Morgunblaðið - 07.04.1989, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1989
5
Landssöftiun Lionshreyfíngarinnar:
Léttum þeim lífið
Sala á rauðu fiöðrinni hefst í dag
í dag hefst landssöfnun Lionshreyfingarinnar, en næstu þrjá daga
munu um 8.400 félagar í Lionshreyfingunni selja rauðar fjaðrir til
styrktar byggingu vistheimilis að Reykjalundi fyrir Qölfatlaða ein-
staklinga, en yfirskrift söfnunarinnar er: „Léttum þeim lífið.“
Þetta er í fimmta sinn sem Lions-
hreyfingin á íslandi stendur fyrir
landssöfnun með sölu Rauðu fjaðr-
arinnar. Fyrsta söfnunin var árið
1972, en þá var safnað fyrir augn-
lækningatækjum sem notuð eru á
Landakotsspítala. Árið 1976 var
safnað fyrir tannlækningabúnaði
fyrir þroskahefta, og árið 1980 var
safnað fyrir skurðtækjum til eyrna:
lækninga við Borgarspítalann. í
fjórðu söfnuninni árið 1985 var
safnað fyrir línuhraðli, sem komið
hefur verið fyrir í 1. áfanga K-
byggingar Landspítalans, en í þeirri
söfnun nam heildarsalan um 15
milljónum króna.
Vinna við hönnun vistheimilisins
fyrir fjölfatlaða sem reisa á að Rey-
kjalundi er þegar hafin, en gert er
ráð fyrir að framkvæmdir við bygg-
inguna hefjist nú í vor. Um er að
ræða 300 fermetra byggingu sem
ætluð er fyrir 5-6 einstaklinga. Öll
aðstaða sem þegar er fyrir hendi á
Reykjalundi mun standa þessum
einstaklingum til boða, en þar er
meðal annars um að ræða öflugar
þjálfunardeildir, nýja sjúkraþjálfun-
arbyggingu og iðjuþjálfun.
Um 3.400 Lionsmenn í 101
klúbbi munu nú um helgina ganga
í hús um allt land og bjóða lands-
mönnum rauða fjöður til kaups, en
auk rauðu ijaðranna verðaa einnig
seldar sérstakar borðmiðaöskjur og
bréfapressur í formi glerhúss með
rauðri fjöður, sem er tákn fyrir vist-
heimilið. Markmið Lionsmanna er
að allir landsmenn beri rauða fjöður
um þessa helgi.
Hásingum og
dekkjum stolið
undanjeppa
BÁÐUM hásingum og Qórum
„Mudder“-hjólbörðum á felgum
var stolið undan grænum Willy’s
jeppa á afleggjaranum að skíða-
skála Víkings við Hamragil, að-
faranótt miðvikudagsins að talið
er.
Jeppinn hafði staðið við veginn í
um það bil tvær vikur, meðan eigand-
inn var erlendis, en í gærmorgun
varð þess vart að búið var að taka
undan honum hásingamar og dekk-
in. Einnig hafði verið reynt að stela
mælaborðinu úr bílnum. Talið er að
þeir sem þarna voru að verki hafi
athafnað sig í skjóli nætur. Lögregl-
an á Selfossi rannsakar nú málið og
eru þeir, sem kunna að búa yfir gagn-
legum upplýsingum um þjófnað
þennan, beðnir að láta hana vita.
útlitsgallaða kæli- og frystiskápa
með verulegum afslætti!
Vörumarkaðurinn
KRINGLUNNI SÍMI 68^40
Fallegur sumarfatnaöur kvenna í ótrúlegu úrvali. Mjög gott verö.
yHIKLlG4RDUR
MARKAÐUR VIÐ SUND
'A KAUPSTAÐUR
IMJÓDD