Morgunblaðið - 22.03.1989, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1989
31
Heitar umræður á bæjarstjórnarfiindi:
Agreiningur um hvar elstu nemendur
Síðuskóla stundi nám 1 framtíðinni
Bæjarráð fær málið aftur til frekari umflöllunar
Jón Laxdal
sýnir í
Gamla Lundi
JON Laxdal Halldórsson opnar
sýningn á upplímingum i Gamla
Lundi á föstudaginn langa, 24.
mars, kl. 16.00.
Jón Laxdal er Akureyringur,
fæddur árið 1950. Fyrsta einkasýn-
ing hans var í Rauða húsinu árið
1983 og sú næsta í Nýlistasafninu
árið 1987, auk þessara sýninga
hefur Jón tekið þátt í samsýningum
á Akureyri.
Á sýningu Jóns verða aðallega
smámyndir frá síðustu sex árum.
Sýningin stendur aðeins til mánu-
dagsins 27. mars og er opin dag-
lega frá kl. 16.00-21.00.
MIKLAR og á köflum heitar
umræður urðu á fúndi bæjar-
sijórnar Akureyrar í gær er tek-
ið var fyrir erindi varðandi
skólasókn nemenda í 7.-9. bekk
Síðuskóla. Samkvæmt ákvörðun
bæjarstjórnar frá því i febrúar
1987 var fyrirhugað að nemend-
ur 7.-9. beldgar Síðuskóla
myndu sækja nám í Glerárskóla
og þar yrði annar af tveimur
safnskólum bæjarins. Eindregn-
ar óskir, nemenda, foreldra,
kennara'og hverfasamtaka um
að ákvörðun þessari verði
hnekkt og nemendur elstu
bekkja Síðuskóla fái áfram að
stunda sitt nám í skólanum urðu
til þess að Björn Jósep Arn-
viðarson formaður skólanefind-
ar lagði fram tillögu þess efinis
að þar til annað verði ákveðið
fái nemendur í Síðuhverfi áfram
að stunda nám við skólann, en
yrðu ekki fluttir í Glerárskóla.
Á bæjarstjórnarfundi í gær var
Hlíðarflall:
Flugleiðatrimm-
iðápáskadag
Glerárkirkja:
Kyrrðarstund
á föstudag-
inn langa
KYRRÐARSTUND verður í
Glerárkirkju á föstudaginn
langa og hefst hún kl.20.30.
A kyrrðarstundinni verður boðið
upp á söng, hljóðfæraleik og lestur
úr píslar- og passíusálmum. Á
páskadag verður hátíðarguðsþjón-
usta í kirkjunni og hefst hún kl.
8.00 árdegis. Eftir messu verður
boðið upp á súkkulaði, en kirkju-
gestir eru beðnir að hafa með sér
brauð eða kökubita.
ALLAR lyftur í Hlíðarfjalli
verða opnar um páskana, boðið
verður upp á þrautabraut alla
dagana fyrir yngri kynslóðina
og þeir allra yngstu geta nýtt
sér leiksvæði sem sett verður
upp. Föstudaginn langa verður
leiðbeinandi við göngubraut frá
kl.11.00-15.00 og mun hann að-
stoða fólk við að bera rétt und-
ir skiðin.
Á skírdag fer fram parakeppni
í flokkum 12 ára og yngri á vegum
Foreldraráðs og hefst keppnin kl.
10.00. Samhliðasvig Flugleiða, for-
keppni fer fram laugardaginn
25.mars kl. 10.00 og verður braut-
arsvæðið með tveimur stökkpöll-
um. Forkeppnin er fyrir 13 ára og
eldri. Úrslitakeppnin fer fram á
annan dag páska Og hefst kl.13.00.
I úrslitakeppnina komast þeir sem
hlotið hafa rétt til að keppa í full-
orðinsflokki á vegum SKÍ, auk
þeirra sem unnið hafa sér rétt í
forkeppninni. Verðlaunin eru ferð
til Lúxemborgar, bæði í karla- og
kvennaflokki. Skráning þarf að
berast fyrir laugardaginn í síma
21766.
