Morgunblaðið - 22.03.1989, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 22.03.1989, Blaðsíða 24
I'l 24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1989 Sviss: Brestir í bílaflokknum en hann brunar áfram Zttrích. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. LITLIR, öfgafiillir hægriflokkar vinna á í hveijum kosningunum á fætur öðrum í Vestur-Evrópu. í Sviss er það Bílaflokkurinn sem nýtur góðs af óánægju fólks með rótgróna flokka og andúð á græningjum. Flokkurinn hefur tvö sæti í þjóðþinginu og á nú fulltrúa á Qórum kantónuþingum. Dr. Michael E. Dreher, lögfræð- ingur, stofnaði Bílaflokkinn í febrúar 1985. Skógardauði hafði þá verið efst á baugi í lengri tíma og um- hverfíssinnar fengið ýmsu fram- gengt. Hámarkshraði á þjóðvegum var lækkaður, reglur settar til að draga úr mengun bfla og umferðar- hindranir reistar til að draga úr umferð. Mörgum bflaeigandanum Líbanon: Kristnir menn ein- angraðir Beirút. Reuter. HERSVEITIR múslima í Líbanon stöðvuðu í gær allar samgöngur til yfirráðasvæða kristinna manna og ekkert lát var á bardögunum milli hinna stríðandi fylkinga. Leiðtogar kristinna, sem átt hafa í stöðugum bardögum við múslima í tvær vikur, sökuðu Sýrlendinga um að hafa átt frumkvæðið að því að stöðva matvæla- og eldsneytisflutninga á svæði kristinna manna. Her- menn sögðu að yfírráðasvæði kristinna - Austur-Beirút, auk hæðanna og strandsvæðanna norðan borgarinnar - væru ein- angruð frá umheiminum, nema hvað höfnin í Jounieh, norðan við Beirút, væri enn opin. Hermenn sögðu að gerðar hefðu verið stórskotaárásir á höfn í Beirút og íbúðahverfí í Austur-Beirút. Þeir sögðu að í það minnsta fímm hefðu fallið í árásunum, auk þess sem 39 hefðu særst. var nóg boðið og flokkur Drehers fékk strax meðbyr. Hann hafði áður reynt fyrir sér á sviði stjómmálanna. 1979 bauð hann sig árangurslaust fram til þings fyr— ir „Samtök um minni ríkisafskipti" og 1981 krafðist hann skattalækk- ana og fleiri bflastæða í nafni „borg- araátaksins". Félagsskapurinn barð- ist einnig á móti „þykjustu flótta- mönnum", „umhverfísisma" og Al- þjóðadýravemdunarsamtökunum, WWF. En hann fann lítinn hljóm- gmnn fyrr en hann hóf upp raust í nafni Bflaflokksins. Bfllinn er fjöl- mörgum Svisslendingum kær og þeir voru búnir að fá nóg af áróðri og .Ithöfnum gegn blikkbeljunni. Dreher ræður öllu í flokknum. Þeir sem ekki kunna að meta stjóm- arstfl hans eiga betur heima annars staðar. Gjaldkeri flokksins, Martin Reding, vogaði sér loks fyrir skömmu að greina frá því opinberlega að fjár- málin væru í hinum mesta ólestri. Hann uppljóstraði meðal annars að Dreher drægi sér 12.000 sv. franka, tæpar 400.000 ísl. kr., á mánuði án þess að gefa kvittun fyrir. Reding kallaði þetta hneyksli og sagði að Dreher ynni að mesta lagi i þijá mánuði á ári fyrir flokkinn. Gagnrýni gjaldkerans kostaði hann og nánasta samheija hans stjómarsætin í Bílaflokknum. Lokað- ur fundur fulltrúaráðs ákvað að reka þá. Reding bauð sig fram sem ráð- herra í trássi við flokksráðið í haust og það var notað sem afsökun fyrir að víkja honum úr