Morgunblaðið - 07.04.1989, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDÁGUR 7. APRÍL 1989
Hundrað milljóna-
mærinffar í lottó
Bolungarvík. ^ *
ÞAÐ var ekki fyrr en fjórum dögum eftir að tölumar voru dregnar
út að ég uppgötvaði að ég hafði hreppt milljónavinning í lottóinu,
sagði Guðmunda Sævarsdóttir verkakona sem sl. laugardag hlaut
lottóvinning að upphæð krónur 3.020.360.00 og var þar með eitt
hundraðasti vinningshafi lottósins sem hreppir meira en milljón í
vrnnrng.
Guðmunda sem er einstæð móðir
býr hér í Bolungarvík ásamt tveim-
ur dætrum sínum, þeim Hrund 12
ára og Brynju Ruth 9 ára. Hún
sagði að engin sérstök ástæða hefði
verið fyrir því að hún keypti lottó-
miða þennan dag, hún keypti miða
í lottóinu annað slagið og ekkert
reglubundið.
Þetta var allt svo ótrúlegt, sagði
Guðmunda, ég skrifaði niður töl-
umar þama um kvöldið sem dregið
var, en fór ekkert yfír miðann sem
var geymdur upp í skáp.
Það kom svo í blöðunum eftir
helgina að einn af fjórum með fímm
rétta hefði keypt miða hér í Bolung-
arvík og það hvarflaði ekki að mér
að það gæti verið ég.
Guðmunda sagði að þau hefðu
verið að velta því fyrir sér í vinn-
unni hver hefði fengið þessar millj-
ónir.
”Ég sagði einmitt þá í gríni að
ég hefði ábyggilega fengið milljón-
imar ég ætti bara eftir að gá á
miðann. Það var svo á miðvikudags-
kvöldið, sagði Guðmunda, að það
komu til okkar gestir og enn ber
lottóvinninginn á góma, þá segir
Biynja dóttir mín að hún sé búin
að gá á miðann og þar séu tölumar
allar fímm í einni röð.
Ég trúði henni ekki fyrst en svo
var miðinn loks sóttur og það var
ekki um að villast, samt trúði ég
þessu ekki fyrr en ég hafði farið
niður á sölustað lottósins daginn
eftir og fengið þetta staðfest," sagði
Guðmunda.
Er fréttaritari Morgunblaðsins
heimsótti hina lukkulegu fjölskyldu
hafði fyrir stuttu verið hringt frá
íslenskri getspá þeirra erinda að
bjóða vinningshafanum til höfuð-
borgarinnar til að taka formlega
við vinningnum og kynnast starf-
semi lottósins.
Brynja Ruth sagði að þau ætluðu
kannski að fara ef mamma fengi
frí í vinnunni og spenningurinn var
greinilega mikiil.
Guðmunda sagðist ekkert vera
farin að hugsa um það hveiju þessi
vinningur breytti hennar högum,
en þetta kemur sér óneitanlega
mjög vel, sagði hin lukkulegi vinn-
ingshafí, Guðmunda Sævarsdóttir
að lokum.
- Gunnar
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Guðmunda Sævarsdóttir ásamt dætrum sínum, þeim Hrund og
Brynju Ruth.
Vestmannaeyjar:
Þórunn Sveinsdóttir
komin yfir 1000 tonnin
Vestmannaeyjum.
Þórunn Sveinsdóttir VE er nú
afiahæst Eyjabáta á vertíðinni. í
fyrrakvöld lönduðu strákamir á
Þórunni 50 tonnum og voru með
þvi búnir að koma með yfir 1000
tonn að landi á vertíðinni.
Það var létt yfír Siguijóni Óskars-
syni skipstjóra og áhöfn hans þegar
að löndun var lokið í fyrrakvöld. í
borðsalnum biðu flennistórar ijómat-
ertur og ölkassi eftir mannskapnum.
Voru strákamir fljótir að renna því
niður enda lystin góð eftir átök dags-
ins.
Þórunn hefur aflað geysilega vel
að undanfömu og síðan páskastopp-
inu lauk, fyrir einni viku, hafa þeir
landað 270 tonnum af þorski. Er
Þórunn nú hæst vertíðarbáta yfir
landið búin að landa 1010 tonnum á
vertíðinni.
í gærkvöldi var Þórunn að draga
netin og sagði Siguijón skipstjóri að
þeir væru búnir að fá 30 tonn en
ættu eftir að draga eina trossu.
Hann sagði að það væri búið að vera
algjört mok síðustu dagana en eítt-
hvað minna hefði verið að hafa í
gær. „Við erum með netin á tveimur
stöðum og það klikkaði alveg annar
staðurinn í dag,“ sagði Siguijón.
