Morgunblaðið - 22.03.1989, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1989
19
Morgunblaðið/Emilia
Kristján Guðmundsson bæjarstjóri við nýju sundlaugina sem fyrir-
hugað er að taka í notkun á næsta ári.
Iengur þeim verkefnum sem henni
er ætlað. Áfram verður haldið með
framkvæmdir við Hjalla- og Snæ-
landsskóla og veitt til þess 13 millj-
ónum auk 12 milljóna í lóðafram-
kvæmdir við skólanna, 2 milljónir
til lóðafrágangs á dagvistarheimil-
um og til íþróttahússins í Digranesi
er veitt 4 milljónum.
110 milljónir í gatnagerð
„í fyrsta sinn í fyrra veitti bær-
inn Myndlistaskóla Kópavogs §ár-
stuðning, nú 600 þúsund krónur,
en skólinn tók til starfa haustið
1988 og er gífurlega vinsæll," sagði
Kristján. „Því miður urðum við að
draga úr áframhaldandi fram-
kvæmdum við byggingu listasafns-
ins en engu að síður er áætlað að
veita 6,9 milljónir til safnsins."
Til gatnagerðar í nýjum hverfum
er varið 110 milljónum auk 44 millj-
óna til nýbyggingar á Nýbýlavegi
og 10 milljóna í lagningu gang-
stétta í bænum. Þá er reiknað með
að um 17 milljónir fari í gerð gangs-
tíga, í tijárækt og lagfæringar á
opnum svæðum. „í ár höfum við
ákveðið að veita 3 milljónum til
hafnarframkvæmda á Kársnesinu,
en þar hafa um 40 til 50 bátar
aðstöðu," sagði Kristján. „Á und-
anfömum árum hafa sífellt fleiri
bæst í hóp trillukarla og er oft
margt um manninn þegar þeir
leggja að.“
Ný hverfi skipulögð
Framkvæmdir við Kópavogs-
ræsið verða í lágmarki á þessu ári.
Búið er að leggja það út með Kópa-
vognum og inn allan dalinn á enda
og tengja það fjölmennum byggðum
austast í bænum.
Ákveðið er að veija 15 milljónum
til vinnu við skipulag nýrra hverfa.
Efnt var til samkeppni um skipulag
í Fífuhvammslandi. Skilafrestur er
runninn út og barst 21 tillaga. „Svo
má segja að við séum með allan
Kópavogsdalinn undir í skipulags-
vinnu að meðtöldu Smárahvamms-
landi, sem að hluta til er skipulagt
af Fijálsu framtaki, en í samvinnu
við bæinn sem tekur endanlega
ákvörðun um hvemig það. verður,“
sagði Kristján. „í fyrra var mikið
byggt af íbúðarhúsum og ekkert lát
virðist ætla að verða á því í ár. Við
eigum mikið af góðu byggingar-
landi sem liggur miðsvæðis og ef
okkur tekst vel til með skipulagið
þá verður hægt að fá nóg af lóðum
hér í framtíðinni. Þegar er búið að
byggja Kársnesið og hálsana og nú
tekur Kópavogsdalurinn við, en við
stefnum að því að Fossvogsdalurinn
verði eitt samfellt íþrótta- og úti-
vistarsvæði."
Reyndar er nú líka komið á dag-
inn að lögum kvenfélagsins var um
líkt leyti einnig breytt þannig að
félagsfundir urðu löglegir þótt að-
eins stjómin mætti og er þar hugs-
anlega komin skýring á því hvemig
stjóm kvenfélagsins gat ályktað í
nafni þess um mál séra Gunnars
án þess að þurfa að halda fund um
það í hinum venjulega lýðræðislega
skilningi.
Hér virðist einhver siðabreyting
á ferð. Engu er líkara en að hér
eigi að innleiða siði gyðinga, „auga
fyrir auga“, eða siði Múhameðs, þar
sem eitthvert réttlæti, eins og þeir
skilja það, er fyrir öllu, í stað krist-
inna siða.
I breytni okkar eigum við að leit-
ast við að hafa Jesú Krist að okkar
leiðarljósi og elska náunga okkar
eins og sjálfa okkur, trúa á mis-
kunnsemina og eilíft líf.
Allt þetta ætti að gera okkur
óhrædda og umburðarlynda.
Hræðslan leiðir oft-til vanhugsaðra
verka.
Það er mannlegt að skjátlast en
það er stórmannlegt að átta sig á
og viðurkenna mistök sín.
