Morgunblaðið - 22.03.1989, Síða 10
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1989
» 10
Landssamtök sauðfiárbænda:
Gefa út bók um ís-
lenskt lambakjöt
Landssamtök sauðfjárbænda hafa gefið út bók um íslenska lambakjö-
tið, og hefur hún að geyma uppskriftir að lambakjötsréttum viða að
úr heiminum. Bókin, sem nefnist „Lítil bók um lambakjöt", er tekin
saman af Sigmari B. Haukssyni og eru flestar uppskriftirnar einfaldar
og eiga að henta alla daga vikunnar. Bókin sem er 96 blaðsíður er
gefin út í tíu þúsund eintökum og verður hún til sölu í bókaverslunum
og helstu matvöruverslunum, en einnig munu sauðQárræktarfélög á
iandinu sjá um að dreifa henni.
Sigmar B. Hauksson sagði að við
val uppskrifta í bókina hefði hann
lagt áherslu á velja lambakjötsrétti
sem notið hefðu mikilla vinsælda víða
um heim. Þó hefði aðaláhersla verið
lögð á lambakjötsrétti frá löndum
við Miðjarðarhafíð, þar sem hefð
væri hvað ríkust á neyslu lamba-
lqots, svo sem frá arabaríkjunum,
Grikklandi, Frakklandi og Spáni.
„Það var þannig farið í smiðju mjög
víða og reynt að leggja áherslu á þá
rétti sem líklegt væri að féllu íslend-
ingum vel í geð, og þá jafnframt
haft til hliðsjónar að allt hráefni í
réttina væri auðvelt að nálgast. Þá
var einnig reynt að miða við ódýrt
hráefni eins og hakk og innmat alis
konar, og töluverð áhersla lögð á að
hægt væri að matreiða réttina auð-
veldlega heima í miðri viku, en ekki
væri einungis um veislufæði að
ræða.“
Bókin skiptist í átta kafla, og má
þar nefna kafla um innmat, rétti úr
lambahakki, súpur, steikur og sér-
stakan kcifla um heppilegt meðlæti
með lambakjöti. Þá er í bókinni sér-
stakur kafli um krydd og annað sem
ætlað er til þess að gera gott lamba-
kjöt betra.
Jóhannes Kristjánsson formaður
Landssamtaka sauðfjárbænda gat
þess þegar útgáfa bókarinnar var
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Jóhannes Kristjánsson, formaður Landssamtaka sauðijárbænda, og
Steingrímur J. Sigfusson, landbúnaðarráðherra, gæða sér á einum
lambakjötsréttinum sem finna má uppskrift að i bókinni um íslenska
lambakjötið.
kynnt, að samtökin hefðu tekið upp
samstarf við Ferðaþjónustu bænda.
Yrði bókinni meðal annars dreift á
alla ferðaþjónustubæi á landinu, auk
þess sem félögin tvö myndu hafa
með sér samvinnu um frekari kynn-
ingu bóakarinnar, og væri meðal
annar á döfinni útgáfa sérstaks
myndbands í þeim tilgangi.
Úthlutað úr Söngvara-
sjóði Operudeildar FIL
Söngvarasjóður Óperudeildar Félags íslenskra leikara styrkir efiii-
lega söngnema til náms og starfandi söngvara til frekari menntunar
í 'list sinni. I ár er úthlutað úr sjóðnum í annað sinn samkvæmt
nýjum reglum sjóðsins.
Morgunblaðið/Á. Sæberg
Jóhanna og Sigríður taka við styrkjum úr hendi Júlíusar Vífils Ing-
varssonar og Kristins Hallssonar.
Alls sóttu níu manns um styrk
að þessu sinni. Styrki hlutu þær
Sigríður Jónsdóttir, messósópran,
og Jóhanna V. Þórhallsdótti, alt.
Hlutu þær hvor um sig krónur 100
þúsund.
Sigríður Jónsdóttir, messósópr-
an, hóf nám hjá Ólöfu Kolbrúnu
Harðardóttur við Söngskólann í
Reykjavík, síðan lá leið hennar til
Bandaríkjanna þar sem hún hefur
nú lokið MB-námi við háskólann í
Illinois. Liður í hennar námi voru
Heilbrigðiseftirlitið um könnun á gerlafjölda í kjötfarsi:
Niðurstöður ekki samanburðar-
hæfar ef kælikeðja hefur roftiað
Farið var nákvæmlega eftir reglum, segir varaformaður Neytendasamtakanna
„ÉG HEF ekki upplýsingar um hve gömul sýnin voru þegar þau
voru tekin. Það var gengið út frá því að kælikeðja rofiiaði ekki.
