Morgunblaðið - 18.03.1989, Page 4

Morgunblaðið - 18.03.1989, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MARZ 1989 Eimskip svarar ásökunum EIMSKIP hf hefur nú svarað ásökunum um óeðlilega við- skiptahætti við verðtilboð vegna páskaeggjaflutninga til landsins. Félagið sendi verðlagsstjóra bréf síðastliðinn fimmtudag, þar sem sjónarmið félagsins eru rakin. Þórður Sverrisson framkvæmda- stjóri flutningasviðs Eimskips sagði að í bréfinu væri því mótmælt að félagið hefði látið undan þrýstingi frá innlendum sælgætisframleið- endum eða öðrum aðilum og af þeim sökum hækkað flutningsgjald frá fyrra tilboði. Hann segir að rakin séu sam- skipti viðkomandi innflytjanda og félagsins og greint frá þeim flutnin- gatöxtum sem um ræðir. Þórður segir að Eimskip telji að fyllilega sé greint frá þessu máli og hann hafi engu við það að bæta sem áður hafi komið fram, að ásak- animar eigi ekki við rök að styðjast. Morgunblaðið/Emilía Ingólfsskáli horfínn Ingólfsskáli við Ingólfsgarð hefúr verið rifinn en Hafrannsóknastofiiun hefúr geymt þar veiðarfáeri undanfarin ár. Engin ákvörðun hefúr verið tekin um hvort byggt verður á lóðinni. V / DAG kl. 12.00: Heimild: Veðurstofa Islands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær) VEÐUR VEÐURHORFUR í DAG, 18. MARS YFIRLIT í GÆR: Lægð suðaustur af landinu, hreyfist norðnorðaust- ur. SPÁ: Fremur hæg suðvest-læg átt eða breytileg átt á landinu, él um vestanvert jandið en þurrt og víða bjart veður um landið austan- vert. Hiti í kringum frostmark. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á SUNNUDAG: Austan- og norðaustanátt. Él um austan- og norðanvert landið en léttskýjað suðvestanlands. Frost 1 -5 stig, miidast á Suðausturlandi. HORFUR Á MÁNUDAG: Norðan- og norðaustanátt. Él norðan- eða austanlands en léttskýjað sunnan- og suðvestanlands. Frost 3-8 stig. y. Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. 10° Hitastig: 10 gráður á Celsíus V y Skúrir Él / / / / / / / Rigning / / / — Þoka = Þokumóða * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * 9 , 9 Súld 4 K Mistur Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍBA UM HEIM k/. 12:00 í gær að íst. tíma hlti veflur Akureyri 0 skýjað Reykjavík 1 slydda Bergen 2 snjóél Helslnki. 2 rigning Kaupmannnh. 5 skýjað Narssarssuaq +12 hálfskýjað Nuuk +11 hálfskýjað Osló 6 léttskýjað Stokkhólmur 3 skýjað Þórshöfn 3 skýjað Algarve 13 skýjað Amsterdam 7 skýjað Barcelona 15 þokumóða Berlín 10 skúr Chicago +1 alskýjað Feneyjar 12 þokumóða Frankfurt 8 skúr Glasgow 5 léttskýjað Hamborg 6 skúr Las Palmas 18 léttskýjað London 6 skýjað Los Angeles 11 léttskýjað Lúxemborg 5 skúr Madrfd 13 þokumóða Malaga 15 þokumóða Mallorca 18 skýjað Montreal +6 8kýjað New York 7 alskýjað Orlando 18 þokumóða Parfs 7 skýjað Róm 15 alskýjað skýjað Vfn 16 Washington 6 léttskýjað Winnipeg +22 heiðskfrt Hæstiréttur: Fangelsi í 2xh ár fyr- ir manndrápstilraun FERTUG kona í Reykjavík, Þorbjörg Sonja Aðalsteinsdóttir, var í gær í Hæstarétti dæmd í 2'/2 árs fangelsi fyrir tilraun til mann- dráps. Hæstiréttur