Við skomm nú á safnaðarstjóm
að vera óhrædda og gegna skyldum
sínum og halda (aðal)safnaðarfund,
en fundurinn 12. september síðast-
liðinn var sá síðasti sem haldinn
var og er reyndar sá eini sem hald-
inn hefur verið frá síðasta aðal-
fundi. Við skomm á safnaðarstjóm-
ina að hafa lög safnaðarins í háveg-
um, þótt gölluð séu, og gefa safnað-
armönnum kost á að ræða um
menn og málefni á löglegum safn-
aðarfundum án allra undan-
bragða.
A.m.k. þijár löglegar skriflegar
áskoranir safnaðarfólks um safnað-
arfundi hafa verið hundsaðar
síðastliðna 6 mánuði. Við skomm á
stjómina að virða ákvarðanir safn-
aðarins undanbragðalaust.
Sú kosning, sem stjómin stóð
fyrir eftir síðasta safnaðarfund, þar
sem stjóm var m.a. svipt umboði
til þess að halda prestskosningar
(líklegast það eina sem hún sá sér
fært að virða af vilja safnaðarins)
var gjörsamlega út í hött eftir að
þetta sama fólk hafði hafnað boði
biskupsstofu um að annast slíka
framkvæmd á faglegan, hlut-
lausan og lýðræðislegan hátt. —
Þá áttu safnaðarlögin og safnaðar-
fundir að standa fyrir sínu að mati
stjómar. Eitthvað þættu það kynd-
ugar kosningar til Alþingis ef t.d.
Sjálfstæðisflokkurinn ætti að sjá
um kosningar í Reykjavík og t.d.
Framsóknarflokkurinn úti á landi.
Það er sannarlega erfitt að eygja
hinn góða, sanna og heiðarlega til-
gang gerða sinna, ef menn vilja
ekki nota viðurkenndar aðferðir
okkar safnaðar og þjóðfélagsins í
heild til þess ama.
Við viljum endurtaka áskomn
safnaðarmanna til stjómar frá því
í janúar um að halda aðalfund eins
fljótt og auðið er, og úr því 15.
mars er nú liðinn, helst innan
þriggja vikna frá í dag.
Að endingu skomm við á stjóm-
ina að gera hreint fyrir sínum dyr-
um og segja okkur hér og nú hvað
hún ætlar eiginlega gera. Tími
sinnuleysis og aðgerðaleysis er lið-
inn. Þetta er búinn að vera langur
vetur. Hleypum ljósinu inn!
Höfundur er formaður Satiiadar-
félags Fríkirkjunnar í Reykjavik
og tiugvéla verkfræðingur.
HYUNDAI _ „HONDÆ"
tölvur - tölvur
OSRAM
2486.-kr
sparnaður
* með Dulux El sparnaðar
- perunni.
Til dæmis Dulux El 15w
• Sparar 2486 kr. í orkukostnaði
miðað við orkuverð Rafmagns-
veitu Reykjavíkur 5,18 kr/kw.st.
• Áttföld ending miðað við venju-
lega glóperu.
ORLANE
P A R I S
ANAGENESE
Barátta við tímann
Forskot húðarinnar
á gangi tímans
Kynnt í dog
frákl. 13-18.
NANA,
Lóuhólum 3.
V VEGUR TIL VELGENGNI
Með vaxandi samkeppni á öllum sviðum við-
skipta er nauðsynlegt að skoða vel þær baráttu-
aðferðir sem bjóðast.
Nám í viðskiptatækni er ætlað þeim sem vilja hafa
vakandi auga með öllum möguleikum sem gefast í
nútíma rekstri fyrirtækja og vilja auka snerpu sína í
harðnandi samkeppninni.
Viðskiptatækni er 128 klst. námskeið. Hnitmiðað
nám, sem byggt er á helstu viðskiptagreinum,
markaðs- og fjármálastjórnun -sniðið að þörfum
yfirmanna fyrirtækja, sölumanna og markaðsstjóra,
og þeirra er starfa að eigin rekstri.
Nokkur atriði námskeiðsinsl
• Grundvallaratriði í rekstrarhagfræði
• Framlegðar og arðsemisútreikningar
• Verðlagning vöru og þjónustu
• Fjárhags- og rekstraráætlanir
• Islenski fjármagnsmarkaðurinn
• Markaðsfærsla og sölustarfsemi
• Auglýsingar
• Bókhald sem stjórntæki
• Gestafyrirlestur
Innritun og allar nánari upplýsingar
eru veittar í símum 68 75 90 & 68 67 90.
Hringið og við sendum upplýsinga-
i
bækling um hæl.
^TÖLVUFRÆÐSLAN
Stjórnunar-
og viðskiptadeild
Borgartúni 28