Það tekur þvi ekki að rannsaka sýnin ef kælikeðjan rofiiar eða
hætta er á því, en þegar sýnin bárust okkur voru þau í kælibox-
um,“ sagði Halldór Runólfsson hjá Heilbrigðiseftirliti Hollustuvernd-
ar ríkisins. Hann var spurður hvort verið gæti að niðurstöður könnun-
ar Neytendasamtakanna væru óraunhæfar ef kælingu sýna hefði
verið ábótavant, eins og nokkrir kjötiðnaðarmenn héldu fram í sam-
tölum við Morgunblaðið og sagt var frá síðastliðinn laugardag. Heil-
brigðiseftirlitið sá um að rannsaka sýnin. María Ingvadóttir vara-
formaður Neytendasamtakanna segir að farið hafi verið nákvæm-
lega eftir ströngum reglum um meðferð sýnanna. „Þeir eru með
þessu að reyna að breiða yfir hvernig ástandið er,“ segir hún.
Kjötiðnaðarmenn sem talað var við,
í Vestmannaeyjum og á Akureyri,
bentu á að kjötfars væri svo við-
kvæm vara að það mætti ekki við
að vera í stofuhita nema örskamma
stund. Ef kælikeðjan rofnaði fjöl-
guðu gerlar sér mun hraðar en við
kælingu og þvi væri ekki raunhæft
að bera niðurstöðumar saman við
staðla sem gera ráð fyrir órofinni
kælikeðju. Þeir báru brigður á að
sýnin hefðu verið samfellt í kæli
og þess vegna hefðu niðurstöður
ekki verið réttar. Sýnin voru keypt
eins og hver önnur vara og farið
með þau í heimahús, þar sern þeim
var pakkað til flutnings. Á þeirri
leið segja þeir að kælikeðjan hafi
rofnað.
María Ingvadóttir segir að gefin
hafi verið mjög nákvæm fýrirmæli
um meðferð sýnanna og að farið
hafí verið ítarlega eftir þeim. „Við
erum að tala um meðhöndlun eins
og fólk er almennt með. Ef þetta
er syona óskaplega viðkvæm vara,
þá erum við i vanda stödd. Þeir eru
að reyna að breiða yfir hvemig
ástandið er. Þeir ættu að gera sér
grein fyrir því að þeirra besta vöm
er að segja: Við ætlum að gera
okkar besta til að þetta komi ekki
fyrir aftur. Okkur finnst skrýtið að
heilbrigðisfulltrúar láta hafa eftir
sér í fréttum að þetta sé alltaf
svona, að þetta sé ekkert verra nú
en áður. Það er eins og að segja
að umferðarslys séu svo algeng og
óviðráðanleg, að við verðum bara
að sætta okkur við þau.“
María var spurð um þá gagn-
rýni, sem verslunareigendur hafa
komið með, að taka hefði átt sýnin
í vinnslustöðvunum en ekki í versl-
unum. „Auðvitað tökum við sýnin
á sama stað og neytandinn fær sína
vöm. Ef eítthvað athugavert kemur
í ljós þarf síðan að rannsaka alla
vinnslurásina. Við vomm ekki að
leita að hvar mengun kemst í mat-
vælin, heldur hvort neytandinn fær
góða vöm, þar sem hann tekur við
henni. Kaupmenn ættu að leggja
metnað sinn í að bregðast þannig
við, að þetta enduteki sig ekki.“
Halldór Runólfsson segir að kæli-
keðja vömnnar eigi ekki að rofna
allt frá sláturhúsum til neytandans.
Þegar Heilbrigðiseftirlitið rannsak-
ar kjötfarssýni, þá em þau tekin
af fagmönnum og þess gætt að
kæling haldist alla leið til rannsókn-
arstofu. Hann sagði að þáttur Heil-
brigðiseftirlitsins í þessari könnun
hafi eingöngu verið að rannsaka
sýnin.
„Við tökum takmarkað mark á
þessum niðurstöðum af því að Heil-
brigðiseftirlitið tók ekki sýnin. Þær
em auðvitað vísbending um að eitt-
hvað gæti verið að. Þetta verður
skoðað í þessu ljósi, það er að Heil-
brigðiseftirlitið tók ekki sýnin. Mið-
að við að sýnin séu tekin á réttan
hátt em þessar niðurstöður saman-
burðarhæfar við staðla. Hafi þau
verið í stofuhita upp í þrjá fjóra
tíma, þá er það allt annað málvegna
þess hve viðkvæm vara kjötfarsið
er,“ sagði Halldór.
