Morgunblaðið - 07.04.1989, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐK) IÞROl llR FOSTUDAGUR 7. APRÍL 1989
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Spennandi ein-
vígi Arsenal
og Liverpool
Ásgeir Sigurvinsson og félagar f Stuttgart fögnuðu sætum sigri í fyrrakvöld.
Leikmenn Stuttgart fá
700 þús. kr.ef þeir
komast í UEFA-úrslit
Stuttgartliðið fékk góða dóma fyrir leikinn gegn Dynamo Dresden
EINVÍGI Arsenal og Liverpool
um Englandsmeistaratitilinn er
að ná hámarki. Arsenal er með
þriggja stiga forskot en
Liverpool á einn leiktil góða.
Bæði eiga liðin eftir að leika
fimm heimaleiki. Arsenal á eft-
ir að leika tvo leiki úti, en
Liverpool þrjá.
að er óhætt að afskrifa Nor-
wich, því að félagið á aðeins
eftir að leika tvo heimaleiki, en aft-
ur á móti fjóra leiki á útivöllum.
Arsenal og Liverpool eiga bæði
heimaleiki næst - Arsenal fær
Everton í heimsókn á Highbury, en
Liverpool tekur á móti Sigurði Jóns-
syni og félögum hans á Anfield
Road. Vegna veðreiða verður leikur
Liverpool um morguninn og ef liðið
vinnur Sheff. Wed. með tveggja
marka mun nær liðið toppsætinu
af Arsenal, sem leikurgegn Everton
síðar um daginn.
Margir sérfræðingar eru á því
að úrslit í einvíginu ráðist á Anfield
Road 22. apríl, en þá glíma
Liverpool og Arsenal þar. Ef Arse-
nal nær að halda jöfnu á Anfíeld
Road, vilja margir halda því fram
að Englandsmeistaratitilinn verði
Lundúnarliðsins.
Níu sigrar í röð
Liverpool hefur verið óstöðvandi
að undanfömu og unnið níu leiki í
röð. Hvað stendur þessi sigurganga
lengi yfir? - er stóra spumingin.
Þeir sem hafa fylgst með knatt-
spymu, vita að allar sigurgöngur
taka endi. Það er einmitt það sem
gerir ensku knattspymuna svo
skemmtilega, að það er nær ógjöm-
ingur að spá um úrslit fyrirfram.
Heppnin ekki með Arsenal
A sama tíma og lánið hefur leik-
ið við Liverpool hefur heppnin ekki
verið með Arsenal. Tony Adams
skoraði sjálfsmark og jafnaði, 1:1,
fyrir Man. Utd. um sl. helgi í leik,
sem Arsenal var sterkari í. A þriðju-
daginn kjálkabrotnaði Alan Smith,
markaskorari Arsenal og missir
hann af næstu þremur leikjum liðs-
ins. Niall Quinn tekur sæti hans
gegn Everton, sem hefur aðeins
unnið tvo af síðustu tólf leikjum
sínum.
Hér á síðunni er skrá yfir þá leiki
sem Arsenal og Liverpool eiga eft-
ir. Arsenal endar keppnistímabilið
13. maí með heimaleik gegn Derby,
en Liverpool leikur erfiðan leik í
London - gegn Wimbledon. Úrslitin
í einvíginu geta hæglega ráðist í
þessum leikjum.
„Ég veit að pressan er á okkur.
Við erum með ungt lið og reynslu-
lítið - leikmenn sem eru eru ekki
vanir því að vera í keppni um meist-
aratitilinn. Ef strákamir fara aftur
að taka fram skotskóna og skora -
óttast ég ekkert," sagði George
Graham, framkvæmdastjóri Arse-
nal.
