Morgunblaðið - 07.04.1989, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1989
21
Sjálfstæðismál Færeyinga:
Viljum aukna ábyrgð
á eigin efiiahagsmálum
- segir Jogvan Sundstein lögmaður
um stefhu nýju landsljórnarinnar
JOGVAN Sundstein, lögmaður Færeyja, segist vera lítt hrifinn af
því er danskir fjöliniðlar noti orðið „sambandsslit" er þau Qalli um
auknar sjálfstæðiskröfur Færeyinga. Ljóst sé að lokatakmark margra
færeyskra stjórnmálaflokka, þ. á m. hans eigin flokks, sé sjálfstæði
landsins og einn núverandi stjórnarflokka, Þjóðveldisflokkurinn, vilji
beinlinis stofiia feereyskt lýðveldi. Sundstein segir að það mál sem
hljóti að yfirskyggja öll önnur í færeyskum stjómmálum núna sé eftia-
hagsástandið og ákveðnar tillögur landsljórnarinnar sem beinast að
því að Færeyingar taki í sínar hendur ýmis mál er nú em undir stjórn
Dana.
Sundstein segir þessar tillögur
ekki síst hafa að markmiði að auka
ábyrgð Færeyinga sjálfra á efna-
hagsmálum sínum.
„Danska stjómin hefur um ára-
tuga skeið greitt ákveðinn hundraðs-
hluta, oft 50%, af vissum útgjaldalið-
um landstjómarinnar til félagsmála.
Á síðasta ári var veralegum hluta
þessara útgjaldaliða slegið saman í
einn og þannig varð til svonefnt
„bloktilskud" (heildarfjárveiting)
sem landstjórnin fær til sjálfstæðrar
ráðstöfunar. Stuðningur danskra
stjórnvalda nam á síðasta ári saman-
lagt 750 - 800 milljónum d.kr. (5.400
- 5.800 milljónum ísl.kr.) og hefur
aðstoðin farið hækkandi undanfarin
ár. Fjárhæðin svarar til liðlega
fimmtungs allra útgjalda landstjórn-
arinnar."
Sundstein sagðist hafa varpað
fram þeirri hugmynd að íjárstuðn-
ingnum yrði smám saman hætt, t.d.
á 10 - 20 ára tímabili, þar sem lands-
menn yrðu seint færir um að sýna
ábyrgðartilfinningu í ríkisíjármálum
meðan fólk vissi að það gæti ávallt
treyst á sívaxandi ijárhagsaðstoð frá
stjómvöldum í Kaupmannahöfn.
Skammtímamarkmið landstjómar-
innar væri að fjárstuðningur dan-
skra stjórnvalda yrði fyrst í stað
frystur og síðar lækkaður og sjálfs-
forræði aukið veralega ásamt þeirri
ábyrgð er því fylgdi. Grípa yrði til
róttækra aðgerða gegn hrikalegum
skuldum landsins erlendis þegar í
Minnisvarði um
ógnirHitlers
Þess var minnst á föstudag í fæðingarbæ
Adolfs Hitlers, Braunau-am-Inn í Austurríki,
að eitt hundrað ár era liðin frá fæðingu ein-
ræðisherrans. Reistur var minnisvarði fyrir
utan húsið þar sem hann fæddist 20. apríl
1889. Fáir vora viðstaddir þegar minnisvarð-
inn, sem er granítsteinn frá Mathausen-
fangabúðunum í Austurríki, var afhjúpaður.
Á honum er áletrunin: „Friður, frelsi og lýð-
ræði. Endalok fasismans. Milljónir fórnar-
lamba era áminning til okkar.“
dönsku stjórnmálamennirnir, sem
þora að setja sig upp á móti þeim,
enda era baráttumál þeirra flestra
vel undirbúin og grandvölluð. Sem
dæmi má nefna dönsku náttúra-
vemdarsamtökin, sem era lang-
stærst með 270.000 manns á bak
við sig.
Á skrifstofu þeirra við Strikið í
Kaupmannahöfn era margir sérfróð-
ir menn og vel menntaðir lögfræð-
ingar, sem kanna hvert mál ofan í
kjölinn áður en lagt er til atlögu.
Hafa þeir það að einkunnarorðum
að vera meira en 100% vissir í sinni
sök. Samt óttast þeir, að umræðan
um grænfriðunga muni gera þeim
erfitt fyrir og svo er einnig um for-
ystumenn annarra umhverfisvernd-
arsamtaka.
