Morgunblaðið - 18.03.1989, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 18.03.1989, Qupperneq 48
•y ^ iHróöleikur og A. skemmtun fyrir háa sem lága! Jltacgiiii&fatafr Efstir á blaði FLUGLEIDIR jSf LAUGARDAGUR 18. MARZ 1989 VERÐ í LAUSASÖLU 80 KR. Landsbankinn hækk- ar nafnvexti um 6% \ Morgunblaðið/Ámi Sæberg Forsvarsmenn ASI gengu fyrst á fund þríggja ráðherra ríkisstjórnarinnar, þeirra Jóns Sigurðssonar, Steingrims Hermannssonar og Ólafs Ragnars Grímssonar. Fundurínn dróst á langinn og voru því fiill- trúar atvinnurekenda farnir að bíða þegar honum lauk. Á myndinni eru, taldir frá vinstri: Gunnar J. Fríðriksson, formaður VSÍ, Pétur Sigurðsson, forseti ASV, Öm Friðriksson, fyrsti varaforseti ASÍ, Arai Benediktsson, framkvæmdastjóri Félags sambands fiskframleiðenda og Arnar Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðvanna. Ríkisbankarnir tveir, Búnaðarbanki og Landsbanki, hafa þegar ákveðið nafnvaxtahækkun sem tekur gildi 21. mars. Landsbankinn hækkar vexti af óverðtryggðum út- og innlánum um allt að 6%, en Búnaðarbankinn hækkar sömu vexti um 2-2,5%. Engin breyting verður á vöxtum verðtryggðra lána. Hlutafélagabankarnir og sparisjóðir hafa ekki tekið endanlega ákvörðun um vaxtabreytingar. Samkvæmt upplýsingum Brynj- ólfs Helgasonar, aðstoðarbanka- stjóra Landsbankans, verða vextir Kjörbókar hækkaðir úr 17% í 23%, vextir á almennum sparisjóðsbókum hækka úr 10% í 13%. Víxilvextir hækka í 23,5% úr 17,5% og vextir á óverðtryggðum skuldabréfum hækka úr 18% í 24% þann 1. apríl nk. Hannes Pálsson aðstoðarbanka- stjóri Búnaðarbankans sagði að í gær hefði verið ákveðin 2-2,5% nafn- vaxtahækkun að jafnaði. Samkvæmt því verða nafnvextir svipaðir og hjá Landsbanka eftir 21. mars. Endanleg ákvörðun um vaxta- hækkun hefur ekki verið tekin í Út- vegsbanka, en Guðmundur Hauksson bankastjóri sagði að vextir bankans hefðu verið í lægri kantinum og því yrðu þeir hækkaðir nú. Tryggvi Páls- son bankastjóri Verslunarbankans sagði að ákvörðun um vexti yrði tek- in á mánudag. Bankastjóramir sögðu að þessar -Forsvarsmenn fískvinnslunnar óska eftir fundi með sjávarútvegsráðherra: Frekari viðræður um lgarasamn- ing háðar svörum sljórnvalda Skammtímasamningur byggist á að allir séu með, segir Ásmundur Stefánsson FORSVARSMENN fiskvinnslunn- ar telja sig ekki búna til þess að halda áfi-am viðræðum við Al- þýðusambandið um kjarasamning *til skamms tíma, nema þeir fái skýr svör frá stjórnvöldum um hvað við taki þegar greiðslum á 5% verðuppbótum á frystan fisk lýkur f lok mafmánaðar. Þessi svör fengust ekki á fimdi vinnuveit- enda með þremur ráðherrum f Handbolti; BjóðaTiede- mann í tvo mánuði á árí Handknattleikssamband ís- lands hefur fengið bréflegt svar frá austur-þýska handknatt- leikssambandinu þess efnis að mögulegt sé að Paul Tiede- mann starfi hér á landi í tvo mánuði á ári. Að sögn Jóns Hjaltalíns Magnússonar, formanns HSÍ, er Ijóst að Tiedemann verður ekki landsliðsþjálfari íslands ef þetta er endanlegt svar. Jón segist hins vegar lítar á bréfíð sem „fyrsta svar“ og mun óska eftir frekari viðræðum við A- Þjóðverja. Tiedemann þjálfaði landslið A-Þjóðveija í 17 