Morgunblaðið - 22.03.1989, Qupperneq 50
50
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
MŒ)VIKUDAGUR 22. MARZ 1989
John Cartor
Morgunblaöiö/KGA
ÍÞ/émR
FOLK
■ JOHN Carter frá Bretlandi
var í síðustu viku með þriggja daga
námskeið í dómgæslu og tímavörslu
í sundi. 18 tóku þátt og 10 þeirra
-^þreyttu próf undir hans stjóm á
innanhússmeistaramótinu um helg-
ina. „Ég hef séð mjög góð efni og
alveg sambærileg við það sem ger-
ist í Bretlandi," sagði Carter í
samtali við Morgunblaðið.
■ ELÍN Sigurðardóttir, SH,
vakti athygli á innanhússmeistara-
mótinu og setti þijú stúlknamet.
Hún bætti metið í 100 m baksundi
í boðsundskeppni, synti á 1.09.07
( met Hugrúnar Ólafsdóttur var
1.09.30 ), og bætti um betur í 100
m baksundi, þar sem hún sigraði á
1.09.05. Auk þess setti hún stúlkna-
met í 200 m baksundi.
■ EÐVARÐ Þór Eðvarðsson,
besti sundmaður íslands, dró sig í
hlé eftir Ólympíuleikana í Seoul,
en eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær, er hann byijaður að
æfa á ný. „Eðvarð Þór er sund-
maður á heimsmælikvarða og það
er slæmt að hafa hann ekki með,
en það er undir honum komið hvað
hann gerir," sagði Conrad Cowley,
landsliðsþjálfari, sem vonast til að
sjá kappann í landsliðinu á ný.
■ EGILL Markússon og Árni
Sverrisson munu dæma í BENEL-
UXIS-keppninni í handknattleik,
_en þar munu drengja- og stúlkna-
landslið íslands taka þátt. Þeir fé-
lagar munu einnig dæma landsleik
í Lúxemborg um helgina, en fara
síðan áfram með íslensku landslið-
unum til Hollands.
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Ivanescu tilbúinn
adræðaviðHSÍ
- ef Bogdan gefur starf landsliðsþjálfara frá sér. Zoran
Zivkovic einnig inni í myndinni
FORRÁÐAMENN Handknatt-
leikssambands íslands bíða nú
eftir svari frá Bogdan Kowalc-
zyk, við þeirri spurningu hvort
hann sé tilbúinn að halda
áfram sem landsliðsþjálfari
fram yfir heimsmeistarakeppn-
ina íTékkóslóvakíu. Svari
Bogdan neitandi eru forráða-
menn HSÍ tilbúnir að rœða við
aðra — og skv. heimildum
Morgunblaðsins kemur Peter
Ivanescu, sem hœtti með
landslið Vestur-Þýskalands
eftir B-keppnina, nú einnig til
greina.
Haft var samband við Ivanescu
í vikunni, skv. heimildum
Morgunblaðsins, og tók hann ekki
illa í að haft yrði samband við hann
ef Bogdan gæfi starfið frá sér. Það
veltur hins vegar mikið á því hvort,
og þá hvaða, leikmenn hætta að
leika með landsliðinu, hvort Ivanes-
cu gefur kost á sér sem þjálfari ef
til hans verður leitað formlega.
Bogdan var hér á landi á dögun-
um, HSÍ bauð honum að halda
áfram með landsliðið og óskaði eft-
ir svari í síðasta lagi fyrir næstu
mánaðarmót.
Zivkovic elnnig inni f myndlnnl
Zoran Zivkovic, Júgóslavinn sem
þjálfari landslið Kúvæt, er enn inni
í myndinni sem hugsanlegur lands-
liðsþjálfari.
Zivkovic, sem gerði Júgóslava að
heimsmeisturum í Sviss 1986, er
samningsbundinn í Kúvæt þar tii
1. maí næstkomandi. Hann tjáði
blaðamanni Morgunblaðsins í
Frakklandi á dögunum að hann
semdi ekki lengur en til eins árs í
einu við handknattleikssamband
Kúvæt — og hvað hann gerði nú í
vor væri enn óljóst. Zivkovic lýsti
því yfir, eftir Ólympíuleikana í Seo-
ul, að hann gæti vel hugsað sér að
þjálfa íslenska landsliðið. Jón Hjal-
talín Magnússon, formaður HSÍ,
spjallaði við Zoran í Frakklandi á
dögunum. Þjálfarinn tjáði formanni
HSÍ þá að eftir að samningur hans
lynni út, 1. maí, væri HSI velkom-
ið að hafa samband.
MorgunblaÖiÖ/Skapti Hallgrímsson
Zoran Zlvkovlc og Bogdan Kowalczyk landsliðsþjálfarar Kúvæt og ís-
lands á B-keppninni í Frakklandi. Myndin var tekin í Cherbourg, þar sem þjóð-
imar léku saman í C-riðli keppninnar.
Tiedemann velkur?
Hvað Paul Tiedemann varðar
virðast ekki öll kurl enn komin til
grafar. HSÍ mun óska eftir frekari
viðræðum við Austur-Þjóðveija í
framhaldi af bréfinu þar sem íslend-
ingum var boðið að Tiedemann
starfaði hér á landi í tvo mánuði á
ári, og Morgunblaðið greindi frá á
laugardaginn var. Nú berast þær
fréttir hins vegar frá A-Þýskalandi
að Tiedemann sé alvarlega veikur,
og það gæti því komið í veg fyrir
að hann kæmi yfírleitt.
