Morgunblaðið - 22.03.1989, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1989
35
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Hrútur ogLjón
Hrútur (22. mars — 19. apríl)
og Ljón (23. júlí — 23. ágúst)
eru um margt líkir persónu-
leikar sem sjá heiminn líkum
augum og þurfa að fást við
svipuð mál til að viðhalda
lífsorku sinni. Samband
þeirra á því að geta verið
gott. Þar sem bæði eru skap-
stór og sjálfstæð, hafa sterkt
ég, er samband þeirra ekki
án hæða eða lægða. Einkenn-
andi er hressileiki, þörf fyrir
líf og skapandi athafnir, en
ekki lognmolla, stöðnun eða
vanabinding.
Hrúturinn
Hrúturinn er tilfinningaríkur
hugsjónamaður. Sjálfstæði
og það að fara eigin leiðir
skiptir hann miklu. Hann hef-
ur gaman af að bytja á nýju
verki, en leiðist vanabinding
og lífleysi. Hrúturinn er ein-
lægur, kappsfullur og ákafur.
Hann er drífandi en stundum
óþolinmóður og fljótfær.
LjóniÖ
Ljónið er að mörgu leyti líkt,
vill líf og skapandi athafnir,
en er fastara fyrir, rólegra
og þijóskara. Það hefur
ákveðnar skoðanir á lífinu og
vill hafa áhrif á umhverfi sitt.
Að öllu jöfnu er Ljónið hlýtt,
opið, vingjamlegt og bjart-
sýnt. Það sýnir hins vegar
skap sitt og er þvi þungt í
fasi þegar því er ekki létt í
huga. Ljónið er stórhuga og
vill glæsileika í lífsstíl sinn.
HeiÖarleiki
í sambandi Hrúts og Ljóns
skiptir einlægni og heiðarleiki
miklu. Hvorugt þolir bak-
tjaldamakk og undanbrögð,
en vilja koma hreint fram.
Það getur því gengið á ýmsu.
Tvœr frekjur
Skuggahliðar í sambandi
Hrúts og Ljóns eru m.a. þær
að bæði merkn eru stjómsöm.
Ef þau gæta ekki jafnvægis
og koma til móts við hvort
annað getur annað þurft að
láta undan, þvert gegn vilja
sínum. Það getur leitt til innri
óánægju og þess að sá
óánægði springur og fer í
burt. Bæði merkin eru frek
og vita af sér og vilja fá sínu
framgengt.
Ég-merki
Önnur skuggahlið er sú að
Hrútur og Ljón eru ég-merki.
Þeim hættir því til að vera
sjálfsupptekin. Hér ér ég, um
mig, frá mér, til mín og ekki
er hlustað á sjónarmið ann-
arra. Þetta þurfa þessi ágætu
merki að hafa í huga, til að
vel gangi.
Litríkt samband
Hrút og Ljóni getur hætt til
að vaða yfir og særa tilfínn-
ingar hvors annars. Það að
vera opinskár og kraftmikill
getur haft þá hættu í för með
sér að reiði er sýnd af jafn
mikilli hreinskilni og ánægja.
Það getur leitt til sárinda og
heiftarlegra rifrilda. Þau
ættu þó að ganga fljótt yfir,
þó allur sé varinn góður.
Lifandi lífsstíll
Lífsstfll Hrúts og Ljóns þarf
að vera lifandi og skemmti-
legur. Þau þurfa að gera í
því að skapa spennu og nýj-
ungar, enda leiðist þeim kyrr-
staða, aðgerðaleysi og vana-
binding. Þau þurfa bæði
svigrúm og ffelsi þar sem
hvorugt þolir höft. Ef þau
temja sér tillitssemi og gæta
þess að hlusta á hvort ánnað
á samband þeirra að vera
skemmtilegt og ganga vel
fyrir sig.
GARPUR
1fÖRÞURJNH ElRjKUK HOR.FIR.
FOREXJ LOSTIMN'AER 6AR.PORFELUJR
iBAROA6A V/Ð FURÐUSTOR/Vt 6ULL—
FJRSTARTUR v/NUR yfU/JN 06
NÚ 6ARPUR! F/E.R. EKRERT
stúbvao oehuaa/ sroRFt?
EN AÐUREW HANN FÆR H&VFr&t
FLAG6STÖN6/N SEM
GARPUR FLÐJG&I V/RKJtR.
F/NS 06 ELOlNGAVAR/./
GRETTIR
BRENDA STARR
í VATNSMÝRINNI
FERDINAND
■
SMÁFÓLK
Allt í lagi, Rögnvaldur kom með
pylsumar og Bibi með brauðið ...
okkur.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Þótt blekkispilamennska snú-
ist almennt um það að afvega-
leiða mótheijana, kemur stund-
um fyrir að rétt er að villa makk-
er sýn, svo hann slysist til að
finna réttu vömina.
Austur gefur, NS á hættu.
Norður
♦ 975
♦ 2
♦ K108754
♦ D52
Vestur
♦ KDG1086,,
V-
♦ DG632
♦ 43
Austur
♦ Á32
♦ G108654
♦ 9
♦ G9
Suður
♦ 4
♦ ÁKD97
♦ Á
♦ ÁK10876
Vestur Norður Austur Suður
— — 3 hjörtu 5 lauf
Pass 6 lauf Pass Pass
Pass
Útspil: spaðakóngur.
Það kom suðri vissulega í
opna skjöldu að heyra austur
opna á þremur hjörtum, þar sem
hann átti þijá efstu fimmtu. En
það var ekki óskynsamleg
ákvörðun að stökkva í fimm lauf,
einkanlega með þennan harða
makker í norður.
Austur var ánægður með út-
spilið, yfirdrap strax með spaða-
ás og spilaði meiri spaða. Sagn-
hafi trompaði og fann rétta
framhaldið þegar hann tók tígul-
ás og tvisvar tromp. Þegar þau
féllu 2-2 gat hann hent einu
hjarta niður í tígulkóng og
trompað hitt.
Það er nánast útilokað fyrir
austur að skipta yfir í hjarta í
öðrum slag. Nema auðvitað, ef
vestur kemur út með spaða-
drottninguna! Þá sér hann ekki
ffamtíð í spaðanum og gæti spil-
að hjarta í þeirri ijarlægu von
að makker ætti eyðu í litnum.
Það er aldrei að vita!
Umsjón Margeir
Pétursson
Á stóra opna mótinu í Belgrad
í desembermánuði kom upp þessi
athyglisverða byijun: Hvítt: Mar-
inkovic (Júgóslavíu). Svart:
Kudrin (Bandaríkjunum). Sikil-
eyjarvöm. 1. e4 - c5, 2. Rf3 -
d6, 3. d4 - cxd4, 4. Rxd4 - Rf6,
5. Rc3 - g6, 6. g3 - Bg7, 7. Bg2
- 0-0, 8. 0-0 - Bg4, 9. Rde2 -
Dd7!, 10. Bg5?! - Rc6, 11. Rd57
- Rxd5,12. exd5 - Re5,13. f3.
13. - BxfS!, 14. Bxl3 - Rxf3+,
15. Hxf3 - Dg4, 16. Dd8 -
Dxg5 og svartur vann auðveld-
lega á umframpeðinu. E.t.v. var
þessi auðveldi sigur þó beggja
handa jám fyrir Kudrin, því hann-
beitir þessu afbrigði einmitt sjálf-
ur með hvítu.