Morgunblaðið - 13.04.1989, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1989
9
UrcTA Pr ííTTnArrnTí/Mi'í tt*£TA uíTjTTTO^^M
‘^INNA OG
FERMINGAR-
GJÖFIN
Þegar Tinna fermdist fékk hún margar skemmtilegar
gjafir, sem henni þótti vœnt um. Það var bara gjöfin frá
frœndunum t Hólagerðinu sem hún vissi ekki hvað hún átti
að gera við. Auðvitað þakkaði hún mjög kurteislega fyrir
og allt það. En samt. . . hvað á fjórtán ára stelpa að
gera við Einingabréf upp á 15.000 kr.P
Og einhvem veginn gleymdi hún bréfunum og rakst ekki á
þau fyrren hún tók til í skúffunum sínum seint um haustið.
Þá hringdi hún í Kaupþing, bara að gamni, til að vita
hvað vœri nú sniðugast að gera við þessi bréf, en mest
langaði hana bara til að fáþessar 15.000 kr.
Það var samt ekki laust við að það rynnu á hana tvœr
grtmur þegar henni var sagt að nú cetti hún ekki
15.000 kr. heldur 17.580 kr* Tinna hœtti við að taka
peningana út. Síðan eru liðin 4 ár og hún hefur alltaf
keypt Einingabréf fyrir hluta af sumarkaupinu. Eitt
haustið keypti hún bréffyrir 25.000 kr., það næsta fyrir
27.000 kr.,þarnæstfyrir 18.000 kr. ogsíðastliðið haust
keypti hún bréf fyrir 35.000 kr.
Tinna útskrifastí vorogœtlaríferðalagmeð krökkunum.
Hún er sú eina í hópnum sem þarf ekki að taka lán fyrir
ferðinni. Það getur hún þakkað frændunum í
Hólagerðinu. Glúmir karlarþað.
*M. v. 20% verðbólgu og 12% raunvexti.
SÖLUGENGI VERÐBHÉFA ÞANN 13. APRlL 1989
EININGABRÉF 1 3.723,-
EININGABRÉF 2 2.079,-
EININGABRÉF 3 2.434,-
LlFEYRISBRÉF 1.872,-
SKAMMTlMABRÉF 1.287,-
KAUPÞING HF
Húsi verslunarinnar, stmi 686988
Alþýðuflok
Ráðherra á flótta
GuðmundurÁrniStefúnsson: Trúiþvíekkiaðráðherrar Alþýðu-
flokksins geri út á að tapa manni íkosningum. Jón Baldvin villsenda
Kjartan Jóhannsson til Briissel. Jón Sigurðsson thugaraðflytja sig í
Kærleiksheimilið
í Morgunblaðinu í fyrradag lýsir Jón Bald-
vin Hannibalsson utanríkisráðherra yfir
því, að niðurstaðan á meðferð Svavars
Gestssonar menntamálaráðherra á máli
Sjafnar Sigurbjörnsdóttur, fráfarandi
skólastjóra Ölduselsskóla, sé „nánast
óhugnanleg". Slík orð nota menn helst
ekki nema um einhver voðaverk. í Þjóð-
viljanum í gær er vegið að ráðherrum
Alþýðuflokksins og sagt að Jón Sigurðs-
son viðskiptaráðherra vilji flýja sökkvandi
skip og komast í framboð í Reykjanes-
kjördæmi. í Alþýðublaðinu er Ögmundur
Jónasson, formaður BSRB, látinn svara
spurningu um það, hvort nýgerður kjara-
samningur hafi verið vinargreiði við Ólaf
Ragnar Grímsson fjármálaráðherra.
Astæður
Svavars
Jón Baldvin Hanni-
balsson, formaður Al-
þýðuflokksins, segir frá
þvi í Morgunblaðsviðtali
á mánudag, að hann og
Sjöfii Sigurbjörnsdóttir
hafi í raun fallist á það
i samtali við Svavar
Gestsson menntamála-
ráðherra, að Sjöfii hætti
sem skólastjóri við Öldu-
selsskóla enda auglýsti
Svavar ekki stöðuna fyrr
en í sumar að loknu
skólaári. Við þessari ósk
varð Svavar hins vegar
ekki og hafði raunar tek-
ið ákvörðun um hið gagn-
stæða áður en hann
ræddi við Jón Baldvin og
Sjöfii, þótt þau væru í
góðri trú um að þau sætu
á sáttafundi með Svav-
ari. Um þetta atferli
menntamálaráðherra
hefur Jón Baldvin haft
þau orð, að „samtalið allt
hafði verið „blekkingar-
leikur og sýndar-
mennska. “
Formaður Alþýðu-
flokksins svarar þvi ekki
beinlínis hvað fyrir Svav-
ari Gestssyni vaki í þessu
máli en segist hafa sagt
honum, að „hann [Svav-
ar] væri af yfirveguðu
ráði að spilla samstarfi
okkar fiokka."