Siguijón sagði að þeir ættu enn
talsverðan kvóta eftir svo að kvóta-
leysi myndi ekki há þeim strax.
Ekki var von á Þómnni til Eyja í
gærkvöldi því afíanum ætlaði Sigur-
jón að landa í Þorlákshöfn.
Grimur
AF INNLENDUM
VETTVANGI
AGNES BRAGADÓTTIR
Birna Þórðardóttir: „Ekki sig-
ur í mínum augum.“
Ólafur Ragnar Grímsson: „Nið-
urstöður fundarins mjög já-
kvæðar.“
Álflieiður Ingadóttir: „Tel nið-
urstöðu miðstjórnar ranga.“
Miðstjórnarfundur Alþýðubandalagsins:
Aðförin að formanninum
fór að mestu út um þúfiir
ÞRÁTT fyrir harða gangrýni
ýmissa miðstjómarmanna Al-
þýðubandalagsins á störf og
stefiiu Alþýðubandalagsins i nú-
vemadi stjómarsamstarfi, á
fundi miðstjórnarinnar i fyrra-
kvöld, era flestir þeirrar skoð-
unar að Ólafur Ragnar
Grimsson, formaður flokksins
og Qármálaráðherra hafi staðið
af sér aðfarimar með þeim
hætti, að hans staða sem form-
anns sé sterkari eftir fundinn,
en áður.
Fundurinn stóð til kl. 03 um
nóttina og tóku mjög margir til
máls. Þejr þingmenn Alþýðubanda-
lagsins sem Morgunblaðið ræddi
við í gær virtust á einu máli um
að Ólafur Ragnar hefði styrkt stöðu
sína á fundinum. „Þetta var svo
sem ágætur fundur. Það var þama
einhver smáhópur sem vildi fá sam-
þykkta einhveija öfgakjaramálatil-
lögu, en það náði ekki fram að
ganga. Mér fannst það vægast
sagt einkennilegt að beina öllum
atlögunum beint gegn formannin-
um, en ekki öllum ráðherrunum,
þvi ef þeir eru sekir um eitthvað,
þá eru þeir allir samsekir," sagði
Guðrún Helgadóttir, forseti sam-
einaðs þings. Hún kvaðst telja að
ráðherrar flokksins hefðu styrkt
stöðu sína á þessum fundi, sérstak-
lega formaðurinn og í sama streng
tóku þingmennimir Skúli Alexand-
ersson og Geir Gunnarsson. Skúli
kvaðst þó telja að ráðherramir
hafí gert sér grein fyrir því á þess-
um fundi, að þeir ættu að leyfa
flokksmönnum að fylgjast svolítið
með því sem þeir væru að gera.
Ólafur Ragnar sagðist í samtali
við Morgunblaðið vera mjög
ánægður með þennan fund og nið-
urstöðu hans. „Ég var mjög ánægð-
ur, bæði með umræðumar sjálfar
og niðurstöður fundarins, sem ég
tel hafa verið mjög jákvæðar,"
sagði Ólafur Ragnar.
Stuðningsmenn Ólafs Ragnars
telja að þeir sem harðast gengu
fram á fundinum gegn formannin-
um, svo sem Álfheiður Ingadóttir,
Sigríður Stefánsdóttir, Ragnar
Stefánsson og Bima Þórðardóttir
hafí borið skarðan hlut frá borði.
Þau hafi mætt með mjög harðorða
tillögu, sem hafí falið í sér miklar
árásir á ríkisstjómina og störf fjár-
málaráðherra, en tillagan hafí hlot-
ið mikla útvötnun í meðfömm fund-
armanna, þannig að tillagan sem
borin var undir atkvæði og sam-
þykkt með öllum þorra atkvæða
hafi ekki verið annað en árétting
á stefnu Alþýðubandalagsins í
kjaramálum, en allar fordæmingar
á lqarastefnu ríkisstjómarinnar
hafí verið felldar út úr tillögunni
og annarri tillögu, um fordæmingu
á ákvörðun íjármálaráðherra að
greiða BHMR-félögum aðeins laun
fram að verkfalli, hafí einfaldlega
verið vísað frá.
Ásmundur Stefánsson, forseti
ASÍ var einn þeirra sem gagnrýndi
störf og steftiu ríkisstjómarinnar
og þátt Alþýðubandalagsins þar.
Taldi hann að mikið hefði skort á
að ráðherrar og þingflokkur gættu
að þvf hver hugur flokksmanna
væri, einkum þeirra sem frá upp-
hafí hefðu verið andvígir stjómar-
þátttöku Alþýðubandalagsins. „Ég
hef engar aðstæður til þess að
leggja dóm á niðurstöður fundar-
ins, því ég vék af fundi hálfum
öðrum tíma áður en honum lauk,“
sagði Ásmundur í samtali við
Morgunblaðið. „Það sem kom fram
á meðan ég sat fundinn, var mjög
megn óánægja með stjómarstarfíð
og innra starf flokksins," sagði
Asmundur jafnframt.
