Morgunblaðið - 13.04.1989, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1989
19
vexti innlends iðnaðar. Þannig hef-
ur til dæmis bolmagn innlendra iðn-
fyrirtækja til að sinna rannsókna-
og þróunarstarfi verið ákaflega tak-
markað. I þriðja lagi hafa innlendar
orkulindir ekki orðið sú undirstaða
stóriðju sem ætla mátti þótt von-
andi verði þar breyting á næstu
árum eins og ég mun víkja að á
eftir.
Rannsókna- og
þróunaráætlun
Hagnýt rannsókna- og þróunar-
starfsemi í þágu iðnaðarins er ónóg
hér á landi. Reyndar á þetta við
um alla rannsókna- og þróunar-
starfsemi í landinu. Heildarútgjöld
íslendinga til þessa málaflokks í
hlutfalli við þjóðarframleiðslu eru
ekki nema þriðjungur til helmingur
af því sem algengast er í iðnríkjun-
um. Þetta er óviðunandi. Þá er það
sérstakt vandamál hér á landi
hversu lítil framlög fyrirtækjanna
sjálfra tii þessara þarfa eru. Hér
veldur ekki skilningsskortur heldur
skortir fyrirtækin oftast nær ein-
faldlega bolmagn til að ráðast í
viðamikil rannsókna- og þróunar-
verkefni. Hið opinbera hefur því
augljósu hlutverki að gegna við
rekstur rannsóknastofnana í þágu
atvinnulífsins en jafnframt er mikil-
vægt að auka þátttöku fyrirtækj-
anna sjálfra í rannsókna- og þróun-
arstarfsemi.
í þessu skyni var nýlega ákveðið
að hrinda í framkvæmd sérstakri
rannsókna- og þróunaráætlun á
vegum iðnaðarráðuneytisins og Iðn-
tæknistofnunar. Þessi áætlun sem
er til 2—3 ára, verður fólgin í 8—10
skýrt afmörkuðum verkefnum sem
Iðntæknistofnun mun vinna að í
nánu samstarfi við ákveðin fyrir-
tæki. Þáttur stjómvalda í þessari
áætlun er fyrst og fremst fólginn
í því að leggja fram hluta þess fjár
sem þörf er á til að standa straum
af kostnaði við verkefnin. Ég hef
ákveðið að veija í þetta þróunarátak
á þessu ári um 7 milljónum króna
af því fé sem á fjárlögum fyrir árið
1989 er ætlað til iðnþróunar og
iðnaðarrannsókna. Gert er ráð fyrir
að framlag ríkissjóðs nemi fjórðungi
af heildarkostnaði hvers verkefni
en fyrirtækin og ýmsir sjóðir standi
undir þremur fjórðu hlutum hans.
Hér er því um að ræða 60—90 millj-
óna króna átak á næstu árum þeg-
ar allt er talið. Þetta er ef til vill
ekki ýkja há fjárhæð en hún er
engu að síður há miðað við það fé
sem nú er varið til þessara mála.
Það er von mín að þetta frumkvæði
skili sér í aukinni þátttöku fyrir-
tækja í rannsókna- og þróunar-
starfi hér á landi og verði iðnaðinum
jafnframt lyftistöng.
Athugasemdir frá Pottínum og pönnunni
NOKKRAR athugasemdir frá
Pottinum og pönnunni vegna
verðkönnunar Verðlagsstofhun-
ar á matsölustöðum án vínveit-
inga og skyndibitastöðum, sem
Morgunblaðið skýrði frá:
1. Verðkönnun þessi er gerð í
janúar og febrúar 1989 en ekki
birt fyrr en í aprílbyijun. Hún hlýt-
ur því að vera orðin of gömul til
Háskóla-
fyrirlestur
í guðfræði
Föstudaginn 14. apríl flytur
dr. Geoffrey Wainwright, pró-
fessor í trúfræði við Duke Uni-
versity í Bandaríkjunum, fyrir-
lestur í guðfræðideild Háskóla
íslands.
