Morgunblaðið - 07.04.1989, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 07.04.1989, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1989 41 Innilegar þakkir til þeirra, sem minntust mín 90 ára 3. apríl 1989. Bergsveinn Skúlason. Þessir hringdu . . Karlmannsúr tapaðist Gamalt Melvin-karlmannsúr, silfurgrátt með svörtu strigaarm- bandi, tapaðist fyrir nokkrum vik- um. Skilvís finnandi vinsamlegast hringi í síma 84555 og tali við Ingólf. Fundarlaun. Sagnfræðileg villa Reykvíkingur hringdi: Ég var að lesa minningargrein í Morgunblaðinu á þriðrjudag, sem er nú ekki f frásögur færandi, nema þar rakst ég á sláandi sagn- fræðilega villu. Greinin er í minn- ingu Guðnýjar Sigmundsdóttur og þar segir m.a.: „Seinna átti hún heima í Skuggahverfinu, þar sem móðir hennar forðaði fjölskyldu sinni frá taugaveiki með athyglis- gáfu og heilbrigðri skynsemi, en hún hafði tekið eftir því, að þeir tóku veikina, sem notuðu vatn úr Bjamarborgarbrunni, en hinir sluppu, sem styttri áttu ieiðina í aðra brunna." Um hundrað manns veiktust af taugaveiki, en það er rangt að þeir hafí smitast af vatni úr Bjamarborgarbrunni. í bók Knúts Simsen Ur bæ í borg grein- ir frá þessu og rannsókn sem var gerð, en í kjölfar hennar var Nóa- kotslindinni lokað. Hjólkoppur tapaðist Hjólkoppur af amerískum jeppa tapaðist á leiðinni f Bláfjöll sl. sunnudag. Skilvís finnandi vin- samlegast hringi í síma 73594. Sakna Hljóðbylgjunnar Dagný á Akureyri hringdi: Éger nyög óánægð meðaðþað skuli vera búið að taka af okkur Hljóðbylgjuna. Það var með ein- dæmum góð útvarpsstöð. Þá finnst mér fréttþátturinn 19:19 á Stöð 2 vera orðinn leiðin- legur eftir að Valgerður og Helgi Pé hættu í honum. Ég var vön að horfa alltaf á hann, en er nú alveg hætt því. Mér finnst þetta afturför hjá Stöð 2. Ólafur vel að kjörinu kominn Gunnar H. Valdimarsson hringdi: Ásgeir Jakobsson skrifar mjög viturlega grein um biskupskjörið í Morgunblaðið á miðvikudag. Mig langar að láta það álit mitt í ljós að séra Ólafur Skúlason, að öllum öðmm ólöstuðum sem vom í fram- boði, er lang heppilegasti maður- inn í stöðuna. Hann er bæði lítillátur og góðviljaður. Ég þekki hann ekki persónulega, en þekki til hans. Ég er búinn að vera við nokkrar athafnir hjá honum og fínnst þær allar frábærar. Hann vex alltaf í áliti. Ólafur hlaut kosn- ingu vegna yfirgnæfandi mann- kosta sinna. Penni tapaðist Gylltur penni, áritaður Karl Gíslason, tapaðist á Hótel íslandi laugardaginn 1. apríl. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 52116 eða 45605. Enjgin vandræði í Ölduselsskóla Jón H. Björnsson hríngdi: Ég stend í sömu spomm og Böðvar Magnússon sem skrifar í Velvakanda á miðvikudag. Ég flutti í Seljahverfi fyrir ári og sonur minn 14 ára byijaði í Öldus- elsskóla í haust. Ég var hálf hik- andi við að setja hann í skólann út af látunum sl. vor en gerði það þó. Þegar blaðaskrif hófust að nýju um málið fór ég að inna son minn eftir því hvort hann hefði orðið var við einhver leiðindi í skólanum, en hann kvað svo ekki vera. Mér finnst kennaramir þá fara ansi vel með