Hver er ástæðan fyrir hinni
glæsilegu sigurgöngu Liverpool að
undanfömu. Gefum Kenny Dalg-
lish, framkvæmdastjóra Liverpool,
orðið. „Þegar Arsenal var með
nítján siga forskot, vorum við
ákveðnir að hugsa ekki um það,
heldur að leika eins góða knatt-
spymu og við höfum getað. Dæmið
hefur gengið upp. Leikmenn mínir
hafa lagt sig alla fram og haft
gaman af því sem þeir eru að gera
- og hver vinningurinn á fætur
öðmm hefur komið í hús. Við mun-
um halda áfram að hafa gaman af
því sem við erum að fást við.“
Það hefur óneitanlega hjálpað
leikmönnum Liverpool mikið að
þeir eru geysilega leikreyndir og
þeir hafa verið með í meistarabar-
áttunni undanfarin ár.
ÁSGEIR Sigurvinasson og fé-
lagar hans hjá Stuttgart fengu
mjög góða dóma í blöðum í
Stuttgart eftir leikinn gegn
Dynamo Dresden. Blöðin
sögðu að Ásgeir hafi leikið sinn
besta leik í langan tíma og að
hann hafi verið óheppinn að
skora ekki mark. Leikmenn
Stuttgart voru óheppnir að
skora ekki fleiri en eitt mark á
Neckar-leikvanginum í
Stuttgart.
Karl Allg;öwer, eða „Knall-
göver,“ eins og hann er kallað-
ur vegna skothörku sinnar, skoraði
eina mark leiksins. Hann sagði eft-
ir leikinn að ef leik-
Frá Einari menn Stuttgart leiki
Stefánssyni eins í Dresden —
iStuttgan ættj
sigur einnig að
vinnast þar. „Það er
þó slæmt að Jiirgen Hartmann get-
ur ekki leikið með okkur í seinni
leiknum." Hartmann, sem lagði upp
mark Allgöwer, fékk að sjá gula
spjaldið í leiknum og verður í leik-
banni í leiknum í Dresden.
Leikmenn Stuttgart fengu
góðan aukapening
64 þús. áhorfendur sáu leik
Stuttgart og Dynamo Dresden,
þannig að hver leikmaður Stuttgart
fékk 280 þús. ísl. kr. í bónus vegna
aðgangseyris. Fyrir utan þetta
fengu þeir bónus frá Stuttgart. Það
er mikið að vinna fyrir Stuttgart
að komast í úrslit í UEFA-bikar-
keppninni. Félagið fær 42 millj. ísl.
kr. í kassann, en hver leikmaður
Stuttgarts myndi fá 420 þús. kr. í
bónus vegna aðgangseyris. Það yrði
uppselt á leikinn - 72 þús. áhorf-
endur.
Hver leikmaður myndi þá fá 700
þús. ísl. kr. í vasann fyrir tvo Evr-
ópuleiki - í bónus vegna aðgangs-
eyris. Leikmennirnir myndu þá fá
3.888 kr. á mínútu, sem þýddi að
þeir hefðu 233.380 kr. í tímakaup.
Leikmenn Stuttgart og íbúar
borgarinnar vilja frekar fá Diego
Maradona og félaga hans hjá Nap-
olí sem mótherja, heldur en leik-
menn Bayern Munchen. Það hefur
verið draumurinn - frá því að
UEFA-bikarkeppnin hófst, að
Stuttgart léki gegn Napolí.
Arftaki Ásgeirs verður
vanfundinn
Mikið hefur verið rætt og ritað
um hvaða leikmaður_gæti tekið við
stjórnunarhlutverki Asgeirs Sigur-
vinssonar þegar hann hættir að
leika hjá Stuttgart. Stuttgart mun
fá um 140 millj. ísl. kr. þegar Jiirg-
en Klinsmann verður seldur frá fé-
laginu. Það er hægt að kaupa góða
leikmenn fyrir þá upphæð og er
líklegt að Stuttgart kaupi frekar
v-þýskan leikmann heldur en út-
lending. Blöð hér segja að Arie
Haan, þjálfari Stuttgart og forráða-
menn félagsins verða að horfast í
augu við það að enginn leikmaður
væri nú sjáanlegur sem gæti tekið
við hlutverki hins 33 ára Sigurvins-
sonar, sem hefur verið lykilmaður
liðsins undanfarin ár.
