Morgunblaðið - 22.03.1989, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 22.03.1989, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1989 Aðalfundur Flugleiða samþykkti 150 m.kr. hlutaf] ár aukningu: Aukning hlutaQár hefði átt að vera verulega meiri - sagði Sigurður Helgason stjórnarformaður Flugleiða AÐALFUNDUR Flugleiða var haldinn að Hótel Loftleiðum i gær. Þar var samþykkt útgáfa jöfhunarhlutabréfa að upphæð 472,5 m.kr. Einn- ig var samþykkt að auka hlutafé Flugleiða þessu til viðbótar um 150 m.kr. Hlutafé Flugleiða var fyrir aðalfúndinn 472,5 m.kr., en verður eftur útgáfú jöfhunarhlutabréfa og aukningu hlutafjár samtals 1.095 m.kr. Sigurður Helgason, stjórnarformaður Flugleiða, sagði það vera sína skoðun að þessi upphæð hefði átt að vera verulega hærri og hefði átt að marka stefnu um að auka hlutaféð í 1600 m.kr. á þessum aðalfundi með sölu slíkra hlutabréfa á næstu 2-3 árum. Hann taldi einnig að það væri skilyrðislaust æskilegt að hlutaQáreignin í Flugleið- um væri sem dreifðust. Bókfært eigið fé félagsins var um síðustu áramót 2.191 m.kr. og eiginQárstaða þess hefúr líklega aldrei verið jafii góð. Sigurður Helgason, stjómarform- aður, sagði árið 1988 hafa verið ár breytinga og stórra ákvarðana. Vemlegt rekstrartap hefði verið á árinu 1987 og aðstaða hér á landi fyrir samkeppnisgrein eins og flugið hefði gjörbreyst til hins verra. Þess vegna hefði orðið að grípa til um- fangsmikilla aðgerða og breytinga hjá félaginu vegna gjörbreytts efna- hagsumhverfis á Islandi. Möguleiki til áframhaldandi þátttöku fyrir fé- lagið á alþjóðlegum samkeppnisleið- um og þá sérstaklega Norður-Atl- antshafsleiðinni væri stórlega skert- ur. Því hefði verið óhjákvæmilegt að grandskoða allan rekstur félagsins frá grunni og taka ákvarðanir sem leiddu til aðlögunar að þessum nýju aðstæðum. „Ef haldið hefði verið áfram á sömu braut án breytinga er ljóst að reksturinn hefði endað með gjaldþroti," sagði Sigurður. Afkoma Flugleiða árið 1988 var betri en árið áður. Rekstrartap varð 43 m.kr. en hafði árið áður verið 194 m.kr. Rekstrarhalli ásamt fjár- magnskostnaði nam 143 m.kr. Með sölu eigna og þá aðallega fimm flugvélum í eigu félagsins, varð hagnaður að upphæð 949 m.kr. Endanlegur heildarhagnaður félags- ins varð því 806 m.kr. Launagreiðsl- ur hækkuðu milli ára um liðlega 18% og launakostnaður sem hlutfall af heildarkostnaði var í árslok 33,3%, en árið 1985 var þessi tala aðeins 19,6%. Sagði Sigurður að þessi launatala væri með því hæsta sem gerðist í flugheiminum. Innanlandsflugið er enn rekið með halla og reyndist hann á árinu um 95 m.kr. Samsvarar það 10,4% af veltu og hefur staðan versnað veru- lega miðað við árið áður, en þá nam hallinn af veltu um 5,1%. Athyglis- vert er þegar litið er yfir sl. þijú ár að heildarhagnaður félagsins hefur numið 1.255 m.kr. Á sama tíma hefur hagnaður af sölu eigna og þá aðallega flugvéla numið 1.345 m.kr. Sagði Sigurður að þetta segði okkur það að raunverulega hefur orðið rekstrarhalli á þessum þremur