Morgunblaðið - 13.04.1989, Qupperneq 1
64 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
83.tbl. 77. árg.
FIMMTUDAGUR 13. APRIL 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Georgía:
Sj álfstæðiskr öfíir
verða ekki liðnar
Moskvu. Reuter.
:—jgp ..........'v*'"';v V' ”—v" -r--
Reuter
Sovéski herinn hefiir mikinn viðbúnað í Tíflis í Georgíu og eru skriðdrekar og brynvarðar bifreiðar á
hverju strái. Mótmælin um síðustu helgi hafa kostað 19 manns lifíð og þótt nú sé kyrrt að kalla er
andrúmsloftið enn lævi blandið.
Meirihlutí dönsku rík-
isstj ómarinnar í hættu?
Kaupmannahöfn. Frá N.J. Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
HELDUR hefúr syrt í álinn fyrir dönsku stjórninni, samsteypustjórn
íhaldsmanna, venstre og radikala. Miðdemókratar, sem hafa stutt
hana næstum í öllum greinum til þessa, hafa nú ákveðið að leita
nánara samstarfs við jafhaðarmenn.
MÍKHAÍL Gorbatsjov, leiðtogi
Sovétríkjanna, skoraði í gær á
Georgíumenn að halda friðinn
en lagði jafnframt áherslu á, að
Þörf fyr-
ir veiði-
heimildir
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni,
fréttaritara MorgTinblaðsins.
Á óformlegum fúndi sjávarút-
vegsráðherra Evrópubandalags-
ins á Spáni í byijun vikunnar var
ítrekuð þörfín á veiðiheimildum
utan bandalagsins.
Á fundinum voru ræddar skýrsl-
ur, sem Manuel Marin, fram-
kvæmdastjóri EB, lagði fram um
ástandið á fiskmörkuðum EB og
samskiptin við önnur ríki. Var mik-
ið rætt um þann vanda, sem stafar
í senn af minni afla á heimamiðum
EB-ríkja og vaxandi sóknargetu
flotans. Er búist við, að Wolfgang
von Geldern, sjávarútvegsráðherra
V-Þýskalands, muni gera starfs-
bróður sínum, Halldóri Ásgríms-
syni, grein fyrir umræðunum þegar
þeir hittast í Bonn fyrir hádegi í
dag.
kröfúr þeirra um fullt sjálfstæði
yrðu ekki liðnar. Kyrrð er nú
komin á í Georgíu en í gær var
tala látinna vegna átakanna um
siðustu helgi komin upp í 19.
í ávarpi sínu til Georgíumanna
sagði Gorbatsjov, að átökin hefðu
skaðað umbótastefnuna, áætlunina
um að auka fullveldi ríkjanna á sem
flestum sviðum. Að því væri þó
áfram stefnt en ekki með því að
bijóta upp ríkjasambandið. Það
kæmi ekki til greina.
Allt er nú með kyrrum kjörum í
Georgíu en viðbúnaður hersins er
enn mikill. Mikil spenna er þó enn
í landinu og hafa margir í hótunum
við þá, sem snúið hafa aftur til
vinnu í höfuðborginni Tíflis. í dag-
blaði hersins, Krasnaja Zvezda,
sagði í gær, að sumir rússnesku
hermannanna, sem bældu niður
mótmælin, hefðu gengið mjög
harkalega fram og þóst um leið
vera að hefna sín á Georgíumönnum
vegna glæpaverka Stalíns í Rúss-
landi en einræðisherrann var frá
Georgíu.
Edúard Shevardnadze, utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, hefur verið
falið að kanna ástandið í ættlandi
sínu, Georgíu, og er haft eftir blaða-
mönnum við georgíska sjónvarpið,
að honum hafi hvarvetna verið vel
tekið. í gær bauðst Dzhumber Pat-
iashvili, formaður kommúnista-
flokksins í ríkinu, til að segja af sér
embætti vegna mótmælanna.
Bente Juncker, þingflokksritari
miðdemókrata, sagði, að með sam-
vinnunni við jafnaðarmenn hefðu
miðdemókratar einkum efnahags-
málin í huga og ekki síst þau, sem
Varsjárbandalag:
Nýjar til-
lögur um
viðræður
Austur-Berlín, Brussel. Reuter.
Utanríkisráðherrar Varsjár-
bandalagsríkjanna lögðu í gær
ta, að fulltrúar þess og Atlants-
hafsbandalagsins tækju upp við-
ræður um fækkun og uppræt-
ingu skammdrægra kjarnorku-
vopna í Evrópu.
