Morgunblaðið - 07.04.1989, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 07.04.1989, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1989 3 Nánasteng- ar líkur á aðhnútur- inn leysist — segirlngi Björn Albertsson ALLAR líkur eru nú á að Ingi Björn Albertsson og Hreggviður Jónsson, tveir af þingmönnum Borgaraflokksins, gangi úr þing- flokki flokksins á mánudag. Þeir hafa sett skilyrði fyrir áfram- haldandi þátttöku sinni í þing- flokknum og kreQast svara við þeim fyrir miðnætti á sunnudag. Engir fundir eru þó áformaðir með þeim og formanni flokksins um helgina og segir Ingi Björn að nánast útilokað sé orðið að þessi hnútur leysist. Júlíus Sólnes segir að hann hafi ekkert um þetta mál að segja. Þeir tveir, Ingi Björn og Hreggviður, verði að gera upp hug sinn í þessu máli. Ingi Björn segir að þau skilyrði sem þeir Hreggviður setji fyrir áframhaldandi veru í þingflokknum séu einkum tvö. „Við viljum fyrst og fremst að flokkurinn láti af því að styðja þessa ríkisstjóm. I öðm lagi viljum við að því sé lýst yfir að ekki verði um frekari viðræður af hálfu flokksins um þátttöku í ríkis- stjóminni." Aðspurður um hvað taki við hjá þeim Hreggviði ef ekki verði gengið að kröfum þeirra segist Ingi Bjöm ekki geta rætt það að svo stöddu. Júlíus Sólnes formaður Borgara- flokksins segir að hann hafi ekki áformað að ræða þetta mál við Inga Bjöm og Hreggvið um helgina. Þing- flokksfundur sé boðaður á mánudag- inn en Ingi Bjöm og Hreggviður hafa ekki sótt þingflokksfundi frá því í byijun febrúar. „Við erum nú að sjá að baki mikl- um umbrotatímum í sögu flokksins og við verðum að sjá hvernig áfram- haldið þróast. Við höfum boðað til aðalstjómarfundar 22. apríl. Þar geta menn lýst skoðunum sínum og því sem þeir vilja bæta eða breyta," segir Júlíus Sólnes. Sambandið flyturá Kirkjusand SAMBAND íslenskra samvinnufé- laga flytur höfuðstöðvar sínar úr Sölvhólsgötu í nýja Sambands- húsið á Kirkjusandi um helgina. 011 starfsemi þeirra deilda sem flytja núna verður með eðlilegum hætti í nýja húsinu á mánudaginn. Kjartan Kjartansson fjármála- stjóri Sambandsins sagði í samtali við Morgunblaðið að húsnæði fyrir skrifstofu forstjóra og skrifstofu launadeildar væri ekki alveg tilbúið en gert er ráð fyrir að hægt verði að flytja í það um aðra helgi. Ekki taldi Kjartan þetta verða mjög umfangsmikla flutninga. „Hver og einn pakkar sínu dóti niður í kassa sem eru merktir viðkomandi manni og viðkomandi deild og fluttir um leið og skrifstofuhúsgögnin." Morgunblaðið/Bjarni Gestir á ráðstefnu um viðskipti Islands og Sovétríkjanna sem Útflutningsráð og Verslunarráð stóðu fyrir á Hótel Sögu í gær. _______________ Ráðstefna um viðskipti Sovétríkjanna og íslands: Mínnkandi áhugi Sovét- manna á olíuútflutningi AHUGI Sovétmanna á því að flylja út olíu hefur minnkað en þeir vilja í auknum mæli koma vélum og tækjum á markað hér- lendis. Kom þetta fram í máli Júrí Kúdinovs, viðskiptafulltrúa Sovétríkjanna á íslandi, á ráð- stefnu um viðskipti ríkjanna í gær. Kúdínov kvaðst ekki vera sáttur við ástand viðskipta Sovét- ' ríkjanna og íslands, íslenskir út- flyýéndur væru áhugalitlir um að nýta sér nýja möguleika til að stofha samáhættufyrirtæki og óviðunandi væri fyrir Sovétríkin að í ár stefiidi í 6 milljóna dala (312 milljóna króna) halla af við- Morgunblaðið/Emilla Nýr tölvubúnaður hefur verið settur upp í hliðinu við inn- og útakstur á