Hann sagði Heilbrigðiseftirlitið
taka sýni þannig að þess sé gætt
að þau haldi órofinni kælingu, reynt
sé að fá upplýsingar um hvenær
varan er framleidd og síðan sé reynt
að koma sýnunum sem allra fyrst
í rannsókn. Meðal annars séu sýnin
úti á landi tekin með tilliti til flug-
ferða. „Það fylgja góðar upplýsing-
ar um alla þætti. Heilbrigðiseftirlit-
ið vinnur þannig að eitt lélegt sýni
gefur ekki tilefni til fordæmingar,
heldur til að fara aftur á staðinn,
yfirfara hann, leiðbeina mönnum
og endurtaka rannsóknina.“ Hall-
dór sagði að þess væm nokkur
dæmi frá nýliðnum missemm að
vinnslustöðvum hafi verið lokað
vegna síendurtekinna dæma um
hreinlætisskort og léleg vinnu-
brögð.
Hollustuvemd heldur árlegan
fund með heilbrigðisfulltrúum í
næsta mánuði og verður þá tekið
sérstaklega á farsvömm. „Það er
hugsanlegt að setja strangari reglur
um farsvörur," sagði Halldór.
Sérverslanir
Höfum mikið úrvai að góðum sérverslunum í ýmsum
greinum. Nú er rétta tækifærið til að verða sjálfstæð-
ur, engum háður, vinna fyrir sjálfan sig.
Hafið samband strax.
Fyrirtækjasalan, Suðurveri,
símar 82040 og 84755,
Reynir Þorgrímsson.
íóurinn
Mafrwatr. 20.1. 20813
iNýio húeinu «ið Lakiortaro)
Brynjar Fransson,
26933
Háaleitisbraut. Falleg 2ja herb. íb.
á 1. hæfi. Gott útsýni. Ákv. sala.
Skammt frá Tjöminni Faiieg 3ja
herb. 701m íb. á 2. hæð í góðu timburh.
Bergstaðastræti 3ja herb. 70 fm
íb. á tveimur hæöum Allt sér.
Vesturberg. Mjög góð 4ra herb. íb.
á 1. hæð. Sérþvhús. Ákv. sala.
Kleppsvegur. Til sölu góö 4ra
herb. íb. á 1. hæð í lyftuh. innarl. við
Kleppsveg.
Leifsgata. Efri hæð og ris um 140
fm. íb. er mikið endurn. 35 fm bífsk.
fylgir. Laus strax. Verð 8,5 millj. Skipti
á ódýrari eign koma mjög vel til greina.
Skúli Sigurðsson, hdl.
tvennir tónleikar sem hún hélt hér
á íslandi.
Jóhanna Þórhallsdóttir, alt, hóf
söngnám hjá John A. Speight við
Tónskóla Sigursveins. Þaðan lá leið
hennar til Manchester þar sem hún
stundaði nám við Royal Northem
College of Music.
í stjórn Söngvarasjóðs Óperu-
deildar FÍL eru þau Elísabet Erl-
ingsdóttir, Júlíus Vífíll Ingvarsson
og Kristinn Hallsson.
(Úr fréttatilkynningu.)
LAUFAS
FASTEIGNASALA
SÍÐUMÚLA 17
82744
Óskum viðskipta
vinum okkar
og öðrum
landsmönnum
gleðilegra páska
Auður Quðmundodóttlr JSmm
•ölum.ður
Magnus Axolsson fasteignasali
Sogavegur - Rvík
Til sölu lítið einbhús rúml. 100 fm.
Skiptist í 3 herb. auk rýmis í kj.
Byggðarendi - Rvk.
Höfum fengið til sölu stórglæsil.
ca 300 fm einbhús á tveimur
hæðum með innb. bílsk. Ekkért
áhvflandi.
Hafnfirðingar
Höfum fengið til sölu 2ja og 3ja
herb. þjónustuíb. fyrir Hafnfirð-
inga 60 ára og eldri. íb. eru í
þriðja áfanga fjölbýlish. sem
Fjarðarmót hf. er að reisa við
Hjallabraut 33. íb. verður skilað
fullb. í febr. 1990. Allar nánari
uppl. á skrifstofu. _
Biikastígur - Álftan.
Höfum fengið til sölu 2 bygg-
ingalóðir við Blikastíg á Álfta-
nesi. Önnurersjávarlóð. Gatná-
gerðargjöld greidd.
Drangahraun
Höfum fengið til sölu fokh. ca
1100 fm verslunar- og skrifst-
húsn. Selst í heilu lagi eða í
hlutum.
Álfaskeið
Höfum fengið til sölu glæsil.
eign á einum besta stað í Hafn-
arfirði. íb. er á tveimur hæðum
rúml. 160 fm auk 40 fm bilsk.
Allar nánari uppl. á skrifst.
Vantar allar gerðir eigna á skrá.
Árni Grétar Finnsson hrl.,
Stefán Bj. Gunnlaugsson lögfr.,
Strandgötu 25,
Hafnarfirði, sími 51500.
Höfðar til
. fólks í öllum
starfsgreinum!