Morgunblaðið - 22.03.1989, Side 5
Fáskrúðsfjörður:
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1989
‘5
Ljósafell kom endur-
bætt tíl heimahafhar
Fáskrúðsfírði.
Skuttogarinn Ljósafell SU 70
kom til heimahafhar á Fáskrúðs-
firði íostudagskvöldið 17. mars
Borgarráð:
Póstur- og
sími dregur
saman í
Gufunesi
eftir gagngerðar endurbætur í
Gdynia í Póllandi.
Þar var skipt um aðalvél í skipinu
og ljósavél. Vélarrúmið er því alveg
endurnýjað. Skipið var lengt um
6,6 metra, sett ný þilför, ný brú
og perustefni.
Kostnaðurinn við þessar endur-
bætur er um 170 milljónir króna.
Ljósafell er í eigu Hraðfrystihúss
Fáskrúðsfjarðar hf. en það gerir
líka út skuttogarann Hoffell SU 80,
en hann er nýbúinn að vera í breyt-
ingu í Póllandi. Samanlagður kostn-
aður beggja skipanna er 270 millj-
ónir króna, eða hálfvirði nýs togara.
A laugardeginum fór Ljósafell í
Ljósafell SÚ 70 kom til heimahafnar á Fáskrúðsfirði, föstudagskvöldið 17. mars. Morgunbiaðið/Aibert Kemp
siglingu með yngri borgara Fá-
skrúðsfjarðar og var það vel þegið
hjá þeim yngstu. Klukkan 5 á laug-
ardeginum var móttaka fýrir bæj-
arbúa og gesti um borð í skipinu,
þar sem bornar voru fram veitingar.
Um kvöldið var svo haldinn dans-
leikur í félagsheimilinu Skrúð, þar
sem var mikið fjölmenni saman-
komið og fór það vel fram.
Skipstjóri á Ljósafelli er Albert
Stefánsson og fyrsti stýrimaður er
Ólafur Gunnarsson. Yfirvélstjóri er
Kristmundur Þorleifsson.
- Albert
Borgarsjóður
greiðir 244,5
millj. fyrir land
og flutninga
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
samning milli Reykjavíkurborg-
ar og Pósts- og símamálastofhun-
arinnar um kaup á landi stoftiun-
arinnar í Gufunesi, fyrir rúmlega
33,3 milljónir króna. Jafiiframt
gerir samningurinn ráð fyrir að
Reykjavíkurborg greiði 88% af
kostnaði vegna fiutnings á tækj-
um eða 211,2 milljónir króna.
Miðað er við að verklok verði í
maí 1991.
Póst- og símamálastofnunin mun
í framhaldi af sölunni flytja veruleg-
an hluta af starfseminni frá Gufu-
nesi. Verða loftnetin tekin niður og
komið upp nýrri viðtökustöð í Keilis-
nesi í landi Kálfatjamar í Vatns-
leysustrandarhreppi, þar sem tekin-
ir verða á leigu um 40 ha lands.
Reykjavíkurborg kaupir allt land
stofnunarinnar í Gufunesi að und-
anskildum 11,7 ha. en þar verður
reist nýtt 650 fermetra hús nálægt
núverandi stöðvarhúsi. Þangað
verður keyptur nýr fjarskiptabún-
aðar settur upp.
í gæsluvarð-
hald vegna
innbrota
ÞRÍTUGUR maður hefur að
kröfu RLR verið úrskurðaður í
gæsluvarðhald til 31. þessa mán-
aðar vegna gruns um aðild að
Qölda innbrota í Reykjavík und-
anfarnar vikur.
Maðurinn var handtekinn ásamt
tveimur 15 ára piltum aðfaranótt
mánudagsins er þeir reyndu að
bijótast inn_ í tölvuverslun við
Hlemmtorg. í bíl þeirra fannst þýfi
og er talið að þeir tengist nokkrum
þeirra innbrota sem framin hafa
verið í borginni undanfarið.
Enn fitjar SS upp á nýjungum. Nú bjóðum við
tvær tegundir af birkireykta hangikjötinu okkar,
annars vegar bragðmilt og hins vegar bragðmikið
hangikjöt. Birkireykt hangikjöt gefur ósvikið og ljúffengt bragð
Þjóðlegur matur eins og hann gerist bestur.
Nú getur þú valið um tvær
tegundir. Önnur þeirra
er áreiðanlega sú sem
þér finnstbest. O'
m