Morgunblaðið - 22.03.1989, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1989
25
Hawke, forsætisráðherra Ástralíu:
Grét og játaði fram-
hjáhald í sjónvarpi
Sydney. Reuter.
BOB Hawke, forsætisráðherra Ástralíu, hefur játað með tárin í
augunum að hafa verið konu sinni ótrúr. Þetta átti sér stað í sjón-
varpsviðtali, sem fíeuíers-fréttastofan hefur undir höndum og fyrir-
hugað var að sýna í ástralskri sjónvarpsstöð í gærkvöldi.
„Þú hefur einnig verið sakaður konur hefðu getað þolað mig allan
um kvensemi. Hvað eiga þeir við
með því?“ spurði sjónvarpsmaður-
inn.
„Þeir eiga við að ég hafi verið
konu minni ótrúr,“ svaraði forsætis-
ráðherrann.
„Er það rétt?“ var hann spurður.
„Já,“ svaraði Hawke, en bætti
við að hann væri hættur að halda
framhjá konu sinni.
Hawke var áður verkalýðsleið-
togi og átti við drykkjuvandamál
að stríða en hætti að drekka áfengi
um það leyti sem hann fór á þing
árið 1980. Hann og Hazel, kona
hans, kynntust fyrir rúmum 40
árum þegar þau voru 17 ára göm-
ul. „Ég býst ekki við að margar
þennan tíma,“ sagði Hawke með
tárvot augu.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Hawke hefur tárast í sjónvarpi.
Hann brast í grát á fréttamanna-
fundi, þar sem rætt var um eiturly-
flaneyslu, árið 1984 og eiginkona
hans skýrði síðar frá því að dóttir
þeirra og tengdasonur hefðu verið
heróínsjúklingar.
Talið er að efnt verði til þing-
kosninga á Ástralíu síðar á þessu
ári og pólitískir andstæðingar
Hawkes segja að játning hans sé
aðeins pólitísk brella. Eiginkona
forsætisráðherrans hefur ekki tjáð
sig opinberlega um játninguna.
Reuter
Forsætisráðherra Ástralíu, Bob
Hawke, og kona hans, Hazel,
stíga hér dans. Hawke játaði i
sjónvarpsviðtali að hann hefði
verið konu sinni ótrúr og á inn-
felldu myndinni strýkur hann
burt tárin eftir þá játningu. For-
sætisráðherrann bætti við að
hann hefði aldrei hætt að elska
konu sina.
Tveir n-írskir lögreglu-
menn skotnir til bana
Olof Palme
Svíþjóð:
Varðhaldið
framlengt
Stokkhólmi. Frá Claes von Hofeten,
fréttaritara Morgunblaðsins.
VARÐHALD var framlengt í
gær í áttunda sinn yfir mannin-
um, sem grunaður er um að
hafa myrt Olof Palme, fyrrum
forsætisráðherra Svíþjóðar.
Dómari féllst á framlengingu
er Anders Helin, saksóknari,
skýrði frá þvi að tvö ný vitni
hefðu gefið sig fram er segð-
ust hafa séð manninn við morð-
staðinn í miðborg Svíþjóðar
kvöld sem morðið var framið.
Alls hafa þá fimm vitni gefið
sig fram er segjast hafa séð hinn
grunaða á morðstaðnum eða í
grennd við hann. Hin tvö nýju
vitni segjast hafa séð hann bíða
fyrir utan kvikmyndahús sem
Palme sótti kvöldið örlagaríka.
Lisbeth, ekkja Palme, hefur vitn-
að gegn hinum grunaða og sagst
hafa séð hann við morðstaðinn.
Hinn grunaði hefur þráfald-
lega neitað að vera viðriðinn
morðið og kveðst hafa verið í
spilavíti skammt frá morðstaðn-
um þegar Palme var myrtur.
Talsmaður lögreglunnar sagði í
gær að 45 menn, sem verið hefðu
í spilavítinu morðkvöldið, hefðu
verið yfirheyrðir og styddi fram-
burður þeirra ekki málstað hins
grunaða.
Helin skýrði frá því í gær að
rannsóknir i Vestur-Þýzkalandi
hefðu leitt í ljós að önnur byssa
af tveimur, sem fundust í fórum
hins grunaða, væri ekki morðvop-
nið. Hins vegar hefði ekki tekizt
að útiloka þann möguleika að hin
byssan væri morðvopnið.
Dublin, Jonesborough. Reuter.
FULLTRÚAR bresku og írsku lögreglunnar lýstu yfir efásemdum
í gær varðandi þá tilgátu að uppljóstrari innan írsku lögreglunnar
hefði verið í ráðum með liðsmönnum írska lýðveldishersins, IRA,
sem skutu tvo norður-irska lögreglumenn til bana á afskekktum
vegi við landamæri írlands og Norður-írlands á mánudag. Lögreglu-
mennirnir, Harry Breen og Bob Buchanan, voru úr hópi reyndustu
lögreglumanna Norður-írlands.
Heimildarmenn innan n-írsku
lögreglunnar sögðu að óttast væri
að tilræðismennimir hefðu komist
yfir leynigögn sem hugsanlegt er
að hafí verið í bíl lögreglumann-
anna. Lögreglumennimir voru á
leið af fundi með írskum starfs-
bræðrum sínum í Dundalk á Irlandi
þegar liðsmenn IRA gerðu þeim
fyrirsátur. Lík þeirra _ fundust
skammt frá landamærum írlands.