árum að upphæð 90 m.kr. Sigurður sagði að líta mætti á sölu flugvéla sem stefnumarkandi ákvörðun, eldri flugvélar væru seld- ar með það að markmiði að nota það fé sem fyrir þær fengist til að fjár- magna nýjar flugvélar. Gömlu vél- amar hefðu verið eyðslufrekar og krafíst mikils viðhalds. Á þessu ári myndu bætast í flota Flugleiða tvær nýjar flugvélar af gerðinni Boeing 737-400. Ennfremur hefði stjómin ákveðið að panta til viðbótar eina flugvél af sömu gerð, sem myndi bætast í flota félagsins á árinu 1990. Þá hefði einnig verið tekin ákvörðun um að panta tvær Boeing 757-200 flugvélar og myndi fyrri flugvélin koma til afgreiðslu fyrri hluta árs 1990. Samkeppnisstaða félagsins ætti að batna til muna með tilkomu þessara nýju véla. Líta mætti svo á að stjóm félags- ins hefði verið mjög framsýn þegar ákvarðanir hefðu verið teknar um þessi flugvélakaup. Mjög góð verð hefðu náðst á þeim tíma sem pantan- ir voru gerðar og afgreiðslutími væri tiltölulega stuttur. Pantanir á flugvélum sem nú væru gerðar kæmu fyrst til afgreiðslu hjá flestum flugvélaframleiðendum eftir 5-6 ár. Samdráttur í Bandaríkjaflugi Sigurður sagði að því miður hefði orðið að taka afdrifaríkar ákvarðan- ir á síðasta ári um verulegan sam- drátt í Norður-Atlantshafsrekstri félagsins. Þetta hefði verið ákvörðun sem því miður varð ekki umflúin. En þessi ákvörðun hefði líka skapað félaginu mikla erfíðleika vegna þess að allur samdráttur í rekstri væri erfíður af mörgum ástæðum. Fækka þyrfti starfsfólki og hefði það þegar verið gert, en við minnkandi umsvif yrði að gæta þess mjög vel að yfir- bygging félagsins yrði ekki of þung fyrir þann rekstur sem eftir væri. Sú spuming væri áleitin hvort ekki þyrfti að ganga enn lengra í þá átt að ná meiri hagkvæmni í yfirbygg- ingunni og yrði það áfram verkefni stjómenda félagsins. Tvö flugfélög Qarstæða Einn aðalvandi félagsins hefði verið að smækka það vegna þróunar í eftiahagsmálum hér innanlands. Jafnvel fyrir samdráttinn hefðu Flugleiðir verið örsmátt flugfélag í samanburði við flugfélögin í ná- grannalöndunum. Viss hagkvæmni fylgdi rekstri stærri eininga og við nytum ekki þessarar hagkvæmni vegna smæðar. M.a. af þessum sök- um væri það fjarstæða að ætla að tvö íslensk flugfélög gætu verið starfandi í millilandaflugi á svo litl- um markaði sem hér um ræddi, þ.e.a.s. milli íslands og annarra landa. Enda mætti reikna með vax- andi ásókn erlendra félaga inn á þennan markað. Tvö félög hefðu nú reglubundið flug hingað til lands, SAS og Lufthansa, og fregnir væm á lofti um það að British Airways myndi he§a flug hingað að ári liðnu og þá líklega í verulegu mæli. Dreifíng á hlutafé Undir lok skýrslu sinnar vék Sig- urður að tillögu stjómarinnar um að auka hlutafé félagsins. Sagði hann að stefnt væri að því að auka núverandi hlutafé, sem eftir þennan fund yrði 945 m.kr. í 1.600 m.kr. á þann hátt að bjóða út 665 m.kr. t.d. á næstu þremur árum. Myndi ekki veita af því vegna þeirra miklu fjár- festinga sem félagið væri að fara út í. Það