Fleira kemur þó til, sem veldur
því, að danskir umhverfisverndar-
menn standa á nokkram tímamót-
um. Nú er verið að setja ný um-
hverfisverndarlög, sem eiga að ein-
falda núgildandi lög, auðvelda al-
menningi að koma kvörtunum á
framfæri og þrengja kosti fyrir-
tækja, sem valda mengun, en svo
undarlegt, sem það er, þá hafa flest
umhverfísvemdarsamtökin snúist
gegn nýju lagasetningunni. Myndir
af fiski, sem drepist hefur vegna
mengunar, og aðrar slíkar hafa hing-
að til gefið umhverfisvemdarsam-
tökum byr undir báða vængi en í
nýju lögunum er ekki tekið mark á
auglýsinga- og áróðursspjöldunum
einum saman. Það þarf meira að
koma til. Það krefst aftur meiri
vinnu og fyrirhafnar.
Eins og fyrr segir era danskir
stjórnmálamenn hlynntir umhverfis-
vemdarsamtökunum og Lone Dyb-
kjær umhverfismálaráðherra hefur
haft mikið samstarf við þau. Samt
hefur hún séð ástæðu til að benda
þeim á, að þau hafa engan einka-
rétt á umhverfis- og náttúrvernd.
„Það er vandamál með sum þessara
félaga, að þau sjá málin aðeins frá
einni hlið,“ segir hún.
Frá Þórshöfii. Jogvan Sundstein,
lögmaður Færeyja, segir nýju
landstjórnina staðráðna í að grípa
til róttækra aðgerða gegn er-
lendri skuldasöftiun.
stað og útrýma viðskiptahallanum.
Sundstein sagði að þótt lokatak-
mark flokks síns væri „fullt sjálfs-
forræði" þá teldi hann að það tak-
mark væri enn fjarri. Ýmis atriði,
er algert sjálfstæði hefði í för með
sér, s.s. sjálfstæð utanríkisstefna,
hefðu lítt verið rædd. Þess mætti
þó geta að þorri Færeyinga væri
hlynntur samtarfi við Atlantshafs-
bandalagið (NATO) og málið væri
ekki til umræðu í núverandi sam-
steypustjóm þótt Þjóðveldisflokkur-
inn, einn stjórnarflokkanna, væri
andvígur Atlantshafsbandalaginu.
Færeyingar ættu nú sjálfir í samn-
ingaviðræðum um viðskipti við Evr-
ópubandalagið (EB) sem þeir óskuðu
ekki að ganga í þótt Danir væra þar
innanborðs. Sundstein sagðist hafa
rætt lauslega við Thorvald Stolten-
berg, utanríkisráðherra Noregs og
núverandi forseta ráðherranefndar
EFTA, um mögulega aðild Færey-
inga að Fríverslunarsamtökum Evr-
ópu (EFTA). Þótt þar væra ýmis
ljón í veginum kæmi til greina að
auka tengsl Færeyinga við samtökin
og málið yrði rætt frekar á næst-
unni. Lögmaðurinn tók skýrt fram
að landstjórnin í heild hefði ekki
tekið neina afstöðu til mögulegrar
aðildar Færeyja að EFTA.
Mengunarslysið í Alaska:
Umhverfisspjöllin gífurleg
og afkomu sjómanna ógnað
Síldveiðar bannaðar og óvíst hvort laxaseiðum verður sleppt
ENN er ekki vitað hvort laxveiðar verða heimilaðar í ár við Prins
William-sund í Alaska en lífríkið á þessum slóðurn hefur orðið fyr-
ir miklum spjöllum af völdum olíulekans úr olíuskipinu Exxon
Valdez sem strandaði þar þann 26. mars síðastliðinn. Áformað hafði
verið að sleppa rúmlega 625 miHjónum laxaseiða við Prins William-
sund í þessum mánuði og hinum næsta, að sögn Johns van Amerong-
ens, ritsljóra tímaritsins AJaska Fishermen’s Journal, en vegna olíu-
lekans er hugsanlegt að það verði látið ógert.
Síldveiðar hafa þegar verið
bannaðar í ár við Prins William-
sund og hafa stjórnvöld ákveðið
að bæta sjómönnum tjónið. Á
síðasta ári var aflinn um 10.000
tonn og verðmæti hans rúmar 11
milljónir Bandaríkjadala (rúmar
580 milljónir ísl. kr.). Áætlað hafði
verið að tekjumar yrðu um 15
milljónir dala (tæpar 800 milljónir
ísl. kr.) í ár.
