Morgunblaðið - 07.04.1989, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1989
„Við kynnt-
umst fyrst
í Keflavík“
LEIKFÉLAG Keflavíkur frum-
sýnir í kvöld revíuna Við kynnt-
umst fyrst í Keflavik. Höfundur
er Ómar Jóhannsson og leikstóri
Hulda Ólafsdóttir. Revían er í 5
þáttum sem tengdir eru saman
af sögumanni og er í þeim stikl-
að á lífinu í Keflavík á 40 ára
tímabili, fi-á árinu 1949 til 1989.
Þetta er stærsta verkið sem
Ómar hefur skrifað til þessa, en
hann hefur fengist nokkuð við
að skrifa styttri þætti og gaman-
mál með góðum árangri.
í revíunni Við kynntumst fyrst
í Keflavík koma fram um 20 leikar-
ar og 4 manna hljómsveit ungra
og efnilegra hljómlistamanna.
Sýningar verða í Félagsbíó og
verður frumsýningin í kvöld eins
og áður sagði og hefst hún kl.
20.30. Á sunnudag verða síðan
tvær sýningar, kl. 17.00 og 20.30
og á þriðjudaginn verður svo fjórða
sýning og hefst hún kl. 20.30.
BB
Lesin þýsk ljóð
FJÖGUR v-þýsk ljóðskáld lesa
úr eigin verkum á samkomu á
vegum Goethe- stofnunarinnar
og Máls og menningar í Norræna
húsinu á morgun, laugardag kl.
14. Skáldin eru stödd hér á landi
vegna útkomu bókarinnar „Og
trén brunnu", sem er safii þý-
skra nútimaijóða, er Mál og
menning gefiir út. Wolfgang
Schiflfer ritstýrði þ'óðasafiiinu í
samvinnu við Franz Gíslason, og
kemur hann einnig hingað til
lands af þessu tilefiú.
Þýsku skáldin sem um ræðir eru
þau Ulla Hahn, Jurgen Becker,
Guntram Vesper og Gunter Kun-
ert, en auk þeirra munu nokkrir
þýðenda ljóðanna lesa upp á sam-
komunni í Norræna húsinu.
Þýðendur ljóðanna eru Arthúr
Björgvin Bollason, Eysteinn Þor-
valdsson, Franz Gíslason, Guð-
bergur Bergsson, Hannes Péturs-
son, Kristján Ámason, Pétur Gunn-
arsson, Sigfús Daðason, Sigurður
A. Magnússon og Steinunn Sigurð-
ardóttir.
Leiðrétting
í frétt um áhrif verkfalls hjúk-
runarmenntaðra hjúkrunarfræð-
inga hjá heilsugæslustöðinni á Sel-
tjamamesi, sem birtist á bls. 4 í
Morgunblaðinu í gær, féllu niður
nokkur orð. Vegna þessa er tekið
fram að öll almenn læknisþjónusta
er óbreytt.
Nýlistasafiiiö:
Gjörningar um
helgina
Projektil-hópurinn stendur
fyrir sýningu i Nýlistasafiiinu
sem opnar í kvöld klukkan 19. Á
sýningunni sýna þeir Björn Roth,
Daði Guðbjörnsson, Eggert Ein-
arsson og Omar Stefánsson verk
af ýmsum toga s.s. höggmyndir,
teikningar, málverk i oliu- og
vatnsliti og mónóþrykk. Sérstak-
ir gestir sýningarinnar eru þeir
Jón Gunnar Arnason, Kristján
Guðmundsson og Dieter Roth en
alllangur tími mun liðinn frá því
hann sýndi siðast verk sfn hér-
lendis.
Projektil-hópurinn var stofnaður
árið 1980 og sýndi fyrst á Akur-
eyri. Um helgina mun hópurinn
standa fyrir flutningi geminga í
Nýlistasafninu og koma þar ýmsir
gjömingameistarar fram s.s. Ámi
Ingólfsson, Eggert Einarsson,
Helgi Skj. Friðjónsson, Ómar Stef-
ánsson og Þorri Jóhannsson.
Sýnir í Djúpinu
ULLA Hosford opnar málverka-
sýningu i Djúpinu á morgun,
laugardag, og mun sýningin
standa til 23. apríl.
Ulla Hosford er fædd í Svíþjóð
árið 1944 og hefur hún haldið
flölda einkasýninga, en þetta er í
fyrsta skipti sem hún heldur sýn-
ingu hér á landi.
Tónleikar
Karlakórs
Reykjavíkur
KARLAKÓR Reykjavíkur held-
ur sína árlegu tónleika fyrir
styrktarfélaga og velunnara
kórsins dagana 9., 10., 12. og 15.
april. Tónleikarnir 9. og 15. apríl
heQast klukkan 16 en hinir
klukkan 20.30.
