Morgunblaðið - 13.04.1989, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1989
Morgunblaðið/Bj arni
Frá fundi fulltrúa HÍK og skólastjórnar Verslunarskólans um
aðgang verkfallsvarða HÍK að skólanum.
V erslunarskólinn:
Samkomulag um að-
gang verkfallsvarða
ÞAÐ KOM ÁGÆTT samkomulag út úr þessum fundi. Við féllumst
á að tveir nafngreindir verkfallsverðir fengju að ganga um skól-
ann,“ sagði Þorvarður Elíasson, skólastjóri Verslunarskóla íslands,
í samtali við Morgunblaðið. Fulltrúar Hins íslenska kennarafélags
og skólastjórn Verslunarskólans funduðu í gærmorgun um aðgang
verkfallsvarða HÍK að skólanum.
„Við álítum að siðferðislegur
réttur okkar verið viðurkenndur og
erum sáttir við þessa niðurstöðu,"
sagði Sigurður Svavarsson, sem
var einn af fulltrúum HÍK á fundin-
um. „Verkfallsverðirfráokkurgeta
nú farið um Verslunarskólann með
samþykki skólanefndar og skóla-
stjóra," sagði Sigurður. Þorvarður
Elíasson sagði að það hefði aldrei
komið til greina að verkfallsverðir
HÍK gengju um skólann án sam-
þykkis húsráðenda.
Verkföll:
Öll bráða-
tilvik leyst
- segir yfírlæknir
Blóðbankans
„Tekist hefur að leysa öll þau
bráðatilfelli, sem upp hafa
komið síðan verkfall náttúru-
fræðinga hófst. Undanþágur
hafa jafnframt verið veittar
fyrir þeim aukaatvikum, sem
upp hafa komið, og þurft hafa
skjóta afgreðslu,“ sagði Ólafur
Jensson, yfirlæknir Blóðbank-
ans, í samtali við Morgunblaðið.
„Öllum neyðartilfellum er sinnt,
en annars er reynt að takmarka
þjónustuna eins og kostur er.
Hinsvegar finnum við fyrir aukn-
um þrýstingi á Blóðbankann eftir
því sem liðið hefur á verkfallið,“
sagði Ólafur.
Einn náttúrufræðingur er á
aðalvakt og annar á aðstoðarvakt
á meðan á verkfalli Félags
íslenskra náttúrufræðinga stend-
ur. Undir venjulegum kringum-
stæðum starfa í Blóðbankanum
ellefu náttúrufræðingar. Að auki
hafa verið veittar heimildir vegna
sérrannsókna í neyðartilvikum og
á það aðallega við þegar skima
þarf blóð með tilliti til lifrabólgu-
veiru og eyðnimótefna og ýmissa
sérrannsókna í neyðartilvikum.
Með þessu móti er hægt að við-
halda þeim blóðbirgðum, sem
kann að þurfa að grípa til í neyð-
artilfellum.
Háskólinn:
Slæmtefpróf-
um seinkar
„ÞAÐ YRÐI GÍFURLEGA
slæmt fyrir stúdenta ef verk-
fall háskólakennara hefði þau
áhrif að prófiim seinki. Það
gæti valdið erfiðleikum varð-
andi sumarvinnu og jafhvel
seinkað útskrift," sagði Jónas
Friðrik Jónsson, formaður
stúdentaráðs Háskóla íslands,
í samtali við Morgunblaðið.
Félag háskólakennara sam-
þykkti í almennri atkvæðagreiðslu
að fara í verkfall 28. apríl næst-
komandi hafi samningar ekki tek-
ist fyrir þann tíma.
Jónas Friðrik sagði að 28. apríl
væri síðasti kennsludagur og al-
menn próf ætti að halda frá 5.
maí til 31. maí.
Frá litningarannsóknadeild
rannsóknastofu Háskólans á
Barónsstíg.
Verkfallið
er bagalegf
- segirJóhann
Heiðar Jóhanns-
son læknir
„HÉR ERU tveir náttúrufræð-
ingar í verkfalli og það er nyög
bagalegt fyrir þá sem þurfa á
þjónustu okkar að halda," sagði
Jóhann Heiðar Jóhannsson,
læknir á litningarannsókna-
deild rannsóknastofu Háskól-
ans á Barónsstíg, í samtali við
Morgunblaðið. Hann sagði að
deildin gerði 350 til 400 litn-
ingarannsóknir á ári.
Jóhann Heiðar sagði að litn-
ingarannsóknir væru til dæmis
gerðar á þunguðum konum sem
orðnar væru 35 ára gamlar.