sæti. En það er opinbert leyndarmál að ástæðan var ósamlyndi við formanninn. Reding hefur nú hótað að kljúfa Bílaflokkinn og stofna eigin flokk í miðhluta Sviss. Það hefur brakað í honum víðar en Dreher heldur sínu striki og stuðningsmenn hans stefna óhræddir að næsta prófsteini sem verður í kantónukosningum í Solot- hum 30. aprfl. TIRSDAG 21. MARTS U BAGGRUND GREENPEACE I MODVIND ot OJ uslrt* i— ££ •I udf u, rrvrrlt synú.ftsl al rmljaií. „ knuktmcj Uud. -Mm hoyi Men drn bbnhlw joumaisl Ciecnpuce dtn- (rfKh, betkyldrr CicCTpuce íor bls- i drn briiiche. som i «Dr «nd/r: Cirrnpace i Dsnman. knrnrr. har gjort *hvalrmcs Hvis drr ikkr rr frcmiíanii i ‘ • vrn- sl fnysrndr vrcd. V drn omvrlningrn, si rr drl ldbj*r- nu spzndrr musklrmr ul rl gang. D* for sl Q omsf ininRm lumpagnr. voldsoml sbg mrd haien. Med 01 al sugc. Ulshillrr dr sig srr Led BU tnisirr cm al hrvr bldr Gud- mrrr og mrrr vjmntUgr img •Jeg bm mundsson. Isbndsk TV og Dr rksislrrrr lor al rksislrre ndrolapr o dansk TV2. drr visrr bimrn i lor al brvarr drrrs |obs og luld 6k .Coodbyr jorj- saœ iu aften. i rctten. tr*kkrr drl op omsMang Tarnk. aftr dr skr. brugl denovcrfor nag.- td ncrrl tbr rodl kan mirvlr hr dr skai hoki iranr - sirrr orn de sidsle scmrr i -Moby Lrd Bbrdrl SENTlMEfíTAL KAMP Dicl-. Vtr. hvor drn jagtrdr Hanrrénafdrm. drrbrskyl FOR SÆLUNGER hndc hval glr jfvotfgt amok og drr Crrrnpracr for at brnyllr Lrj Biardrl nnrs ikkc mrd a kampagnc- ■N4r vrrdn gcndr og dygu mííndrm.'. V drl ^rrr USAGUGE irkgt. al dr saiir drrrs -Sagm i ural md pl al U solgl gron mrsirc i vdemes sxlsiund Dr har Og dr i&u mrgri ui enei ki ng pnn en skjd a/ dm stags populrrr. Drl dr kan vmde ugdr bare l^hgt undskykL idhmgrre o« Ulskud pl Mm del vxrslr cr. al man Lad nag n*vne el eksrmprk -Dirtgcmju-. . r nogrl mkL Of sriv rnlr drt. si ofedi m dr miL vrd al fcrtori [rr Lrrf Bl»drl. Lífsbjörg í norðurhöfum: Viðbrögð grænfriðunga við fyrirhugaðri sýningu myndarinnar Lífsbjargar í norðurhöfúm vöktu mikla athygli meðal Dana. Þessar fyrirsagnir eru úr Politiken og Det Fri Aktueit. Yiðbrögð grænfriðunga vekja athygli og undrun í Danmörku Greenpeace-samtökin í Noregi ætla að reyna að koma í .veg fyrir, að myndin Lífsbjörg í norðurhöfum verði sýnd þar en norska ríkissjón- varpið hefúr þó ekki tekið neina ákvörðun um sýninguna. í gærkvöfd var myndin sýnd f danska ríkissjónvarpinu, Stöð 2, en áður höfðu for- svarsmenn þess hafiiað kröfú grænfriðunga um að fá sérstakan tíma í sjónvarpinu tif að hrekja það, sem í myndinni kemur fram. Dönsku bföðin hafa gert þessu máfi mikil skif og fúrða þau sig á viðbrögðum grænfriðunga. „Þessi íslenska mynd byggist á illa grunduðum fullyrðingum, sem kalla má beinar lygar. Þess vegna ætlum við að reyna að fá hana bann- aða hér,“ sagði Pál Bugge, talsmað- ur norskra grænfriðunga. Kemur þetta fram í frétt frá Rune Tim- berlid, fréttaritara Morgunblaðsins í Ósló, sem segir ennfremur, að sam- tökin hafí krafíst fundar með ráða- mönnum ríkissjónvarpsins til að ræða þau atriði myndarinnar, sem þau telja röng. Eru þau einnig tilbúin til að höfða mál til að fá myndina bann- aða. í frétt frá N.J. Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins í Kaupmannahöfn, segir, að Ulla Terkelsen, fréttastjóri Stöðvar 2, annarrar rásar danska ríkissjónvarpsins, hafí vísað á bug þeirri kröfu grænfriðunga, að þeir fengju að koma fram með sérstakar. athugasemdir við myndina Lífsbjörg í norðurhöfum áður en hún yrði sýnd. Hafí grænfriðungar þá brugðist við með því að lýsa yfír, að þeir ætluðu að stefna bæði Stöð 2 og Magnúsi Guðmundssyni. Danskir grænfriðungar efndu til blaðamannafundar í gær og var Guðrún L. Ásgeirsdóttir, sem einnig er fréttaritari Morgunblaðsins í Kaupmannahöfn, viðstödd fundinn. Segir hún, að fjórir fulltrúar Gre- enpeace hafí verið á fundinum, tveir Danir og tveir Bretar, og hafí Mart- in Leebum, einn forystumanna sam- takanna í London, haft orð fyrir þeim. Lagði Leebum fram skjöl máli Sovéskir kafbátar verða sífellt hljóðlátari: Ognun við varnarsteftmna og áætlanir um liðsflutninga - segir í skýrslu bandarískrar þingneftidar Washington. Reuter. KAFBÁTAR Sovétmanna verða sífellt hjlóðlátari og örar framfarir þeirra á þessu sviði eru ógnun við varnarstefnu Bandarikjanna og áætlanir um liðsflutninga til Evrópu á óvissu- og átakatímum. Þetta mat kemur fram í skýrslu bandarískrar þingnefiidar, sem kynnt var I byijun vikunnar en I henni er hvatt til þess að fjárframlög til einstakra þátta vamarmála verði endurskoðuð í Ijósi þessa. í skýrslunni, sem unnin var af stöðu að Sovétmönnum hafí tekist hermálanefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, segir að ráða- menn innan bandaríska vamar- málaráðuneytisins verði að bregða við skjótt. Beri að leggja höfuð- áherslu á að bæta kafbátavamir Bandaríkjanna og getu liðsaflans til að halda uppi eftirliti með kaf- bátaferðum Sovétmanna þótt það kunni að hafa í fór með sér sam- drátt í útgjöldum til annarra örygg- is- og vamarmála. Að sögn Les Aspins, formanns hermálanefndarinnar, hafa sér- fræðingar komist að þeirri niður- að gera kafbáta sína það hljóðláta að Bandaríkjamönnum reynist sifellt erfíðara að fylgjast með ferð- um þeirra. Sem dæmi um þetta nefna höfundar skýrslunnar sov- éska árásarkafbála af „Akula“- gerð. I fréttatilkynningu frá Les Aspin er fullyrt að bandarískir kafbátar séu enn hljóðlátari en þeir sovésku. „Kafbátar þeirra em hins vegar orðnir það hljóðlátir að hefðbundn- ar eftirlitsaðferðir okkar eru orðnar úreltar," segirþar ennfremur. Vak- in er athygli á því að Sovétmenn kunni nú að njóta umtalsverðra yfírburða þar eð ógnunin af árás- arkafbátum þeirra aukist í réttu hiutfalli við vaxandi örðugleika bandarískra kafbátaeftirlitssveita við að skrá ferðir þeirra. Mikilvægt sé að unnt verði að halda siglinga- leiðum opnum reynist nauðsynlegt að flytja liðsafla frá Bandarílg'un- um til vinveittra ríkja auk þess sem flugmóðurskip og flotadeildir, sem þeím fylgja, séu mikilvægur liður í flotavömum Bandaríkjamanna. „Fari svo að kafbátar óvinarins reynist alvarleg ógnun er vamar- stefnu okkar og áætlunum öllum um liðs- og birgðaflutninga stefnt í