Morgunblaðið - 18.03.1989, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGTJR18., MARZ 1989
35
Minning
Jóníim Jóhanns-
dóttirfrá Þinghóli
Fædd ll.maí 1907
Dáin 12. febrúar 1989
Háa skilur hnetti
himingeimur
blað skilur bakka og egg;
en anda, sem unnast,
fær aldreii
eilífð aðskilið.
(Jónas Hallgrímsson)
Þessar ljóðlínur listaskáldsins
góða komu mér í hug þegar mér
barst sú fregn að hún Jóna frá Þing-
hóli væri látin. Svo stuttu eftir að
hún missti manninn sinn, Stein
Egilsson, en hann lést þann 29.
apríl 1988 eftir þung og erfið veik-
indi. Þá stóð hún eins og klettur
við hlið hans, hjúkraði og líknaði
honum uns yfír lauk,.,.
Jónína var fædd 11. maí 1907
að Miðkrika í Hvolhreppi, dóttir
hjónanna Valgerðar Guðmunds-
dóttur og Jóhanns Þorkelssonar
bónda þar. Ólst hún upp í stórum
og glöðum systkinahópi því böm
hjónanna voru sjö.
Þann 18. júní 1939 gengu þau
Jónína og Steinn Egilsson frá
Stokkalæk á Rangárvöllum í hjóna-
band. Hann var mikill myndarmað-
ur bæði í sjón og raun. Þau hjónin
eignuðust tvo syni, þá Jóhann Birki
og Eyþór, mikla efnis- og myndar-
menn, svo sem þeir eiga kjm til.
Jóna og Steinn voru sérstaklega
samhent í lífinu. Þau báru það með
sér að þeim leið vel saman, þar sem
annað var, þar var hitt jafnan
nærri. Hlið við hlið minnist ég þeirra
frá þvi ég sá þau fyrst fyrir um
það bil hálfri öld. í Þinghóli bjuggu
þau í 24 ár eða til ársins 1963, en
þá fluttu þau til Reykjavíkur og
settust að í Hátúni 8 og bjuggu þar
æ síðan.
Eg ætla ekki með þessum línum
að rekja lífshlaup Jónu. Ætlunin
er að þakka liðnar samverustundir,
og því vil ég nefna tvo af mörgum
góðum eðliskostum hennar, rækt-
unarkonuna og félagann Jónínu
Jóhannsdóttur. Hún er ræktunar-
kona í þess orðs besta skilningi.
Hún ræktaði hlýhug og vináttu við
samferðamenn sína og gamla vini
og gleymdi þeim aldrei þó leiðir
skildu. Hún ræktaði málfar sitt og
þeirra sem hún náði til að leið-
beina, svo og framgang sinn allan.
Hún ræktaði garðinn sinn, fallegan
trjá- og blómagarð í Þinghóli svo
af bar sakir natni og snyrtimennsku
hennar. Þar var gaman að koma
og sækja góð ráð, hún sagði; þú
getur gert allt sem þú vilt í garðin-
um í maímánuði, grisjað og skipt
gróðri, alit lifír og grær. En mér
datt nú stundum í hug að ekki hefðu
allir svo „grænar hendur.“
Báðar vorum við félagar í kvenfé-
laginu Einingu Hvolhreppi, þaðan
geymi ég minningar um félagann
Jónu, dugnað hennar og jákvætt
hugarfar. Eg minnist þess að kven-
félagið gekkst fyrir því að gróður-
setja tré, birki og reynivið um-
hverfís kirkjugarðinn á Stórólfs-
OlöfS. Magnús-
dóttir - Kveðjuorð
Fædd 26. nóvember 1966
Dáin 5. febrúar 1989
Mig langar með fáeinum orðum
að minnast á mína ástkæru frænku
Ólöfu Sæunni Magnúsdóttur sem
lést þann 5. febrúar síðastliðinn.
Enginn veit hvað átt hefur fyrr en
misst hefur.
Ég kem aldrei til með að eignast
jafn skilningsríka frænku eins og
Ólöf var. Við áttum margar góðar
samverustundir þar sem við rædd-
um oft um líf eftir dauðann, hún
var sterk trúuð á annað líf eins og
ég. Ég minnist þess þegar Ólöf
fæddist hvað afí hennar var lukku-
legur, það var eins og hann væri
að fá sitt fyrsta bam. Ekki var
amma hennar síður glöð að fá nöfn-
in á hana, þar sem Ólöf var skírð
í höfuðið á ömmu sinni og lang-
ömmu.
Ólöf gaf mér mikið frá sér, það
var fátt sem ekki lék í höndum
hennar enda dettur mér í hug hann
pabbi hennar. Ég minnist þess hvað
Ólöf var glöð milli jóla og nýárs
þegar ég sat í kaffiboði heima hjá
mömmu hennar. Það fór ekki fram
hjá neinum hvað úr augum hennar
skein, hversu mikla ást hún bar til
Kidda og kom það best fram þegar
hann gekkst undir uppskurð fyrir
jól. Hún bar hann á höndum sér
og gaf ekkert eftir. Hún bar mikla
Kveðjuorð
Alda Kr. Jónsdóttir
Fædd 18. mars 1931
Dáin 4. janúar 1989
í dag 18. mars 1989, hefði hún
Alda Kristín Jóhannsdóttir, orðið
58 ára. Mig langar til að minnast
þessarar góðu konu sem ég á svo
margt að þakka.
