Morgunblaðið - 18.03.1989, Blaðsíða 29
333 1 ij.tí'l I. 5 U:y.'IÍ/.:) J/„I 3H/aJgVtU0B0M . .........líl'.
’ MÓRGÚNBLÁÐÍÐ LAUGARDAGUR 18. MARZ 1989 29
Eugenia Ratti.
Eugenia
Ratti kemur
til Islands
ÁFORMAÐ er að ítalska scala-
söngkonan Eugenia Ratti komi
til Islands um miðjan júnf n.k.
og haldi námskeið fyrir söngv-
ara. Þetta er í sjötta skipti sem
hún kemur hingað til lands.
Upphaflega kom Eugenia Ratti
til íslands á vegum Pólyfónkórsins
til að þjálfa söngfólk á hans vegum.
Að þessu sinni kemur hún á
vegum Jóhönnu G. Möller söng-
konu og er áformað að hún haldi
námskeið í Reykjavík fyrir söngv-
ara dagana 19.—30. júní.
Stutt göngu-
ferð um Korp-
úlfstaðaland
Náttúruvemdarfélag Suð-
vesturlands stendur fyrir stuttri
gönguferð um Korpúlfsstaða-
land á sunnudagsmorgun, 19.
mars.
Farið verður kl. 10.00 frá Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins
RALA við Vesturlandsveg (norðan
Gufunesskirkjugarðsvegar). Geng-
ið verður niður að Eiðsgranda
(grandinn út í Geldinganes) og
síðan ströndina norður í Blika-
staðakró. Þar verður snúið við og
gengið til baka með Korpu og eftir
hluta gömlu þjóðleiðarinnar til
Reykjavíkur og Suðurnesja.
Gönguferðinni lýkur við RALA.
Gangan tekur um einn og hálfa
klukkustund.
Katrín H.
Agústsdóttir
sýnir í Jónshúsi
KATRÍN H. Ágústsdóttir opnar
vatnslitamyndasýningu miðviku-
daginn 22. mars í Jónshúsi, Öst-
er Voldgade 12 f Kaupmanna-
höfii.
Á sýningunni verða rúmlega 30
verk máluð á þessu og síðasta ári.
Katrín hefur haldið nokkrar einka-
sýningar og tekið þátt í samsýning-
um. Sýningin verður opin til 14.
apríl á opnunartíma hússins.
Burtfarar-
prófstónleikar
PETRA
Óskarsdóttir
leikur á flautu á
burtfararprófe-
tónleikum hjá
Tónlistarskó-
lanum f
Reykjavík á
morgun, sunnu-
daginn 19. aprfl,
klukkan 17 í sal
skólans, Skipholti 33.
Petrea hefur stundað nám við
skólann frá 1980 og notið leiðsagn-
ar Bernharðs Wilkinsonar flautu-
leikara. Tónleikamir eru öllum opn-
ir og aðgangur er ókeypis. Píanó-
leik annast Krystyna Cortes og
Hrafnhildur Guðmundsdóttir, mez-
zósópran, syngur.
Fyrirlestur í
Norræna húsinu
SENDIHERRA Finnlands á ís-
landi, Anders Huldén, sendi frá
sér bók í vetur, sem heitir „Fin-
lands kungaAventyr 1918“ og
segir hún firá því hvemig Finn-
land eignaðist konungárið 1918.
Anders Huldén heldur fyrirlest-
ur f Norræna húsinu á sunnu-
dag, 19. mars, klukkan 16 um
þetta efiii. Fyrirlesturinn verður
fluttur á sænsku.
Bókin segir frá því þegar finnska
þingið kaus þann 9. október 1918
þýskan prins, Friedrich Karl av
Hassen, til konungs í Finnlandi.
Kaffisala Dóm-
kirkjukvenna
KIRKJUNEFND kvenna Dóm-
kirkjunnar verður með sfna át-
legu kafifisölu á Hótel Loftleið-
um á morgun, pálmasunnudag,
19. mars. Kafifisalan hefet klukk-
an 15.00 að lokinni messu f Dóm-
kirkjunni.