Lögreglumenn beggja vegna
landamæranna telja að mönnunum
hafi verið veitt eftirför þrátt fyrir
að þeir hafi ekið ómerktum bíl.
Einnig telja þeir hugsanlegt að tal-
stöð í bfi þeirra hafi verið hleruð.
Sameiginlegt átak írsku og norð-
ur-írsku lögreglunnar gegn IRA
hefur beðið töluverðan hnekki því
vísast er talið að upplýsingum hafí
verið lekið út. Charles Haughey,
forsætisráðherra írlands, og Tom
King, Norður-Irlandsmálaráðherra
Breta, undirstrikuðu þó að að morð-
in myndu á engan hátt skaða sam-
vinnu iandanna.
Tékkóslóvakía:
Milda dóm
yfir Havel
Prag. Reuter.
TÉKKNESKI andófsmaðurinn
og leikskáldið Vaclav Havel, sem
dæmdur var til níu mánuða fang-
elsisvistar í febrúar síðastliðnum
fyrir að efna til uppþota, hlaut
í gær vægari refsingu fyrir
áfrýjunardómstóli. Var dómur-
inn styttur um einn mánuð. And-
ófsmenn rekja mildun dómsins
til viðbragða erlendis við mál-
sókn tékkneskra stjómvalda á
hendur Havel.
Jan Novotny, dómari við áfrýjun-
ardómstólinn, staðfesti að Havel
væri sekur fundinn um að efna til
uppþota í miðborg Prag í janúar
síðastliðnum en felldi niður þann lið
ákærunnar þar sem honum var
gefið að sök að hindra opinberan
starfsmenn í starfi.
Havel, sem er einn stofnenda
samtakanna Mannréttindi’77, var
handtekinn 16. janúar slðastiiðinn
þegar hann tók þátt í minningarat-
höfn um tékkneska námsmanninn
Jan Palach, sem kveikti í sér á
Wenceslastorgi í Prag til að mót-
mæla innrás Varsjárbandalagsríkja
í Tékkóslóvakíu árið 1968.
„Ég lít svo á að málsóknin sé
hefnd stjómvalda fyrir þær hug-
myndir sem ég hef og fel ekki,“
sagði Havel fyrir rétti, skömmu
áður en dómurinn var kveðinn upp.
Um 3.000 menntamenn, lista-
menn og starfsmenn menningar-
samtaka í Tékkóslóvakíu hafa und-
irritað bænarskrá þar sem þess er
farið á leit að Havel verði látinn
laus úr haldi. Þá hafa tveir banda-
rískir þingmenn gert það að tillögu
sinni að Havel hljóti friðarverðlaun
Nóbels fyrir árið 1989.
Bandaríkin:
Minni verðhækkanir
Washington. London. Reuter.
VERÐ á neyzluvörum hækkaði um 0,4% i Bandaríkjunum i febrúar
og er það minna en i janúar er það hækkaði um 0,6%, sem var
mesta hækkun á einum mánuði í tvö ár.
Hagfræðingar höfðu spáð að Miðað við verðhækkun á neyzlu-
vísitalan hækkaði meira í febrúar vömm fyrstu tvo mánuði ársins
vegna 1% hækkunar heildsöluverðs jafngildir það 6,1% verðbólgu á ári,
fyrstu tvo mánuði ársins. Þegar í en síðustu tvö árin hefur verðbólga
ljós kom að þeir höfðu haft rangt í Bandaríkjunum numið 4,4% á ári.
fyrir sér lækkaði gengi dollarans.
UTSALA
á kuldaúlpum og skíðaanórökum.
Helmings afsláttur.
Don Cano-búðin,
Glæsibæ, sími 82966.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
á síöum Moggans!
Ný sending
af kjólum, blússum, buxum,
pilsum og peysum.
Köflóttu jakkarnir komnir aftur.
Iðnaðarmannahúsinu v/Hallveigarstíg, sími 11845
[hagglunds DENIS0N
HÁÞRÝSTI-VÖKVABÚNAÐUR TIL SJÓS OC LANDS
—r . i í vængjadælur vökvadælur, einfaldar, tvöfaldar, þrefaldar. Stærðir 12cm5-2l8cm3. Þrýstingur allt að 275 bar. Öxul-flans staðali sá sami ogá öðrum vængjadælum.
Vökvamótorar Afl sem tekur lítiö pláss. Tengist beint á vindur eöa iðnaðarvélar. ÞolavelverstuskilYrði. Snúningsátak allt að 150 000 Nm. §■
L. Stimpildælur og -mótorar Stærðir: I4cm3-638cm5. Þrýstingur allt að 450 bar. Öxul-flans sá sami og á öðrum stimpildælum og mótorum.
ventlar Stjórnventlar, skiptiventlar, þrýstiventlar. Rafstýrðir 12V, 24V, 220V. Þrýstistýrðir. &
Hönnum og setjum upp vökvakerfL Vlðgerðar- og varahlutapjónusta.
Sig. Sveinbjörnsson hf. umboös og heildverslun.
Skelöarásl - 210 Garöabæ - Síml 91-52850