Bakkastæðinu við Faxabakka. Bakkastæðið tölvustýrt TEKINN verður í notkun nýr tölvubúnaður við innheimtu á stöðu- gjaldi á Bakkastæði við Faxabakka í næstu viku. Þar er gjaldskylda frá kl. 9.30 til kl. 19.00 alla virka daga en ókeypis frá kl. 19.00 til 7.30 og um helgar. Gjaldið er 30 kr. fyrir hveija klukkustund og 10 kr. fyrir hveijar byijaðar 20 mínútur. Sjálfsalinn tekur við þrenns konar mynt, 5, 10 og 50 kr., og getur gefið til baka. Þegar ekið er inn á stæðið er stæðinu en 10 mínútur eftir að ýtt á hnapp á tölvubúnaðinum og tekið við segulmiða. Þá opnast hlið- ið inn á stæðið og ökumaður finnur sér stæði. Þegar aka á út af stæð- inu, er farið með miðann að sér- stökum miðaaflesara við varðskýlið og honum stungið í sérstaka rauf. Aflesarinn stimplar áfallið gjald á miðann og síðan er honum stungið í sjálfsalann og gjaldið greitt en ökumaður fær miðann aftur. Öku- maður hefur þá 10 mínútur til að komast út af stæðinu en hliðið opnast ekki fyrr en segulmiðanum hefur verið stungið í sérstaka rauf við hliðið. Ef menn tefja lengur á greitt hefur verið fyrir, þarf að greiða 10 kr. fyrir hveijar 10 mínútur. Týnist segulmiðinn verður að ýta á sérstakan hnapp til að fá nýjan og greiða 450 kr. fyrir hann. Á það við í þeim tilvikum sem enginn vörður er á stæðinu. í varðskýlinu verða seld mánaðarkort og kosta þau 3.000 kr. og er hægt að kaupa þau til fleiri mánaða í senn. Skila- trygging mánaðakorta er 1.000 kr. Framvegis sem hingað til er ekið inn á stæðið við Kalkofnsveg og út við Tryggvagötu. skiptunum við ísland. Á dagskrá ráðstefnunnar var stofnun Sov- ésks-íslensks verslunarráðs en undirtektir voru dræmar að mati Ingjalds Hannibalssonar, fram- kvæmdastjóra Útflutningsráðs, sem stóð að ráðstefhunni með Verslunarráði. Ákveðið var að fundarboðendur skyldu koma á fót nefiid sem kannaði nánar grundvöll fyrir stofhun slíks verslunarráðs. Júrí Kúdínov fjallaði í ræðu sinni um ástæður þess að viðskipti ís- lands og Sovétríkjanna voru minni í fyrra en árið 1987. Nefndi hann einkum lægra verð á olíu, Sovét- menn hefðu keypt minni fisk en árið áður og íslenskar vörur væru dýrar. Kúdínov hvatti íslenska inn- flytjendur til að sýna sovéskum vélum og tækjum aukinn áhuga. Hann lagði mikla áherslu á að jafn- vægi þyrfti að nást í viðskiptum ríkjanna og minnti í því sambandi á að Sovétmenn gætu fengið ódýran físk í Suður-Ameríku og ullarvörur á Indlandi. Skýringuna á því að Sovétmenn vildu draga úr olíuút- flutningi kvað Kúdínov þá að hún hefði lækkað í verði og tilkostnaður við vinnslu hennar aukist heima fyrir. Kúdínov vék einnig að hugs- anlegum samstarfsverkefnum Is- lendinga og Sovétmanna en 300 slík fyrirtæki með þátttöku sov- éskra og vestrænna aðilja hafa ver- ið stofnuð. Kenndi hann reynslu- leysi Sovétmanna og áhugaleysi íslendinga um að ekki hefðu tekist samningar með þjóðunum tveimur. Bjarni Elíasson, framkvæmda- stjóri Kvikks sf., sem selt hefur hausklofningsvélar til Sovétríkj- anna, var bjartsýnn á framtíð við- skipta ríkjanna, en hann er nýkom- inn úr ferðalagi um Sovétríkin þar sem leitað var nýrra markaða. Kvað Bjarni mikla möguleika opnast þar sem búið væri að taka pólitíska ákvörðun um að endurnýja sovésk- an fiskiðnað. Aðalsteinn Helgason, aðstoðar- forstjóri Álafoss hf., sagði viðskipt- in við Sovétmenn flóknari og erfið: ari í kjölfar perestrojku en fyrr. í stað þess að eiga við tvo aðilja, Raznoexport