í messunni, sem hefst klukkan
14, prédikar Matthías Á. Mathiesen
alþingismaður, Elin Sigurvinsdóttir
óperusöngkona syngur einsöng.
Dómkórinn syngur undur stjóm
Marteins H. Friðrikssonar dóm-
organista og sr. Hjalti Guðmunds-
son þjónar fyrir altari.
Gítartónleikar
í óperunni
GÍTARTÓNLEIKAR verða
haldnir í íslensku ópemnni f til-
efini af sextugsafinæli Gunnars
H. Jónssonar, gftarleikara og
kennara, mánudaginn 20. mars
klukkan 20.30. Flytjendur á tón-
leikunum em Arnaldur Arnar-
son, Einar Kr. Einarsson, Erik
Júlfus Mogensen, John Speight,
Kristinn H. Árnason, Robyn M.
Koh og Sfmon H. ívarsson.
Leikin verða verk eftir Hróðmar
Sigurbjömsson, John Speight,
Mario Castelnuovo-Tedesco, John
Dowland, Manuel Ponce, Vicente
Sojo, Femando Sor, Joaquin Turina
og Hector Villa-Lobos.
Píanótónleikar
Jónas Ingi-
mundarson,
píanóleikari,
heldur tónleika
i Víðistaða-
kirkju, mánu-
daginn 20.
mars.
Mun hann leika á nýjan Bösend-
orfer-flygill, sem Víðistaðasöfnuð-
ur festi kaup á fýrir skömmu. Á
efnisskránni verða verk eftir Schu-
bert, Appasionata, Beethovens,
verk í fimm þáttum er nefnist:
„Dagur vonar" eftir Gunnar Reyni
Sveinsson, Mazurkar eftir Chopin
og Rhapsódía eftir Liszt.
Tónleikamir hefjast klukkan
20.30.
Fyrirlestur í
Háskólanum
DR. FREDERIC Amory, prófess-
or i ensku og almennum málvís-
indum við Háskólann f San
Fransisco í Kalifomfu, flytur
opinberan fyrirlestur f boði
heimspekideildar Háskóla ís-
lands, mánudaginn 20. mars
klukkan 17.15 f stofu 101 f Odda.
Fyrirlesturinn nefnist: „Loaded
Words, Ominious Silences and Vio-
lence in the Sagas" og verður flutt-
ur á ensku.
Frederic Amory hlaut menntun
sína við Harvard-háskóla í Banda-
ríkjunum og Kalifomíuháskóla í
Berkely. Hann var Fulbright-pró-
fessor við Háskóla íslands vor-
misserið 1984 og kenndi amerískar
bókmenntir. Fyrirlesturinn er öllum
opinn.
Kirkjudagur
KIRKJUDAGUR verður haldinn
í Fella- og Hólakirkju sunnudag-
inn 19. mars. Ár liðið firá vfgslu
kirkjunnar.
Bamaguðsþjónusta verður
klukkan 11. Umsjón Ragnheiður
Sverrisdóttir djákni. Eftir guðs-
þjónustuna verður öllum boðið
uppá veitingar.
Hátíðarmessa verður klukkan
14. Þar mun sr. Sigurbjöm Einars-
son biskup predika, en sóknarprest-
ar þjóna fyrir altari og djákni að-
stoðar. Kirkjukór Fella- og Hóla-
kirkju mun syngja, organisti Guðný
M. Magnúsdóttir.
Ennfremur munu einsöngvar-
amir Ragnheiður Guðmundsdóttir
og Kristín R. Sigurðardóttir syngja
í messunni. Trompetleikarar verða
Jón Sigurðsson og Ásgeir Stein-
grímsson.
•Eftir guðsþjónustuna verður
kirkjugestum boðið upp á veitingar
í boði sóknamefnda Fellasóknar og
Hólabrekkusóknar.