I yfirlýsingu utanríkisráðherr-
anna sagði, að Varsjárbandalagið
vildi hefja viðræður um skamm-
dræg kjarnorkuvopn í Evrópu og
gætu þær farið fram samhliða
Vínarviðræðunum um hefðbundinn
herafla.
Ekki er búist við, að NATO-ríkin
muni svara tillögunni alveg að
bragði og þykir líklegt, að þau
muni vísa á bug algerri upprætingu
skammdrægu vopnanna. Leggja
sum ríkjanna áherslu á, að fyrst
verði að sjást einhver árangur af
viðræðunum um hefðbundna herafl-
anri og efnávoþn.
sneru að félagsmálum. Sagði dag-
blaðið Börsen í gær, að yrði af þess-
ari samvinnu flokkanna væri ríkis-
stjómin „komin út í horn“, hefði
aðeins stuðning Kristilega þjóðar-
flokksins og Framfaraflokksins og
þriggja af fjórum fulltrúum Færey-
inga. Samtals 90 þingmenn en
minni má meirihlutinn ekki vera.
Svend Auken, formaður Jafnað-
armannaflokksins, hefur fagnað
yfirlýsingum miðdemókrata og seg-
ir þær sýna, að stjórnin standi á
brauðfótum. Þá hefur Kofoed-
Svendsen, formaður Kristilega
þjóðarflokksins, látið svo ummælt,
að þótt flokkurinn hafi stutt stjórn-
ina hingað til muni hann ekki gera
UMRÆÐUR urðu á norska Stór-
þinginu í gær um sovéska kjarn-
orkukafbátinn, sem sökk suður
af Bjarnarey, og var Johan Jörg-
en Holst varnarmálaráðherra
harðlega gagnrýndur fyrir að
hafa haldið því leyndu í nokkrar
klukkustundir. Kvaðst hann taka
á sig alla ábyrgð á því.
„Sem æðsti yfirmaður varnar-
málaráðuneytisins tek ég á mig alla
ábyrgð á því, að svo langur tími
leið þar til skýrt var frá slysinu,“
sagði Holst í umræðunum og nefndi
sem ástæðu, að um slysið hefði í
fyrstu verið fjallað sem leyniþjón-
það áfram þegjandi og hljóðalaust.
Segir hann, að í ýmsum málum,
einkum þeim, sem varða lífssýn
kristinna manna, sé flokkurinn á
öndverðum meiði við stjórnarflokk-
ana.
Miðdemókrötum finnst sem
stjórnarflokkarnir hafi ekki staðið
við fjárlagasamkomulagið frá- í des-
ember og hafa þeir sent einstökum
ráðherrum lista jrfir það, sem þeim
þykir hafa farið miður. Þessum
aðfinnslum hafa ráðherrarnir vísað
á bug en það eru einkum fyrir-
hugaðar breytingar á skattalögum,
sem ágreiningur er um. Ole Stavad,
talsmaður jafnaðarmanna í skatta-
málum, segir í viðtali við Börsen,
að jafnaðarmenn og miðdemókratar
muni vafalaust geta náð saman um
þær breytingar, sem nauðsynlegar
séu í dönsku samféiagi á næstu
árum.
ustumál.
Margt bendir til, að Holst hafi
fyrst frétt af slysinu um klukkan
15.00 á föstudag (13.00 að ísl. tíma)
eða næstum samtímis því að sov-
éski kjarnorkukafbáturinn var að
sökkva. Hann hefur því þagað um
það í rúmar sjö klukkustundir en
fyrstu fréttirnar komu fram hjá
bandarískri sjónvarpsstöð kl. 22.00
að norskum típia. Þá vissi yfirstjórn
hersins í Norour-Noregi ekkert um
slysið og Gro Harlem Brundtland
forsætisráðherra fékk sína fyrstu
vitneskju um það í síðasta frétta-
tíma norska sjónvarpsins.
Reuter
Indíáni í Elysée-höll
Francois Mitterrand Frakklandsforseti hafði í gær boð inni í Elysée-
höll í París fyrir indíánahöfðingjann Raoni en hann var kominn alla
leið frá frumskógum Amazonlandsins í Brazilíu til að tala máli síns
fólks. Hefur það víða orðið að hrekjast úr heimkynnum sínum undan
stóijarðeigendum, sem brenna upp skóginn til að fá bithaga fyrir
nautahjarðir. Á þessum sama fundi var einnig söngvarinn Sting en
hann er framarlega í baráttunni fyrir varðveislu regnskóganna, þessar-
ar helstu súrefnisuppsprettu á jörðinni. Eins og sjá má er Raoni í
höfðingjaskrúða og með myndarlega neðrivör en það mun þykja ekki
ófínt í hans átthögum.
Umræður á norska Stórþinginu:
Holst g'agrirýndur
Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgunblaðsins.