Morgunblaðið - 18.03.1989, Page 36

Morgunblaðið - 18.03.1989, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MARZ 1989 Minning: Skarphéðinn R. Ólafs son lögregluþjónn í dag er til moldar borinn frá Njarðvíkurkirkju, Skarphéðinn Rúnar Ólafsson, sem lést af slys- förum, ásamt Gunnari Bjarka Vest- flörð, í snjóflóði sem féll á Óshlí- ðarveginn þann 8. mars sl. Skarphéðinn var fæddur í Keflavík þann 8. nóv. 1963. For- eldrar hans eru Ólafur Eiríkur Þórð- arson, Jörgenssonar og Sveinbjarg- ar Sveinbjömsdóttur, Fagra- hvammi í Garði og Álfheiður Skarp- héðinsdóttir, Jóhannssonar og Guð- rúnar Guðmundsdóttur í Njarðvík- um. Hann var elstur fjögurra sona þeirra hjóna, e_n hinir eru Þórður Jörgen, Björn Árni og Ástmar. Skarphéðinn átti heima í Njarðvíkunum allt þar til hann flutti, ásamt sambýliskonu sinni, Emilíu Þórðardóttur, ættaðri frá Djúpuvík, til Bolungarvíkur árið 1986. Fyrst starfaði hann vestra hjá Vélsmiðju Bolungarvíkur, en hóf héraðslögreglumannsstörf í okt. ’86. í júní ’87 gerðist hann lögreglu- þjónn á Bolungarvík og á Isafirði í okt. sama ár og starfaði við það uns hann féll frá. í heimabæ sínum átti Skarphéð- inn sína góðu daga. Ungur gekk hann í Hjálparsveit skáta í Njarðvíkum og lagði sig mjög fram um að verða liðtækur í þeim hópi, enda fómfús að eðlisfari og vildi rétta öðmm hjálparhönd. Hann var líkamlega hraustur og þolinn, sem snemma kom í ljós er hann reynd- ist öðrum fremri í hlaupakeppnum, þótt hann æfði þau ekki sérstak- lega. Skarphéðinn var þægilegur og ljúfur í viðkynningu og ávann sér traust í starfí. Rúmlega 20 ára varð hann verkstjóri í Sjöstjömunni í Njarðvík, nýbúinn að Ijúka þriggja ára verklegu námi í rennismíði í Dráttarbraut Njarðvíkur. ísland og náttúra þess voru hans aðaláhugamál, ásamt farkostum til að skoða landið. Ferðir hans til að kynnast því voru orðnar margar, bæði að sumar- og vetrarlagi og í þeim fékk hann góða þjálfun, sem kom að notum í hjálparsveitarstarf- inu, bæði í Njarðvík og eins fyrir vestan í hjálparsveitinni Emir á Bolungarvík, sem hann gekk fljót- lega í eftir að hann flutti þangað. Skarphéðinn var mjög lagtækur og gat unnið hin ólíkustu störf. Hann var trygglyndur og í tengslum við ættfólk sitt þótt hann flytti í annan landshluta. Foreldrar hans og bræður voru aufúsugestir ásamt öðrum ættingjum og vinum á heim- ilið á Bolungarvík. Einn bróðirinn var væntanlegur vestur um pá- skana, sem var mikið tilhlökkunar- efni, — en veður skipuðust skyndi- lega í lofti, svo að þeirri för verður ekki. Reynsla Skarphéðins í að ferðast við erfíðar aðstæður var orðin mik- il. Hann var aðgætinn, en vildi þó komast leiðar sinnar, ef þess var nokkur kostur. Það var hans eðli í lífínu. Atvikin hinn örlagaríka dag 8. mars, voru dæmigerð fyrir Skarphéðin. Hann var að kanna ásamt félaga sínum hvort hægt væri að komast yfír snjóskriðuna, sem hafði fallið yfir veginn og hefti för þeirra í vinnuna, þegar það óvænta gerðist. Önnur skriða féll á sama stað. Slíku óraði þá ekki fyr- ir, enda sjaldgæft. Skriðan hreif þá með sér með þeim afleiðingum að tveir menn í blóma lífsins hurfu yfír móðuna miklu. Skarphéðinn undi hag sínum vel á Bolungarvík, ásamt Emilíu og syni hennar Kristni ísaki, sem hann gekk í föður stað. Fyrir vestan hugðist hann setjast að og festa kaup á íbúð, en örlög ráða. Um leið og við frændsystkinin kveðjum Skarphépin, vottum við Emilíu og Kristni ísaki samúð okk- ar, svo og foreldrum hans Ólafí og Álfheiði, ásamt bræðrum hans og öðrum skyldmennum. Föðursystkini og Qölskyldur í dag er borinn til grafar í Ytri- Njarðvíkurkirkju Skarphéðinn Rúnar Ólafsson, lögreglumaður. Skarphéðinn fæddist