væri skilyrðislaust hagur núverandi hluthafa að hlutafé fé- lagsins yrði aukið. Samkomulag hefði orðið innan stjómarinnar um tillögu þessa aðalfundar að bjóða út ný hlutabréf að nafnverði 150 m.kr. Yrði hlutafé félagsins þá 1.095 m.kr. Reiknað væri með að hluta- bréf þessi yrðu seld á yfirverði í samræmi við markaðsaðstæður. Gat Sigurður þess að það væri hans skoðun að þessi upphæð ætti að vera verulega hærri og marka ætti stefnuna um að auka hlutaféð í 1.600 m.kr. á þessum aðalfundi með sölu slíkra hlutabréfa á næstu 2-3 árum. Ekki hefði náðst sainkomulag um að ganga lengra nú en frá hefði verið skýrt. Það væri hins vegar von hans að þetta hlutafjárútboð væri byijunin á myndarlegu átaki í þá átt að auka hlutafé félagsins veru- lega. Annað sem ynnist við aukningu hlutafjár væri frekari dreifing á hlut- afé. Hann sagðist ekki telja æskilegt að hlutafé í Flugleiðum væru á fáum höndum, heldur að hlutafé dreifðist sem víðast og breiðast um þjóðfélag- ið. Fyrir fyrirtæki í þjónustugrein sem veitti öllum þegnum landsins þjónustu, væri skilyrðislaust æski- legt að hlutafjáreign væri dreifð. Fyrirtækið væri í viðkvæmri stöðu samkeppnislega séð og það mætti ekki fá á sig stimpil einokunar. Góð eiginQárstaða Sigurður Helgason, forstjóri Flug- leiða, tók næstur til máls og flutti skýrslu sína. Hann sagði bókfært eigið fé félagsins hafa verið jákvætt um rúmlega 2.191 m.kr. um áramót- in, sem samsvaraði um 46% af heild- arfjármagni félagsins og rúmlega 76% af langtímaflármagni félagsins. Bókfærð eiginfjárstaða félagsins hefði líklega aldrei verið jafngóð og myndi það án efa enn efla tiltrú á félagið bæði hérlendis og erlendis. Meginástæðan fyrir bættri bók- færðri eiginfjárstöðu félagsins væri salan á fímm millilandaþotum sem seldust á um 945 m.kr. umfram bókfært verð. Hér staðfestist það enn og aftur að það hefði verið rétt stefna hjá félaginu undanfarin ár að kaupa sjálft nær allar sínar eigin flugvélar í stað þess að leigja þær. Farþegum fækkar Sigurður rakti síðan árangur og afkomu helstu verkefna félagsins á árinu. Sagði hann að farþegum í Norður-Atlantshafsfluginu hefði fækkað um 16% og orðið samtals 240.000. Fraktflutningar hefðu auk- ist um 19,8% og alls verið 3410 tonn. Sætanýtingin hefði verið 76% á árinu en 79% árið áður. Hleðslunýting var 72% samanborið við 73% árið 1987. Meðaltekjur félagsins á farþegakíló- metra mældar í dollurum hækkuðu um 13,4% miðað við árið á undan. En þrátt fyrir þessa hækkun er meðalfargjald Flugleiða enn um 33% en annarra Evrópufélaga. Sigurður sagði að afkoma Norður-Atlants- Morgunblaðið/Þorkell Sigurður Helgason, stjórnarformaður Flugleiða, flytur skýrslu sína á aðalfúndi félagsins í gær. hafsflugsins hefði verið slæm á síðasta ári, þrátt fyrir tiltölulega góða flutninga og góð afköst starfs- manna. Meginástæða þess væri hin- ar gífurlegu kostnaðarhækkanir sem orðið hefðu á íslandi síðustu 3 árin, samfara óeðlilega háu gengi krón- unnar. í Evrópuflugi Flugleiða voru flutt- ir samtals rúmlega 295.000 