Morgunblaðið - 13.04.1989, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. APRIL 1989
SIEMENS
Bakað, steikt og
glóðarsteikt á
mettíma!
Hann er venjulegur
ofn, grillofn og
örbylgjuofn,
allt í senn.
MICROWELLE PLUS
frá Siemens
ogt,*tftiáa,ne5'
SMUH&
is\e°s
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
Leikhópur LK í sýningunni „Við kynntumst fyrst í Keflavík."
Saga í leikbúningi
eftir Hjálmar
Árnason
Leikfélag Keflavíkur: Við kynnt-
umst fyrst í Keflavík. Höfundur:
Ómar Jóhannsson. Leikstjóri:
Hulda Ólafsdóttir. Leikmynd:
Hulda Ólafsdóttir - og Gfsli B.
Gunnarsson. Búningar: Sigfríður
Sigurðardóttir. Lýsing: Jónas
Þorsteinsson. Hljómsveit: Veigar
Margeirsson, Ari Danfelsson,
Björn Árnason og Júlfus Guð-
mundsson. Sýningar f Félagsbió,
Keflavík.
Um þessar mundir er haldið með
margvíslegum hætti upp á 40 ára
afmæli Keflavíkurkaupstaðar. Leik-
félag staðarins leggur sitt að mörk-
um með sýningunni „Við kynnt-
■ umst fyrst í Keflavík". Verkið mun
samið með afmælishátíðina í huga
GLÆSILEGX
TOSHIBA SL-3258
Þessi f rábæra samstæða, sem seldist upp fyrir
páskana, er komin aftur.
2 x 40 watta magnari
Graphictónjafnari
FM-stereo, MW og LW
2 kassettutæki
Hraöupptaka, síspilun
Hálfsjálfvirkur reimdrifinn
plötuspilari
Geislaspilari með
16 prógrömmum
16 sm breiðbandshátalarar með
bakhljóm
Frábært fermingartilboð:
Aðeins kr. 35.900,"
Kr. 34.100stgr.
Greiðslukjör í allt að 12 mán.
pett*
e/t
Einar Farestveit&Co.hf.
BORQARTÚN 28, SÍMAR: (91) 18995 OQ 622900 - NÆO BfLASTÆOI
og er frumraun höfundarins, Ómars
Jóhannssonar. Um er að ræða nokk-
urs konar revíuform þar sem höf-
undur bregður upp svipmyndum úr
fortíð og nútíð. Kynnir, leikinn af
höfundi sjálfum, stígur fram á svið,
ávarpar leikhúsgesti og leiðir þá
með skoplegum hætti á vit sögunn-
ar. Brugðið er upp fímm meginþátt-
um, dæmigerðum stemmningum úr
bæjarlífinu en hver þeirra er svo
rofinn með spjalli kynnis eða hressi-
legum söngvum.
Það hlýtur að teljast djarfmann-
leg ákvörðun stjómar leikfélagsius
að ráðast til atlögu við jafn við-
kvæmt efni og hér um ræðir, hvað
þá að ganga í smiðju til lítt þekkts
höfundar. Af viðbrögðum leikhús-
gesta á fmmsýningu að dæma er
óhætt að óska Leikfélaginu til ham-
ingju með frumlega og smellna af-
mælisgjöf til bæjarbúa.
Öllu gamni fylgir alvara. Að baki
léttleikans mátti kenna brodda,
suma hvassa. Ugglaust kunna ein-
hver sár að sitja eftir, en þessi
blanda gamans og alvöru er einmitt
styrkur verksins. Af þáttunum
fímm tel ég „sjoppuþáttinn" sístan,
einhvem veginn var hann ekki nógu
markviss og of einhæfur. Hins veg-
ar bjargaði Ámi Ólafsson þeim
þætti með glæsilegri endurfæðingu
„Gvendar þribba", eins af kunnari
Keflavíkingum.
Sviðsmynd er einföld og skyn-
samleg. Hún styður textann í stað
þess að kæfa. Búningar breyttust
skemmtilega í takt við tímann.
Ástæða er til að hrósa tónlistarflytj-
endum agaðan leik. Hvað er revía
án söngs og hvað er söngur án
texta. Grun hef ég um að bútar
með meinlegum textum við grípandi
lög muni heyrast á næstunni á göt-
um Keflavíkur.
Hulda Ólafsdóttir, leikstjóri, hef-
ur greinilega valið þann kostinn að
gefa hverjum leikara nokkúð fijálst
svigrúm til að túlka persónurnar.
Fyrir vikið verða þær hver um sig
skemmtilega trúverðugar og sú
heildarstemmning, sem verkið
krefst, nær að einkenna sýninguna.
Með þem orðum er sennilega einnig
best: að lýsa frammistöðu íeikara.
Á frumsýningu var salur Félags-
bíós þéttsetinn. Leikhúsgestir voru
á ólíkum aldri en innileg viðbrögð
þeirra hljóta að hafa láunað að-
standendum sýningarinnar erfiði
sitt.
Höfundur er skólanieistari.
Mj ólkurkvótinn
Kúabændur and-
vígir aukningu
KÚABÆNDUR eru andvígir því að auka mjólkurfrainleiðslu um
tvær milljónir lítra á næsta ári gegn samsvarandi samdrætti kinda-
kjötsframleiðslunnar. Hugmyndir þessa efhis hafa verið settar fram
en Landssamband kúabænda hafhaði þeim á aðalfundi sambandsins
sem haldinn var fyrir skömmu.
Kúabændur benda á að þegar á
næsta verðlagsári beri ríkið ábyrgð
á 104 milljónum lítra sem er að
hluta til framleiðsla umfram innan-
landsneyslu. Einnig líði óðum að
því að samningar bænda við Fram-
leiðnisjóð um leigu á mjólkurrétti
renni út og þá gæti framleiðslan
aukist um meira en tvær milljónir
lítra til viðbótar. Næðu hugmyndir
um skipti á mjólkur- og sauðfjár-
rétti fram að ganga væri virkur
mjólkurréttur orðinn meira en 108
milljónir lítra við lok gildistíma bú-
vörusamnings en engar líkur á að
hægt sé að afsetja alla þá mjólk
innanlands eða utan.
Innbrot
Brotist inn í skóla
og gælu dýravershin
SÍBROTAMAÐUR var staðinn að
innbroti í gæludýraverslun við
Laugaveg aðfaranótt þriðjudags-
ins.
í fórum mannsins, sem var ölvað-
ur, fundust hamar, glerskeri og um
7000 krónur. Hluta ijárins hafði
hann stolið úr versluninni.
Aðfaranótt þriðjudagsins var
brotist inní Þinghólsskóla í Kópa-
vogi. skemmdir voru unnar en ekki
var vitað hvort einhverju hefði veirð
stolið. 11 rúður voru brotnar í Ár-
bæjarskóla að kvöldi mánudagsins.
Þá var brotist inn í m/s Álftafell
í Reykjavíkurslipp. Rótað var og
skemmt en ekki var vitað hveiju
var stolið.
Þá var brotist inn í bíl við Grettis-
götu og stolið veski með kredit-
korti og ávísanahefti.