í Ytri- Njarðvík 8. nóvember 1963 og ólst hann þar upp. Foreldrar hans eru Ólafur Þórðarson og Álfheiður Skarphéðinsdóttir og eiga þau þrjá aðra syni, þá Þórð, Bjöm og Ást- mar. Skarphéðinn fluttist til Bolung- arvíkur ásamt unnustu sinni, Emelíu Þórðardóttur, og fóstursyni, Kristni ísak Amarsyni, árið 1985. Hann hóf fyrst störf í Vélsmiðju Bolungarvíkur. Síðan hóf hann störf í lögreglunni í Bolungarvík. Mín fyrstu kynni af Skarphéðni hófust á haustdögum 1987, en þá hóf hann störf í lögregluliði ísa- fjarðar. Okkar kjmni urðu mjög góð. Skarphéðinn var maður mjög hreinskilinn og var ekkert feiminn við að segja sína skoðun á mönnum og málefnum. Reglusemi og snyrti- mennska vom hans aðalsmerki og gekk hann manna fremstur í þeim efnum. Fjallaferðir um hálendi íslands áttu hug hans allan. Hann fór ekki fáar vetrarferðir upp um fjöll og fímindi á bifreið sinni og var þá fátt sem stóð í vegi hans. Hann var á leið til vinnu, frá Bolungarvík inn á ísafjörð, ásamt vinnufélaga sínum, þegar Jjetta sviplega slys átti sér stað. Á leið þeirra um Oshlíð komu þeir að snjó- flóði, sem fallið hafði yfír veginn, en mjög slæmt veður var þama og hafði verið um nóttina. Flóðið var ekki mjög stórt og ákváðu þeir að reyna að komast yfír það, enda bif- reiðin vel búin til slíks aksturs og hafði Skarphéðinn oft ekið um Ós- hlíðarveg á bifreið sinni þó að aðrar bifreiðir kæmust þar ekki. Hann fór út úr bifreiðinni til þess að búa hana undir ferðina yfir snjóflóðið. Rétt er hann var að verða búinn að því þá bar þar að félaga hans utan úr Bolungarvík. Gengu þeir saman upp á snjóflóðið til að huga að greiðfærri leið yfir, en þá dundi óhappið yfir, sem svipti þessum ungu mönnum burtu. Eg votta aðstandendum Skarp- héðins mína dýpstu samúð og vona að þeim.öðlist kraftur til að komast yfír þetta erfíða tímabil. Gísli B. Árnason lögregluvarðstjóri, ísafirði. Að morgni 8. mars sl. eru lög- reglumenn í lögreglu ísafjarðar á leið til vinnu sinnar, en vaktaskipti skyldu verða kl. 7.00 eins og venja er. Neyðarkall berst frá Óshlíð og tilkynnt er að tveggja manna sé saknað eftir að snjóflóð hafði fallið. Tilkynnandinn var Jónmundur Kjartansson aðstoðaryfírlögreglu- þjónn á ísafírði en hann ásamt Skarphéðni R. Ólafssyni var á leið til vinnu. Allt tiltækt björgunarlið var kall- að út ásamt lögreglumönnum og fóm menn til leitar á slysstaðnum. Fljótlega kom í ljós að þeir sem saknað var í flóðinu voru Skarphéð- inn R. Ólafsson lögregluþjónn og Gunnar Bjarki VestJQörð starfsmað- ur Vélsmiðjunnar Þórs á ísafírði. Um 70-80 manns tóku þátt í leit- inni næstu daga. Það var svo laug- ardaginn 11. mars að Skarphéðinn R. Ólafsson fannst, en þegar þessar línur eru ritaðar er Gunnars Bjarka enn saknað. Ægikraftur náttúrunnar hefur enn höggvið skarð í mannlífið hér á Vestfjörðum. Skammt hefur verið stórra högga á milli á síðustu mán- uðum og eiga margir um sárt að binda eftir ástvinamissi. Skarphéðinn Rúnar Ólafsson kom til starfa í lögreglunni á ísafírði í júní 1987. Hann hafði þá áður starfað sem héraðslögregluþjónn í Bolungarvík. Fljótlega mátti sjá að Skarphéðinn stefndi að árangri í starfí sínu. Hann var mjög sam- viskusamur og ljúfur í allri um- gengni enda eignaðist hann fljótt góða vini innan lögreglunnar sem og utan. Eitt var það sem ein- kenndi Skarphéðin en það var sjálfsagi hans. Sem lögreglumaður vildi hann ekki bjóða öðrum það sem hann ekki gat boðið sjálfum sér og kom þetta fram í öllu hans starfí. Oft á tíðum þurfa lögreglumenn að takast á við erfíð verkefni og krefj- andi, bæði á sál og líkama. Skarp- héðinn var einn af þeim mönnum sem hægt var að senda í öll verk- efni. Vinnu