„Rannsóknin er gerð seint á með-
göngutímanum, eða á 16. viku,
og hún tekur tvær vikur,“ sagði
Jóhann Heiðar. „Það er því mjög
bagalegt ef verkfallið dregst á
langinn, því þá gæti orðið einnar
til tveggja vikna töf á að niður-
stöður rannsóknanna liggi fyrir.
Einnig er hugsanlegt að við verð-
um að fækka þeim sem fá þessa
þjónustu," sagði Jóhann Heiðar.
Nokkrir íslenskir tog-
arar veiða úthafskarfa
FRYSTITOGARARNIR Sjóli
HF og Haraldur Krisljánsson
HF fara á tilraunaveiðar á út-
hafskarfa á Reykjaneshryggn-
um í næstu viku, að sögn Helga
Kristjánssonar hjá Sjólastöð-
inni hf. Stefiit er að því að
Ýmir HF, Mánaberg ÓF og ein-
hver skip í eigu Granda hf.
fari á þessar veiðar í sumar,
að sögn Sveins H. Hjartarsonar
hjá Landssambandi íslenskra
útvegsmanna. Helgi Kristjáns-
son sagði í samtali við Morgun-
blaðið að árið 1987 hefðu verið
veidd 90 þúsund tonn af úthaf-
skarfa á Reykjaneshryggnum
fyrir utan 200 mílna fiskveiði-
lögsögu okkar. Þar af hefðu
Sovétmenn veitt 71 þúsund
tonn.
„Það eru margar ástæður fyrir
því að Haraldur Kristjánsson og
Sjóli fara á úthafskarfaveiðar
núna. Það er til dæmis búið að
minnka grálúðukvóta skipanna og
sóknardagar þeirra eru búnir um
OPNUÐ hafa verið tilboð í yfir-
lagnir vega í Reykjanesumdæmi
Vegagerðarinnar í sumar.
Klæðning hf. átti lægsta tilboð í
klæðingar en Löftorka hf. í mal-
bikun og lögn olíumalar. Lægstu
tilboðin voru 85—90% af kostnað-
aráætlun.
Tilboð Klæðningar hf. í klæðing-
Kom fram
heil á húfi
miðjan þennan mánuð þannig að
við verðum annaðhvort að leggja
skipunum um tíma eða reyna þess-
ar veiðar," sagði Helgi Kristjáns-
son. Hann sagði að stefnt væri
að því að veiðieftirlitsmaður og
Jakob Magnússon frá Hafrann-
sóknastofnun færu með skipunum
á veiðamar. Líklegt væri að settur
yrði kvóti á úthafskarfaveiðamar
og ef svo færi skipti miklu máli
fyrir okkur að hafa tekið þátt í
þeim.
„Við vonumst til að geta selt
Japönum úthafskarfann en hann
hefur ekki verið vel séður hér í
landi vegna smákrabbadýra sem
em á um 20% karfans. Ég reikna
hins vegar með að við hendum
þeim karfa sem er með krabbadýr
á sér,“ sagði Helgi. Hann sagði
að til þess að veiðamar á úthaf-
skarfanum borguðu sig þyrftu
skipin helst að veiða fyrir um eina
milljón króna á dag, eða 25 til 30
tonn. Trúlega væri best að stunda
þessar veiðar frá miðjum apríl og
una var tæplega 11,8 milljónir kr.,
sem er 90% af kostnaðaráætlun,
en hún var 13,1 milljón. Fyrirhugað
er að leggja klæðingu á 144 þúsund
fermetra. Loftorka bauð 13,2 millj-
ónir í malbikun og lögn olíumalar,
samtals 26.500 fermetra, sem er
85% af kostnaðaráætlun er var
15,5 milljónir kr.
S.G. verktakar átti lægsta tilboð
í málun lína á vegi í Suðurlands-
og Reykjanesumdæmum, 2,6 millj-
ónir kr., sem er 74% af kostnaðar-
áætlun. Á þessu svæði á að mála
samtals 160 km akreinalínur og 340
km markalínur.
fram í maí, því þá þjappi karfinn
sér saman í torfur vegna hrygn-
ingar.
Helgi sagði að úthafskarfinn
héldi sig á 200 til 250 faðma dýpi
þar sem Sovétmenn veiddu hann.
„Hampiðjan hefur sett upp fyrir
okkur um 2.500 fermetra flottroll
sem við ætlum að gera tilraunir
með. Trollið kostar 1,4 milljónir
króna og er svipað þeim sem Rúss-
ar nota við þessar veiðar. Möskv-
amir fremst í trollinu eru 32 metr-
ar að stærð og ummálið á því er
1.150 metrar. Ummál venjulegra
flottrolla er hins vegar 500 til 600
metrar," sagði Helgi Kristjánsson.