voða,“ segir í tilkynningu Les Aspins, sem er demókrati og þing- maður fyrir Wisconsin-ríki. Talsmenn Bandaríkjaflota reyndust ekki reiðubúnir til að tjá sig um skýrslu þingnefndarinnar en embættismenn í bandaríska vamarmálaráðuneytinu skýrðu frá því fyrir skemmstu að Sovétmenn hefðu náð undraverðum árangri á sviði kafbátasmíða á mjög skömm- um tíma. Nýir kafbátar þeirra væru mun hljóðlátari en eldri gerð- ir og fullyrtu fyrmefndir embættis- menn að þennan árangur gætu Sovétmenn þakkað fyrirtækjum í Noregi og Japan sem selt hefðu háþróaðan tæknibúnað til Sov- étríkjanna. Les Aspin leggur til að hluta þeirra 5,9 milljarða dollara (um 300 milljarða ísl. kr.) sem farið hefur verið fram á til áframhaldandi rannsókna í tengslum við geim- vamaráætlun Bandaríkjastjómar á næsta ári verði varið til að bæta eftirlit með ferðum óvinveittra kaf- báta og til að efla styrk Bandaríkja- flota á sviði gagnkafbátahemaðar. sínu til stuðnings en margir blaða- menn furðuðu sig á, að blaðamanna- fundurinn skyldi haldinn fyrir sýn- ingu myndarinnar en ekki eftir eins og venja væri. Viðbrögð grænfriðunga við mynd- inni hafa vakið mikla athygli í Dan- mörku og hafa fjölmiðlar gert þeim góð skil síðustu dagana. í Politiken er meðal annars vitnað í íhaldsmann- inn Niels Ahlmann Ohlsen, formann umhverfismálanefndar danska þingsins, en hann lagði einu sinni til, að allir félagar í íhaldsflokknum yrðu jafnframt skyldaðir til að vera félagar í Greenpeace. „Þessi samtök ráðast á aðra og því fínnst mér það bera vott um tvískinnung hvemig þau bregðast við þegar þau em gagn- lýnd. Mér finnst það furðulegt, það er eins og þau hafí ekki alveg hreina samvisku," segir Ohlsen. Þá segir Ib Larsen, yfirmaður umhverfísmála í Kaupmannahöfn, sem haft hefur mikið álit á Greenpeace, að hann hafí kynnst alveg nýrri hlið á samtök- unum. í Det Frí Aktueit er grein um Greenpeace og er hún aðallega viðtal við danska blaðamanninn Leif Blæd- el, sem hefur verið mjög gagnrýninn á samtökin. Nefnir hann ýmislegt, sem hann kallar óheiðarlegar að- ferðir Greenpeace, og þar á meðal þann atburð ekki alls fyrir löngu þegar danskir fiskimenn stefndu bát- um sínum að skipinu Vulcanus, fljót- andi sorpbrennslustöð á Norðursjó, og reyndu að koma í veg fyrir, að úrgangurinn væri settur í sjóinn. Segir Blædel, að úrgangurinn frá skipinu sé aðeins brot af því, sem daglega berist í sjóinn með ám eins og Rín og Saxelfí, en Vulcanus hafí verið valið vegna þess, að það var auðvelt að beina athygli fjölmiðlanna að því. Um þetta sama mál er ijallað í leiðara Jyllands-Posten sl. sunnudag og segir þar, að nú eigi einn skipstjó- ranna yfir höfði sér skaðabótakröfu upp á 35-70 milljónir ísl. kr. Ástæð- an sé sú, að sjómennimir hafí látið Greenpeace æsa sig upp; það hafi verið flugvél frá Greenpeace, sem beindi þeim að skipinu og það hafí verið Greenpeace, sem baðaði sig síðan í fjölmiðlaljósinu. Síðan er spurt hver muni borga reikninginn og leið- arahöfundurinn svarar sér og segir: „Að minngta kosti ekki Greenpeace."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.