Morgunblaðið - 22.03.1989, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1989
15
PHILEXFRAN CE 89
Frímerki_____________
Jón Aðalsteinn Jónsson
í lok síðasta þáttar var því lof-
að, að sagt yrði eitthvað frá al-
þjóðafrímerkjasýningu þeirri, sem
halda á í París næsta sumar og
nefnd hefur verið PHILEXFRAN-
CE 89, í þessum þætti. Eins og
þar var einnig getið um, er næsta
erfitt að koma þessum þætti fyrir
í blaðinu og þá einna helzt um
helgar. Reynt verður samt að
halda gamalli venju um birtingu
hans á laugardegi, en lesendur
geta alveg eins átt von á honum
hvaða vikudag, sem er. Það bið
ég þá að athuga. Eins verður að
stilla lengd hans í hóf hveiju sinni.
PHILEXFRANCE 89 er ein af
þremur alþjóðlegum frímerkja-
sýningum, sem haldnar verða á
þessu ári undir merkjum FIP, þ.e.
Alþjóðasambands frímerkjasafn-
ara. Umboðsmaður hennar hér á
landi er Hálfdan Helgason, og
hefur hann látið þættinum í té
nokkrar upplýsingar um sýning-
una, sem ætla má, að íslenzkir
frímerkjasafnarar hafi áhuga á
að lesa. Sýningin verður haldin
dagana 7.-17. júlí nk. og verður
í tengslum við geysimikla af-
mælishátíð, þar sem Frakkar
minnast þess, að hinn 14. júlí
verða liðin rétt 200 ár frá frönsku
stjómarbyltingunni, sem gerð var
undir vígorðunum: frelsi, jafn-
rétti, bræðralag og olli ekki ein-
ungis straumhvörfum í sögu
Frakklands, heldur og allrar Evr-
ópu.
PHILEXFRANCE 89 verður
haldin í geysimikilli sýningarhöll,
Parc de la Concorde, og verður
sýningarrýmið 50.000 fermetrar.
Mun láta nærri, að það svari til
næstum tíu knattspymuvalla!
Svo sem venja er í sambandi
við allar stærri frímerkjasýningar,
hafa verið gefín út frímerki í
Frakklandi til þess að standa
straum af sýningarhaldinu, en
þeir, sem halda þessa sýningu, eru
Landssamband franskra
frímerkjasafnara og franska póst-
stjómin. Mun sú venja nú nánast
undantekningarlaus, að póst-
stjómir hlutaðeigandi landa eru
beinir aðilar að alþjóðlegum eða
norrænum sýningum frímerkja-
safnara. Ljóst má líka vera, að
hagsmunir póststjómanna eru
mjög miklir. Þess vegna mun það
auðsótt mál, að póststjómir taki
þátt í öllum meiri háttar sýning-
um, hvort sem er til þess að styðja
beint við bak frímerkjasafnara
með fjárframlögum eða þá að
auglýsa ftímerki sín og selja á
þessum sýningum.
Fjórir íslenzkir frímerkjasafn-
arar munu taka þátt í PHILEX-
FRANCE 89. Umboðsmaðurinn
sjálfur, Hálfdan Helgason, sýnir
þar íslenzkt bréfspjaldasafn.
Hjalti Jóhannesson sýnir stimpla-
safn sitt og Páll H. Ásgeirsson
íslenzka flugpóstsafnið sitt. Þessi
söfn þijú hafa oft verið nefnd í
þáttum þessum, svo að þess ger-
ist ekki þörf að fjölyrða um þau
hér. Fjórði sýnandinn er Sigurður
P. Gestsson, en hann ætlar að
sýna safn sitt af norsku póst-
homsfrímerkjunum. Er það í
fyrsta skipti, sem þetta safn Sig-
urðar er sýnt á alþjóðavettvangi.
Svo sem þeir vita vel, sem fylgj-
ast með íslenzkum frímerkjasöfn-
umm og söfnum þeirra, hefur
Sigurður stöðugt verið að bæta
þetta norska safn sitt. Þess vegna
er ánægjulegt, að hann skuli nú
hafa náð því takmarki að geta
sýnt það á alþjóðafrímerkjasýn-
ingu.
Vonandi verður unnt að segja
nánar frá PHILEXFRANCE 89,
þegar nær dregur sýningunni.
Skiptimarkaður safnara
Um nokkur ár hefur Félag
frímerkjasafnara í samvinnu við
Mynt- og kortasafnara haldið svo-
nefndan skiptimarkað í Síðumúla
17, þ.e.a.s. í félagsheimili LÍF.
Nú verður enn haldinn skip-
timarkaður á laugardaginn kem-
ur, 25. þ.m. Hefst hann kl. 13 og
lýkur kl. 17. Eins og áður geta
safnarar og almenningur komið
þar saman og skipzt á frímerkjum,
mynt, kortum, vindlamerkjum,
spilum og yfírleitt öllu því, sem
menn vilja safna. Um leið gefst
almenningi gott tækifæri til að
kynnast starfi safnara á
Reykjavíkursvæðinu.
SKRIfSTOFUTmi
í TAKT VIÐ TÍMANN
Viltu skara fram úr á hörðum
vinnumarkaði?
Við bjóðum þér upp á hagnýta
kennslu í viðskipta- og tölvu-
greinum, ásamt því helsta sem
gerir þig að hæfum og dugandi
starfskrafti.
Þú getur valið um morgun- eftir-
miðdags- eða kvöld tíma, eftir því
sem þér hentar.
Að námskeiðinu loknu útskrifast
þú sem skrifstofutæknir.
Innritun og allar nánari upp-
lýsingar færðu í símum 68 75 90
og 68 67 90.
Steinvör Gisladóttir,
skrifstofumaður,
Mjólkursamsölunni:
„Námið er yfirgripsmikið og
hagnýtt og reyndist mér vel.
Það hefur stjtrkt mig í sessi
og umfram allt var þetta
skemmtilegur tími í góðum
og samhentum hóp.“
Vió erum
vió símann til
kl. 22 í kvöld.
Tölvufræðslan
Borgartúni 28
Ja,hver
þrefaldur!
Þrefaldur
fyrsti vinningur
á laugardag!
Þreföld ástæða
til að vera með!
Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511.