Fyrirlestur um Júlí-
önu Sveinsdóttur
Hraftihildur
Schram flytur í
dag, laugardag,
fyrirlestur, með
litskyggnum,
um Júliönu
Sveinsdóttur
listmálara _ í
Listaáafiii ís-
lands. Yfirskrift fyrirlestrarins
er „í leit að einfaldleika" og
hefet hann klukkan 15.00.
Fyrirlesturinn er fluttur í tengsl-
um við sýningu á landlagsverkum
Júlíönu, sem haldin er í minningu
aldarafmælis listamannsins og
stendur hún í safninu til 2. apríl.
á morgtrn
I Pálmasunnudagur
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barna-
samkoma í Foldaskóla I Grafar-
vogshverfi laugardag kl. 11 órdeg-
is. Barnasamkoma í Árbæjarkirkju
pálmasunnudag kl. 10.30 árdegis.
Guðsþjónusta í Árbæjarkirkju kl.
14. Organleikari Jón Mýrdal. Mið-
vikudag: Samvera eldra fólks I
safnaðarheimili Árbæjarkirkju frá
kl. 13.30. Sr. Guðmundur Þor-
steinsson.
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Árni
Bergur Sigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guösþjónusta kl.
14. Organisti Sigríður Jónsdóttir.
Þriðjudag: Bænaguðsþjónusta kl.
18.15, altarisganga. Sr. Gísli Jón-
asson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. Guðrún Ebba Ólafs-
dóttir. Guðsþjónusta kl. 14. Organ-
isti Guðni Þ. Guðmundsson. Sr.
Ólafur Skúlason.
DIGRANESPRESTAKALL: Barna-
samkoma í safnaðarheimilinu við
Bjarnhólastfg kl. 11. Guðsþjónusta
í Kópavogskirkju kl. 11. Sr. Þor-
bergur Kristjánsson. -v.
DÓMKIRKJAN: Laugarqlaginn 18.
mars: Barnasamkoma kl. 10.30.
Egill og Ólafía. Sunnudaginn 19.
mars: Messa kl. 11. Sr. Kristinn
Ágúst Friðfinnsson. Messa kl. 14.
Matthías Á. Mathiesen, alþingis-
maður, predikar. Elín Sigurvins-
dóttir, óperusöngkona, syngur ein-
söng. Eftir messuna verður hin
árlega kaffisala Kirkjunefndar-
kvenna Dómkirkjunnar (KKD) á
Hótel Loftleiðum. Strætisvagna-
Guðspjall dagsins:
Lúk. 19:
Innreið Krists f Jerúsalem.
ferð frá Dómkirkjunni strax eftir
messuna. Sr. Hjalti Guðmundsson.
Þriðjudaginn 21. mars: Helgistund
á föstu. Sr. Kristinn Ágúst Frið-
finnsson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs-
þjónusta kl. 14. Ástráður Sigur-
steindórsson, stud. theol.,
predikar. Sr. Sveinbjörn Svein-
björnsson frá Hruna þjónar fyrir
altari. Félag fyrrverandi sóknar-
presta.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Kirkju-
dagur f Fella- og Hólakirkju pálma-
sunnudag. Barnaguðsþjónusta kl.
11. Umsjón Ragnheiður Sverris-
dóttir. Eftir guðsþjónustu verður
öllum boðið upp á veitingar. Hátí-
ðamessa kl. 14. Hr. Sigurbjörn Ein-
arsson, biskup, predikar. Sr. Guð-
mundur Karl Ágústsson og sr.
Hreinn Hjartarson þjóna fyrir alt-
ari. Ragnheiður Sverrisdóttir,
djákni, aðstoðar. Kirkjukór Fella-
og Hólakirkju mun syngja. Organ-
isti Guðný M. Magnúsdóttir. Ein-
söngur Ragnheiður Guðmunds-
dóttir og Kristín R. Sigurðardóttir.
