Morgunblaðið - 22.03.1989, Side 1
56 SÍÐUR B
68. tbl. 77. árg. MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1989_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Kosningabaráttan í Sovétríkjunum:
Viðvörun til stuðn-
ingsmanna Jeltsíns
Moskvu. Reuter og Daily Telegraph.
DAGBLAÐIÐ Moskovskaja Pravda birti í gær viðtal við yfirmann
Moskvulögreglunnar þar sem hann varar stuðningsmenn Bóris Jeltsins,
fyrrum flokksleiðtoga í Moskvu, við „að halda ólöglega fundi“ og
segir að slíkt verði ekki liðið öllu lengur.
Jeltsín hafði áður sakað Moskov- Moskvu-kjördæmi, Jevgeníjs
sköju Prövdu um að draga taum
mótframbjóðanda síns. í gær birti
blaðið svo stefnuskrá Jeltsíns en
felldi þó niður nokkur atriði. Jeltsín
talaði í gær yfir bifreiðasmiðum í
verksmiðju mótframbjóðanda síns í
Ermarsund:
Leitað að eit-
urefnagámi
París. Reuter.
MIKIL leit hefiir staðið yfir í
Ermarsundi að gámi úr indón-
esísku flutningaskipi sem sökk i
síðustu viku. I gámnum er mikið
af stórhættulegum eiturefnum.
Bæði frönsk og bresk stjórnvöjd
hafa stöðvað fiskveiðar á af-
mörkuðum svæðum í Ermar-
sundi vegna þessa. í gærkvöldi
tilkynnti umhverfismálaráð-
herra Frakklands að áhöfii tund-
urduflaslæðara hefði fúndið hlut
sem svipaði til gámsins um-
rædda.
í gámnum eru fimm tonn af lind-
ane, sem telst til 12 hættulegustu
eiturefna sem notuð eru gegn skor-
dýrum og illgresi. í gær var svo
upplýst að auk þess væru í gámnum
1,5 tonn af permethrin og cyper-
thrin, sem eru jafnvel enn hættu-
legri efni.
Bretar stöðvuðu í gær fiskveiðar
á svæðinu umhverfis staðinn þar
sem flutningaskipið Perintis sökk.
Áður höfðu Frakkar bannað fisk-
veiðar á 100 fermílna svæði norður
af Ermarsundseyjum. Ástæðan var
bæði ótti við að fískur mengaðist
af eiturefnunum ef gámurinn brysti
og að veiðarfærin myndu grugga
sjóinn og torvelda leit.
Brakovs. Hann var að vanda ómyrk-
ur í máli og tók fram að hann hygð-
ist ekki velta Míkhaíl Gorbatjsov
Sovétleiðtoga úr sessi. Kurteislega
var tekið á móti Jeltsín en fögnuður-
inn var ekki jafn mikill og á undan-
gengnum kosningafundum. Yfir-
gnæfandi meirihluti þeirra sem
spurðir voru eftir fundinn sögðust
ætla að kjósa Jeltsín á sunnudaginn
þegar valdir verða tveir þriðju hlutar
af þingmönnum á fulltrúaþinginu í
almennum kosningum.
Í gær greiddi Sovéska vísindaaka-
demían atkvæði um frambjóðendur
til tuttugu þingsæta sem akademí-
unni hafa verið úthlutuð. Einungis
átta af 23 frambjóðendum tókst að
fá tilskilinn ijölda j Sakharov at-
kvæða. Eru úrslitin rakin til þess
að Andrej Sakharov og fleiri þekktir
vísindamenn mótmæltu uppstillingu
forsætisnefndar akademíunnar en
hún hafði meðal annars gengið fram
hjá Sakharov. Er talið að möguleiki
hafí nú opnast fýrir Sakharov að
bjóða sig fram er vísindaakademían
kýs á ný innan skamms.
Brotlending í fátækrahverfi
Reuter
Mikið manntjón varð er Boeing-707 vöruflutningaþota í eigu flugfélagsins Transbrasil fórst í Sao
Paulo í Brasilíu í gær. Þotan brotienti tveimur km frá flugvelli borgarinnar með þeim afleiðingum
að þriggja manna áhöfii fórst og a.m.k. 15 á jörðu niðri. Auk þess slösuðust á annað hundrað manna
í fátækrahverfinu þar sem flugvélin kom til jarðar.