Flugleiðatrimmið fer fram á
páskadag og verður brautin opin
frá kl. 10.00 til 16.00. Tímataka
í karla- og kvennaflokki fer fram
kl. 14.00, en boðið er upp á tvær
vegalengdir, 4 km og 8 km.
Á Páskadag verður messa við
Skíðastaði og hefst hún kl. 13.00.
Séra Pálmi Matthíasson predikar.
ákveðið að vísa málinu afitur til .
bæjarráðs.
Björn Jósep (D) sagði óvenjulega
mikla samstöðu í hverfinu fyrst og
fremst hafa orðið til þess að hann
skipti um skoðun í þessu máli.
Hversu gott sem eitthvert kerfi er,
sagði Björn Jósep, yrði það aldrei
gott ef fólk teldi í hjartans ein-
lægni að það væri vont. Því væri
óæskilegt að þröngva upp á fólk
kerfi sem það fyrir engan mun vildi
sjá. Hann sagði skólanefnd fjarri
því að vera sammála í þessu máli
sem best sæist á því að hver og
einn skólanefndarmaður hefði séð
ástæðu til að sérbókana á fundi
nefndarinnar um þetta mál.
Sigrún Sveinbjarnardóttir (G)
fagnaði tillögu Bjöms Jóseps og
sagði að í raun væri um ótrúlega
einfalt mál að ræða, en Kolbrún
Þormóðsdóttir (B) spurði bæjarfull-
trúa hvort þeir væru, á tímum að-
halds og spamaðar tilbúnir til að
reisa það skólahúsnæði sem fylgdi
samþykkt tillögunnar.
Freyr Ófeigsson (A) benti á að
frá og með næstu áramótum bæru
sveitarfélög stofnkostnað vegna
grunnskóla og sagði hann að íhuga
bvrfti betta mál vel áður en endan-
leg ákvörðun yrði tekin. Hann sagði
bæjarfulltrúa kjöma til að þjóna
öllum bæjarbúum og til að ráðstaf*.
fé réttlátlega gagnvart öllum auk
þess sem þeim bæri skylda til að
sýna hagkvæmni þegar fé væri
deilt út og því lagði hann til að
málinu yrði vísað til bæjarráðs á
ný. Var það samþykkt með sex
atkvæðum, en fimm fulltrúar sátu
hjá.
Bergljót Rafnar, Sjálfstæðis-
flokki, sat sinn síðasta bæjarstjóm-
arfund í gær og þakkaði hún bæjar-
fulltrúum og bæjarstjóra fyrir
ánægjulegt samstarf og góða við-
kynningu og sagði að hún vonað
að starf sitt í bæjarstjóm hefði
orðið til nokkurs gagns. Gunnar
Ragnars forseti bæjarstjómar
þakkaði Bergljótu samstarfið og
óskaði henni og eiginmanni henn-
ar, Bjama Rafnar yfírlækni á FSA,
alls hins besta í nýjum heimkynn-
um, en þau hjónin flytja búferlum
til Reykjavíkur um næstu mánaða-
mót.
o
INNLENT
72 herbergi, meó baði,
lieimiin simu, úlvnrpi, lit-
sjónsarpi ug video, mini-
bar og herbergis|>jónustu.
Hútelið hefur nýlega verið stækkað
og cndurnýjað og allur aðbúnaður
rétt eins og best gerist.
Njótið góðra veiga og veit-
inga i notalegu umhverfi.
Glæsilegir veitingasalir,
bar og knffitería.
HOTEL KEA
AKUREYRI
Hafnarstræti 87-89, 600 Akureyri. I'ósthólf 283 Sími: (961-22200, Telex: 3166 hot kea is
A SKIÐUM i SKEMMTIEG MER...
í Hlíðarfjalli er gott færi og nægur snjór
as
CD
03
TD
_C0 j
■o
KIDfiSTAOlR
MUNIÐ FLUGLEIÐATRIMMIÐ26. MARS
Opið alla daga
vélfryst
skautasvell
Leikfélag Akureyrar sýnir
r?Wr er fai<ecCcCcc% vtd *t/£nyí*U«c
dagana 23., 25. j
og 27. mars
Fjöldi af góðum
veitinga- og
skemmtistöðum