Trompetleikur Jón Sigurðsson og
Ásgeir Steingrímsson. Eftir guðs-
þjónustuna verður kirkjugestum
boðið upp á veitingar. Mánudag:
Fundur í æskulýðsfélaginu. Sókn-
arprestarnir.
FRÍKIRKJAN f Reykjavík: Barna-
guðsþjónusta með skírn kl. 11.
Guðsþjónusta, ferming og altaris-
ganga kl. 14. Orgelleikari Pavel
Smid. Sr. Cecil Haraldsson.
GRENSÁS: Barnasamkoma kl. .
Foreldrar hvattir til að koma með
börnunum. Mikill söngur. Messa
kl. 14, altarisganga. Prestarnir.
HALLGRÍMSKIRKJA: Laugardag:
Samvera fermingarbarna kl. 10.
Sunnudag: Barnasamkoma og
messa kl. 11. Sr. Ragnar Fjalar
Lárusson. Þriðjudag: Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir
sjúkum.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl.
10.30, ferming. Prestarnir. Messa
kl. 13.30, ferming. Prestarnir.
HJALLAKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þónusta kl. 11 í messuheimili
Hjallasóknar, Digranesskóla. For-
eldrar hvattir til að koma með
börnum sínum og undirbúa páska-
hátíðina. Allir velkomnir. Sr. Kristj-
án Einar Þorvarðarson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Barna-
samkoma í safnaöarheimilinu
Borgum kl. 11. Umsjón hafa María
og Vilborg. Guðsþjónusta í Kópa-
vogskirkju kl. 14. Sr. Árni Pálsson
LANGHOLTSKIRKJA, kirkja Guð-
brands biskups: Óskastund barn-
anna kl. 11. Söngur — sögur —
myndir. Stundinni stjórnar Þór-
hallur Heimisson, guðfræðingur.
Fermingarguðsþjónusta kl. 13.30.
Sóknarnefndin.
LAUGARNESPRESTAKALL:
Laugardaginn 18. mars: Guðs-
þjónusta í Hátúni 10b, 9. hæð kl.
11. Sunnudaginn 19. mars: Guðs-
þjónusta kl. 11. Fermingarbörn
aðstoða. Laufey G. Geirlaugsdóttir
syngur einsöng. Barnastarfið á
sama tíma. Heitt á könnunni.
Mánudaginn 20. mars: Æskulýðs-
starfið kl. 18. Þriöjudaginn 21.
mars: Opið hús í safnaðarheimilinu
hjá Samtökunum um sorg og sorg-
arviðbrögð frá kl. 20—22. Helgi-
stund í kirkjunni kl. 22. Sóknar-
prestur.
NESKIRKJA: Laugardag: Sam-
verustund aldraðra kl. 15. Matt-
hías Johannessen, skáld og rithöf-
undur, les úr verkum sínum.
Sunnudag: Barnasamkoma kl. 11.
Munið kirkjubílinn. Húsið opnað kl.
10. Umsjón Rúnar Reynisson.
Guðsþjónusta kl. 14. Orgel- og
kórstjórn Reynir Jónasson. Sr.
Ólafur Jóhannsson. Mánudag:
Æskulýðsstarf fyrir 12 ára krakka
kl. 18. Æskulýðsstarf fyrir 13 ára
og eldri kl. 19.30. Þriðjudag: Æsku-
lýðsstarf fyrir 10 og 11 ára krakka
kl. 17.30. Þriðjudag: Opið hús fyrir
aldraða kl. 13—17.
SELJAKIRKJA: Laugardag: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Pálmasunnu-
dag: Fermingarguðsþjónusta kl.
11. Fermingarguðsþjónusta kl. 14.
Organisti Kjartan Sigurjónsson.
Prestur sr. Valgeir Ástráðsson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Barna-
samkoma kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Organisti Sighvatur Jónasson.
Mánudag: Æskulýðsfundur kl.
20.30. Þriðjudag: Opið hús fyrir
10—12 ára börn kl. 18. Sr. Solveig
Lára Guðmundsdóttir.