þetta. Ég hef heldur aldrei heyrt um neitt for- eldrafélag. Aðför að öldruðum Til Velvakanda. Þegar hinn illræmdi matar- skattur var álagður þá fylgdi því sá eini ljósi punktur, að bæði bama- og tryggingabætur vom hækkaðar allveralega frá því sem að áður var. í sumar var komið á bæði launa- og verðstöðvun, sem flestir virtu aðrir en ríkið. Gengi krón- unnar var fellt trekk í trekk og verðhækkanir leyfðar bæði á vöm og þjónustu. Allt þetta máttu styrk- og laun- þegar þola alveg bótalaust. Loks rann hann upp þessi lang- þráði bjórdagur 1. mars og þá skyldi allt misræmið leiðrétt. Heldur varð nú rausnin lítil á þeim bæ. Flestum sem komnir era yfír starfsaldur er greiddur lífeyrir frá Tryggingastofnun. Ég er einn þeirra sem hef fullan lífeyri og tekjutryggingu. Samtals var greiðsla til mín í febrúar kr. 27.197. í mars var greiðslan kr. 27.539. Hækkun milli mánuða var því kr. 342. Á ársgrundvelli gerir hækkun þessi kr. 4.104. Hækkun afnotagjalds sjónvarps úr kr. 13.400 árið 1988 í kr. 18.000 núna verður fyrir heilt ár kr. 4.600. Auknar tryggingabætur hrökkva ekki einu sinni fyrir hækkun afnotagjalda, tæpar kr. 500 vantar uppá að svo sé. Ekki eyrir umfram uppí alla hækkun á matvöm, þjónustu o.fl. Með öðmm orðum enginn ljós punktur lengur. Tekju- og launamisrétti hefur ver- ið að aukast ár frá ári og aldrei verið meira en núna. Menn vonuðu að nú væm þeir sestir að völdum, sem að þetta myndu lagfæra, en sú von brást. Lífeyrisþegar láglauna og lág- telq'umenn mega herða sultaró- lina. Það er engu líkara en að stjóm jafnréttis og félagshyggju hafí tapað áttum og villst af leið. Sigurður Loftsson Samtðk im veshæna samvinnu og Varftberg minna félagsmenn á ráðstefnuna vegna 40 ára afmælis Atlants- hafsbandalagsins á Hótel Sögu á morgun kl. 10.30. Bestu þakkir fœri ég öllum, sem glöddu mig meÖ heimsóknum, hlýjum kveöjum og ágœtum gjöfum á 80 ára afmœli mínu 27. mars sl. LijiÖ heil. Leó Guðlaugsson. Seljum í dag og næstu daga nokkur lítiUega útlitsgölluð GRAM tæki 3jcl með góðum afslætti. ára ábyrgð GÓÐIR SKILMÁLAR TRAUST ÞJÓNUSTA /rOniX HÁTÚNI 6A REYKJAVÍK SÍMI (91)-24420 Þ £ R A Ð EFNINU í 2000 ORÐUM. RITGERÐARSAMKEPPNI Þú átt kost á því að hreppa ferð fyrir tvo til Lundúna _ í ritgerðarsamkeppni STEFNIS, tímarits Sambands ungra sjálfstæðismanna. Eina, sem þú þarft að gera, er að senda á neðangreint póstfang ritgerð í kringum 2000 orð undir dulnefni, með öðru umslagi þar sem rétt nafn og heimilisfang er tilgreint. Áhersla skal lögð á nýjar hugmyndir í stjórn- málum, menningarmálum o.fl. Þátttakendur skulu vera á aldrinum 16-25 ára. Nánari upplýsingar hjá SUS í síma 91-82900. Skilafrestur er 1. júlí. STEFNIR, ritgerðarsamkeppni, Háaleitisbraut 1, 105 Reykjavík Ræðumenn: Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og Arnór Sigurjónsson, varnarmálafulltrúi. Síðan verða pallborðsumræður undir stjórn Björns Bjarnasonar, aðstoðarritstjóra, með þátttöku ræðumanna, ásamt Alberti Jóns- syni starfsmanni öryggismálanefndar. Metsölublað á hverjum degi!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.