Atján mánaða gömul var ég svo
lánsöm að komast til hennar í pöss-
un og var hjá henni í átta ár. Mig
langar að þakka henni allar okkar
samverustundir. Einnig vil ég senda
þakkir til Lilla sem var henni stoð
og stytta í öllu. Ég mun ætíð búa
að samverustundunum við 'Öldu.
Margs er að minnast
margt er hér að þakka
Guð sé lof fyrir liðna tíð. ^
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú i friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Guðríður Hallgrímsdóttir
hvoli, það kom í hlut okkar Jónu
að leiða það verk. En allar unnu
kvenfélagskonurnar þar að af dugn-
aði og fómfysi. Þegar verkinu var
lokið höfðu tvær örsmáar reyn-
viðarhríslur gengið af, ég hafði orð
á því að ekkert þýddi að hirða þær
svo vesælar, þá sagði Jóna; það
kemur ekki annað til greina en að
gefa þeim tækifæri, allt sem lifír á
rétt á því. Við gróðursettum þær
sitt hvoru megin við kirkjutröppurn-
ar og gáfum þeim nöfn okkar í
veganesti. Nú em þessar umkomu-
lausu, örsmáu afgangshríslur orðn-
ar há tré, sem horfa til himins í
skjóli kirkjunnar.
Leiðir okkar Jónu skildu að
mestu fyrir tæpum þijátíu árum.
En þegar við hittumst var eins og
við hefðum verið saman í gær. Og
jólakveðjan hennar brást aldrei,
svona var hún Jóna, vinföst, traust
og stórbrotin.
Ég þakka hinni látnu heiðurs-
konu vináttu hennar og tryggð og
bið guð að blessa minningu hennar
og ástvini alla.
Ragnheiður Ólafsdóttir
+
Móöir mín,
GUÐNÝ SIGMUNDSDÓTTIR,
lóst í Borgarspítalanum 17. mars.
Ólöf Magnúsdóttir Robson.
t
Systir okkar og mágkona,
INGIBJÖRG ÁSMUNDSDÓTTIR,
Kleppsvegi 6,
Reykjavík,
verðurjarðsunginfrá Fossvogskirkju mánudaginn 20. mars kl. 13.30.
Helga Ásmundsdóttir,
Jarþrúður Ásmundsdóttir, Jakobfna Ásmundsdóttir,
Ásmundur J. Ásmundsson, Hanna Helgadóttir.
+
Útför móður okkar,
MARÍU MAGNÚSDÓTTUR,
Lindarbraut 45,
Seltjarnarnesi,
sem lést í Borgarspítalanum 12. mars, fer fram frá Dómkirkjunni
í Reykjavík þriðjudaginn 21. mars kl. 10.30 fyrir hádegi.
Magnús Sverrisson,
Gunnar Sverrisson.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUNNAR GESTSSON
pfpulagningameistari,
Dalseli 31,
verður jarðsunginn frá Seljakirkju mánudaginn 20. mars kl. 15.00.
Rósa Guðmundsdóttir,
Gestur Gunnarsson, Sigrún Ragnarsdóttir,
Erla Gunnarsdóttir, Þórður Guðmundsson,
Katrfn Gunnarsdóttir, Hreiðar Ögmundsson,
Auður Gunnarsdóttir, Hannes Jónsson
og barnabörn.
+
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
SKARPHÉÐINS ÞORSTEINSSONAR
frá Þurfðarstöðum,
Sunnugerði,
Reyðarfirðl.
Einnig hlýhug og hjálp i veikindum hans undanfarin ár.
Guð blessi ykkur öll.
Vandamenn.
virðingu fyrir Jan hárgreiðslumeist-
ara enda er fátt betra en að eiga
góðan yfirmann og kennara í sínu
fagi.
Þetta er mikill missir fyrir mína
ástkæru systur. Við vitum það sem
höfum þurft að horfa á eftir foreldr-
um okkar. Megi guð gefa þér allan
þann kraft til að geta afborið allt
sem á þig hefur verið lagt.
Ég votta ömmu Rósu, Binnu,
Helenu og Magnúsi mína dýpstu
samúð.
Blessuð sé minning hennar.
Guðrún frænka
+
Þökkum auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför bróður okkar,
GUNNARS ÞORSTEINSSONAR,
Reykjakandl.
Sérstakar þakkir eru starfs- og vistfólki Reykjalundar færðar fyrir
vináttu og aðstoð við hinn látna í veikindum hans.
Ragnar Þorsteinsson,
Ingveldur Þorsteinsdóttir,
Bogi Þorsteinsson,
Sigvaldi Þorstelnsson,
Elfs Þorsteinsson.
Viðtalstimi borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1,
á laugardögum í vetur f rá kl. 10-12.
Er þá tekið á móti hvers kyns fyrirspurn-
um og ábendingum.
Allir borgarbúar eru velkomnir.
Laugardaginn 18. mars verða til viðtals Jóna Gróa Sigurðardóttir, formaður atvinnumálanefnd-
ar, í stjórn bygginganefndar aldraðra og SVR, Guðmundur Hallvarðsson, formaður hafnar-
stjórnar, og Guðrún Zoéga, í stjórn veitustofnana, skólamála- og fræðsluráði.
V V V V V V V V’ V V V V V
S #\ #\ Sn #* »■ 0n S #\ #\ $ $