ára en lét af því starfi eftir Ólympíuleikana í Seoul. Sjá nánar frétt á íþróttasíðu, bls. 47. gærdag og því hafa forsvarmenn fiskvínnslunnar dregið sig um stundarsakir út úr viðræðunum og óskað eftir fundi með sjávarút- vegsráðherra áður en þeir ákveða framhaldið. Fundurinn verður $ sjávarútvegsráðuneytinu klukkan 22 f kvöld. „Við væntum þess að fá skýr svör hjá sjávarútvegsráðherra um fram- haldið. Við erum þegar í taprekstri, sem mun aukast gífurlega þegar þessum greiðslum úr verðjöfnunar- sjóði lýkur. Á sama tíma eru menn að setjast niður og ræða um endur- nýjun á kjarasamningi og við þessa óvissu höfum við ekki nokkra mögu- leika á að taka á okkur frekari kostn- aðarhækkanir," sagði Amar Sigur- mundsson, formaður Samtaka fisk- vinnslustöðva, í samtali við Morgun- blaðið í gærkveldi. Hann sagði að frekari þátttaka þeirra í viðræðum við ASÍ væri háð þeim svörum sem myndu fást hjá sjávarútvegsráðherra og stjómvöldum. Á fundinum í gær töldu ráðherr- amir að fiskvinnslan hefði gengið lengra til móts við útgerð og sjómenn við ákvörðun fískverðs en oddamaður hefði talið æskilegt. Aðspurður um þetta sagði Amar að fullt samkomu- lag hefði verið með kaupendum, selj- endum og fulltrúa ríkisins í yfir- nefnd. Þeir vissu ekki annað en það hefði verið staðið fyllilega við sam- komulagið við stjómvöld og það væri fyrst á þessum fundi í gær að því væri haldið fram að það hefði ekki verið og meðal annars þess vegna væri óskað eftir þessum fundi með sjávarútvegsráðherra. Eftir fundi hvors aðila um sig með ráðherrunum þremur, þar sem þeim var kynnt staða mála án þess að það leiddi til einhverrar niðurstöðu, hófst samningafundur seinnipartinn í gær. Honum var slitið á áttunda tímanum í gærkveldi og nýr fundur boðaður klukkan 14 í dag. Undimefndir munu funda fyrir hádegið um atvinnumál, félagsmál, skattamál og verðlags- mál. Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, sagðist vonast til að allir verði komnir að samningaborðinu þegar sest verður að því í dag. Hugmyndin um skammtímasamning byggi á þeirri forsendu að allir séu með. Hins vegar sé efnislega ekki enn ljóst hvort af kjarasamningi geti orðið eða ekki. Gunnar J. Friðriksson, formað- ur VSÍ, sagðist telja að samninga- tömin myndi byija í dag og það ráð- ast yfir helgina hvort þessi tilraun takist eða ekki. „Það er afskaplega þungt fyrir hjá okkar mönnum. Þeir sjá ekki hvemig þeir standa undir launahækkunum miðað við ástand- ið,“ sagði Gunnar. vaxtahækkanir væm afleiðing auk- innar verðbólgu undanfarið. Brynj- ólfur Helgason sagði að áætlað væri að lánskjaravísitalan hækkaði um 1,9-2% um næstu mánaðamót. Það þýddi rúmlega 20% verðbólgu á ári þannig að nafnvextir væm enn í lægri kantinum, en þeir hefðu í raun verið neikvæðir undanfarið. Sjá frétt um lækkun vaxta á verðbréfamarkaðnum á bls. 2. * Aburðar- verð hækk- ar um 29,5% ÁBURÐARVERÐ hækkar í vor að meðaltali um 29,5% frá þvi verði sem gilti síðastliðið vor. Stjóra Áburðarverksmiðjunnar fór fram á um 36% hækkun, en í svarí Iandbúnaðarráðuneytisins við þeirri beiðni var tekið fram að 22 milljóna króna rekstrar- framlag til verksmiðjunnar á þessu ári samkvæmt