Morgunblaðið - 13.04.1989, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1989
17
Aðförin að skóla-
• •
Olduselsskóla
stjóra
eftirJónH.
Guðmundsson
Aðförin að Sjöfn Sigurbjörns-
dóttur, skólastjóra Ölduselsskóla,
hlýtur að vera hverri fordómalausri
manneskju umhugsunarefni.
Strax og Sjöfn var sett til að
gegna þessu embætti upphófust
innan skólans og utan slíkar ofsókn-
ir á hendur henni að dæmalaust er
í skólasögu landsins.
Hvað hafði þá Sjöfn Sigurbjöms-
dóttir unnið til saka?
Svar: Hún hafði leyft sér að
sækja um skólastjórastöðuna í
krafti þess að hafa til þess full rétt-
indi og langa reynslu í skólastarfi
og þáverandi menntamálaráðherra
þóknast að meta hana hæfa til
starfans.
Sá sem þessar línur ritar gerir
sér fulla grein fyrir því að það hafi
ekki verið vandalaust fyrir Sjöfn
að stíga inn fyrir dyr skólans og
hefla þar störf við þær aðstæður,
sem biðu hennar, og hefur þó undir-
ritaður aldrei staðið í slíkum spor-
um. Hitt þykist hann jafnframt vita
að skólahald verður ekki farsælt
nema allir sem þar eiga hlut að
máli, leggi sig fram til þess að það
megi fara vel úr hendi.
En gerningahríðinni að Sjöfn
lauk heldur ekki um leið og hún
settist í stólinn. Skólinn hefur meira
og minna verið í fjölmiðlum þar sem
böndin hafa verið látin berast að
samskiptaerfiðleikum við skóla-
stjórann.
Allir geta víst orðið sammála um
þá. staðreynd að tvo þurf til, svo
að samskipti geti orðið — góð eða
slæm.
Hveijir hafa hlaupið út og suður
í fjölmiðla og niður í menntamála-
ráðuneyti með einlitar sögusagnir
um samskiptaörðugleika í Oldusels-
skóla? Það skyldu þó aldrei vera
þeir sem hatramast börðust gegn
KVEDDII
KVEF og KVILLA
með lyktarlausa hvítlauknum
KYOLIC
Eini alveg lyktarlausi hvítlaukurinn.
2ja ára kaelitæknivinnsla (20 mán.
+ 4 mán.) sem á engan sinn lika í
veröldinni.
Hefur meiri áhrif en hrár hvítlaukur.
Er gæðaprófaöur 250 sinnum á
framleiðslutímanum.
Á að baki 30 ára stöðugar rann-
sóknir japanskra vísindamanna.
Lifrænt ræktaður í ómenguðum
jarðvegi án tilbúins áburðar eða
skordýraeiturs.
Öll önnur hvitlauksframleiðsla notar
hitameðferð.
Hiti eyðileggur hvata og virk efna-
sambönd í hvítlauk og ónýtir heilsu-
bætandi áhrif hans.
- KYOLIC DAGLEGA -
Það gerirgæfumuninn
KYOLIC fæst í heilsuvöru- og lyfja-
verslunum og víðar.
Heildsölubirgðir
LOGALAND,
. heildverslun. Símar 1 -28-04.
setningu Sjafnar í embætti skóla-
stjóra í fyrrasumar með alls konar
upphlaupum og undirskrifasöfnun-
um? Eða standa þeir e.t.v. einir í
þessari iðju, þeir kennarar skólans,
sem nú veifa hótunum um uppsagn-
ir yfir höfði menntamálaráðherra
en hafa ekki af einhveijum ástæð-
um kosið að koma fram í dagsljó-
sið. í þjóðsögunum nefnist þetta
draugagangur. Nú er hér spurt:
Er trúlegt að skólastjóri, sem
tekur við skólastjórn við 'svipaðar
aðstæður og Sjöfn Sigurbjömsdótt-
ir, leiti ekki eftir sarpvinnu við kenn-
aralið skólans og leggi sig ekki fram
í því verkefni að lægja öldurnar
vitandi vits að allt starf hans og
velferð skólans veitur á því að það
takist?
Er hitt ekki miklu líklegra að
þeir, sem í upphafi skáru upp herör
gegn Sjöfn Sigurbjörnsdóttur, hafi
aldrei slíðrað sverðin heldur gert
henni lífið ieitt með það að mark-
miði að hrekja hana frá skólanum
og hafa nú fengið sjálfan mennta-
málaráðherra til liðs við sig?
Jón H. Guðmundsson
Fyrir mörgum árum kom nýr
skólastjóri að einum skólanum í
Kópavogi. Af pólitískum ástæðum
fannst nokkram kennuram skólans
að nýi skólastjórinn væri þeim ekki
þóknanlegur. Þeir gerðu því sam-
þykkt um þagnarbindindi — að
mæla ekki nýja skólastjórann máli.
Fljótlega sprangu þó sumir þeirra
á limminu og tóku að tala en tveir
þeirra þreyttust á málleysinu eftir
veturinn og hurfu á brott um vorið.
Mörgum áram síðar ætlaði þessi
sami skólastjóri að láta af störfum
vegna aldurs, að hans dómi, en fékk
þá í hendur undirritaða áskoran frá
öllum kennuram skólans þess efnis
að hann héldi áfram skólastjórn um
sinn.
Þessi samblástur nokkurra kenn-
ara í þessum skóla í Kópavogi á
sínum tíma endaði sem skrýtla.
En aðförin að Sjöfn Sigurbjörns-
dóttur og nú með menntamálaráð-
herra í broddi fylkingar er. ekki
gamansaga. Hún er alvarleg, póli-
tísk árás á mannhelgi og mannrétt-
indi.
Höfundur er fyrrverandi skóla
stjóri.