Tónleikamir em haldnir í Lang-
holtskirkju. Söngskráin er fjöl-
breytt að vanda, flutt verða bæði
innlend og erlend lög.
Páll Pampichler Pálsson sem
hefur verið stjómandi kórsins
síðastliðin 24 ár dvelur nú í Graz
í Austurríki. Hann er í ársleyfl frá
störfum hér heima og leggur stund
á tónsmíðar í sínu fyrra föðurlandi.
í hans stað stjóma kómum þau
Catherine Williams, sem er jafn-
framt undirleikari kórsins, og Odd-
ur Bjömsson. Einsöngvari með
kómum að þessu sinni er Kristinn
Sigmundsson óperusöngvari.
(Fréttatilkynning)
Heilbrigðis-
dagurinn í dag
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
hélt upp á 40 ára afinæli sitt á
síðasta ári. Frá upphafi hefur
stofiiunin beitt sér fyrir því að
stofiidags hennar, 7. apríl, hefur
verið minnst sem alþjóðaheil-
brigðisdags undir kjörorði,
tengdu heilbrigðismálum. Að
þessu sinni hefur verið ákveðið
að kjörorð alþjóðaheilbrigðis-
dagsins væri: Fjöllum um heil-
brigði og hreysti.
Nýlega ákváðu Norðurlanda-
þjóðimar að 7. apríl yrði_ einnig
norrænn heilbrigðisdagur. í tilefni
þess hefur Norræni heilsuvemdar-
háskólinn í Gautaborg, sem norður-
landaþjóðimar reka í sameiningu,
stofnað til verðlauna sem veita má
einstaklingi, stofnun eða félaga-
samtökum, sem hafa með starfí
sínu haft áhrif á bætt heilsufar á
Norðurlöndunum. Verðlaunin
verða að þessu sinni veitt tveimur
einstaklingum þeim Leo Kaprío frá
Finnlandi og Peter F. Hjort frá
Noregi.
Sýnir í Nýhöfti
INGIBJÖRG Jónsdóttir opnar
sýningu á lágmyndum i Lista-
salnum Nýhöfii, Hafiaarstræti
18, á morgun kl. 14-16.
Verkin á sýningunni era unnin
á síðustu þremur áram. Þau era
ofín úr bronsþræði, hrosshári og
líni. Einnig notar hún í myndum
sínum plötur úr steini.
Ingibjörg er fædd í Reykjavík
árið 1959. Hún útskrifaðist frá
Myndlista- og handíðaskóla íslands
árið 1980. Arið 1978-79 fór hún
til náms í Mexíkó við Instituto
Nacional de Bellas Artes, þar sem
hún lagði stund á hefðbundin
ii—i ............
skúlptúr og vefnað. Árið 1983—84
var hún svo við framhaldsnám í
Kaupmannahöfri.
Þetta er fyrsta einkasýning Ingi-
bjargar en hún hefur tekið þátt í
samsýningum hér heima og erlend-
is. Hún hefur verið kennari við
Myndlista- og handíðaskólann frá
1986.
Sýningin sem er sölusýning, er
opin virka daga frá klukkan 10—18
og um helgar frá klukkan 14—18.
Henni lýkur 26. apríl.
Tónleikar í
V íðistaðakirkju
MARGRÉT Óð-
insdóttir mezzó-
sópran og
David Knowles
pianóleikad
halda tónleika í
Víðistaðakirkju
í Hafharfirði
Iaugardaginn 8. apríl klukkan 17.
Margrét hóf söngnám í Tónlist-
arskóla Kópavogs árið 1982 og var
kennari hennar þar Ásta Thorsten-
sen. Sl. 4 ár hefur Margrét verið
við nám hjá Sieglinde Kahmann í
Tónlistarskóla Garðabæjar.
Tónleikamir era jafnframt loka-
próf Margrétar við skólann. Á efn-
isskrá era íslensk og erlend ljóð
og óperaaríur. Öllum er heimill
aðgangur.
Námskeið hjá
Þrídrangi
Dulfræðingurinn Michael L.
Willocks heldur námskeið 8.-9.
apríl sem nefnist „Þú ert afl
þeirra hluta sem gera skal“.
Námskeiðið fer fram á Lauga-
vegi 163, 3. hæð, og byijar klukk-
an 10 á laugardag.
LISTAGÓÐUR MATSEÐILL
Húsió opnar kl. 19. Miómerí 3600.
Kntunars. 29900.
,jðS $
|s IjíS % l:
ÞJÓÐAR
SPAUG
TOfH
Ö5ÓFÍ1H
j'A&A'i Li\LIjL'i
ÍÁUQAíIirmm-
íílVÖLD
■|'s Ifi I i
þarsem allir skemmta sér!!
mánud.
SIÖPDANSLÉÍfcU*!
ÞÖRSÍCAFC
BRAUTARHOLTI20,
SÍMAR 23333 & 2333E
[tM&GÍtöM