Hér skal tekið undir
þetta mat Jóns Baldvins
Hannibalssonar. Svavar
Gestsson kann til dæmis
að vera að sýna sínum
mönnum í Alþýðubanda-
laginu það svart á hvítu,
að hann þori sko að sýna
Jóni Baldvini og krötum
í tvo heimana, þótt þeir
Ólafur Ragnar Grímsson
og Jón Baldvin hafi farið
um landið á rauðu ljósi.
Það þurfi ekkert að vera
að friðmælast við Al-
þýðuflokkinn til að fá
hann til samstarfs við sig.
Kratar séu í svo veikri
stöðu, að þeir kyngi öllu
sem alþýðubandalags-
menn reki ofan í þá.
Pólitískir
flóttamenn
í síðustu þingkosning-
um fékk Alþýðuflokkur-
inn 16% atkvæða í
Reykjavík og nú sitja
þrír þingmenn flokksins
af listanum í Reykjavík á
Alþingi: Jón Sigurðsson
viðskiptaráðherra, Jó-
hanna Sigurðardóttir fé-
lagsmálaráðherra og Jón
Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra. Þau
skipuðu þtjú efstu sæti
Reykjavikurlistans í
framangreindri röð. Nú
er Alþýðuflokknum ekki
spáð nema 8% fylgi i
kosningum.
Á forsíðu Þjóðvi[jans
er i gær er endurtekinn
orðrómur um að Jón
Baldvin ætli að skipa
Kjartan Jóhannsson
I sendiherra og síðan eigi
Jón Sigurðsson að taka
efeta sæti Kjartans á
framboðslista Alþýðu-
flokksins i Rcykjanes-
kjördæmi. Ber Þjóðvi[j-
inn þcnnan orðróm undir
Guðmund Árna Stefáns-
son, bæjarstjóra Alþýðu-
flokksins í Hafnarfirði,
sem segir meðal annars:
„Mér finnst það mikið
veikleikamerki hjá ráð-
herrunum ef þeir ætla
að gera út á Reykjanes-
kjördæmi. Þeir ættu
frekar að spyija sig
þeirrar spumingar hvort
það sé vegna ráðherr-
anna að flokkurinn
stendur svona illa í skoð-
anakönnunum og taka
þá sjálfum sér tak.“
Af þeim þremur þing-
mönnum sem Alþýðu-
flokkurinn á í Reylgavík
og allir eru í ráðherra-
stólum er þó Jón Sigurðs-
son sá eini, sem er í ör-
uggu sæti, efeta sætinu,
að ætla má. Var honum
tryggð seta í því með
sérstökum hætti og at-
beina Jóns Baldvins. Sé
einhver topp-kratanna í
Reykjavík i fallhættu er
það enginn annar en
formaðurinn sjálfur.
Hvers vegna skyldi hann
ekki fiira í framboð í
Reykjaneskjördæmi?
Dylgjað við
Ögmund
Ogmundur Jónasson,
formaður BSRB, kippir
sér ekki upp við það,
þótt Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráðherra
telji gengisfellingu nauð-
synlega. Eins og kunnugt
er hafiiaði ríkLsstjómin
þeirri kröfú BSRB að
samið yrði um gengi
krónunnar í samningun-
um við BSRB, sem á einu
stigi var þó „algjört" skil-
yrði Ogmundar. Nú segir
hann í Aiþýðublaðinu, á
forsíðu í gær, „þá stund
ekki komna [að gengið
verði fellt] og sagði sam-
tökin sallaróleg þrátt
fyrir að menn blésu á
þennan hátt, eins og
hann orðaði það.
Eftir þessi vinsamlegu
umrnæli um ráðherra
hvalamála og fleira
stendur í Alþýðublaðinu:
„Um orðróm þess efiiis
að samningurinn [við
ríkið] hefði gengið svo
hratt sem raun bar vitni
vegna sérstakrar vináttu
eða samkomulags Qár-
málaráðherra og for-
manns BSRB sagði Ög-
mundur-. „Mér þykir
þetta afar undarieg
söguskýring og eiginlega
verið að vanmeta og van-
virða allt það starf sem
samninganefhdir unnu
með því að eigna þetta
allt einstökum mönnum.
Þessi kenning er af ein-
hverjum undarlegum
toga spunninn."
Hvers vegna ætli Al-
þýðublaðið sjái ástæðu til 1
að dylgja um þessa
„kenningu" á forsíðu
I sinni?
Merkingar
á glös og postulín
Borðbúnaður
fyrir veitingahús.
Allt á einum stað.
Glös eða postulín.
Merkt eða ómerkt.
-^eitiúr-
Bíldshöfða 18-sími 688838
Cterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
BOSCH
borgar sig!
BRÆÐURNIR
(©) ORMSSON HF
Lágmúla 9, sími: 38820 _
Notaðu það einstaka tækifæri
sem þér býðst með áskrift
að spariskírteimim ríkissjóðs.
Hringdu í síma 91-699600
og pantaðu áskrift.