far- þegar, sem er 5% fækkun frá árinu áður. Þetta er í fyrsta skiptið í mörg ár að farþegum fækkar í Evrópu- flugi en fjölgunin hefur verið mjög ör undanfarin ár. Farþegar í Evrópu- flugi voru t.d. ekki nema 156.000 árið 1983. Sætanýtingin í fyrra var 62% samanborið við 68% árið áður. 1988 voru flutt 4.100 tonn af frakt í Evrópufluginu sem er svipað magn og árið áður. Meðaltekjur á farþegakílómetra hækkuðu um 8,5% á árinu. Kaupmannahöfn er enn aðaláfangastaðurinn í Evrópuflug- inu, en þangað fóru tæplega 23% farþega. London kemur næst með rúmlega 17% og Luxembourg með tæplega 16%. Evrópuflugið burðarásinn Sigurður sagði Evrópuflugið vera burðarásinn í starfsemi Flugleiða og skapa um 40% af farþegatekjum félagsins. Samkeppni færi vaxandi og væri um 82% af flutningum í höndum Flugleiða. Erlend flugfélög myndu í auknum mæli fljúga á þess- um leiðum í framtíðinni og væri í áætlunum Flugleiða reiknað með að markaðshlutdeild félagsins gæti far- ið allt niður í 75% innan nokkurra ára. Flugleiðir myndu mæta þessari auknu samkeppni með því að bæta þjónustu og stefna að því að vera alltaf með bestu áætlanir til og frá landinu. í innanlandsflugi voru fluttir tæp- lega 258.000 farþegar, sem eru 6,4% færri farþegar en á árinu 1987. Meginástæðan fyrir fækkun farþega væri verkfall verslunarmanna sl. vor og aðgerðir flugmanna félagsins sl. sumar. Fraktflutningar í innanlands- flugi drógust saman um 10% og sætanýting varð 60% samanborið við 62% árið áður. Afkoma innanlands- flugsins var léleg á árinu og sagði Sigurður það stafa af færri far- þegum og verðstöðvun stjómvalda. A aðalfundinum var kjörin hluti stjórnar Flugleiða til tveggja ára.. Samþykkt var samhljóða tillaga um endurkjör þeirra Áma Vilhjálmsson- ar, Harðar Sigurgestssonar, Kristj- önu Millu Thorsteinsson, Páls Þor- steinssonar og Sigurðar Helgasonar í stjóm félagsins. Auk þeirra em í aðalstjóm félagsins E. Kristinn Ols- en, Grétar Br. Kristjánsson, Halldór H. Jónsson og Indriði Pálsson. Þá var samþykkt samhljóða_ tillaga um endurkjör þeirra Ólafs Ó. Johnson, Jóhannesar Markússonar og Dagf- inns Stefánssonar í varastjóm fé- lagsins. Fyrsti fundar nýrrar stjórn- ar var haldinn að loknum aðalfundin- um. Stjómin skipti með sér verkum og var Sigurður Helgason endurkjör- inn stjómarformaður og Hörður Sig- urgestsson endurkjörinn varaform- aður stjómarinnar. Enn illviðri á norðanverðu landinu: Vegir lokast jafiiharð- an í slóð moksturstækja Reynt verður að moka aðalleiðir í dag, á laugardag og annan dag páska ILLVIÐRI með ofankomu og skafrenningi var enn á norðanverðu landinu síðdegis í gær og olli erSðleikum við snjómokstur á vegum og tafði flugumferð. Vegagerðinni tókst að opna norður til Akur- eyrar, en vegirnir lokuðust jafnharðan aftur í slóð ruðningstækj- anna. Ófært er vestur á firði og um Snæfellsnes, en ftert með suður- ströndinni allt til Egilsstaða. Nokkrar tafir urðu á flugi í gær, með- al annars vegna þess að Qórar Fokker vélar Flugleiða urðu veður- tepptar á Akureyrarflugvelli