sína leysti hann vel og yfírvegað af hendi. Skarphéðinn verður jarðsettur frá Ytri-Njarðvíkurkirlg'u laugar- daginn 18. mars. Við kveðjum góð- an vin og vinnufélaga með miklum söknuði. Unnustu, fóstursyni, foreldrum og öðru skyldfólki votta ég dýpstu samúð mína. Jónas H. Eyjólfeson yfirlögregluþjónn í dag, laugardaginn 18. mars 1989, verður jarðsunginn í Ytri- Njarðvfkurkirkju Skarphéðinn Rúnar Ólafsson, lögregluþjónn. Skarphéðinn fæddist í Ytri-Njarðvík þann 8._nóvember 1963, sonur hjón- anna Ólafs Þórðarsonar og Álf- heiðar Skarphéðinsdóttur. Hann ólst upp í Ytri-Njarðvík og bjó þar alla tíð á Hæðargötunni, í foreldra- húsum, þar til hann fluttist til Bol- ungarvíkur árið 1985 og hóf þar sambúð með eftirlifandi sambýlis- konu sinni, Emelíu Þórðardóttur. Emelía átti einn son fyrir, Kristin ísak Amarsson. Þegar þeir voru saman, Kristinn og Skarphéðinn, var ekki annað hægt að sjá en að þar væru feðgar á ferð, svo sam- rýndir voru þeir. Ég kynntist Skarpa, eins og hann var kallaður, fyrst á árinu 1986 þegar hann hóf störf í lögreglunni í Bolungarvík og sá ég þá strax hvers konar kjamakall þama var á ferð. Fljótlega skildu þó leiðir okkar aftur þar sem ég fluttist suður um tíma. Ég man eftir því hversu hissa ég varð, þegar ég sá Skarpa fyrst koma akandi um hávetur frá Skálavík, með þau Emmu og Krist- in við hlið sér, þegar þangað átti ekki að vera fært nema fuglinum fljúgandi, vélsleðum og þess háttar tækjum. Þá kom hann akandi ofan á snjónum eftir að hafa hleypt lofti úr hjólbörðunum og virtist ekki vera meira mál fyrir hann en að drekka vatn. Eftir þetta kom manni ekki á óvart þótt Skarpi segðist um hávetur hafa skroppið á bílnum til Skálavíkur, Galtarvita eða ein- hverra fjarlægra staða. Það var síðan í nóvembermánuði á sl. ári að ég réðst til starfa sem aðstoðaryfírlögregluþjónn á ísafirði og var þar með orðinn starfsfélagi Skarpa í lögregluliði ísafjarðar sem þar hafði hafið störf einnig. Ég veitti strax athygli þeim framförum sem hann hafði tekið í lögreglu- starfínu og þegar hafði verið ákveð- ið að hann færi í Lögregluskóla ríkisins nú í haust, enda búinn að standast inntökupróf í þann skóla. Ég sem yfirmaður hans varð fljótt var við hversu einstakur hann var, öll verkefni leysti hann vel og sam- viskusamlega af hendi, og oft rædd- um við lengi um einstök lögreglu- mál sem hann hafði áhuga á að fræðast um. í síðasta mánuði var hann gerður að stjómanda vaktar í afleysingum og ákveðið var að hann yrði það í sumar einnig og er það til marks um það traust sem hann hafði áunnið sér með störfum sínum í lögreglu ísafjarðar. Skarpi var vanalega hrókur alls fagnaðar og man ég sérstaklega eftir sérstæðum hlátursrokum hans sem voru svo smitandi að maður féll vanalega í krampa af hlátri. Ég man ekki oft eftir Skarpa óán- ægðum en ég minnist þess þó hversu óánægður hann var í desem- ber sl. vegna þess að ekki hafði snjóað nóg. Hann hafði jafnvel á orði að flytjast héðan ef ekki færi að snjóa. Ég sagði honum þá að ég vildi engan snjó og að ég fengi blóðbragð í munninn við það eitt að hugsa um að basla í snjó. Þessi orð mín framkölluðu eina af þessum frægu hlátursrokum Skarpa og spurði hann mig oft eftir þetta, þegar snjóaði úti, hvort ég fyndi ekki bragð. Það eru ekki allar okk- ar óskir uppfylltar en örlögin hög- uðu því svo til að ósk hans upp- fylltist sem síðar átti eftir að kosta hann lífíð. Skarpi bjó í Bolungarvík þann tíma sem hann var hér fyrir vestan og hafði hann oft á orði við mig hversu vel honum líkaði dvölin. Miðvikudaginn 8. mars sl. áttum við Skarpi að mæta á vakt saman kl. 07.00 og höfðum ákveðið að fara saman til ísafjarðar