og Sovéska samvinnu- sambandið, þyrfti nú í auknum mæli að leita til lýðveldanna sjálfra. Aðalsteinn spáði því að ullarvöru- sala til Sovétríkjanna yrði í fram- tíðinni meira á formi vöruskipta og þ.a.l. háð því að íslendingar fyndu frambærilegar vörur til að kaupa í Sovétríkjunum. Steingrímur Hermannsson : „Algjör verðstöðv- un gengur ekki upp“ „VIÐ getum ekki fallist á það að festa gengið út samningstimann og sömuleiðis yrði verðstöðvun að vera allsheijar samkomulag með aðilj- um vinnumarkaðarins," sagði Steingrímur Hermannsson, forsætisráð- herra, í samtali við Morgunblaðið að afloknum ríkisstjórnarfundi í gær, þar sem krafa BSRB um algjöra verðstöðvun var rædd. Forsætis- ráðherra sagði jafnframt: „Vinnuveitendur hafa hafnað kröfunni um verðstöðvun og því gengur dæmið ekki upp.“ Steingrímur sagði ríkisstjómina stofnana kemur fram með frum- hafa fallist á það að hafa mjög hert verðlagseftirlit á samningstímabil- inu. Fylgst yrði með því hvemig verð- þróun viki frá því sem þjóðhagsspá segði til um, og samráð um það haft við aðila vinnumarkaðarins. „Það ber enn mikið á milli samn- inganefndar ríkisins og BSRB, sér- staklega um greiðslumar í lok tíma- bilsins, bæði hvað þær verði miklar og hvenær þær væru greiddar. Því verður á hinn bóginn alls ekki neitað að eftir að Starfsmannafélag rfkis- kvæði í þessu máli, þá hefur afar mikið gerst. Þeir eru mjög nálægt ramma fjárlaganna og hafa lækkað sig mjög mikið frá uppmnalegum kröfum," sagði Steingrímur er hann var spurður hvort hann teldi að sam- komulag BSRB og ríkisins væri í burðarliðnum. „Það er alveg ljóst að krónutölu- hækkunin er óskaplega erfíð fyrir flskvinnsluna, og þar stendur hnífur- inn í kúnni,“ sagði Steingrímur. Þórarinn V. Þórarinsson: Yerðhækkanir í takt við verðlagsþróun „Um verðlagsmál gilda tiltekin lög um verðlag, samkeppnishömlur og ólögmæta viðskiptahætti. Þau marka með ótvíræðum hætti hveija starfsskyldur Verðlagsstofnunar og verðlagsráða eru. Með þessum lög- um er verðlagsráði heimilað að taka tiltekin svið verðlagsmála undir verðlagsákvæði, en jafiihliða er þvi gert skylt að leyfa verðhækkanir í samræmi við verðlagsþróun," sagði Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri VSÍ aðspurður um fyrirætlanir ríkisvaldsins um verðlags- aðhald. INNLENT „Verðlagsráð hefur þar af leiðandi enga heimild til að beita verðstöðvun eða neita að taka tillit til verðlags- hækkana sem leiða til verðbreytinga á vöru og þjónustu þeirra fyrirtækja sem sæta verðlagseftirliti stofnunar- innar. Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar um alveg sérdeilis ákveðið eftirlit með því sem fréttir herma að stjóm- völd kjósi að kalla einokunar- og markaðaráðandi fyrirtæki eru þar af leiðandi innantóm orð. Lögin eru ótvíræð um það hverjar starfsskyldur verðlagsyfirvalda eru. Verðlags- stofnun og verðlagsráð ber að starfa: samkvæmt þessum lögum og yfirlýs- ingar ríkisstjómar sem fara í bága við þessi lög eru þar af leiðandi einsk- is virði. Að því er varðar verðlag á opin- berri þjónustu kemur ekkj á óvart að ríkisstjómin treysti sér til þess að ábyrgjast að ekki komi til frekari hækkana á því sviði á næstu mánuð- um, þegar af þeirri ástæðu að ríkis- valdið er búið að hækka velflesta gjaldapósta, allt upp í 28,5% þar sem Ríkisútvarpið átti í hlut,“ sagði Þór- arinn ennfremur. •

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.