í fyrrinótt. Útlit er fyrir áframhald- andi norðan strekking á landinu með éljagangi norðanlands, en björtu sunnantil á landinu með hægari vindi. Frostlaust verður á sunnanverðu landinu að deginum, en þess utan þriggja til fimm stiga frost. Færð er þokkaleg í nágrenni Reykjavíkur, að sögn Vegagerðar, en ófært er um Mosfellsheiði. Fært er hins vegar austur um til Þing- valla. Sæmileg færð er í uppsveitum Ámessýslu á aðalleiðum, en útvegir víða ófærir eða þungfærir. Greið- fært er með suðurströndinni til Egilsstaða. Fjallvegir á Austfjörð- um voru mokaðir í gær, Oddsskarð, Fjarðarheiði og Vatnsskarð eystra. Greiðfært er fyrir Hvalfjörð í Borgames. Síðdegis í gær var opn- að um Mýrar og um Heydal í Búð- ardal og í Stykkishólm. Ófært var út á Snæfellsnes og um fjallvegi á nesinu. Vegna veðurs varð að fresta mokstri frá Búðardal í Reykhóla- sveit. Holtavörðuheiði opnaðist upp úr hádegi. 60 - 70 bílar biðu eftir að komast norður heiðina, 7 áætlunar- bílar, um 20 flutningabílar og um 40 minni bílar. Um 20 bílar biðu norðan heiðar eftir að komast suð- ur. Búist var við að Öxnadalsheiði opnaðist með kvöldinu, en sakir ill- viðris var ekki gert ráð fyrir að hún héldist fær. Sama er að segja um veginn til Siglufjarðar, hann var opnaður í gær en búist við að hann lokaðist strax aftur. Fært var frá Akureyri til Dalv?kur en ófært til Ólafsfjarðar. Síðdegis í gær var opnað um Víkurskarð til Húsavík- ur, en hætta varð við mokstur upp í Mývatnssveit og verður reynt að ryðja þá leið í dag. í gær var unnið við snjómokstur á leiðinni frá Húsavík til Vopnafjarðar. Ekki var hægt að moka til Hólmavíkur vegna veðurs. Ráðgert hafði verið að moka Steingríms- fjarðarheiði fyrir páska og ryðja um Djúp til ísafjarðar, en hætt hefur verið við það vegna fannfergis á heiðinni. Á norðanverðum Vest- §örðum er fært milli Bolungavíkur, Isafjarðar og Súðavíkur, en flestir aðrir vegir ófærir. í gær átti að reyna að opna á milli Patreksfjarð- ar og Tálknafjarðar. í dag verður reynt að opna þær aðalleiðir sem ekki tókst að ryðrja í gær, frá Reykjavík til Akureyrar og á Snæfellsnes. Á Vestfjörðum verður reynt eftir föngum að opna. Ráðgert er að Vegagerðin moki aðalleiðir á laugardag og annan dag páska. Ef illa gengur í dag, er hugs- anlegt að reyna enn á morgun, en það hafði ekki verið endanlega ákveðið í gær. Flugleiðir urðu fyrir nokkrum töfum í innanlandsflugi í gær, þar sem fjórar Fokker vélar urðu veður- tepptar á Akureyrarflugvelli í fyrri- nótt. Þær komust þó allar suður aftur um hádegisbil í gær og undir kvöld hafði tekist að fljúga á alla staði nema til Þingeyrar. Þangað var ófært vegna veðurs. Arnarflug fór í gær til Siglufjarð- ar, Blönduóss, Bíldudals, Stykkis- hólms og leiguflug til Húsavíkur. Reyna átti að fara á Gjögur og Rif undir kvöldið, en ófært var til Hólmavíkur, Patreksfjarðar og Flateyrar. Ekkert verður flogið innanlands á vegum Flugleiða og Amarflugs á föstudaginn langa og á páskadag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.