Prófessor Wainwright á sæti í
trúar- og skipulagsmálanefnd Al-
kirkjuráðsins. Fyrirlesturinn verð-
ur haldinn í kennslustofu V í Aðal-
byggingu HÍ og hefst klukkan
10.15.
að gefa rétta mynd af verðlaginu
í dag.
2. Ekki er leitað eftir því að fá
þær tölur staðfestar sem fram koma
í könnuninni hjá forsvarsmanni við-
komandi fyrirtækis til að auka
áreiðanleika þeirra.
3. Með öllu er óraunhæft að bera
saman verð á veitingahúsum með
takmarkaða þjónustu, grillum og
kaffiteríum.
4. Sjálfsagt væri að geta þess
þegar önnur máltíð er innifalin í
verðinu eins og t.d. salatbar.
5. Ódýrasti réttur á dagseðlinum
okkar þegar þessi könnun var gerð,
fyrir utan barnarétti, kostaði kr.
660.00 með salatbar, súpu og kaffi,
en ekki kr. 820.00.
6. Á þeim langa tíma sem leið
frá því að könnunin var gerð og
þar til að hún var birt hefur verð-
lækkun átt sér stað á Pottinum og
pönnunni t.d. á gosi, pilsner og
ýmsum réttum auk þess sem bætt
hefur verið inn á matseðil okkar
nokkrum mjög ódýrum og góðum
réttum. Þetta var m.a. gert til að-
léttara væri fyrir bamafólk að koma
og borða hjá okkur því gos og létt-
ar máltíðir fyrir börn og fullorðna
vógu þungt í þeim kaupum. Sem
sagt síðasta verðlækkun hjá okkur
var gerð rúmum mánuði áður en
könnun þessi var birt.
0HITACHI
Sjónvarpstæki sem
treystandi er á.
3já ára ábyrgð
iíW»RÖNNING
•//“// heimilistæki
KRINGLUNNI OG NJALSGÖTU 49 SÍMI 685868/10259
Til upplýsinga læt ég hér fylgja
með dæmi um rétt verð í dag á
þeim atriðum sem könnuð voru í
„könnun VerðIagsstofnunar“.
Gosdrykkur 60,00 kr.
Pilsner 80,00 kr.
Appelsínusafi (hreinn) 70,00 kr.
Kaffi með mat innifalið
Kaffibolli 50,00 kr.
Súpa dagsins 250,00 kr.
Ódýrasti fiskréttur 470,00 kr.
Súpa innifalin í verði.
Ódýrasti kjötréttur 485,00 kr.
Súpa innifalin í verði.
Bamaréttir frá kr. 230,00 til kr. 330,00.
Að lokum vona ég að Verðlags-
stofnun framkvæmi áreiðanlegri
kannanir í framtíðinni.
F.h. Pottsins og pönnunnar,
Ólafúr Óskarsson, framkvstj.
Einstakt
tækifæri 2. maí
til Spánar
með Veröld
-Þúsparar
allt að
kr. 42.100/
fyrir fjölskylduna
Farþegar okkar á Benidorm og Costa del Sol eru nú
í góðu yfirlæti og veðrið er yndislegt,
um 25 stiga hiti á daginn.
Við seljum nú síðustu sætin til Spánar 2. maí, en
aðrar brottfarir okkar í maí eru uppseldar.
* Verðmismunur í maí og júlí fyrir fjögurra manna fjölskyldu á Benal Beach.
HRflAMIflSTÖfllN
Austurstræti 17, sími 622200.
Málið er svo einfalt
að þegar við kaupum leðursófa-
sett veljum við gegnumlitað
leður og alltaf anilínsútuð
(krómsútuð) leður og leður-
húðir af dýrum frá norðlægum
slóðum eða fjallalöndum -
og yfirleitt óslípaðar húðir
(sem eru endingarbestar).
Ef þú ert í einhveijum vafa um
hvort þú ert að kaupa góða
vöru eða ekki, skaltu bara biðja
okkur um 5 ára ábyrgð.
Húsgagna-höllin
REYKJAVÍK