Reykjavíkurborg:
Rúmlega tvö
þúsund til
sumarstarfa
BÚAST má við að um 800 til
1.000 manns verði ráðnir til
starfa hjá Reykjavíkurborg í
sumar og um 1.200 til 1.400
unglingar á aldrinum 14 til
15 ára verði ráðnir í vinnu-
skóla borgarinnar.
Að sögn Gunnars Helgason-
ar forstöðumanns ráðningar-
stofu Reykjavíkurborgar, hefur
ekki verið tekin endanleg
ákvörðun um hversu margir
verða ráðnir í vor. „Borgin hef-
ur ráðið um 800 til 1.000
manns til sumarstarfa síðastlið-
in 10 ár auk unglinganna í
vinnuskólanum," sagði Gunnar.
Þeir sem eru 16 ára og eldri
fá vinnu við gatnagerð, viðhald
á götum, ræktunarstörf og
skógrækt.
Skráning í almenn störf
hófst 1. apríl en skráning í
vinnuskólann verður auglýst
síðar.
Slitlag á vegi á Reykjanesi:
Lægstu tilboð 85-90%
af kostnaðaráætlun
UNG KONA, sem saknað hafði
verið frá því á sunnudagskvöld,
kom fram í gær, heil á húfi. Hún
hafði dvalist erlendis í nokkra
daga án þess að gera aðstandend-
um vart um.
Bíll hennar hafði fundist mann-
laus við hafnargarðinn á Granda-
garði. Allvíðtæk leit hafði verið
gerð að konunni, meðal annars
höfðu fjörur verið gengnar og kaf-
arar höfðu leitað hennar í höfninni.
Garðyrkjubændur:
Tollhöfii fyrir tré
grænmeti og blóm
GARÐYRKJUBÆNDUR hafa
áhyggjur af innflutningi á plönt-
um og grænmeti vegna hættu á
að með þeim berist ýmis meindýr
Bylgjan/Stjarnan;
Jón Asgeirsson ráð-
inn sem ft*éttas1jóri
JÓN Ásgeirsson hefur verið ráð-
inn fréttastjóri á Bylgj-
una/Stjörnuna. Jón er löngu
landskunnur, fyrst sem frétta-
maður og síðar framkvæmda-
stjóri Rauða krossins. Hann hef-
ur að undanfornu verið fram-
kvæmdastjóri Mannamóta hf. og
Ráðstefnumiðstöðvar Reykjavík-
ur en tekur strax við hinu nýja
starfi.
í frétt frá íslenska Útvarpsfélag-
inu hf. segir að stjórnendur þess
bindi miklar vonir við störf Jóns að
uppbyggingu og eflingu fréttasviðs
Bylgjunnar og Stjörnunnar. Það sé
skýr stefna félagsins að gera alhliða
frétta-og upplýsingamiðlun að
homsteini í framtíðarstarfsemi
- -þessara-útvarpsstöðvar-Jón-Asgeirsson
og vegna hugsanlegrar með-
höndlunar innflutta grænmetis-
ins með eiturefnum. Kemur þetta
fram í ályktun sem samþykkt var
á aðalfundi Sambands garð-
yrkjubænda fyrir skömmu.
Leggja garðyrkjubændur til að
komið verði upp „tollhöfh" fyrir
grænmeti, blóní, tré, runna og
lífræn ræktunarefiii.
í ályktun fundarins er því beint
til landbúnaðarráðherra að allar
vörur verði skoðaðar í tollhöfninni
og að heilbrigðisvottorða verði kraf-
ist í öllum tilvikum. Fundurinn lýsir
fullri ábyrgð á hendur stjórnvöldum
vegna tjóns af völdum skordýra sem
berast með innflutningi.
Meðal annarra samþykkta fund-
arins er áskomn til stjórnvalda um
að fella niður söluskatt af innlendu
grænmeti. Meðal annars vegna þess
að söluskatturinn hafi hækkað verð
grænmetis til neytenda óæskilega
mikið.
Á aðalfundinum var Bjarni
Helgason á Laugalandi endurkosinn
formaður Sambands garðyrkju-
bænda og með honum í stjórn:
Hannes Kristmundsson, Jóhannes
Helgason, Erlingur Ólafsson og
Ingólfur Guðnason.
Samþykkt var samhljóða ósk
Félags garðplöntuframleiðenda um
aðild að Sambandinu. ,•!** *-f