mildaði dóm yfir konunni, þvi í apríl í fyrra var hún dæmd til 4 ára fangelsisvistar af sakadómi Reykjavíkur. Konan stakk fyrrum sambýlis- mann sinn með hnífi í bijóst og háls á heimili sínu við Tryggva- götu í Reykjavík þann 11. febrúar 1987. Hann hlaut af grunnt sár á hálsi við barkann og lífshættulegt stungusár á bijósti. Deilt var um hvað fór fólkinu á milli áður en konan stakk manninn. Hún hélt því fram að hann hefði ætlað að leggja á sig hendur, en hann neit- aði^ því. í dómi Hæstaréttar kemur fram, að konan varð fyrir áverkum af völdum mannsins, síðast nóttina áður en umræddur atburður gerð- ist og hún hafði hringt í lögregl- una þennan dag og beðið um að- stoð vegna þess að hún óttaðist ásókn hans. Eftir atburðinn til- kynnti hún lögreglu að hjá henni lægi maður í blóði sínu og óskaði hún eftir lögreglu og sjúkrabifreið á staðinn. Við ákvörðun refsingar leit Hæstiréttur til mildandi ákvæða 74. greinar hegningarlaga og taldi refsingu Þorbjargar Sonju hæfilega ákveðna 2 ár og 6 mán- uði. Til frádráttar refsingu kemur 33 daga gæsluvarðhald hennar. Þá var henni gert að greiða allan áfrýjunarkostnað, þar með talin saksóknarlaun í ríkissjóð, 50 þús- und krónur, og málsvamarlaun skipaðs veijanda síns fyrir Hæsta- rétti, Sveins Snorrasonar hrl., 50 þúsund krónur. Dóminn kváðu upp hæstaréttar- dómaramir Guðmundur Jónsson, Benedikt Blöndal, Bjarni K. Bjamason, Guðrún Erlendsdóttir og Haraldur Henrysson. Hæstiréttur: Kærumali Hótel Ark- ar hf. vísað írá dómi HÆSTIRÉTTUR hefiir vísað frá dómi kærumáli Hótel Arkar hf. gegn Framkvæmdasjóði íslands. Kærumálið var vegna fóge- taúrskurðar um fúll yfirráð Framkvæmdasjóðs yfir hótelinu. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að fógetagerðin sætti ekki kæru heldur áfrýjun og bæri því að vísa málinu frá. Forsaga málsins er sú, að þann 16. febrúar sl. óskaði Framkvæmdasjóður íslands eftir að fasteignin Hótel Örk, sem var slegin sjóðnum á uppboði 6. októ- ber í fyrra, yrði rýmd og fengin honum til fullra og óheftra um- ráða. Skömmu áður en hótelið var slegið framkvæmdasjóði hafði Helgi Þór Jónsson fram- leigt hótelið til Hótels Arkar hf., sem hann var aðalhluthafi í. Hótel Örk hf. leigði skömmu síðar hjónum veitingaaðstöðuna í hótelinu og loks hóteiið allt um 10. febrúar. Útburðargerðin beindist því að hjónunum, sem lýstu því yfir að þau samþykktu kröfuna um útburð og myndu víkja af eigninni. Fógeti fékk því Framkvæmdasjóði umráð eign- arinnar. Þessum úrskurði vildi Hótel Örk hf. ekki una og kærði hann til Hæstaréttar í byijun þessa mánaðar. Hæstiréttur hefur nú komist að þeirri niðurstöðu, að fógetagerð þessi sæti ekki kæru heldur áfrýjun til Hæstaréttar. Sjálfstæðri kæru á grundvelli þess lagaákvæðis um Hæstarétt Islands, sem Hótel Örk hf. vísaði til, yrði ekki við komið að lögum í málinu. Bæri því að vísa kæru- málinu frá Hæstarétti. Dóm Hæstaréttar kváðu upp hæstaréttardómararnir Þór Vil- hjálmsson, Bjarni K. Bjarnason og Arnljótur Björnsson, settur dómari.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.