frá Bol- ungarvík í bifreið hans. Hann hafði þá kvöldið áður lokið við viðgerð á bflnum eftir að hann hafði verið bilaður í nokkra daga. Þetta var ósköp venjulegur dagur og var Skarpi í góðu skapi og það skemmdi greinilega ekki fyrir því að vera kominn aftur í bflinn. Við komumst þó aldrei nema inn á miðja Óshlíð því þar hafði snjóflóð fallið á veg- inn. Það varð ekki séð að Skarpi yrði fyrir vonbrigðum að sjá flóðið, enda virtist það vera hans aðal- áhugamál að takast á við slíkar hindranir. Hann var því ekkert að tvínóna við hlutina, heldur hleypti lofti úr deklq'unum og ók upp á flóð- ið. Snjórinn var hins vegar blautur og því komst hann ekki langt. Hann vatt sér þá út úr bflnum með skófl- una sína og hugðist moka frá. í því kom félagi okkar þama að, Gunnar Bjarki Vestfjörð, til heimilis á Hafn- argötu 122, Bolungarvík, og skipti það engum togum að þeir félagam- ir gengu saman út á flóðið þar sem örlög þeirra réðust og létu þeir báðir lífið. Ég get ekki látið hjá líða að minnast hér Gunnars Bjarka Vestfjörð sem ég hafði af stutt en mjög góð kynni. Bjarki, eins og hann var kallaður, var hvers manns hugljúfi og samskipti okkar vom í alla staði ánægjuleg. Ég þekkti Bjarka þó ekki mjög náið og mun því miður af þeim sökum ekki rekja sögu hans hér. Hvers vegna þeir, ekki ég? Sagt er að þeir deyi ungir sem guðirnir elska en sjálfsagt em það tilbúin huggunarorð. Mér dett- ur það helst í hug að þeim félögum hafí verið ætlað annað verkefni annars staðar á þeirra sérsviði, sem var baráttan við náttúmöflin, en þar myndi ég aldrei hafa nýst. Mín von og huggun er því sú að þeim félögum hafí verið ætlað annað verkefni á ókunnum slóðum og trúi ég því að þeir uni hag sínum vel þar og er það huggun harmi gegn. Um leið og ég sendi Skarphéðni Rúnari Ólafssyni og Gunnari Bjarka Vestfjörð mína hinstu kveðju, votta ég aðstandendum þeirra, sérstak- lega foreldmm þeirra og þeim Emmu og Boggu og þeirra börnum, mína innilegustu samúð. Jónmundur Kjartansson aðstoðaryfirlögregluþjónn Náttúran minnir okkur sífellt á það, mennina, hversu við emm smáir en hún voldug og sterk. Haf- ið kallar og krefur og válynd veðra- brigðin hefta för og hamla því, að vilji mannanna fái ráðið. Við stönd- um jafnan agndofa frammi fyrir ægivaldi náttúmaflanna sem em oftar en ekki grályndari en góðu hófí gegnir. Snjóflóð hafa með ógnarkrafti sínum og af miskunnarleysi hrifíð margan manninn á íslandi í gegn- um tíðina. Svo var enn hinn 8. marz sl., þegar Skarphéðinn Rúnar Ólafsson féll í valinn við annan mann á leið um Óshlíð til skyldu- starfa sinna í lögreglu ísaljarðar. Með honum er horfínn á braut hug- prúður drengskaparmaður, sem starfsfélagar minnast með söknuði, virðingu og þökk. Skarphéðinn Rúnar Ólafsson var ekki aðeins góður félagi og vandaður lögreglu- maður, heldur hafði hann stað- fastan vilja til að efla sig í starfi og óx við hveija raun. Hin bjarta minning hans mun lifa með okkur, sem eftir stöndum. Ég flyt öllum aðstandendum Sk.arphéðins Rúnars Ólafssonar einlægustu samúðarkveðjur þeirra, sem með honum störfuðu við sýslu- mannsembættið á ísafírði. Pétur Kr. Hafstein Birting aímælis- ogminning- argreina Morgunblaðið tekur af- mælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð i Aðal- stræti 6, Reykjavík og á skrif- stofu blaðsins í Hafharstræti 85, Akureyri. MAZDA626GTÍ: BILL,SEM BER AF!! 16 ventla vél/148 hö. og búnaður I sérflokki: Vökvastýri, rafmagns- rúður og læsingar, sól- lúga, vindskeið (spoiler) álfelgur, hraðaksturs- dekk og margt fleira. HAGSTÆTT VERÐ 0G KJÖR. BILABORG H.F. FOSSHÁLS11, SÍMI6812 99

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.