HANDBOLTI / EVROPUKEPPNIN
Magdeburg leikur
gegn SKA Minsk
Leikmenn Magdenburgar, sem slóu Valsmenn út úr Evrópukeppni
meistaraliða, leika gegn svovéska meistaraliðinu SKA Minsk í
undanúrslitum Evrópukeppninnar. Magdeburg leikur fyrri leikinn
heima.
Sænsku meistaramir frá Drott leika gegn Steaua Búkarest frá
Rúmeníu og fer fyrri leikurinn fram í Svíþjóð.
Dinamo Búkarest leikur gegn US Créteil frá Frakklandi í undanúr-
slitum Evrópukeppni bikarhafa og spænska liðið Bidasoa leikur gegn
Essen. Fyrri leikurinn fer fram á Spáni.
Sovéska liðið Krasnodar, sem sló FH út úr IHF-keppninni, leikur
gegn Vorward Frankfurt frá A-Þýskalandi og Caja Madrid frá Spáni
leikur gegn Diisseldorf.
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI MARKVARÐA
Bjami keppir í Bröndby
„Spennandi verkefni," segir Bjami Sigurðs-
son, landsliðsmarkvörður, fulltrúi íslands
„ÞETTA or geysilega spenn-
andi verkefni og hvetjandi fyr-
ir markmenn,“ sagði Bjarni
Sigurðsson, landsliðsmark-
vörður í Val, í samtali við
Morgunblaðlð, en hann verð-
ur fufltrúi íslands í fyrstu Evr-
ópukeppnl fyrlr knattspyrnu-
markverði, sem verður haldin
í Bröndbyhöllinni í Kaup-
mannahöfn 19. nóvember
n.k.
Ollum 35 knattspymusam-
böndum innan UEFA var
boðið að senda landsliðsmarkverði
sína og ákvað stjóm KSÍ að Bjami
yrði fulltrúi Islands, en allur
kostnaður verður greiddur af
framkvæmdaraðilum. Sérstök
skotvél, „Cannonbair, verður not-
uð í keppninni. í fyrstu umferð
falla 19 markmenn úr keppni, en
16 halda áfram og síðan verður
útsláttarkeppni þar til einn stend-
ur uppi sem sigurvegari.
Allir þátttakendur fá peninga-
verðlaun. Þeir sem falla fyrst út
fá 5.000 krónur sænskar hver,
en upphæðin fer hækkandi eftir
árangri og sigurvegarinn fær
100.000 sænskar krónur ( um
830.000 ísl. kr. ).
„Hvað mig varðar verður at-
hyglisverðast að hitta bestu mark-
menn heims, en um ieið hlýtur
svona keppni að vera n\jög jákvæð
og uppörvandi fyrir íslenska
markmenn. Þetta er kærkomið
tækifæri og ætti að skila sér í
betri markvörðum," sagði Bjami.
BJarnl SlgurAsson, landsliðsmarkvörður - verður í sviðsljósinu ásamt
bestu markvörðum Evrópu í Danmörku.
Petre Ivanescu, fyrrum þjálfari
vestur-þýska landsliðsins.
Valsmenn
heyrðu ekki
frá Paul
Tiedemann
„ÉG frétti að Tiedemann vœri
í Leipzig, en náði aldrei sam-
bandi viö hann,“ sagði Þórður
Sigurðsson, formaður hand-
knattleiksdeildar Vals, er hann
var inntur eftir því hvort Paul
Tiedemann hefði haft samband
við Valsmenn í Magdeburg um
síðustu helgi, er þeir léku þar,
eins og til stóð.
Eg talaði við Tiedemann á mánu-
dagskvöldinu áður en við fórum
út. Þá var hann heima hjá sér í
Berlín. Hann ætlaði að koma til
Magdeburgar, en ekkert varð úr
því. Menn frá austur-þýska hand-
knattleikssambandinu sem við hitt-
um sögðu að hann væri staddur í
Leipzig.“
Skv. fréttum frá Austur-Þýska-
landi á Tiedemann við veikindi að
stríða, og gæti það verið ástæðan
fyrir því að Valsmenn heyrðu ekki
frá honum.
KNATTSPYRNA
TveirJúgö*
slavar
meðÞór
TVEIR júgóslavneskir leikmenn
verða með 1. deildarliði Þórs
frá Akureyri í knattspyrnunni á
sumri komanda. Þrír Júgóslav-
ar verða því í herbúðum félags-
ins, því þjálfarinn er landi leik-
mannanna tveggja.
Nokkuð er síðan að gengið var
frá því að framheijinn Bojan
Tanevski kæmi til félagsins, og
hefur hann æft með Þórsurum síðan
í febrúar. í gær var svo endanlega
ákveðið að landi hans Luka Kostic
yrði einnig með Akureyrarliðinu í
sumar. Hann dvaldi á Akureyri um
tíma fyrr í mánuðinum við æfíngar
og lék æfingaleiki með Þór í
Reykjavík. Líkaði forráðamönnum
félagsins mjög vel við Kostic, og
það varð úr að hann gengur til liðs
við félagið. Kostic er 29 ára að
aldri. Hann er miðvallarleikmaður,
en getur einnig leikið sem aftasti
maður í vöm. Hann lék framan af
vetri með 1. deildarliðinu Osijek í
heimalandi sínu — hefur verið lengi
hjá því félagi, en þar var núverandi
þjáifari Þórs, Milan Djuricic, ein-
mitt við stjómvölinn um tíma.
I iíl'MU)