fjárlögum kæmi til niðurgreiðslu á verðinu, auk þess sem reiknað værí með minni afskriftum verksmiðjunnar en gert var ráð fyrir í hækkunar- beiðninni. * Hákon Bjömsson, framkvæmda- stjóri Áburðarverksmiðjunnar, sagði að eftir hækkunina muni meðalverð á hveiju tonni áburðar verða 18.480 krónur, en það var 14.300 krónur í fyrra. „Miðað við okkar útreikninga þýðir þetta að um 26 milljónir vanti upp á að endar nái saman." Gert er ráð fyrir að áburðarverðið verði endurskoðað á árinu komi til mikillar gengishækkunar og eins ef miklar launabreytingar verða. Hákon sagði að á síðasta ári hafi orðið veru- legt tap á rekstri Áburðarverksmiðj- unnar vegna gengishækkunar, en heildartap á árinu verið tæplega 110 milljónir króna. Forsætisráðherra um málefiii Arnarflugs: Hagstæðara fyrir ríkissjóð en að taka tilboði Flugleiða ALLIR í ríkisstjórainni eru sammála um að afskrifa beri þær 150 milljónir króna af skuld Arnarflugs við ríkissjóð, sem myndu hvort eð er tapast, ef til gjaldþrotaskipta kæmi. Þetta sagði Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra i samtali við Morgunblaðið i gær. Hann sagði jafhfiramt að sú leið, sem ríkissjóður hefði ákveðið að fara, myndi reynast ríkissjóði kostnaðarminni, en ef ákveðið hefði veríð að ganga til samninga við Flugleiðir um yfirtöku á Arnarflugi. „Það eru vissulega margar efa- flugfélög". semdir með þessar tryggingar, en ég tel vera ljóst að þær tryggingar sem forsvarsmenn Ámarflugs setja fram nú, til þess að við höfum milligöngu um útvegun láns, séu mun betri en tryggingamar sem settar voru 1986, þegar ríkið gekk í það að reyna að skapa Amarflugi rekstrargrundvöll," sagði forsætis- ráðherra. Steingrímur sagði að afstaða stjómarflokkanna þá, Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks, hefði byggst á þeirri stefnu flokkanna „að æskilegt væri að hér væru tvö „Mér finnst þeir hafa skrapað saman eignir, hlutafjárloforð og veð af ótrúlegum dugnaði, því þeir eru komnir yfir 200 milljónir. Ég er hins vegar í engri stöðu til þess að meta hversu góð trygging er í þessum eignum," sagði forsætis- ráðherra. „Þá er bara eftir að útvega þeim lánsfé, gegn tryggingum. Þetta verður töluvert kostnaðarminni leið fyrir ríkissjóð heldur en ef ákveðið hefði verið að ganga að tilboði Flugleiða. Flugleiðir kröfðust nið- urfellingar á 150 milljónum af skuldinni við ríkissjóð, jafnvel 200 milljónum króna. Auk þess vildi fyrirtækið að við útveguðum þeim lán með ríkisábyrgð og loks var farið fram á að Flugleiðum yrði tryggð einokun á millilandaflugi fram á næstu öld," sagði Steingrímur. Forsætisráðherra sagði að hans afstaða mótaðist af því að hann teldi æskilegt að hér væri lítið flug- félag við hlið Flugleiða. Hann vildi auk þess fóma töluverðu til þess að sá fjöldi, sem ynni hjá Amar- flugi, missti ekki vinnu sína. Loks benti hann á að það væri ekki gott til afspumar fyrir flugsamgöngur okkar, ef Amarflug yrði gjald- þrota. „Þá myndu ýmsir aðilar er- lendis tapa fé, eins og KLM og Eurocontrol," sagði Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra. Sjá einnig frétt bls. 20.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.