Álfheiður Ingadóttir, sem talaði
mjög ákveðið gegn formanninum á
fundinum sagði í samtali við Morg-
unblaðið að hún teldi fundinn hafa
verið mjög góðan, „en hann hefði
betur verið haldinn fyrr, því ráð-
herrar og þingflokkur verða auðvit-
að að gæta sín á því að hlusta á
og taka tillit til þeirra sjónarmiða
sem flokkurinn hefur - fólkið í
flokknum og stofnanir flokksins,"
sagði Álfheiður.
Álfheiður kvaðst telja að ef
svona fundur hefði verið haldinn
fyrr, þá hefði mátt komast hjá því
sem hún nefndi pólitísk mistök og
staða flokksins í dag gagnvart al-
menningi væri önnur og betri.
Álfheiður sagðist alls ekki líta
þannig á að fundarboðendur hefðu
lotið í lægra haldi á fundinum
gagnvart formanninum. „Menn
geta túlkað þetta eins og þeim sýn-
ist, en þessi fundur var ekki boðað-
ur til þess að gera einhveija atlögu
að Ólafí Ragnari Grímssyni. Það
er mesti misskilningur," sagði Álf-
heiður. Hún viðurkenndi þó að öll
sú gagnrýni sem beindist að ríkis-
stjóminni og stefnu hennar (kjara-
málum hefði verið felld út úr upp-
runalegu tillögunni um ályktun í
kjaramálum. Launastefna fjár-
málaráðuneytisins hefði verið
gagnrýnd mjög harðlega á fundin-
um, þó að miðstjómin hafí komist
að þeirri niðurstöðu, að það væri
ekki taktískt rétt að senda slíka
gagnrýni frá sér í ályktun. „Ég tel
þá niðurstöðu vera ranga," sagði
Álfheiður.
Bima Þórðardóttir tók í sama
streng og Álfheiður og kvaðst telja
það afar hæpið að túlka niðurstöð-
ur fundarins sem sigur Ólafs Ragn-
ars Grímssonar. Hann og stefna
ríkisstjómarinnar í kjaramálum
hafí verið harðlega gagnrýnd vam-
arlítið á fundinum. „Það er ekki
sigur í mínum augum, þó að niður-
staðan hafí verið á þann friðsam-
lega hátt, að álykta ekki gegn ríkis-
stjóminni á harðorðan hátt," sagði
Bima.
Þúsund tonnunum fagnað, frá vinstri Sigurjón Óskarsson, skip-
stjóri, Þórarinn Ingi Ólafsson, 1. stýrimaður, og Matthías Sveinsson,
Steinar hf. kaupa Takt
STEINAR h/f hafa keypt hljóm-
plöíuútgáfuna Takt.sem átti öll
utgáfuréttindi á hljómplötum
sem gefiiar hafa verið út á merkj-
um Fálkans, íslenskra tóna og
SG-hljómpIatna. Steinar Berg
ísleifsson forstjóri Steina segir
um sé að ræða útgáfurétt að obba
þess efiiis sem hér var gefið út
á hljómplötum frá upphafí og
fram til síðari hluta síðasta ára-
tugar. Steinar segir að fyrirtæki
hans eigi nú útgáfuréttindi fyrir
níelra’ en áhnáð hVert W á'em
leikið er í Rikisútvarpinu, sé mið-
að við höfundaréttarskýrslur
stofiiunarinnar.
Steinar Berg ísleifsson vildi ekki
tjá sig um kaupverð samningsins.
Hann sagði að eftirleiðis muni Stein-
ar h/f annast rekstur hljomplötu-
verslunar Takts við Laugaveg 24,
þar sem áður var um áratugaskeið
verslun Fálkans. Taktur mun eftir
sem áður reka hljómtækjaversluní
Ármúla þar sem einnig verður lögð
áherslá á sölu geisladiska.
Steinar Berg ísleifsson sagði
samningnum fylgdi stór lager og
höfundarréttur að þúsundum plötu-
titla að ræða og að framundan
væri mikil vinna við að tryggja varð-
veislu efnisins, sem væri í misgóðu
ástandi. Hann sagðist hyggja á end-
urútgáfu mikils af gömlu og ófáan-
legu efni og að haldið yrði áfram
útgáfu sem Taktur hefur staðið fyr-
ir að undanfömu, til dæmis með
útgáfu geisladiska með lögum
Hljóma og Haufo Mprthens.^ 11