„Menn hafa miklar áhyggjur af
seiðaeldinu og hætt er við að sala
á Alaska-laxi gangi erfiðlega þar
eð almenningur kann að setja allan
fisk sem þaðan berst á markaðinn
undir sama hatt og telja hann
mengaðan," sagði John van Amer-
ongen í viðtali við Morgunblaðið.
Sagði hann ógerlegt að leggja mat
á tjónið þar eð enn væri ekki ljóst
hvort laxaseiðum yrði sleppt eða
hvort veiðar yrðu bannaðar. „Áætl-
að hefur verið að seiðaeldið í Al-
aska skili um 50 milljónum dala
(um 2,6 milljörðum ísl. kr.) í vasa
sjómanna en villtir laxastofnar era
einnig nýttir og því miður er það
svo að lítið er hægt að gera til að
vernda þá þannig að viðleitni
manna hefur einkum beinst að því
að bjarga seiðaeldisstöðvunum.
Afleiðingar mengunarslyssins eiga
eftir að verða víðtækar. Svo kann
að fara að mengunin nái til fleiri
seiðaeldisstöðva ekki síst ef vind-
áttin breytist snögglega en alls
hafði verið áætlað að sleppa tæp-
lega 626 milljónum seiða við Prins
William-sund,“ sagði van Amer-
ongen og bætti við að erfiðlega
hefði gengið að hefta útbreiðslu
olíunnar.
Olíubrákin nær nú yfír rúmlega
2.600 ferkílómetra stórt svæði og
óttast sérfræðingar að lífríkið hafi
orðið fyrir óbætaniegu tjóni.
Fugladauði hefur verið gífurlegur
en um 10 milljónir gallona af olíu
láku úr skipinu. Olíubrákin er
óvenju þykk og telja náttúrafræð-
ingar það mikið áhyggjuefni þar
sem rokgjörn eiturefni svo sem
bensen gufa ekki upp af þessum
sökum. Því aukast stöðugt líkurnar
á því að eiturefni komist inn í
fæðukeðjuna sem kann að hafa
ógnvænlegar afleiðingar fyrir allt
dýralíf á þessum slóðum.
Reuter
Dráttarbátur dregur Exxon Valdez af strandstað. Talið er að það
muni kosta 100 til 200 milljónir Bandarikjadala (5,2 til rúma 10
milljarða ísl. kr.) að hreinsa upp olíuna sem lak úr tönkum skipsins
og að það verk geti tekið þrjú ár. Rikisstjóri Alaska hefur farið
fram á að Strandgæsla Bandaríkjanna stjórni verkinu.
Costa Rica:
Arias gagnrýnir Gorbatsjov
Washington. Reuter.
OSCAR Arias, forseti Costa
Rica, sagði á miðvikudag, að
Míkhaíl Gorbatsjov, leiðtogi Sov-
étríkjanna, hefði ekki gengið
nógu langt í yfirlýsingum sinum
í Kúbuheimsókninni um frið í
Mið-Ameríku.
Á blaðamannafundi í fyrradag
kvaðst Arias hafa orðið fyrir von-
brigðum með yfirlýsingar Gor-
batsjovs og sagðist meðal annars
sakna þess, að hann hefði ekki
minnst á minni stuðning við skæra-
liða í E1 Salvador. í ræðu sinni í
Havanna sagði Gorbatsjov, að
Moskvustjórnin væri reiðubúin að
hætta hernaðarstuðningi við Nic-
araguastjórn hætti Bandaríkjastjórn
að styðja bandamenn sína í Mið-
Ameríku en Arias sagði, að þessi
yfirlýsing væri alls ófullnægjandi.
„Það var ekki minnst á skærulið-
ana í E1 Salvador,“ sagði Arias.
„Hvaðan fá þeir vopn? Ekki af himn-
um ofan. Eg hefði hins vegar gjam-
an viljað heyra Gorbatsjov og Castro
Kúbuleiðtoga minnast á þá.“
S í M I 1 7 7 5 9
Síldarvagninn
+ B-matseðill
alla virka daga
VESTURGÖTU 10, 101 REYKJAVÍK
iMM
2486.-kr.
sparnadur*
* með Dulux El sparnaðar
perunni.
Til dæmis Dulux El 15w
• Sparar 2486 kr. í orkukostnaði
miðað við orkuverð Rafmagns-
veitu Reykjavíkur 5,18 kr/kw.st.
• Áttföld ending miðað við venju-
lega glóperu.