aftur snúið því „að baki
okkar er öngþveiti" (kaos). En hvað
með óframkvæmanleikann? Þeirri ’
spurningu verður vitanlega ekki
svarað nú og heldur ekki á næstu
árum. Að snúa hugsunarhætti
heillrar þjóðar — hér verður auðvit-
að að minna á að Sovétmenn eru
ekki einu sinni ein þjóð heldur á
annað hundrað þjóða — tekur lengri
tíma en svo að starfsævi eins þjóð-
arleiðtoga nægi til. Þar að auki
þarf að skipta um innvolsið í efna-
hagsmaskínunni, meira að segja
stjórnarherramir hafa áttað sig á
að fyrirskipanahagkerfið er ger-
samlega úr sér gengið og ónot-
hæft, fólkinu í landinu hefur aftur
á móti verið þetta ljóst í mörg herr-
ans ár. Þess vegna er vitaskuld lögð
á það höfuðáhersla að hafa hraðann
á og láta hendur standa fram úr
ermum. Því í skúmaskotum hafast
þeir við, sem vilja perestrojkuna
feiga, og bíða þess að færi gefist
til atlögu við talsmenn umbyltingar-
innar. Sovéska samfélagsbyggingin
hefur, ef svo má að orði komast,
hrunið í pólitískum og efnahagsleg-
um jarðskjálfta, sem krefst þess,
ekki síður en jarðskjálftinn (í bók-
staflegri merkingu) í Armeníu að
byggt verði að nýju frá grunni.
Menn vænta þess nú að bæimir,
sem lögðust í rúst í Armeníu í byij-
un desember, verði endurreistir og
að þessu sinni verði byggt betur
en áður var gert. Stefnt er að því
að verkinu verði lokið á tveimur
ámm. Þess er sömuleiðis vænst að
haldið verði áfram við uppbyggingu
hins risavaxna samfélags úr rústum
stöðnunar og einnig á þvi sviði er
markið sett hátt — perestrojkan á
að leiða til heilbrigðara þjóðfélags
með auknu frelsi og lýðræði og
minni spillingu, betri lífskjara og
bættrar sambúðar þjóða heims án
þess að sett séu ákveðin tímamörk
í því tilliti. En forsenda þess að vel
takist til við þessi verkefni er vita-
skuld að byggingarleikreglunum sé
framfylgt og menn drýgi ekki
steypuna um of með sandi.
JL