BORGARSPÍTALINN: Messa kl.
10, altarisganga. Sr. Sigfinnur Þor-
leifsson.
DÓMKIRKJA Krists konungs,
Landakoti: Lágmessa kl. 8.30.
Þessi messa er stundum lesin á
ensku. Hámessa kl. 10.30. Ef veð-
ur leyfir er ráðgert að hafa
pálmavígslu í safnaðarheimilinu og
verður gengið þaðan í skrúðgöngu
til kirkju. Lágmessa kl. 14. Rúm-
helga daga er lágmessa kl. 18
nema á laugardögum þá kl. 14. Á
laugardögum er ensk messa kl. 20.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Há-
messa kl. 11. Rúmhelga daga lág-
messa kl. 18.
HVfTASUNNUKIRKJAN Ffla-
delfía: [ dag, laugardag, almenn
bænasamkoma kl. 20. Almenn
samkoma sunnudag kl. 20. Ræðu-
maöur Guðni Einarsson. Sunnu-
dagaskóli er kl. 14.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Ferming-
arhátíð kl. 11. Kafteinn Daníel
Óskarsson stjórnar og kafteinn
Jósteinn Nielsen prédikar. Lof-
gjöröarsamkoma, bæn kl. 20. Her-
mannavígsla og yngri liðs-
mannavígsla. Barnagospel-söng-
hópurinn syngur. Kafteinarnir Dan-
íel Óskarsson og Magna Váje
stjórna og tala. Á mánudag og
þriðjudag er biblíulestur kl. 20 í
umsjá kafteins Jósteins Nielsen.
FÆREYSKA sjómannaheimilið:
Samkoma kl. 17. Johan Olsen.
MOSFELLSPRESTAKALL: Barna-
samkoma í safnaðarheimilinu kl.
11. Messa í Lágafellskirkju kl. 14.
Söngfélagarnir einn og átta syngja
undir stjórn Helga Einarssonar.
Organisti Guömundur Ómar
Óskarsson. Sóknarprestur.
GARÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Skólakór Fjölbrautaskólans í
Garðabæ syngur undir stjórn Guð-
laugs Viktorssonar. Skólastjórinn,
Þorsteinn Þorsteinsson, flytur
stólræðu. Barnasamkoma í Kirkju-
hvoli kl. 11. Sr. Bragi Friðriksson.
KAPELLA St' Jósefssystra í
Garðabæ: Hámessa kl. 10.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta í Víðistaðakirkju í dag,
laugardag kl. 11. Fermingarguðs-
þjónustur í Víðistaðakirkju kl. 10
og kl. 14, sunnudag. Sr. Sigurður
Helgi Guðmundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Ath. breyttur tími.
Sr. Þórhildur Ólafs.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Organisti Smári Ólafsson.
Biblíulestur á miövikudagskvöldum
kl. 20. Sr. Einar Eyjólfsson.
KAPELLAN St. Jósefsspítala: Há-
messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
er lágmessa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa kl.
8.30. Rúmhelga daga er messa kl.
8.
KÁLFATJARNARSÓKN: Barna-
guðsþjónusta í dag, laugardag, í
Stóru-Vogaskóla kl. 11. Sr. Gunn-
laugur Garðarsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Fermingar-
messur kl. 10.30 og kl. 14. Kór
Keflavíkurkirkju syngur. Organisti
örn Falkner.
GAULVERJABÆJARSÓKN:
Messa í Gaulverjabæjarklrkju kl.
14. Barnamessa í Stokkseyrar-
kirkju kl. 11. Sóknarprestur.
HVERAGERÐISKIRKJA:Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Fermingar-
messa kl. 13.30. Sr. Tómas Guð-
mundsson.
AKRANESKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. Messa kl. 14. Mánu-
dagskvöld kl. 18.30 fyrirbæna-
guðsþjónusta. Beðið fyrir sjúkum.
Organisti Jón Ól. Sigurðsson. Sr.
Björn Jónsson.