Leikir Arsenal og Liverpool
ARSENAL:
BHeimaieikir: Everton, Newcastle, Norwich, Derby og Wimbledon.
■Útileikir: Liverpool og Middlesborough.
LIVERPOOL:
■Heimaleikir: Sheffield Wed., Arsenal, QPR, West Ham og Nott-
ingham Forest.
■Útiieikir: Everton, Millwall og Wimbledon
Mm
FOLK
FráJóni
Halldóri
Garðarssyni
ÍV-Þýskalandi
■ KLAUS Augenthaler, fyrir-
liði Bayern MUnchen, framlengdi
í gær samning sinn við Bayern þar
til 1992.
■ DIEGO Mara-
dona, fyrirliði Nap-
olí, sagði fyrir Evr-
ópuleikinn gegn
Bayem, að Aug-
enthaier væri besti vamarleikmað-
ur í heimi og hann vildi hafa leik-
mann eins og hann sem meðspilara.
■ HARALD Kohr, miðvörður
Kasierslautem, sem Bayern
MUnchen og Hamburger hafa
reynt að fá til sín, gengur að öllum
líkindum til liðs við Stuttgart.
Kohr mun þá taka stöðu JUrgen
Klinsmanns. Kohr er einn af
gömlu miðheijunnum - geysilega
sterkur skallamaður. . _
GETRAUNIR /1 X 2
r 1 X Leikir8. apríl 1989 1 1
/ S ;lf|| 1 Arsenal - Everton 1
... Coventry - Norwich ...
2 Middlesbro - Southampton 2 N JHf
X 1
... 1 1 2 Millwall - Man. Utd. Newcastle - Aston Villa QPR - Wimbledon X 1 1
> 1 West Ham - Derby X 1
... Bournemouth - Watford ...
i X 1 Blackburn - Leicester 1 X - 1 IBilff ' i
, 1 Man. City - Swindon X
Oxfo'rd - Stoke
WBA - Chelsea
JÓIM i 5IGURÐUR
Jón Magnússon, verkstjórinn kunni í Laugardalnum,
er nú með þriðju vikuna í röð. „Ég var fyrst með
átta rétta og sex í síðustu viku, þannig að það lítur
vel út með framhaldið. Röðin er einföld og satt best
að segja sþáði ég lítið í hana,“ sagði hann. „En hún
er flott," bætti Jón við og sagðist alveg eins eiga von
á að hafda áfram flórðu vikuna. ■ ■ .....• ■
Sigurður Pálsson var með sex rétta í síðustu viku
ein's og Jón. „Ég er venjulega með 10 leiki
tvítryggða og tvo fasta, en leikurinn gerir ekki ráð
fyrir nema einni röð og því fór sem fór. Núna eru
föstu leikimir hjá mér á milli Manchester City og
Swindon annars vegar og Newcastle og Aston Villa
hins vegar;“ •» 1 .-•'.jJ ''‘-j'' -.r? :‘'
Sprengi-
pottur
Um helgina verður sprengipott-
ur hjá Getraunum og er gert
ráð fyrir að á þriðju milljón verði í
pottinum, en rúmlega milljón krón-
ur, sem hafa safnast síðan í síðustu
sprengiviku, bætast við venjulegan
pott.
Úrslit voru að mestu samkvæmt
bókinni í síðustu viku og voru 18
með 12 rétta og hver um sig 61.761
krónu ríkari. 301 röð kom fram
með 11 rétta og var vinningurinn
fyrir hverja 1.582 krónur.
Fyrirtækjaleikurinn hófst um
helgina með þátttöku 128 liða, en
þar sem um útsláttarkeppni er að
ræða eru 64 lið eftir.
Jón Magnússon, verkstjóri á
Laugardalsvelli, og Sigurður Páls-
son, leikmaður Þórs í knattspyrnu
og Haukamaður í handknattleik,
skildu jafnir í getraunaleik Morgun-
blaðsins og keppa því aftur.