Lánstraust grænlensku landstj órnarinnar minnkar:
Abyrgð stj órnvalda nægir
ekki lengur við togarakaup
Kauptnannahöfn. Frá Nils Jergen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
NOKKRIR af helstu lánardrottn-
um Grænlendinga eru nú farnir
að efast um greiðslugetu land-
stjórnarinnar í Nuuk. Hakon
Fjeldberg, forstjóri Skipalána-
sjóðs Danmerkur, hefúr sagt í
viðtali við grænlenska útvarpið
að brátt verði loku fyrir það skot-
ið að landstjórnin geti ein
ábyrgst lán til kaupa á nýjum
SjávarútvegsráðherraVestur-Þýskalands:
Við viljum íslenskan
físk án veiðiheimilda
Bonn. Frá önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
DR. Wolfgfangf von Geldern, sjávarútvegsráðherra Vestur-Þýska-
lands, sem verður gestgjafi Halldórs Ásgrímssonar sjávarútvegsráð-
herra er hann heimsækir Sambandslýðveldið dagana 12. til 14.
apríl, segir í viðtali við Morgunblaðið sem birtist á miðopnu blaðsins
í dag, að vestur-þýska stjórnin leggist gegn því að íslendingar séu
krafðir um veiðiheimildir í lögsögu þeirra gegn aðgangi að markaði
Evrópubandalagsins (EB).
Von Geldem leggur áherslu á
að Vestur-Þjóðverjar þurfi á
íslenskum físki að halda og vilji
fá hann fyrir sem best verð. Vest-
ur-þýska stjómin sé því þeirrar
skoðunar að íslendingar eigi að
hafa aðgang að EB-marfeaði með
lágum tollum þrátt fyrir að veiði-
heimildir komi ekki í staðinn.
Þýski sj ávarútvegsráðherrann
ræðir einnig hvalamálið og segist
skilja að íslensk stjómvöld haldi
áfram hvalveiðum í vfsindaskyni,
þótt hann telji að skynsamlegra
Dr. Wolfgang von Geldern.
hefði verið að taka fullt tillit til
athugasemda vísindamanna i
vísindaneftid Alþjóðahvalveiðir-
áðsins við framkvæmd áætlunar-
innar.
Sjá viðtal við sjávarútvegs-
ráðherra Vestur-Þýskalands
á miðopnu.
togurum fyrir Grænlendinga.
Atvinnuvegasjóður landstjórnar-
innar hefúr alls lánað um 400
milljónir d.kr. (2.900 milljónir
ísl.kr.) til togarakaupa. Þar af
fékkst helmingurinn að láni hjá
Skipalánasjóðnum en afgangur-
inn hjá tveimur bönkum er starfa
á Grænlandi.
Fjeldberg segir að eigi Skipa-
lánasjóðurinn að lána Grænlending-
um meira fé verði hann að fá traust-
ari ábyrgðir, t.d. frá dönskum stór-
banka. Skipalánasjóðurinn er
tengdur Lánasjóði byggingariðnað-
arins (BFR) sem lánað hefur Græn-
lendingum stórfé gegn veði í fast-
eignum. Að sögn Fjeldbergs verða
einnig settar nokkrar skorður við
slfkum lánveitingum.
Ymsar danskar lánastofnanir
gera ráð fyrir að fé, sem þær hafa
lánað einstaklingum á Grænlandi,
sé tapað. Fjölskyldur jafnt sem
grænlensk fyrirtæki hafa að und-
anfömu orðið gjaldþrota vegna
minnkandi efnahagsumsvifa í sam-
félaginu. Auk þess eiga sveitarfélög
í æ meiri fjárhagsvandræðum.
Fulltrúar tveggja danskra lána-
stofnana, Industriens Kreditforen-
ing og Nykredit, sögðu nýlega
danska blaðinu Borsens Nyheds-
magasin að síðastliðið ár hefði láns-
traust Grænlendinga og Færeyinga
minnkað. Lánastofnanirnar hafa
alls lánað Grænlendingum um þijá
milljarða d.kr. frá árinu 1985.
Grænlenska landstjómin hefur tek-
ið 500 milljónir að láni hjá stofnun-
um en auk þess hefur stjómin feng-
ið 1,1 milljarð að láni í öðmm lönd-
um.
Emil Abelsen, sem annast fjár-
mál í grænlensku landstjóminni,
vísar á bug öllum fullyrðingum um
minnkandi lánstraust. „Við munum
standa við skuldbindingar okkar,“
segir Abelsen.
Reynsluskot
misheppnast
Canaverai-htf fda. Reuter.
LANGDRÆG eldflaug bandaríska
flotans af gerðinni Trident-2
sprakk þegar henni var skotið úr
kafbát við Canaveral-höfða í
Flórida í gær. Var þetta i fyrsta
skipti sem flaug af þessari nýju
gerð var skotið á loft neðansjávar.
Áformað er að Trident-2-flaugin
verði eitt öflugasta kjamavopnið i
vopnabúri Bandaríkjanna og Bret-
lands. Talsmaður bandarfska flotans
sagði i gær að flaugin hefði horfið
frá réttri braut skömmu eftir að
henni var skotið á loft og þá hefði
sjálfvirkur sprengibúnaður farið í
gang. Aldrei hefði verið hætta á
manntjóni af völdum tilraunarinnar.